Vísir - 11.06.1913, Blaðsíða 2

Vísir - 11.06.1913, Blaðsíða 2
V í S 1 R mánudagirm var haldið próf yfir honum og játaði hann þá á sig glæp sinn. Verður ekkert af aust- urferð hans að þessu smni ogbíð- i.r hann dóms síns í »steininum«. Er þetta 5. giæpamálið, sem Guðni lendir í. Hvað vikublöðin segja, Ingólfur (10.); Ótíðindi (um að ráðherra leggur íslensk löggjaf- armál undir ráðgjafaráðið danska). — Átránaður, frh. — Athugasemd (um stefnuleysi og óheilindi í fjár- málapólitíkinni íslensku). K. F. U. M. Kl. 8V2 Væringjafundur. (Vær- ingjar komi saman heima en ekki úti á melum. KL 8j/3 Vinna úti á melum. HEITUR MATUR J fæst allan daginn á Lauga- sf veg 23. Einnig fæst brauð § og smjör, margar tegundir É af öli og limcnade, kaffi, ® sukkulade o. fl. M J Ur umræðum bæarstj órnari n nar. 5. júní. Hannes Ha/liðason sagðist álíta veiðitímann ónógan, ef niönnum væri ekki leyft að veiða allan sólarhringinn; því væri svo hátt- að með laxveiðina í ánum, að hún færi eftir veðri og birtu, það gæti því hits svo á, að sá tfmi dagsins, sem mönnum væri leigð veiðin, yrði þeim að öllu ónýtur vegna veðurs og birtu, sem gœti leikið á ýmsu, stund- um væri betra að veiða á dag- inn og aðra tíma á nóttunni. Englendingum þeim, er leigt hefðu árnar undanfarin ár, hefðu engin takmörk verið sett, hvað tímann snerti, og engin ástæða væri að ætla íslendinga verri þeim. Kfltrín Magnússon kvaðst ekki vilja, að veiðitíminn væri lengri en 12 kl. st. í sólarhring, þar það mundi spilla veiðinni, enda væri það nóg fyrir ekki meiri leigu, en 20 kr. fyrir daginn, sem væri lítið, þar sem áður hefði fengist um 80 kr. leigu fyrir árnar um sólarhringinn, sagðist álíta að betra væri að láta alls ekki veiða í ánum, en spilla henni með því, að leiga þær dag eftir dag fyrir svona lága borgun 24 kl. st. veiðifrelsi, slíkt væri ekki til- vinnandi. Tr. Gunnarsson sagðist vilja, að laxveiði í ánum væri ekki leigð dag og dag, það væri betra að leigja hana alls ekki, því þá mundi hægt að fá hærri leigu fyrir árnar næsta ár. Aftur gæti hann þó verið með því, að þær yrðu leigðar í sumar, ef einhver biðist til að taka þær fyrir lengri tíma, t. d. hálfan leigutímann. Borgarstjóri spurði að, hverju svara ætti tilboði Mr. Davids- sons. Jón Jensson sagðist ekki álíta það neitt freistandi tilboð, til þess að ganga að því, það væri lægsta tilboð, sem hefði komið til veiðirjettar í ánum um lengri tíma; áliti því betra að bíða eftir því, hvort ekki fengist betra til- boð._________________Frh. ^ Cymöelína v liin fagra. Skáldsaga eftir Charles Garvice. --- Frh. Appeísínur fyrlr 6 aura á Vesí- urgötu 50» Talsími 403. Samþyktur uppdráttur af litlu og mjög vel löguðu íbúðarhúsi, ásamt gröfnum kjallara og hæfilegri lóð, á fegursta stað við miðbæinn — »Hólavelli«. Semjið sem fyrst við Vi!hj. Ingvarsson, Suðurgötu 20. Vindlar, cigarettur og tóbak gott og ódýrt á Vesturgötu 50. »f>jer getið það : Þjer getið farið og lofað mjer að vera i friði — hjeö- an í frá !« hefði hún átt að svara. En í atað þess stundi hún þungan og dró hægt til sín höndina, seni hann hafði gripið í. » Hefur faðir yðar spurt eftir mjer?« sagði jarl. Cymbelína roðnaði Iítiö eitt. »Já, en hann er mjög veikur, og jeg held ekki, að —« í sömu svifum lauk Sússanna upp hurðinni og mælti: »Fyrirgefið, ungfrú ! Húsbónd- ann langar til að tala við hágöfug- an jarlinn, áður en hann fer.« Bellmaire jarl leit á Cymbelínu ; hún hleypti brúnum og leit undan. »Jeg skal ekki koma til hans, ef þjer haldið. að það sje lieppi- legra,« sagði hann ofur blíðlega. »Jú, það er best, að þjer gerið það,« sagði hún. »Hann er svo óþolinmóður og ekki með sjálfum sjer!