Vísir - 25.08.1916, Blaðsíða 4
V I S I R
Bókarfregn,
Viilielni Jakobsson, kenslu-
bók í hraðritun kerfi Ga-
belsbergers. Rvík (prentuð
í Khöfn) 1916, 36 bls. í
8 blbr.
Fáar nýjar bækur hefir mér þótt
svo vænt um sem þessa. Hraörit-
un er harla nauðsynlegur hlutur
öllum, er þurfa aö ná töluðu máli
jafnóðum og talaö er, t, d. stúd-
entum við fyrirlestra, blaðamönn-
um á málfundum, sem þeir ætla að
segja frá, ræðumönnum til þess að
ná þeim oröum mótstöðumanna,
sem þeir vilja svara eða muna,
skrifurum svo sem á skrilstofum
embm., kaupmanna, útgerðarmanna
osfrv., er þeim eru Iesin fyrir bréf
eður annaö. Og öllum er hraðrit-
unarkunnátta góð, því að enginn
veií, hvenær til þarf að taka. —
Höf. á miklar þakkir skildar fyrir
dugnaö sinn, er hann verður fyrst-
ur manna til þess að gefa út kenslu-
bók í hraðritun á íslenzku. Og eg
má fullyrða að bókin er góð. Eg
hefi lesið hana og ekki getað séð
annað en að honum hafi tekist vel
að Iaga eftir íslenzkunni hið al-
kunna keifi Gabelsbergers. Til þess
að læra kensluiaust eftir bókinni
væri nauðsynlegt aö hún væri lengri,
eða miklu fleiri æfingarkaflar, en
hún er alveg fullnægjandi svo sem
hún er með tilsögn kennara.
Mér er sagt að þegar í vetur
veröi byrjað að kenna hraöritun í
verzlunarskólanum, að minsta kosti
hafi Jón Þorvaldsson skólastjórinn
mikinn áhuga á því. Það er hin
mesta nauðsyn, aö það komist taf-
arlaust á.
Eg sé og að höf. auglýsir heima-
kenslu í hraðrituu og vil eg fast-
lega hvetja menn til þess, aö sækja
þá tíma, einkum stúdenta og verzl-
unarmenn — og tilvonandi skrifara
á Alþingi.
Rvík 24. ágúst 1916.
Bjarni Jónsson
frá Vogi.
Lántökur Frakka.
Frakkasfjórn hefir fengið um
1200 miljónir franka í verðbréf-
um að Iáni hjá ýmsum eigend-
í hlutlausum löndum, gegn því
að greiða einum fjórða hærri
vexti af þeim en þær gefa. Af
4®/o verðbréfum borgar hún þann-
5% vexti. — Verðbréf þessi
eru notuð til þess eð setja þau
að veði fyrir stórum lánum í
hlutlausum löndum.
250 sekkir aí Cementi
fást hjá
Þingholtsstraeti 15.
6--8 duglega sjómeun
vantar til síld- og þorskveiða á mótorskip,
Þingh.str. 15.
Skóverslun
Stefáns Gunnarssoar,
Austursíræti 3.
aj slioJattvaBi ti^omtvav.
^av á meBat feartvasUavélj lvv)etv-\tvt\\s&6v
o^ tttv$t\ti$asttg\tót o. m( Jt,
lorsk pappírsverksmiðja
í Brasilíu.
í Noregi er verið að stofna
miljónafélag í því skyni að
koma upp og reka pappírs-
verksmiðju í Brasilíu. Verksmiðj-
an á að búa til 3000 smálestir af
pappír á ári. — Brasilíusfjórn er
hlynt fyrirtækinu og sést það á
því, að verksmiðjan á að verða
skattfrjáls fyrstu árin.
Matbjörg Póllands,
Vísir skýrði frá því fyrir skömmu
með hverjum skilyrðum Bretar
viidu leyfa innflutning á matvæl-
um til Póllands og annara hér-
aða er Þjóðverjar hafa hertekið.
— Þjóðverjar hafa nú neitað
þessu tilboði. — En svari sínu
til Bandaríkjastjórnarinnar, segir
þýska stjórnin, að ekki muni til
þess koma, að brýn þörf verði
fyrir þessa innflutninga, því að
uppskeruhorfur séu á g æ t a r í
löndum Þjóðverja.
Skotfæra-
verksmíðjur Breta*
Hergagnaráðherra Breta tilkynti
nýlega í þinginu, að skotfæra-
verksmiðjur rtkisins, sem eru
undir umsjá hergagnaráðuneytis-
ins væru orðnar 4052 talsins.
Nógar kartöflur
í Þýskalandi.
í Þýskalandi hefir verið bann-
að með lögum aö að nota kart-
öflur til skepnufóðurs. Það bann
er nú upphafið vegna þess hve
kartöfluuppskeran er góð í ár.
Saumaskapur
á morgunkjólum, barnafötum o. fl.
er lekinn á Vesturgötu 15 (vestur-
endanum). [217
Vísir 8. febr. 1916 (38. tbl.)
óskast keypt nú þegar í Prentsm.
Þ. Þ. Clementz. [319
Bókabúðin á Laugavegi 4 selur
brúkaöar bækur. Lágt verð. [3
Morgunkjólar fásl og verða saum-
aðjr í Lækjargötu 12 A. [30
Mjóikurkýr, góö, ung og ógöll-
uö, sem bera á 5. október, fæst
keypt. A. v. á. [133
Til söiu borðlampi og sófi. A.
v, á._____________________[134
Til sölu: hurðir og gluggar.
Uppi. í Tjarnargötu 8. [131
I
VINNA
1
Stúlka óskast til að sauma aðal-
iega morgunkjóla. A. v. á. [116
Hálslín er sterkjað á Laufásvegi
27 (uppi). [129
Piltur óskar eftir hægri atvinnu.
A. v. á. [135
Vanur skósmiður óskar eftir at-
vinnu nú þegar. [129
Stúlka óskar eftir atvinnu háifan
daginn í búð eða bakaríi frá 1.
sept. A. v. á. [130
I
TAPAÐ - FUNDIð
Budda fundin. Vitjist á afgr.
[134
Budda fundin. Viljist í Thor-
valdsensstræti 2, uppi.
Reglusamur trésmiður óskar
eftir lítilli stofu með góðum inn-
gangi frá 1. okt. n. k. — sem
næst miðbænum. Fyrirfram borg-
un. A. v. á. [138
r
HÚSNÆDI
]
r
KAUPSKAPUR
]
I
Langsjöl og þríhyrnur ■
fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið i
upp frá Mjóstræti 4). [43
Morgunkjólar fást beztir í Garða-
str. 4. [299
Herbergi meö húsgögnum til
leigu í Bárunni. [14
Skemtilegt og rúmgott herbergi
óskast leigt frá I. okt. Uppl. í
verzlun Lárusar G. Lúðvígssonar.
_____ 136
Eitl herbergi, með húsgögnum,
óskasl til leigu frá 1. okt. fyrir
reglusaman mann, A. v. á. [132
Ein stór stofa, eða eitt herbergi
og hliðarherbergi, óskast til ieigu
frá 1. okt., helzt sem næst mið-
bænum, Fyrirframborgun ef óskað
er. Þeir sem vilja sinna þessu gefi
upp nafn sjtt á afgr. Vísis sem
fyrst. [133
r
L E I G A
1
Barnavagn óskast tii leigu. A. v. á,