Vísir - 19.08.1916, Blaðsíða 4

Vísir - 19.08.1916, Blaðsíða 4
V I S I R Skepnufóður til vetrarins, Eg hefi verið að vonast eftir aö sjá getið einhverra ráðstafana af hálfu landsfjórnarinnar, um útveg- un á síld frá Norðurlandi til fóð- urs handa skepnum hérsyðra. Það sem af er, hefir heyskapurinn, eins og kunnugt er, gengiö svo, að ekki er annaö fyrirsjáanlegt en að menn verði neyddir lil að stór- fækka fénaði sínum. Það sem varð þess valdandi að eg rita þessar Iínur, er einkar þörf hugvekja eftir Oísla lögmann Sveins- son, er stóö í ísafold síðastl, laug- árdag. Aftan við hana er sú at- hugasemd frá ritstjóranum, aö land- stjórnin hafi þegar gert ráðstafanir til að útvega fóðurbæti frá útlönd- um og síldarmjöl aö norðan. í þessu sama blaði er enn fremur auglýsing frá stjórnarráðinu þar sem það óskar eftir tilboöi um sölu á ýmsum vörutegundum frá Ameríku. Þar á meðal eru 400 smáiestir af maísmjöli og eru þær að sjálfsögðu eingöngu ætlaðar til skepnufóðurs. Fyrst er þá að athuga ráöstaf- anir stjórnarráðsins um kaup á síldarmjöli. Eg hygg að landstjórn- inni sé óhætt að spara sér ómak og peninga fyrir mikið af því. Flestir eöa allir, sem eg hefi átt tal við, og notað hafa síldarmjöl til skepnufóöurs vilja ekki við því líta. Oæti stjórnarráðið að sjálfsögðu fengið upplýsingar um nothæfi síldarmjölsins, frá þeim mönnum er keyptu síldarmjöl þess árið 1914. Og líklega er sú fóðurtegund ekki ódýr í ár framar öðru. Maísmjöl hefir reynzt hér gott kúafóður. En að það borgi sig að gefa mikið af því, þegar 63 kg. sekkur kostar 20 krónur og þar yfir, tel eg vafasamt. Þá hygg eg aö bændur — minsta kosti þeir, er fjarri búa kaupstöðunum — taki heldur þann kostinn aö farga kúm sínum, en treysta mikið á maísgjöf. Svo kemur síldin. Eins og allir vita hefir hún fengist nyrðra í sum- ar fyri 4 kr. tunnan. Verksmiöj- urnar naumast haft viö aö taka á móti henni fyrir það verð. Setjum nú svo að landsstjórnin keypti 2000 —2500 tómar steinolíutunnur, en þær taka kringum tvær tunnur síld- ar hver, léti hreinsa þær og keypti svo sild í þær. Gerum ennfremur ráð fyrir að síldin í hverja tunnu kostaði 10 krónur, saltið 4 kr., söltun 1 kr„ flutningur 5 krónur. Veröa þaö samtals 20 kr. Mætti þannig sennilega fá fulla steinolfu- tunnu af síld komna til Reykjavíkur fyrir sama verð og 63 kg. af maís - — tunnuna sjálfa relkna eg ekki, því hún ætti að vera í sínu fulla verði, eftir sem áður. — Það hygg eg svo að flestir muni viðurkenna, að betra sé að fá eina vel fulla steinolíutunnu af síld til skepnu- fóðurs, en 126 kg. eöa 2 sekki af maís, og munar þó helmingi verðs. Væri nú þetta gert, sem vel er kleift, ef undinn er að því bráður bugur, en slept 300 smáiestum af maíspöntuninni, frá Ameríku mundi landið græða alt aö 50 þúsundum króna. Nú kann því að veröa haldið fram, aö oröið sé of seint að senda tunnurnar noröur. En má þá ekki fá einhverja 2 togarana til þess — um þaö leyti, sem þeir hætta veið- unum nyrðra — að fiska síld, salta hana í sig og koma með hana hingað suður ? Sölu hennar hér mætti síðan haga eins og hentast þætti. Mér finst nauðsynlegt aö lands- stjórnin eða einhver framkvæmdar- samur maður, með hennar aðstoð geri gangskör að umræddri síldar- útvegun, því það er víst aö víða er hægt að fóðra sauöfénað á síld með útibeit, þar sem óhægt er að koma við maisgjöf. Eg vænti þess fastlega að ein- hver sem er mér æfðari við ritstörf verði málefni þessu að liöi. En það þolir enga bið. Setbergi 17. ágúst 1916. Jóh. J. Reykdal. Tii útgerðarmannsins sem enn á tunnurl Út af grein yöar í Vísi í gær »Bjargvætturinn' og tunnuleysiö*, skora eg hér með á yður, að segja til nafns yöar í næsta tölublaði »Vísis«, því það er leiðinlegra að þurfa aö elta ólar viö þá menn, sem fela sig í skúmaskotum og eru