Vísir - 29.08.1914, Blaðsíða 2
V I S I R
VSSI R
Starsía biað á islenska tungu.
Árgangurinn (400—5C0 blöð) kostar
erlenöis kr. 9.00 eða 21/, dollars, innan-
lands l.r.7 00. Ársfj.kr.1,75, mán kr. 0,60.
Skrifsfofa og afgreiðslustofa í Austur-
stræti 14 opin kl. 8 árd. til kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. 26.
Ritetjdri Einar Gunnarssan
vemule£ra ti! viötals kl. 5—7.
GrEELA-
BAM&ÓMA-
STOFA
Gísla Guðmundssonar
Lækjargötu 14B (uppi á lofti) er
venjulega opin 11-3 virka daga.
^ÖS\<\tt,
Eftir Frederick Z, Roocker.
----- Frh.
Aö niorgni hins tíunda rlags er
haldin hátíðleg messa Heilögum
anda sem er sjerstaklega ákallaður
til heilla hinni mikilvægu kosningu
sem fram á að fara. Síðari hluta
dagsins safnast allir kardínálarnir
sem náð hafa til Rómaborgar, upp
í Vatíkanið og kasta hlutkesti um
herbergin er þeir eiga að hafa og
búa um sig þar. Þá er farið til
Sextínsku kapellunnar og er þar lýst
tilefni samkomunnar og lög og
reglur Konklavsins lesnar upp fyrir
þeim og skýrðar út í æsar. Að
því búnu vinna kardínáJarnir trún-
aðareiða sína og fara svo til her-
bergja sinna og taka á móti heim-
sóknum starfsmanna samkundunnar
og þeirra utanaðkomandi manna
sem rjett hafa til að heilsa upp á
þá áður en lokað er dyrunuin. Á
ákveðinni stund ersíðan hringt bjöllu
fyrir utan dyr hvers kardínála til
þess að gefa heimsækjendunum til
kynna að heimsóknartíminn sje far-
inn að styttast. Sama hringing er
síðan endurtekin eftir hálftíma og í
þriðja sinn eftir sama tíma og þá
um leið sagt að nú verði allir óvið-
komandi samkundunni að fara út.
Þvínæst kemur kardínálaráðsmaður-
inn og með honum þeir þrír er
mynda stjórnarnefnd þá sem áður
er nefnd og kanna öll húsakynni
og þar á meðal öll herbergi kardí-
nálanna til þess að fullvissa sig um
að þar sjeu engir aðrir en.kardínál-
arnir og að því búnu loka þeir
Konklavinu.
Næsta morgun kl. 8 gengur
siðameistarinn um Konklavið og
kallar alla á fund í Sixtínsku kap-
ellunni. Þar koma þeir allir saman
og les kardínálaráðsmaðurinn messu
og veitir öllum kardínálunum heilagt
sakramenli. — Að þessu búnu fara
þeir til herbergja sinna og neyta
morgunverðar og snúa síðan aftur
til Sixtínsku kapellunnar til fyrstu
atkvæðagreiðslu. — Uppi við a)t-
arið er stóll sem ætlaður er þeim
sem kann að verða kosinn páfi. —
Á borði cinu stendur kassi með
trjekúlum f og er á hverja þeirra
ritað nafn eins kardínála. Þessum
kúlum er blandað saman við byrj-
un hverrar kosningar og dregur
kardínálaráðsmaðurinn þrjáraf þeim
út til þess aö ákveða hverjir skuli
telja atkvæðin fyrir þessa atkvæða-
Landakofsskölinn
byrjar 1. september kl 10 f. h
Saltkjöt fæst t
J. P, T. Brydesverslun.
Fiskifars
er daglega til í
CY^m\S\\mn\ V
Kæfa
frá
er allrar kæfu best.
STIMPi LPtJÐAR
með ýmsum litum og stimpilblek fæst
enn á afgreiðslu Vísis.
— Fæst ekki frá útlöndum meðan stríðið stendur yfir.
Komið f tfma
sem þurfið á þessu að halda.
Til leigu
I
Sauðagerði
1. okt. n. k. stór og góð 5 herbergja íbúð auk
eldhúss og nægrar geymslu, og á lofti 3ja herbergja íbúð
auk eldhúss og geymslu. Nánari upplýsingar gefur Consull
Kr. Ó. þorgrímsson.
