Vísir - 07.07.1915, Blaðsíða 1

Vísir - 07.07.1915, Blaðsíða 1
Utgefandi: HLUTAFELAG. Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400. Skrifstofa og afgreiðsla í Hótel Island. SIMI 400. 5. á r g. Miðvikudaginn 7. júlf IS15. - I GAMLA BIO Svartklædda hefndarkonan. Fádæma áhrifamikill og fall egur sjónleikur í 6 þáttum og 120 atriðum. Aðalhlutv. le.kur hin heims- fræga leikkona ítala Mde Maria Carmi. Pessi dýra mynd, er útbúin hjá Cines-félaginu í Róm, hinu sama, sem bjó til hina heims- frægu mynd: »Quo Vadis«. Aðgöngumiðar að þessari mynd kosta 60 og 35 aura. 3. 3- Knattspyrnumót Reykjavíkur hefst mánud. 24 júlí þ, á. Kept verður um „Knattspyrnuhorn Reykjavfkur". Að eins félög í Reykjavík mega keppa á métinu. i t>átttakendur gefi sig fram skriflega fyrir 20. þ. m. ! við ffl BÆdARFRETTlR Afmæli á morgun. Magnús V. Jóhannesson pr. Porbj. Grímsdóttir ungfrú. Anna Skov húsfrú. Sigurborg Jónsdóttir kaupm. Gísli Hjartarson pr. Sandfelii. Magnús Einarsson söngk., Ak. Stj ó r n Knattspyrnufélags Reykjavíkur. 1 háseta og matsvein Afmæ’iskort fást hjá Heiga Árnasyni, Safna- húsinu. Veðrið í dag. Vm. loftv. 762 n. andv. “ 9,7 Rv. ít 763 logn “ 12,0 íf. (C 765 logn “ 7,5 Ak. U 764 nv. andv.“ 5,3 Gr. ti 729 iogn “ 4,0 Sf. ii 762 logn “ 8,3 Þh. U 760 logn “ 11,7 Hinar ágætu stríðsmyndir, sem sýndar hafa verið undanfarna daga í Nýja Bíó, verða sýndar í Hafnarfjarðar-Bíó næstu daga. »lngólfur« kom í gær frá Borgarnesi. Með- al fa'-þega sáum vér: Einar Arn- órsson ráðherra, alþingismennina: Dr. Jón Þorkelsson, Ólaf Briern, Jósef Björnsson, Guðmund Ólafs- son, Stefán Stefánsson Fagraskógi, Hjört Snorrason. Auk þeirra koinu Halldór Vilhjálmsson skólastjóri, Konráð Stefánsson, Oddur Gíslason, B. H. Bjarnason, síra Jóu Jónsson Stafafelli, Bjarni bóndi í Knararnesi o. m. fl. Suzanne* fór í gærkveldi til Bergen, tók póst. Verður í förum í sumar mhli Bergen og Siglufjarðar 'og flytur síld og annað fyrir Nathan & Oisen stórkaupmenn. vantar nú þegar á seglskipið .NOAH’ lánari upplýsingar fást Magnúsi Ari Jönsson sýslumaður fór í fyrrinótt land- veg noröur í sýslu sína. Með Hon- um fóru tengdaforeldrar hans, Ein- ar skáld Hiörleifsson og kona hans. Aðalstræti. Viðgerðinni miðar nú drjúgum áfram. Er verið að leggja síðustu hönd á nokkurn hluta götunnar norðan til, en allmikið þó eftir ó- gert enn þá. »Gullfoss« kom hingað í dag. Hafði farið frá Slykkishólmi beina leið til Hafn arfjarðar og tafist þar nokkuð. Far- þegar: Skúli Thoroddsen eldri, síra Sig. Stefánsson í Vigur, síra Sig. Gunnarsson Stykkishólmi, Hákon Kristófersson Haga, ungfrú Jónína Jónsdóttir, sem liggur hór. í Lækjargötu 6 B hjá BlöndahL »Goðafoss« var á Blönduósi í gær. íslaust sagt nú fyrir öllu Norðurlandi, sem betur fer vegna síldveiðanna, sem nú fara í hönd. Vísir kemur framvegis seinna út en verið hefir, vegna þingfrétta. Umferðin umv göturnar. Nú eru milli 10 og 20 bifreiðar í förum í bænum, ótal hjólreiða- menn og hestvagnar, en enginn kemst þversfótar fyrir flutningavögn- um, kerrum og mannlausum hest- um, sem þvergirða göturnar svo tímum skiftir. Um Sprengisand kom Karl alþm. Finnbogason frá Seyðisfirði á laugardaginn. Hann 207. tbl. NYJA BIO Systurnar Sjónleikur í tveim þáttum, eftir Jules Maray, leikinn af leikurum Patlié Fréres félagsins í París. Aðaihlutverkið leikur hin þekta leikkona ungfrú Napierkowska. Myndin er með eðlitegum litum. var 58 tíma á milli bygða og þar af 14 tíma á grasleysu. — Lætur hann ailvel yfir ferðinni, en þoka tafði hann þó á sandinum. Til kvenna. í dag taka konur þessa bæjar saman höndum til að fagna ný- fengnum stjórnmálaréttindum. í dag er bjart yfir hugum þeirra, þrátt fyrir íslenskt stjórnmálaþjark og Evrópustyrjöld. Vonandi láta kon- ur sér ant um, að hátíðahalöið fari sem best fram. Ættu þær að koma suður í Barnaskólagarð á tíma þeim, er augiýstur er annarsstaðar í blaj)- inu, og ekki má vanta telpubörnin og ef hægt er með íslenska smá- fána í höndunum. — Vel ætti við, að konur þær, er íslenskan faldbún- ing eiga, skautuðu, og sjálfsagt er, að æskulýðurinn verði sem ljós- klæddastur. Ein, sem verður með. Hjúskapur: Sig. Magnússon bóndi frá Króki í Garði og bústýra Guðbjörg lllugad. samastaðar. Gefin saman 29. júní. Þorlákur Kr. Ófeigsson trésm. Smiðjustíg 11 og ungfrú Anna G. Sveinsdóttir, samast. Gefin saman 3. júlí. Eitt furðuverk bættist við enn í höfuðstaðnum. — í gær var reistur nýr gálgi bak við Stjórnarráðið, Miðbænum til prýðis og útlendum sem innlendum til mikillar ánægju. Var þar kominn Ellingsen slippstjóri og sagði fyrir. verkum, því þar var verið að bisa við »mastur« eilt mikið og digurt. Stýrði hann þar fríðum hóp verka- manna, sem voru engu mannfærri en áhorfendurnir. Vonandi verður »júferta« þessi varanlegur minnis- varði yfir smekkvísi stjórnarvaldanna á því viöburðaríka ári 1915. Corvus.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.