Vísir - 09.04.1918, Blaðsíða 1

Vísir - 09.04.1918, Blaðsíða 1
Ritstjóri og eigandi ASOB MÖLLER SÁMI 117 Afgreiðsla i AÐUSTRÆTI 14 SIAII 400 8. árg. ÞyiðjadaginK 9. apiíl 1918 95. tbl. (Bil-Apacherue). Sjónl. í 8 þáttum tekinn af „Svenska Biografteatern“. Leikinn af okkar góðkunnu sænsku leikurum: Rich. Lund, .1 ohn Eckmann, Erk. Almroth og Frk. Lange. Mynd þessi er falleg, efn- isrík og afarspennandi og mun án efa falla fólki vel í geð, þar eð myndir frá þessu félagi altaf hafa skarað fram úr öðrum Norðurlanda- myndum. NÝJA IO PAX ÆTEENA“ E! 3E> A. FRIÐUR Á JÖRÐU Stórfenglegur sjónleikur í 5 þáttuna, leikinn af Nord. Pilms Co. Eí'tir Ole Olsen. Aöalhlutverkin leika: Carlo Wieth, Eanny Petersen, Fr. Jacobsen, C. Lanritzen, Antoa de Yerdier, Ph. Bech. frá fréttaritara „VisisA Khöfn 8. apríl, árd. Þjóðverjar hafa gert áhlaup fyrir sunnan Oise og haud- tekið þar 1400 rnanus. Barist er nú einkuin á línunni Bichoncourt—Autreville. Frá París er símað, að almenningsálitið sé að verða and- vigara samkomulagsfriði en áður. Japanskur og hreskur her er koiuinn til Vladivostok Itússar hafa mótmælt þeirri Jandgöngu. Siheria er lýst í hernaðarástandi. Khöfn 8. apríl, síðd. Frakkar haida undan af ásettu ráði á svæðinu Obbe,- eourt—Coucy. Breiðaíj.bátarimi Prá Stykkishólmi barst sú fregn í gær, að Breiðafjarðarbáturinn „Svanur“ hefði strandað við Krossnesbjarg við Grundarfjörð skamt íyrir utan Bryggju, um’ kl. 3 í fyrradag. Báturinn yar á leið frá Stykk- ishólmi til Keykjavíkur og var kominn út undir Ólafsvík, er hann varð að snúa við vegna ofveðurs og ætlaði að hleypa inn á Grundarfjörð. Skipshöfn og farþegar komust af, en engin von talin um skipið. „Svanur" var, eins og kunn- ugt er, sama sem nýtt skip, árs- gamalt eða svo. Verður skip- tapiun Breiðfirðingum mjög til- finnanlegur, því að lítil von er um aö annað skip fáist í stað- inn i náinni framtíð, en flutn- ingaþörfin afarmikil og það svo, að „Svanur“ var þegar 1 upp- hafi of lítill til þess að fullnægja henni. Efni myndarinnar er að sýna hinar miklu hörmuag- ar og böl, sem styrjaldirnar leiða yfir heiminn, og eins hvernig hin mikla alneims- friðarþrá nær að lokum yfir- höndinni og þjóðirnar rétta hver annari bróðurhönd. — Hljómleikar. I enga danska kvikmynd er jafnmikið borið sem þessa. Hefir skáldið SOPHUS MIOHAELIS orktfyrir leiknum „prolog“ í Ijóðum, en tónskáldin hafa samið sér- stök sönglög, sem leikin eru undir sýningu. — Hafa þeir Theoðor Árnason, Reynir Gísiason og Toríi Sigmnnðsson tekið að sér að sjá um hljómleikana í NýjaBíó meðan myndin er sýnd þar. ,Pax æferna' hefir verið sýnd allra mynda lengst í Khöfn, eða samfieytt i heilau vetur. þar af í þrjá mánuði samfleytt í Palads- leikhúsinu. Voru öll dönsku blöðin sammála um það, að önnur eins kvikmynd hefði aldrei sést þar, og þaðan af síður betri. Og ánnarstaðar þar sem myndin hefir verið sýnd, hafa blöðin tekið í sama streng, enda er myndin meistaraverk. Sýning stendur yfir full- ar 2 klukkustundir. Tölu- sett sæti má panta í síma 107 allan daginn Bestu sæti kosta 2 kr., önnur sæti kr. 1.50, þriðju sæti kr. 1.30. — Barnasæti 50 aura. — 1 NB. Pantanir verða af- hentar í N ý j a B í ó á milli kl. 7-8 alla dagana. Siðasta stiórnar- Það er dálítið einkennilegt, að eftir því sem nær dregur auka- þinginu, virðist svo sem blöð þau, sem að undanförnu hafa stutt stjórnina af hinum mesta ákafa, jafnvel í hinum verstu hneykslismálum, eins "og sykur- málinu, vilja nú sem minst um stjórnina tala. Svo ramt kveður að þessu, að t. d. Tíminn afsak- ar sig nú í hverju blaði og seg- ist að eins ekki hafa viljað fará að dæmi þeirra blaða, sem ekki hafi viljað sjá neitt gott í fari míverandi etjórnar. En ebki er mönnum kunnugt um, að það blað hafi nokkurn tíma séð blett eða hrukku á stjórninni, og Tíminu var það, sem einn hélt uppi vörn fyrir stjórninni í syk- urmálinu, þrátt fyrir ritstjóra- skiftin og þrátt fyrir það, að stjórnin varð ber að því að hafa birt ranga skýrslu í málinu, bæði í blöðum og á opinberum fundum. Manni dettur í hug, að stjórn- arskútan sé nú talm svo illa sjó- fær orðin, af þeim sem kunnug- astir eru, að jafnvel þeir, sem til þessa hafa unað sér best í skut- num eða kjölsogiuu og úrillastir hafa verið, er við þeim hefir verið ýtt, ætli nú að fara að dæmi rottanna. í>að kann því að verða lagt illa út, e£ enn er farið að bnjóta í stjórnina fyrir frammistöðu hennar, en eittsnjall- ræði hennar er þó þannig vaxið, að varla má þegja um það.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.