Vísir - 27.10.1918, Blaðsíða 1
Ritxtjóri o( ei(M£
JAEII MÖLIiER
3tVI 117
Afgreiðsla i
A Ð ALSTRÆTl 14
SIMI 400
8. árg.
SannadagÍHB 27, októbcr 1918
m Gamla Bio m
Lifi \\mMM
afar skemtilegur og efnis-
nkur sjónleikur í 4 þátt-
um leikið af hinum frægu
ameríkönsku leikurum
Jnliu Dean og
Howarð Hicknan.
X=y V 2—9.
Sjónleikar 1 Iðnó
sunnudaginn 27. þ. m. kl. 8 siðdegis:
„Bónorð Semings" og „6estnrinn“
Eftir Illnga svarta.
Aðgöngumiðar yerða seldir í Iðnó i dag kl. 4—7 fyrir hækk-
að verð, og á mbrgun kl. 10—12 og eftir 2, fyrir venjulegt verð.
SJÁ götuauglý'sliigar.
292. tbl.
NÝJA BÍO mmm
Gimsteinahvarfið
á Grand HótcsJ,
Spennandi leynilögreglusjón-
leikur. Myndin er tekin
eftir sönnum viðbarði, sem
hér er látinn fara fram í
stórborginni Los Augeloi.
TABERG.
Hrifandi fögur landslagsmynd.
Fernis -- Törreise
(Sicoativ)
fæst hjá
Sören Kampmann.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að jarðar-
för okkar hjartkæru móður og tengdamóður er ákveðin
mánudaginn 28. þ. m. og hefst með húskveðju kl. II1 /a á
heimili hinnar látnu, Laugaveg 46 B.
Börn og tengdabörn.
Allur viðgerðaskófatnaður sem,
búið var að veita móttöku á
skósmíðavinnustofunni í versl.
„Yon“, verður næstu daga af-
hentur á Laugaveg 18 B.
Söðlasmiðabáðia
Simi <3 16.
V. B. K.
Nýkomið:
Fataefni. Frakkaefni. Kápuefni.
Regnfrakkaefni. Gardínuefni. