Vísir - 25.10.1914, Blaðsíða 1
1209
V I S I R
Stærsta, besta og ódýrasta
blað á íslenska tungu.
Um'500 tölublöð um árið.
Verð innanlands: Einstök
blöð 3 au. Mánuður 6Cau
Ársfj.kr.t,75. Arg.kr.7.oo.
Eri. kr. 9,oo eða 2x/2 doll.
V I S I R
kemur út kl. 81/, árdegis
hvern virkan dag.- Skrií-
stofa og afgreiðsla Austur-
str.14. Opin kl. 7 árd. til 8
síðd. Stmi 400.—Ritstjóri:
GunnarSigurðsson(fráSela-
læk). Til viöt venjul. kl.2-3síðd.
Sunnud. 25. okt. 1914;
Háflóð árd. kl. 10,5‘ síöd. ki. 10,43.
Afmæli á morgun:
Sigríður Þórðardóttir, húsfrú.
Þórunn Pálsdóttir, húsfrú.
Hans Hannesson, póstur.
Jónas Jónasson, lögregluþjónn.
Gamla Bíó
Yið
Idauðans dyrl
Afar hrífandi ieikrit í 3 þátt-
um, leikinn af þektum dönsk-
um Ieikurum, í aðalhlutverkinu f
frú Ellen Price
dansmær við konungl. leikhús- j
lð í K.höfn. (Fögur og unaðs-1
leg mynd.)
Mistök stjórnYaldanna.
Árás á verslunarstóttina. — Ógagn
og óhagræðí fyrir almsnning.
Tilgangur Amerikufarinnar.
Velferöarnefndin og stjórnin á-
kváðu að senda skip til Ameríku í
sumar f því skyni að kaupa mat-
væli handa Iandinu. Þetta gat verið
þarft verk eins og á stóð. Miklar líkur
voru til þess að vöruflutningur tept-
ust frá Evrópu og gat þó ísland
orðið á flæðiskeri statt með alla að-
flutniriga. Þegar þetta var afráðiö
gerðu margir agentar og kaupmenn
fyrirspurn um það til stjórnarráðs-
ins hvort rétt mundi fyrir þá að
halda áfram að panta vörur frá
Evrópu og fengu það réttmæta svar
að þeir skyldu öruggir halda áfram
pöntunum, Ameríkuvörurnar væru
að eins ætlaðar til vara, sem forða-
búr, er grípa mætti til ef á lægi.
Nú breytist afstaðan, útflutningur
verður greiðari frá Evrópu en við
hafði. verið búist, og vöruverð verð-
ur Iægra. Hvorttveggja virðist hafa
átt að styðja hið upprunalega áform,
að nota AmeríkuvÖrurnar sem forða-
geymslu og það því fremur sem
vörurnar reynast að meðaltali með
svipuðu verði og hjá kaupmönnum
(sumar vörurnar eru dýrari, en aör-
ar ódýrari). Sem stóð vantaði hvergi
vörur, þaö var því engin brýn þörf
á að útbýta Ameríkuvörunum nú
strax. Þær átti að geyma þangað
ti' vörur fóru að vanta og þess mátti
*
u a t $ s v n $.
Kvennréttindafélag íslands í Reykjavík hefir ákveðið að halda
fund í Good-Templarahúsinu
í dag 25. þ. m. kl. 8 e. m. og býður öllum verkakonum og öðrum
þeim konum, sem almenna útivinnu stunda, að koma á fund þenna.
Fundarefni: Atvinnumái kvenna.
JMSr Konur fjölmennið.
-^TIL MINNIS FYRIR KAUPMENN^-
Prima Rio-kaffi fl. teg. óheyrilega ódýrar.
BLÖTOAHL & SIVEETSES, Rvík.
sérstaklega vænta um smákauptún
út um land, eins og nánar verður
vikið aö síðar.
En hvað gerir svo velferðamefndin
og stjórnarráðið svo, þegar til kast-
anna kemur?
Útbýtir vörunum strax og lætur
opinberar stofnanir.hreppa- og sý«lu-
félög einstakra mauna sitja í fyrir-
rúmi íyrir allri verslunarstétt þessa
iands, svo hér er, auk þess, sem
vér teljum það misráðið að vörun-
um var útbýtt nú þegar, að ræða
um tilgangslausa og viðsjárverða
árás á eina stétt manna.
Frá sjónarmiði kaupmanna.
Sú spurning liggur fyrst fyrir
hvort það geti verið tilgangurinn
með ráðstöfun þessari að riða slig
á verslunarstéttinni.
Þetta getur naumast verið. Versl-
unarmannastéttin hefir frá alda öðli
verið ein af þýöingarmestu stéttum
hjá öllum þjóðum, og verður ávalt
óumflýanleg siétt til að annast við-
skifti manna meðan hin núverandi
verkaskifting mannfélagsins helst.
Eins og nú siendur hefir að eins
þessi stétt þekkingu og tæki til
verslunar.