svo kjarklausir, aö þeir þurfa ávalt að skríða á bak við aöra og fela sig þar. Eg vona, að þér verðiö við5 þessari áskorun minni, þó yður máske þyki það leitt að þurfa að kannast við greinina, sem er full af ósannindurn og óhróðri í minn garö. Eg mun svo tala við yöur seinna, piltur minn, og athuga nánar þetta »sveinssfykki« yðar. Rvík 18. ágúst 1916. E 1 í a s S t e f á n s s o n. Fangar Tyrkja. Þegar Townshend hershöfð-' ingi Englendinga í Mesopotamiu varð að gefast upp fyrir Tyrkj- um í Kut-el-Amara, tóku Tyrkir þar um 9000 fanga með honum. — Townshend var fluttur til Konstantinopel. — Hershöfðingi Tyrkja, sem tók hann til fanga, var gamall skólabróðir hans, hafði gengið í skóla með T. í Eng- landi. Fréttir hafa komið af Towns- hend heim til Englands og læt- ur hann hið besta yfir sér.— En Bretar eru yfirleitt hræddir um að óvinir sínir fari illa með fanga og þá ekki síst Tyrkir. Þótti það engin sönnun fyrir vellíðan hinna fanganna þó að vel væri farið með Townshend, þess var jafn- vel getið til, að hann mundi látinn nióta slíks atlætiseinmitt til þess að leiða athyglina frá hinum föng- unum, Sendiherra Bandaríkjanna í Konstantinopel hefir verið falið að grenslast eftir því, hvað orð- ið hafi af þessum 9000 föngum frá Kut — en þrátt fyrir ítrek- aðar fyrirspurnir hjá Tyrkjastjórn ( hefir hann ekkert svar fengið. { Ræðismaður Bandaríkjanna í Bagdad hefir ekki fengið að hafa orð af föngunum, þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni sendiherrans og því barið við að þeir hefðu ver- ið sendir norður yfir eyðimörk- ina. 26. júní voru 1000 fangar í Bagdad sem voru of veikir til að ferðast og 40 breskir liðsforingj- ar voru í Adana veikir af blóð- kreppusótt. — Hvað hinum líð- ur veit enginn heima í Bretlandi og veldur sú óvissa miklum á- hyggjum, því viðbúið þykir, að þeir hafi illa þolað flutninginn yfir eyðimörkina á þessum tíma árs. Herbergi' til leigu fyrir ferðafólk i Lækjargötu 12 B. [305 Herbergi með húsgögnum til i leigu í Bárunni. [H íbúð, 1—3 herbergi ásamt eld- húsi óskast 1. okt. Jón Hafliða- son, Vallarstr. 4. [94 Til leigu handa kyrlátum karl- manni eða kvenmanni eru tvö samstæð herbergi í góðu húsi með fagurri útsýn. A.v.á. 95 Þrifin stúlka sem hefir fasta atvinnu óskar eftir herbergi 1. okt. Uppl. gefur Stefán Ólafsson, Völ- undi. [101 Stúlka óskar eftir að komast að afgreiðslu í bakaríi frá 1. okt. Uppl. hjá Margréti Guðmundsd., Vesturg. 40. [100 Ljós regnfrakki hefir tapast. Skil- ist á afgreiösluna. [91 Stafur hefir tapast mrk. E. K. Skilist gegn fundarl. til E. Krist- jánss., Grettisg. 44. [91 Lítill barnaskór hefir tapast úr svörtu glansskinni. Skilist áafgr. _______________________________[92 Lítil hjólhestapumpa töpuð.— Skilist í Smjörhúsið. [93 Langsjöl og þríhyrnur fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4). [43 Saumaskapur á morgunkjólum, barnafötum o. fl. er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur- endanum), [217 Morgunkjólar fást beztir í Garöa- str. 4. [299 i Bókabúðin á Laugavegi 4 selur ' brúkaðar bækur. Lágt verö. [3 Morgunkjóiar fást og verða saum- aðjr í Lækjargötu 12 A. [30 Gott piano til sölu. A v. á. [86 Til sölu: hurðir og gluggar. Uppl. í Tjaruargötu 8. [87 Falleg gluggablóm fást á Laufás- vegi 27 uppi. [88 Brúkað orgel óskast til kaups. Sama í hvaða ástandi það er. Páll Guðmundsson, Bergstaðastr. 1 [9 ö Lítið hús með óbygöri hornlóð til sölu. Upplýsingar á Greltisgötu 38. [97 Snemmbær kýr til sölu. Sig. Halldórsson i Þingholtsstræti 7 [9S Steinbífsriklingur til sölu á Lauga- vegi 67 (niðri). [99 Vandað íbúðarMs við Laugaveg til sölu. Uppl. hjá STEINGR. GUÐMUNDSSYNI, Amtmannsstíg 4. Leverpostej nýkomin í verzlun i £\na*s jlvtvasotvar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.