Vísir - 11.02.1913, Blaðsíða 2

Vísir - 11.02.1913, Blaðsíða 2
V f S I R besta æfing. Hann sagði bæar- verkfræðings-starfið yfirgripsmikið t. d. hefði hann orðið að yfirlíta allar þær byggingar-nefndargerðir, er hjer hefðu komið fram á fund- inum í 20 liðum, hann yrði oft að líta eftir, hvort útmælingar fyrir húsabyggingum væru rjettar o. s. frv., han.i yrði að sjá um snjó- mokstur af götunum í bænum, lagningu skolpræsa, og að sjá um viðgerðir ef þau biluðu, yrði að gera Ióðarmælingar og m. fl. Hann kvað sjer finnast lítil ástæða, að hafa á móti honum fyrir eftirlitið á Lækjarvinnunni og Austurstrætis- viðgerðinni, þótt Tr. G. þættist sjá að gera hefði mátt þau mannvirki fyrir nn'nna fje. Tr. G. ætti líka að vita það af sjálfs síns reynslu, því að sumt af þeini verkum, er hanr. hafi látið framkvæma, hefðu farið langt fram úr áætlun, svo sem Olvisárbrúin og bæarbryggjan, og hafi það þá verið af því, að hann Tr. G. kynni ekki verkstjórn. Frh. Ekki er alt guil, sem glóir. Skáldsaga eftir Charles Oarvice. ----- 1 rh. 10. kap. Raymond var ekki rótt í skapi, er hann kom heim, og kom ekki dúr á augu alla nóttina, hvernig sem hann reyndi að gleyma því, sem fyrir hann hafði komið. Hann gat ekki annað en kannast við, að hinn ókunni maður vissi óþægilega mikið um alla hagi hans. En hvernig gat staðið á því ? Gat það verið, að herbergisþjónn hans hefði sagt of mikið •— eða var mögulegt, að maðurinn hefði nokkur mök við Jakob Levy, sem hann því miður skuldaði of fjár. Hann velti þessu fyrir sjer fram og aftur, en þetta var engu að síður jafnóskiljanlegt. En eitt var víst, og það var það, að þessi maður, hver sem hann var. hann varð að þegja, hvað sem þ^ð kostaði. Þegar hann kom niður daginn eftir var ekki talað um annað en hrakfarir hans, því jarlinn var bú- inn að frjetta alla söguna. »Þetta er mjög einkenni!egt«, sagði Hubert Denville nokkru á eftir yið vin sinn, er þeir voru að ganga úti í garðinum, »en þú hlýtur að geta náð í dólginn. Það er flpkkumannaflokkur hjerna úti á Alrrienningnum. Jeg er viss unr,að þú finnur hann, ef þú leitar hans þar.« »BIessaður, við skulum ekki tala meira um þetta«. sagði Raymond óþolinmóðlega. »Jeg er orðinn dauðleiður á því.« »Jæja, látum svo vera; jeg ætl- aði líka aðeins að spyrja þig, hvort þú nentir að koma út á almenn- ingana með mjer; það ersvoskolli snotur stelpa þar, sem væri gaman að líta á, og það væri svo ágætt erindi að leita að óbótamanninum.« Raymond fjelst undireins á þetta, \ því hann hafði verið að velta fyrir sjer, hvað hann ætti að gera sjer til erindis til flökkumannanna. »Jæja, við skulum þágangaþang- , að snöggvast*, sagði hann svo og fleygði vindlingsstubbnum út í eitt blómbeðið. »Mjer þykir leitt, að eg get ekki fárið núna, eg var búinn *að !ofa ungfrú Slade að fara með henni, að skoða einhverjar frægar rústir hjer í grend. Þú skalt ekki vera að bíða eftir mjer, en þú skalt gæta þín fyrir varðhimdinum stelpunnar, hann er stór og fallegur og æði bráður.« Raymond ýgldistábrún og sagði: »Er það hár, dökkhærður ruddi, sem lítur talsvert mikið á sjálfan sig?« »Já, það er hann, sem jeg á viðí hann er nokkuð stærilátur, cins og þú segir.« »Já, en jeg vona, að hann sje ekki búinn að glevma meðferðinni, sem hann fjekk hjá mjer hjerna á dögunum.