Vísir - 03.03.1915, Blaðsíða 4

Vísir - 03.03.1915, Blaðsíða 4
XI111 Allskonar olíuföt fyrir kvenfólk pils, treyjur, ermar og svuntur er nýkotnið með sama verði o& áður í Austurstræti 1. Asg. G. Gunnlaugsson & Co. Hf Eimskipafélag Islands Fargjöld með ,Gullfoss‘ til Vesturheims og þaðan til Reykjavíkur verða þessi: Milli Reykjavíkur og New York: Fyrsta farrými 250 kr. aðra leið, 350 kr. báðar leiðir Annað — 150 — — — 250 — — — \ Frá Halifax til Reykjavíkur: Fyrsta farrými 200 kr. Annað farrými 100 kr. % Notið tækifærið! i. O. G. T. St. tvt. W. Fundur í kveld kl. Frú Stefanía Guðmundsdóttir og Guðm. skáld Guðmundsson lesa upp. FJÖLMENNIÐ! Lesið auglýsingarnar í Vísi og versliö við þá sem í honum auglýsa. Þar fáiö þið bestu kaupin. Dagbókarhlöð knatttaðssYeinsins eftir Leó Tolstoj. ----- Fih. Hvert sinn er hann slær, lítur hann í kringum sig og roðnar. Furstanum ferst nokkuð öðruvísi, hann kann á þessu tökin, krítar stangarendann og lófa sinn, strýkur upp ermar og þegar hann fer að slá, brestur í borði og stöng, enda þótt hann sé miklu minni að vall- arsýn. Þeir léku tvo eða þrjá leiki, eg man ekki hvernig fór, en þá lagði furstinn frá sér stöngina ogsagði: »Hvað heitið þér, ef eg má spyrja?« »NeckIjudow«, sagði hinn, Faðir yðar sálugi var herforingi?« »Já.« — Þá töluðu þeir eitthvað saman á frönsku, sern eg ekki skildi, en það hugði eg vera um ættmenni hans. »Au revoir**), sagði furstinn að síðustu, mjög ísmeygilega, »þér hefðuð getað gengið mentabraut- ina.« Síðan fór hann út og tók sér áður mundlaug, en ókunni maður- inn stóð hjá borðinu og sló kúl- unum hingað og þangað eftir því. Svo er því farið, að því mynd- uglegar sem við knattborðssveinar látum, því betur fer okkur. Eg tók nú kúlurnar og skipaði þeim saman. Hann roðnaði og sagði: »Verður ekki leikið lengur?« »Jú, sjálfsagt«, segi eg »til þess er borðið, að leikið sé.« Og eg lít ekki við honum, en læt steng- urnar á sinn stað. »Viltu ekki leika við mig?« mælti hann. *) Kveðja: Við sjáumst afíur. »Jú, jú, herra minn«, sagöi eg og undirbjó borðið. »Líst yður að leika um að ganga undir borðið?« »Hvað er það, „að ganga undir borð?“ spúrði hann. »Það er svo«, sagði eg, »þér greiðið mér hálfa rúblu, ef þér tap- ið, en eg beygi mig og skríð á fjórum fótum undir knattborðið, ef eg tapa.« I iann hafði aldrei séð þetta fyrr, undraðist það og kýmdi. »Látum svo vera«, sagði hann. »En, hvað leggið þér undir?« mælti eg. »Leikur þú ver en eg?« spurði hann. »Miklu verr«, mælti eg, »ogsjálf- sagt munu fáir, hér um slóöir, standa yður á sporði. Svo hófum við sláttinn. Honum þótti lofið gott og ímyndaði sér víst fastlega, aö hann væri ágætur knattsláttarmaður í raun og veru Hann sló líka svo hrottalega, að raun var að, hefir víst hugsað til, að stæla furstann. »Pan« sat þar hjá, hafði orð á því og sagði: »Þetta var atrenna, þetta var bylmingshögg.