Vísir - 23.08.1913, Blaðsíða 2

Vísir - 23.08.1913, Blaðsíða 2
V í S I R og lagöist upp í rúm. Skömmu síðar bað hann að losa flibbajni a! hálsi sjer og seldi hann þá upp. Ekki voru í húsinu nema kona hans og bróðurdóttir hennar, ungfrú Ingibjörg Brands. Vildu þaer láta sækja Iækni en hann aftók það með fyrstu, þar sem þetta væri ekki neitt, Ijet þó til leiðast, að Guðm. Magnússon yrði sóttur, hann áttaði sig þó fljótt á því, að hann væri erlendis, og vildi þá þann lækni, sem fyrir liann starfaði. í því fór Mattías Einarsson þar framhjá og var kallað til hans og hann beðinn að koma. Hann hlustaði hjarta og brjóst og fanst alt eðli- !egt, bjóst við, að þetta stafaði frá maganum og myndi batna mjög bráðlega. Ráðlagði Hoffmannsdropa og flóaða injólk og hjelt svo áfram. Meðan farið var í lyfjabúðina, sem er næsta hús, þyngdi sjúklingnum og komu fram krampateygjur í andlitinu. Fór þá ungfrú I. Brands í ofboði yfir í alþingishúsi í þeirri von, að hitta þar Iandlækni Guðm. Björnsson. Þar var þá staddur Sæm. Bjarnhjeðinsson og brá hann þegar við, en er hann kom, var sjúklingur að dauða kominn. Reynd var kamfórulnnsprautun, en kom fyrir ekki. Á næstu mínútu var hann andaður. Er dauðameinið talið heilablóðfall. Öll börn skáldsins voru fjærverandi frá heimilinu, þegar andlátið bar að. Haraldur steig á skipsfjöl daginn áður, til þess að sigla til Hafnarháskóla , en dæturnar voru í sumarfríi, önnur eystra, en hin í Hafnarfirði. Þær komu síðar um kveldið. Steingrímur mun hafa orðið hverjum manni hjer á landi harmdauða. Flögg voru dregin á miðja stöng um allan bæinn um kveldið. Gymbelína Mn fagra. Skáldsaga efíir Charles Oarvice. ---- Frh. Hún hrökk við og tók skref á bak aftur. Sex heila mánuði alein hjá honum! Hún gat ekki hugsað til þess. Henni fanst eins og köldu væri skvett fram- an í sig. Hún hugsaði ekki um það, mundi ekki eftir því, að hún átti ekki að eins að vera hjá honum missiristíma, heldur það sem eftir væri æfinnar! »Nú, er það oflangt? Segjum þá þrjá?« »Mánuður er nóg! Pabbi er veikur enn og ekki svo hress, að hættulaust sje, að skilja hann eftir. Já, jeg held að mánuður sje nógu langur tími!« Hann döknaði yfirliíum. Kuldi hennar og auðsær viðbjóður á að vera með honum, stakk hann eins og hnffur í hjarta. »Pú skalt ráða, ekki að eins í þessu, heldur og í öllu öðru, Cýmbelína,« sagði hann ákaft. »Láttu þjer alveg á sama standa um óskir mínar. Gerðu eins og þjer líkar í öllu og jeg læt mjer það vel !íka.« — Hann hamaðistað búa undir brúðkaupið, með svo miklu eirðar- leysi, að hann virtist engan frið hafa fyrri, en hann hafði komið öllu í kring. Þótt hann hefði margbreytt jarlssetrinu síðan hann tók við því og bætt húsaskipun þar á ýmsati hátt, fanst honum enn þá nauðsyn til bera, að breyta enn, skreyta og auka ýms þæg- indi, áður en konan hans tilvon- andí tæki þar við búsforráðum. »Engin hefðarfrú ríkisins skal búa í slíkum húsakynnum!