Jón Kristjánsson
læknir
Amtmannsstíg 2. Talsími 171.
Massage, sjúkraleikfimi,
rafurmagn, böð.
Heima kl. 10—12.
^w$wtal\w\v\t\t\
er kominn heim úr ferðalagi
sínu,
NÝJA VERSLUNIN
— Hverfisgötu 4D. — '
Flestalt (utast cg inst) til kvenfatn.
aðar og barna og margt fleira.
QÓDARVÓRUR.
ÓDYRAR VÖRUR.
Kjólasaumastofa byrjar 1. sept.
greiðslu. Ef nú liggja einhverjir
kardínálar lasnir inni í herbergjum
sínum er á sama hátt dregið um
þrjá aðra sem eiga að sækja at-
kvæði þeirra sem þannig eru fjar-
staddir. Auðvitað er þetta aðeins
gert við þá sem eru sjúkir innan
Konklavsins, en ekki við þá sem
hafa orðið að vera heima vegna
veikinda því að ekki má taka við
neinu atkvæði sem gefið er utan
Konklavsins. Fyrir utan þau borð
sem hver kardínáli hefur hjá sjer
á sínu hásæti eru sex borð á miðju
gólfi kapellunnar handa þeim sem
kynnu að koma eftir að Konkla-
við er byrjað eða þá handa þeim
kardínála sem ekki þæltist tryggur
gegn því að nábúi hans kynni að
sjá hvernig hann greiddi atkvæöi.
Stór kaleikur stendur á altarinu og
eru atkvæðin látin í hann.
Þegar allir kardínálarnir eru komn-
ir inn í kapelluna fá engir aðrir að
vera þar lengur og dyrunum er
lokað og læst. Þá er sungið »Veni
Creator«, lesin bæn ti! Heilags anda
og atkvæðagreiðslan byrjar. Teljar-
arnir taka sjer stöðu við altarið og
búa nú kardínálarnir út atkvæði sín
hver við sitt borð. Hefur hver þeirra
aflanga pappírsræmu og skrifar
hann efst á hana nafn sjálfs sín til
þess að sanna atkvæði sitt ef þess
skyldi viðþurfa. Brýtur liann síðan
upp á miðann svo að nafnið er hul-
ið og setur þar á innsigli sem þó
er óþekkjanlegt að sje hans eigið.
Þá ritar hann nafn þess er hann
vill kjósa, brýtur blaöið aftur sam-
an, innsiglar það og skrifar utan á
það einhver einkunnarorð. Þegar
atkvæðin eru pannig tilbúin byrjar
greiðslan og gengur ráðsmaðurinn
fyrstur og síðan kardínálarnir eftir
aldri. Fer hver úr sæti sínu og held-
ur út atkvæöismiðanum fyrir allra
sjónum, gengur upp að altarinu og
sver í heyranda bljóði að hann
greiði atkvæði af frjálsum vilja og
laus við öll framandi áhrif og kjósi
þann sem hann fyrir guði og sam-
viskunni álíti hæfastan til að stjórna
kirkjunni, Leggur hann því næst
atkvæði sitt í kaleikinn og fer aft-
ur í sæti sitt. Ef einhverjir kar-
dinálar eru veikir þá fara hinir þrír
þar til kjörnu tií þeirra með kassa
sem þeir greiða í atkvæði sín er
þeir hafa svarið sama eið. Eru síð-
an þessi atkvæði Iátin saman við
atkvæðin í kaleiknum. Nú eru öll
atkvæðin talin til þess að sjá hvort
stendnr heima talan á þeim. Því
næst er brotið ytra innsiglið á þeim
og lesið hátt nafnið ásamt ein-
kunnarorðinu, skrásett og þrætt upp
á þráð. Nái einhver meira en tveim
þriðju atkvæða er hann valinn páfi.
Standi það nákvæmlega á tveim
þriðju er hitt innsiglið brotið og
gætt að hvort hann hefur kosið sig
sjálfan og sje svo, er kosningin
ógild. Hafi hann ekki kosið sig
sjálfan er kosningin gild.
Frh.