Vísir - 23.11.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 23.11.1914, Blaðsíða 2
VÍ S 1 R' Y íkingaskipið Karlsruhe. Emden og Karlsruhe eru þau þýskra vikingaskipa, sem mest tjóu hafa unnið kaupflota Englendinga. Emden er Ur sögunn', en Karlsruhe er stöðugt í víkingu. 23. okt. er sagt, að það hafi sökkt 13 gufu- skipum og sent skipshafnirnar til Teneriffa á þýska gufuskipinu Crefeld. Og síðan hefir það sökkt þrem skipum við strendur Brazilíu. Það voru skipin Vandyck (10,328 smálestir), Glanton (3,021 smálest-' ir) og Hurstdale (2,755). (J\J5a\;eitptoo5V liatta o$ fcvetitva Jt^fcomtvat \ sVótvx útoatv. Sturla Jónsson. Á Skautafélagsballinu Það var satt, Skautafélagsball í kvöld. Eg var sifjaður og timbraður, en ekki spilti til að lita á listann. Má eg líta á listann, Auður mín? Árni Pálsson og Sigurður Guð- mundsson Eg fer. Þá verð eg að sjá. Hvað þeir hljóta aö taka sig vel út á gólfi. Eg lét vinnukonuna mína hrista mesta ruslið af kjólnum mínum og svo labbaði eg niður á Vík. Sjóarasalurinn var fyrst fyrir mér. Ógrynni liðs sat þar að þjóri og svalg það stórum og af list mik- illi. Þar sat Ólafur Björnsson & Camp. í einu horninu og gaf horn það hljóð gott. Lengra varð eg að komast. Mér tókst að rjúfa fylkinguna eftir nokk- ur áhlaup og komst að lokum inn á aöra káetu. Ó þú »moderne« upplýsing, sem eykur og margfaldar litskrúða hinna holdguðu Víkur-dísa, svo jafnvel regnboginn sjálfur roðnar. Ofraun yrði það hverjum mannlegum penna að lýsa lit hverrar dísar fyrir sig, alt ofan frá snjóhvítu niður |í sauð- svart. Eg horföi því yfir hópinn og tók meðaltal. Grænt. Það var næst því. »Með Ieyfi«, sagði eg við hana Gunnu iitlu að norðan og settist kurteislega við hlið hennar. Það var þó stilt stúlka. Ekki var hætt við að eg fengi óorð af henni. »Hafið þér séð hann Árna Páls- son?« •Almáttugurl Haldið þér að hann Árni sé á svona nokkru?« »Hann stóð þó á Iistanum og meira að segja Sigurður magister líka«. »Hann Sigurður magisterl Eg held hann þurfi þess nú ekki með lengur. Það hefir víst verið dans- kennarinn minn, sem stóð á list- anum.« Hana nú. Nú byrjaði Bernburg á Zigöjnervals. Þetta hafði sömu áhrif og þegar steini er varpað nið- ur af fuglabjargi. Ailir upp til handa og þó einkum til fóta. Þau þrengsli! Næstum þægilegri en var f »KvöIdstjörnunni« og var þó ólíku saman að jafna um húsakynnin. »Ó hvað þeir eru freistandi fálk- arnir. Það eru svolítið sætari þess- "V., 5 5)\XUS kaupír ennþá velverkaðar sauðargærur fyrir kr 1,40 pr kíló og góða haustull fyrir kr 2,20"pr kíló Vöruleifamar, þar á meðal: Mislit klæði — Kjólaefni — Kvenkápur — Hattar — Blúsur — Blúnduefni — Pils — Sokkar — Hanskar — Fjaðrabúar — Belti — Marglit Flauelsbönd — Leggingar — Karlmanna-hattar — Vesti o. m. m. fl. er nú selt utvdu faáljvxrtiv Nokkuð af: Lérefti — Tvístdúkum — Fióneli ■s Hátt Rabat. =- Isvarinn fískur fæst daglega í --- Zimsens-porti. -- Skrlfstofa Elmsklpafjelags íslands, l||] i Landsbankanum, uppl Opin kl. 5-7. Talsimi 409. > "Mwat aj tammaUstutti hjá Eyv. Árnasyni, Laufásveg 2. ar stutttreyjur þeirra, heldur en »vemmilegu« dinglandarnir áykkur hinum«, sagði Gunna og stundi. »Alveg rétt, Gunna litla, þeireru nokkuð stássiegir hanarnir þegar þeir eru stél!ausir?« »Já, ekki satt? Lftið þér á hvað hann er indæll þessi«, og hún benti á einn sem sveif með eina höfuöstaöarfrúna í fanginu fram hjá okkur. »En hvað hann er »pent« klipt- ur«, hélt Gunna áfram. »Hann er sköllóttur, kvenmaður?* »Nei, er það virkilega? En hvað það klæðir hann, >En að ráöhetrafrúin skuli geta fengið þetta af sér eins og hann Sigurður hennar á bágt í útlönd- um«, sagði Gunna og frúin straukst fram hjá okkur með Cable hinn enska í fanginu. »Nýtt lag«, sagði Gunna og sperti eyrun. Lýðurinn þaut upp. »Tanso«, »One step«, »VaIs«, »Galopade«, hrópuðu menn á víxl. Flestir rendu grun í að hér mundi eitthvað nýtt vera á seiöi. Dömurnar mændu meö spenn- ingi á Fálkana. Nú áttu þær alla ballsæmd sína undir þeim. Hverj- ar skyldu þeir nú hremma? Augnablikið örlagaþrungna var nú runnið upp. Þetta hefði Jónas átt að sjá, þá hefði »Óhræsið« endað öðruvísi. Fálkarnir vörpuöu sér nú á teig- inn, »one step« »tango«. Vesalings dömurnar, þær litu af- sakandi bænaraugum á þá, ekki vantaði viljann, svo hjartanlega ósk- uðu þær að láta að stjórn, en fæt- urnir. — Hvað þeir gátu veriö »svekkjandi«, tvímæialuust neituðu þeir að »fúngera« á réttan hátt. Og svo þessi ótætis aökeyptu pils, var þó ekki margbúið að segja þeim hvert skaðræði þau væru. Ó, að þær væru nú komnar í heimatilbúin pils. Þá hefði listin getað notið sín óheft, Aldrei hefðu þau nrðið neinum að fjörlestri eða farartilma. Nokkrir áræðnir ballistar trítluðu á eftir Fálkunum og skyldi dans sá »One step* kallast. Þar næst iötruðu nokkrir Vals, en síðast töltu þeir óframfærnustu Galopade. »Hvar er nú hún Stefanía, ætl- aði hún ekki að kenna?« spurði eg Gunnu. »Það er nú varla von á því enn, hún kom nú í morgun frá útland- inu, svo líklega sér hún sóma sinn í að kenna honum Borgþór fyrst«. Alt í einu ryðst »par« fram í vinstra fylkingararmi og klýfur hana að endilöngu. Þar fór Imba Brands, með Þorstein hinn hagspaka milli handanna, þau höfðu »framgang« mikinn á gólfi, því fröken Brands er víkingur niikiil til dans og allra kvenna fótfimust, en Þorsteinn þæg- ur og Ieiðitamur, Svona nú, nú tók einn hana Gunnu iitlu frá mér, eg hröklaðist fram í þægindasalinn og bað um einn »Genstand«. »Lancé« hófst. Svolftið sé eg héðan. Þarna sveif hinn goðumlíki rósfingraði Kúfótur með vængfætt- an kven-engil — frú um fimtugt — í fanginu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.