« sagði hann við North yfirforingja kvöld eitt, er hann gekk um gólf í svefnherbergi hans, þar sem yfir- foringinn sat hreykinn og ham- itigjusamur í hægindastól mikl- um og horfði á jarlinn, tengda- soninn tilvonandi. »Gimsteinn- inn minn fær öskju til að geym- ast í, sem er við hans hæfi!« Ljett var að greiða úr öllum peninga- og fjármálaflækjum yfir- foringjans úr þessu. Jarlinn sendi eftir Bradworthy lögmanni og bað hann að borga allar skuldir yfir- foringjans, leysa hann úr öllum ábyrgðum ogkröggum og ánafna honum og setja á vöxtu álitleg- an lífeyri, svo hann gæti fram- vegis lifað öllum óháður. BRENNI ! ^ til uppkveikju fæst hjá ^ ^Timbur- og Kolaversl.,Reykjavik‘.^ æk innleudar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG 1 "I °&1í kaupa menn í 111 -BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR, / Lækjargötu 2. í verslunina EDINBORG eru nýkomnar allskonar leir- og gler-vörur. Ótal tegundir, margt nýtt, sem ekki hefur sjesí hjer áður. Par á meðai Piano-hljómaukar, blómpípur, blóm- vasar frá 15 aur. til 3 kr. Skeija-asjettur frá 0,12—2 kr., o. m. fl. 100 tegundir bollapara, frá 0,12—2 kr. Diskar, ótal tegundir, afar ódýrar. ^fettma mlktl 4m$A aj fpvottasUUtttn, s^kttvkevttm, tjóma- Itönttttm og atts%.onM* teu- og gter-oövttm. 'Jevlattojott og föskttt, twevgl meua úvoat. “Jatatjtttstav ajtsv&als góltv, mavgav tegttttóu. Bradworthy hafði aldrei verið mikið um jarlinn gefið, en nú varð þessi gamli gæðamaður honum bæði þakklátur og um leið forviða. »Yður ferst göfugmannlega, lávarður minn!« sagði hann með- an hann var að skrifa, »reglu lega prúðmannlega, ef jeg má í svo að orði kveða!« Bellmaire jari brosti einkenni- lega. Frh. KAUPSKAPUR 10 hestar verða seldir með góð>u j1 verði laugardaginu 23. þ. m. á ! Holtsgötu 8. Sveinbjörn Sæmunds- 1 son. Þeir, sem vilja fá kenslu í Barnaskóla Reykjavíkur fyrir börn yngri Nótur, lítið brúkaðar, tH sölu næstu daga í Þingholtsstr. 28. niðri. en 10 ára, verða að sækja skriflega um það fyrir 6. sept. næstkomandi. H Ú S N Æ 2—3 herbergi og edlhús óskast til leigu á góðum stað í bænum frá 1. okt. Afgr. v. á. L E I G A Orgel óskast til leigu nú þegar. Afgr. v. á. K E N S L A Stöfunarbörn verða tekin frá 1. okt. (eða miðjum september, ef óskað er), og þeim veitt tilsögn eftir þörfum. Upplýsingar í »Ási« eða síma 236. Ef sótt er um ókeypis kenslu, verður sjerstaklega að geta þess í um- sókninni. Fæðingardag og ár verður að tilgreina. Vegna rúmleysis í skólahúsinu er þess ekki að vænta, að yngri en 8l/2 árs börn fái inn- töku í skólann. Eyðublöð undir umsóknir fást hjá skólastj., borgarstj. og skólanefndarmönnuni. Umsóknir sendist borgarstjóra. Skólanefndin. atvinnu um tíma, nú þegar. Uppl. í Þingholtsstræli 7, (niðri.) Útgefandi: Kolamokari óskar eftir plássi. Einar Gunnarsson, cand. phll. Góð meðmæli. Afgr. v. á, _____:_______________________ Trjesmiður vanur óskar eftir Östlundsprentsm. t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.