Vísir - 15.03.1918, Blaðsíða 4
M*SiK
Sjóvátryggingar og stríðsvátryggingan
á skipum, farmi og möimum, hjá
Fjerde Söforsikringsselskab.
— Sími 334 —
Yænt fjögramannafar
nýtt eða nýlegt, helst með segl-
um og árum, óskast til kaups.
Tiiboð merkt „Bátur“ leggist á
afgr. VísisJJfyrir 20. þ. m.
i tit 'le 'if iL- .il» ,.aL> p
Bæjarfréttir.
Hannes Hafstein
er aS sögn meSal farþega á
„Sterling".
„Willemoes"
kom hingaS a<5 noröan í gær.
Jiéöan fer skipiö ekki fyr en eftir
helgi áleiöis til Noregs.
„FróniS“
kom út í fyrradag, þrem dögum
fyrir timann, til þess aö leiörétta
vitleysuna, sem það flutti á laugar-
ciaginn.
„Njörður"
kom inn af fiskiveiðum í gær,
en hafði lítið aflað vegna stöðugra
ógæfta.
Vt af hafnarbakkanum
og niður í sjó datt hestur meS
vagn í fyrradag. Hesturinn kom
þegar fyrir sig sundi ogsynti með
vagninn í eftirdragi út á höfn. Var
þá farið á báti í veg fyrir hann
og hann síðan teymdur á land.
Varð hestinum ekkert meint við
þetta, en hjólin höfðu týnst undan
vagninum.
„Geysir“
fór héðan ekki fyr ep í dag.
Frá Akureyri
var símað í gær, að ís væri þar
enn samfastur á firðinum út undir
Hrísey, en ágætis tíð til lands og
sjávar.
Hlaðaflx
er í öllum veiöistöðvum hér
-sunnanlands, þegar á sjó gefur. tJr
Vestmannaeyjum var róib i fyrra-
dag og hlóðu allar fleytur, sem á
sjó fóru.
— /
j,Botnia“
fór frá Kaupmannahöfn á mánu-
daginn og átti að koma við í Berg-
en og taka þar póst. í Færeyjum
á skipið einnig að korna við og
losa þar helming farmsins.
Færeyskur sandur.
Beglskipið, sem kom á dögunum
til Kveldúlfsfélagsins frá Færeyj-
um, hafði sand fyrir seglfestú, og
er nú verið að flytja hann í land
og verður hann notaður í stein-
steypuhús, sem félagð er að byggja
við Grundarstíg. Verður það fyrsta
húsið hér, serix bygt verður úr út-
lendum sandi.
Saumastofa
Ávalt stórt úrval af alskonar
fataefnum.
Komið fyrst til okkar og athugið
verðið. — Allir vilja kaupa sem
: : ódýrast á þessum tímum : :
Föt aigreidd eftir
máli á tveim dögum.
v önunisiö.
Símanúmer
íshússins „Herðubreið"
við Frikirkjuveg er
Kartöflur,
sem komu með Geysir til
Jóns írá Vaðnesi,
hafa reynst vel.
Að eins nokkrir pokar eftir.
Jón frá Vaðnesi
selur
® ardlnur.
Ostar
eru komnir til
Jóns frá Vaðnesi.
Kæfa
fæst á
Laugavegi 70.
Sími 142.
Sardíxiur
til sölu á
Laugavegi 70.
Simi 142.
1 stðrt herbergi
með sérinngangi, fæst til leigu
sem skrifstofa eða þ. h., frá
15. marz eða 1. apríl.
A. Obenhanpt.
YÁTRYGGINGAR
Brtinatryggmgar,
am- og stríðsvátryggingar.
A. V. T u 1 i n i u s,
MiCstræti. — Talsími 254.
Skxifstofutími kl. 10—11 og 12—2.
Tvö samliggjandi herbergi til
leigu nú þegar. A.v.á. (229
Herbergi, 1 eða 2 ásamt að-
gangang að eldhúsi óskast til
leigu 14. cnaí, fyrir barnlausa
fjölskyldu, helst austur í bæ.
Tilboð merkt „húsnæði11 legg-
ist inn á afgr. Vísis fyrir 25
marz (227
Lítið herbergi, helst með hús*
gögnum, óskast til leigu nú
þegar. A.v.á. (242
VINNA
I
Stúlku vantar að Vííilstöðum
nú þegar. Talið við yíirhjúkr-
unarkonuna. (126
Stúlka óskast nú þegar. Nánari
uppl. hjá frú Bjering. Vonarstr.
12.________________________ (234
Dugleg og þrifin stúlka óskast
í ársvist 14 maí. Hátt kaup.
Frú M. Sigurðsson, Suðurgötu 12.
(218
2 dugfega
og vana sjómenn (útgerðamenn)
vantar suður í Voga. Hátt kaup.
Ólafur Ásbjarnarson
Hafnarstræti 20.
Stúlka tekur að sér tauþvotta
og hreingernigar. A. v. á. (240
Kona óskasr eftir að fara með
þvott í laugar. Uppl. Vestur-
götu 40. (241
Viðgerð á vatnsæðum á Njáls-
götu 13 B. vönduð vinna. (244
Stúlka óskast í vist helst strax
uppl. Grundarstig 12. (247
Stúlka óskast í vist um mán-
aðartíma. A.v.á. (249
1—2 stúlkur óskast í ársvist
á go_tt sveitaheimili. Upplýsingar
á Vitastíg 8. (252
Tapast hafa peningar í Austur-
stræti frá íslandsbanka og að
Veltusundi. Finnandi skili til af-
greiðslunnar. (245
Tap st hefir pakki með lérefti
í frá Bræðraborgarst’g, niður í
veizlun Björns Kristjánssonar.
A. v. á. (239
Til sölu á Hverfisgötu 86 eru
hjólbörur og ný laxveiðinót, mjög
ódýrt. Johan A. Petersen. (26
Skósverta, ágæt, fæst á Lauga-
vog 39, sími 619. Fólk komi
helst með ílát. (30
Baujur, ýmsar stærðir, selur
Jón Jónsson beykir, Klapparstíg
7. Talsími 593. (54
Spaðhnakkar með ensku lagi,
járnvirkjahnakkar rósóttir, venju-
legir trévirkjahnakkar, söðlar,
þverbakstöskur, töskur úr segli
og skinni og ýmsar ólar og ann-
að tilheyrandi söðla- og aktýgja-
smíði, selst enn með sama verði
og næstliðið vor. Söðlasmiða-
búðin á Laugavegi 18 B. Sími
646. (240
Stærri og smærri tjöld ættu
menn að panta sem fyrst, því að
þau verða dýrari síðar. Söðla-
smíðabúðin á Laugavegi 18 B.
Sími 646. (242
Dívanteypi fást í söðlasmíða-
búðinni á Laugavegi 18 B. Sími
646. (241
Kraga-aktýgi og venjuleg
klafa-aktýgi og aðgerðir á ak-
týgjum fæst ódýrast, fljótast og
best af hendi leyst í Söðlasmiða-
búðinni Laugavegi 18 B. Sími
646. (245"
Hálmur og tré-ull keypt háu
verði. A.v.á. (244
Brúkað matborð, sundurdregið,
fæst með tækifærisverði á tró-
smíðavinnustofunni Laugav. 13.
(136
Af sórsiökum ástæðum er dragt
til sölu á Lindargötu 12 uppi
með miklum afslætti. (230
~Morgunkjólar úr afargóðu tvist-
taui fást í Lækjargötu 12 A. (28
Stígin saumavél til sölu með
tækifærisverði. A. v. á. (61
Chaselongue til sölu, til sýnis
í Bankastræti 7. (243
Nýleg undirsæng er til sölu
með tækifærisveði. A.v.á. (246-
Nýtt skrifborð fæst á Lauga-
veg 24. (248
Klæðaskápur helst nokkuð stór
óskast. Sími 646. (260
Þrenn karlmannsstígvél til
sölu á Skólavörðustíg 33. (261
Notaðir fatnaðir á fullorðna
og unglinga, einnið skófatnaður
fæst keyptur með tækfærisverði.
A. v. á. (225-
LEIGA
1
Orgel óskast til leigu I vetur
og sumarlangt. A.v.á. (^236
F élagsprentsmið j an.