« Hann læddist uppp og Cymbe- lína fleygði sjer niður í legubekkinn og huldi andlitið í höndum sjer. Hún var eins og rádýr, sem er elt og hrakið í kró, sem engrar undan- komu er auðið úr, m<'ð hundageliið á hælum sjer og hættuna beint fyrir augum. Jarlinn fór raldeiðis inn í sjúkra- herbergið og gekk að rúminu. Gamli maðurinn sá hann og þekti hann. Hann benti honum að koma nær og jarlinn settist á rúmstokkinn, tók í hönd hans og Iaut niður að hon- um til þess að heyra betur, hvað hann vildi mæla. »Hafið þjer — fundið hana?« spurði hann mjög rámur í rómi. ]arl kinkaði kolli. Hann ætlaði sjer ekki að láta á neinu bera, fyrri en hann vissi, hvort yfirforingjanum væri kunnugt um, að Cymbelína hefði veitt sjer afsvar. North lagði aftur augun og reyndi að brosa. »Það — það gleður mig mjög, Beilmaire, — mjög svo!« Bellmaire jarl hrökk við dálítið, liann hjelt að gamli maðurinn hefði fengið dráð. »Já, það gleður mig mjög. Þjer vitið hvernig komið er, kæri vinur. Jeg er eignalaus, — allslaus! Þessi — þessi þorpari rændi mig og veslings barnið mitt öllu! Það — það hefur nærri því riðið mjer að fullu! Gerir yður það nokkuð til, - Bellmaire, hvort hún á eignir eða er allslaus?« Frh. í Breytingar á búðum og húsum. S^£SXYU§a\>\wwwsta$ao Hverfisgötu 10. (Bakhús.) Undirritaður, sem hefur unnið á lijerlendum og erlendum betri vinnustofuni, hefur bundist fjelagsskap með herra Þor- steini Ágústssyni, sem um mörg ár hefur unnið á einni af bestu vinnustofum Reykjavíkur. Oss eru því kunnar bestu að- ferðir við framleiðslu á vönduðum húsgögnum, og væntum vjer þeirrar ánægju að vinna fyrir yður. Virðingarfylst. ‘Jtedevvksew. ^ITÍo. Efni þurkað við mlðstððvarhlta. Handsápa, þvottasápa, Vasguit og sódi. Vesturgötu 50. Ágætt brent og malað KAFFI fæst í verslun Ásgríms Eyþórssonar Austurstræti 18. Sími 316. Guðm. Benjamínsson, Qrettisg. 10,, llytur fólk og flutning milli Rvíkur og Hafnarfjarðar. Sími 149. foac&swwxwa aSav og notið ekki cement, nema þetta Kvennmaður óskar eftir atvinnu annaðhvort við sauma eða innan- hússtörf. Afgr. v. á. Stúlka óskast í borðstofuna á Skjaldbreið. Uppl. gefur borðstúlkan þar. Stúlka alvön matreiðslu óskar eftir atvinnu. Uppl. gefur Steinunn Bjartmarsdóttir, Laugav. 24. Prjón allskonar tek jeg að mjer ódýrar en nokkur annar. Fljótt og vel af hendi leyst. Ólafía Isfeld, Norðurstíg 3 niðri. skrásetta vörumerki sje á umbúðunum. 1—3 lierbergi með húsbúnaði, björt og stór, fást til leigu á Suður- götu 14., einstök eða öll saman, Eldhús fylgir ekki. TAPAÐ-FUNDIÐ 5 kr. fundnar. Afgr. v. á. Hæna svört tapaðist fyrir 4 dög- um.Skilist gegn fundarl.á Grettisg.22. Sýrukútur fundinn á floti á sjó. Sig. Jónsson, Hverfisgötu 2 B. Útgefandi: Einar Gunnarsson, cand. phll. Östlunds-prentsmiðja. Drengur getur fengið atvinnu nú þegar við sendiferðir. Uppl. á afgr. Vísis. Formiðdagsstúlka óskast frá 1. júlí í Þinglioltsstræti 27. Kaupakona óskast. Uppl. gefur Jóhann Ármann, úrsmiður. Lauga- veg 12. KAUPSKAPUR Diskvog lítil (1 kíló) óskast til kaups. Afgr. v. á. Saumavjel lítið brúkuð fæst með tækifærisverði. Afgr. v. á. 5 álnir af tvíbreiðu, dökkbláu karlm.fataefni til sölu af sjerstökum ástæðum. Afgr. v. á. Ferðataska óskast til kaups. Afgr. v. á. Reiðhjól (karlm.) er til sölu með tækifærisverði. Uppl. Laugav. 20 B. Barnavagn brúkaður er til sölu ódýrt. Norðurstíg 7. Nielsen.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.