íslenska þjóðin hefir jafnan veriö
tortrygg viö verslunarslétt sína og
var það ekki að ástæðulausu, því
vart hefir nokkur þjóð í víðri ver-
öld átt um eins sárt að binda eftir
verslunarstéttina. En af hverju? Af
því aö hér var einokun, en ekki
frjáls verslun. Og sú einokun staf-
aði ekki frá verslunarstéttinni heldur
stjórninni, dönsku stjórninni. Nú er
þetta, góðu heilli, löngu breytt.
Flestir kaupmenn eru nú innlendir
menn, verslunin alfrjáls og sam-
keppnin á öllum sviðum. Sérstak-
lega er samkepni mikil í öilum
matvörutegundum, og er arður versl-
unarstéttarinnar mjög lítill á þessum
vörum. Einnig er fjöldi kaupié-
laga um land alt og hafa hönd í
bagga meö vöruverði og gæta þann-
ig hagsmuna almennings.
Hér er því aö ræða uin astæðu-
lausa og viðsjárvprða árás á versl-
unarstéttina, sérstaklega var þetta
ástæðulaust nú þar sem valdhafarnir
gátu ráðið verðinu á vörunum.
Peir áttu að selja vöruna kaupfé-
lögum og kaupmönnum, en ráða því
sfálfir hve mikil sölulaun skyldu
vera. Þetta var eina rétta aðferðin
bæði frá sjónarmiði stjórnvaldanna,
verslunarstéttarinnar og almennings.
Frá sjónarmiði aimcnnings.
Allar líkur eru á því. að hvötin
til þess að þessar ráðstafanir um
vörusöluna voru gerðar, hafi verið
hagsmunir almennings. En efalaust
er þetta misráðið einnig frá sjónar-
miði almennings. Fyrst og fremst
er það í augum uppi að það hefir
slæmar afleiðingar að þeir fari að
versla sem aldrei hafa ncitt fengist
við það áður oghafa hvorki áhöld
eða þekkingu til slfks. Auk þess
er ekki nema eðlilegt að þeir sem
fyrir samtökum um vörukaupin
standa, taki Fyrir fyrirhöfn sína, enda
höfum vér sönnun fyrir að svo er.
En er það tilgangur valdhafanna?
Hvermg er hægt að hafa hönd í
bagga með að þcr taki ekki ósann-
gjarnlega hátt.
Tvo önnur sker rekst ráösstöfun-
in á frá sjónarmiði almennings. Að
líðun fæst ekki á borguninni ogað
selt er stórum heildum. Þar með
eru allir fátækustu menn útilokaðir
frá að fá vörur hjá stjórnarráðinu
og hefir eflaust ekki verið ætl-
ast svo til.
Ráðstöfunin hvorki fugl né
fiskur.
Fyrst sú stefna var tekin að stjórn-
arráðið verslaði með vörurnar, sem
er misskiiningur eins og sýnt hefir
verið fram á, þá átti að selja hverj-
um sem var og í smákaupum. Öll-
um vár þar gert jafnt undir höfði
og loku var skotið fyrir það, að
efnalitlir menn yrðu útundan, og
með því hefði stjórnin haft meiri
tryggingu fyrir að ekki væru milli-
liðir f sölunni, sem tæku sinn bróð-
urhluta, En langbest var ráðið fram í
úr þessu á þann hátt að hafa einn
Nýja Bíó
Frúin í æflntýraleit
Bráðfjörugur og skemtilegur
gamanleikur, leikinn af hinum
alkunnu leikurum Else Frölich
og C. Lauritzen og eftirlætis-
goði Kaupmannahafnar - búa
gamanleikaranum
Carl Alstrup.
Hollur er hláturinn hverjum
manni, og svikalaust munu
þeir skemta sér sem koma á
Nýja Bíó í kvöld.
sjálfsagöan milliliö, verslunarstéttina,
kaupfélög og kaupmenn.
Hver stétt þjóöféiagsins á heimt-
ing á því að ekki sé, að ástæðu-
lausu gengið á rétt hennar af hálfu
stjórnarinnar.
Með margnefndri ráðstöfun er
stígið ppor í áttina, sem alls ekki
má láta óátalið. Menn verða að
skilja það að verslunarstéttin er þörf
stétt. Það er henni að þakka að
innlendar vörur hafa hækkað svo
mjög í verði á síðustu árum. Það
hlýtur því að vera hlutverk stjórn-
arinnar að styðja að góðri samvinnu
milli hennar og annara stétta þjóð-
arinnar.
Afleiðingarnar af ráðstöfun vald-
hafanna geta oröið alt anhað enn
glæsilegar. Kaupmenn panta nú
eðlilega minna af vörum en ella, ef
nú svo verslun skyldi stöðvast við
Evrópu, sem ávalt gæti komið fyr-
ir, Ameríkuvörurnar væru búnar og
kaupmenn hefðu vegna þeirra pant-
að vörur að skornum skamti, þá
væri Ameríkuförin orðin til óheilla
að þessu leyti.
II M. F. B.
Fundur í dag kl. 2 í Bárunni.
Munið að koma
stundvíslega.
Með s|s
Botníu
hef ég fengið
miklar birgðir
af maismjöli
sem selst með lægra verði en
annarstaðar.
Jón frá Yaðnesi