* »Nei, það er vonandi«, sagði Denville hlæjandi, því hann vissi. hvernig flökkumaðurinp hafði leilc ið á Raymond. »En það er nú samt best fyrir þig að vera heldur varkár, flökkumenn eru íllir viður- eignar, ef þeim finst sjer misboðið, svo er þar einnig gömul kerling, sem einnig gætir stelpunnar, það er afskræmis Ijótt kvikindi, skorpin og i hrukkótt — — en þú skalt samt fara og freisia gæfunnar.« Frh. Atvinnufyrirfæki. Maður sem ætlar að byrja á litlu, áhættulausu atvinnufyrirtæki, vantar peninga til reksturs. Samvinna get- ur komið til greina, ef ástæður Ieyfa. Tilboð með tilgreindri fjárupphæð. merkt »Atvinnufyrirtæki«, sendist á afgreiðslu »Vísis.« fyrir 15. febr. þ. á Massage-læknir GUÐM. PJETURSSON. Skólavörðustíg 4 C. Heima kl. 6—7 síðdegis. Útgefandi: Einar Gunnarsson, cand. phi!., ðstlunds-prentsmiðja. 6U Fæst á eftirskráðum útsöiustöðum : Lúðv. Hafliðason kaupm., Vesturgöíu. Ciiuðm. Olsen kaupm., Aðalstræti 6. Versiunin Caria Qisesr, Austurstræti IT. Jón Zoega kaupm., Bankastræti. H ans Petersen kauom,, Bankasfræti. Ólafur Óiafsson kaupm., Laugaveg 19. Ói. Ámundason kaupm , Laugaveg 22 A. Jón kaupm. frá Vaðnesi, Laugaveg. ÍVIart. Eínarsson kauprn. * Laugaveg 44. Verslunirs Von, , , Laugaveg 55. Am. Arrtason kaupm., Hvarfisgötu 3. Bergsteinn Magnússon bakari, Hverfisgötu'34. Sngvar Pálsson kattpm., , Hverfisgötu 13. Ag.Thorsteinssðn kaupm., .Grettisgötu S. Versiunin Breiðablik Lækjargötu i Q B. Brauðsalan, Laufásveg 4. ©g í Worðurstíg 4. Talsími 354. Ölið er ffutt um aiian bæinn. Hringsð aðeins til heitir tauið, sem klæðaverksmiðjan Iðunn hefur sjerstaklega búið til handa sjómönnum í slitbuxnr og ferðamönnum í reiðjakka. Næsfutn óslítandi, hlýtt og billegt. Skoöið það — og reynið svo, hvort ekki er satt. No. 354. IIIMIIillllS I'1IIHIIIIIHIIIIII Hús og lóðir í miðúænum eru til sölu. íbúðir til leigu í miðbsenum. Lysthafendur snúi sjer tii Sigurjóns Sigurðssonar snikkara, Templarasundi 5. 322 KAUPSKAPUR ^ Ung, vei feit hæns -- helst kyllingar eru heypt hœsta verdi alla þessa vika á Hótel Eeykjavík. Sjómenn ! Vönduð og ódýr sjóstígvjel fást á Hverfisgötu 26 B. Fatnaður allskonar, nýr og brúkaður, er til sölu í Þingholts- stræti 7. Þar er tekið á móti fatnaði til sölu. Vagnhestur óskast keyptur. Tilboð með tilgreindum aldri, lit o. s. frv., merkt »Vagnhestuf«, skilist á aígreiðslu Vísis. Búðarsíúlka óskast, dugleg og áreiðanleg, sem fyrsía afgreiðslustúlka í vefnaðarvöru- búð frá 1 apríl n. k. Verður að vera vel vön veínaðarverslun og geta sýnt meðmæli. Hátt kaup í boði. Umsóknir sendist inrian tveggja daga á afgreiðslu Vísis. merkt »VefnaðarvöruversIun«. K E N S L A Kensía í þýsku e.'isku, dönsku o, fl. fæst hjá cand. Halldóri Jónassynl, Vonarstræti 12. II. Sími. 278. Tilsögn í að sníða karlmanns- fatnaði og kvenna og að taka mái fæst með mjög góðum kjör- um. Uppl. á Laugav. 27B. L E I G A Sófi eða divan óskast til leigu. Uppl. Bjargarstíg 5. f TAPAD-FUNDID Pyngja tapaðist 8. febr. síðastl. Skilist á afgr. Vísis. Hárkambur og gleraugu fund- in. Afgr. vísar á. Q H Ú s N Æ 0 I g Skrifsfofur. í miðju Austur.træti fæst leigð nú |aegar jarjú herbergi, ágæt fyrir skrifstofur. Afgr. v. á. Stoía er til leigu nú þegar tii 14. maí n. k. á Stýrimannastíg 8. 2—3 herbergí ásamt eldhúsi óskast frá 14. maí i Vesturbæn- uni. Afgr. v. á. 2—3 herbergi og eldhús lil leigu frá 14. maí. Uppl. Björn Blöndal, Pingholtsstræti%26.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.