« En slátturinn var samt happa- högg, þó hann skildi ekki hót í reikningunum. Eg tapaði eins og til var ætlast og gekk undir borðið. Þá spruttu þeir Oliver og »Pan« upp úr sætum sínum ng æptu: »Bravó! Annan leik til, — einn enn«. Á þessu klifuðu þeir í sí- fellu, og einkum mundi »Pan« eigi að eins hafa viljað vinna það fyrir skemtunina, að skríða undir boröið, heldur eitthvað miklu lítilmóllegra. »Bravó!« sagði hann, »haldið þið áfram. Hann hefir ekki enn þurk- að allan skítinn af gólfinu, knatt- borðssveinninn*. Eg hafði lítt hug á leiknum og tapaði því þessum líka. »Eg get hreint ekki leikið gegn yður, herra minn«, mælti eg. Hann hló. En þegar hann hafði unnið 3 Ieika í röð, lagði eg slöngina á borðið og sagði: »Er yður nokkuð á móti skapi, að keppa um »almenn- ing« ?« Frh. Massage-læknir (juðm. Pétursson Garðastræti 4. Heimakl.ó—7e. h. Sími 394. Með síðustu skipum kom úrval af myndum & rammalistum í trésmíðastofuna Laugaveg 1. fMBT Þar er innrömmun ódýrust að vanda. Kotnið og sjáið. FÆÐI Fæð' fæst á Laugveg 17. TAPAЗFUNDIÐ ÍÆS H ÚSNÆÐI T a p a s t hefir minnispening- ingur, með áletran, frá Hverfis- götu upp á Laugaveg. Skilist á Laugaveg 57. Peningabudda fanst á Tjörninni í gær. Vitja má í Sápu- búðina á Laugaveg 40. 2 tíu-króna seðlar hafa tapast. Skilist í Pingholtsstræti 27, gegn fundarlaunum. T v ö herbergi samliggjandi og mót sólu, til leigu á Laufásv.42. T v ö herbergi og eldhús ósk- ast til leigu 14. maí. Uppl. á Vesturgötu 37 (uppi). || S ó 1 r í ka stofu með samligg- I jandi svefnherbergi í eða nálægt miðbænum, vantar einhleypan mann frá 14. maí. Afgr. v. á. E g óska að fá litla, snotra íbúð. Ársæll Árnason, Safnahúsinu. — Sími 47. VI N N A KAUPSKAPUR »0pfindel sernes Bog« j ný, til sölu með afslætti. Einnig | margar fleiri útlendar bœkur. Af- | gr. v. á. | »0 b j e k t i v Retlinier A p 1 a n a t f. 8« — hentugt fyr- ir »amatör«, — ijósmyndara — er tii söiu fyrir lítið verð. Afgr.v.á LEIGA afta F a H e g u r kvengrímubún- ingur til leigu. Afgr. v. á. Atvinna. Stúlka, sem kann vel til allra algengra verka í sveit, getur feng- ið vist á ágætu heimili nálægt Reykjavík. Gott kaup í boði.— Afgr. gefur upplýsingar. FaHegur kvengrímur túningur til sölu á Bjargarstíg 15# Ungiingsstúlka óskast í vist frá 14. maí til kaupm. Árna Eiríkssonar, Vesturg- 18. Sendisveinar fást ávalt í Söluturninum. Opinn kl. 8—11. Sími 444. Skósmíðavinnustofan Bröttugötu 5. Allar skóviðgerð- ir fljótt og vel af hendi leystar. O ó ð stúika getur fengið góða vist nú þegar eða frá 14. maí. Af- gr. v. á. U n g u r maður óskar ettir at- vinnu í vetur. Uppl. á Hverfis- götu 84. S t ú 1 k a vön húsverkum, ósk- ast eftir atvinnu nú þegar. Af- gr. v. á. S t ú 1 k a getur fengið vinnu við létt heimilisstörf nú þegar. Af- gr. v. á. Stúlka óskar eftir morgun- verkum. Uppi. á Klapparst. 1. S t ú 1 k a óskar eftir gólfþvotti og tauþvotti. Uppl. á Smiðjust. 1. D u g 1 e g u r og vel vanur sjó- maður óskast til sjóróðra suður í Garð. Uppi. í Smiðjuhúsi við Sellandsstíg í dag kl. 4—6 e. m. Prentsiniðja Sveins Oddssonar. h

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.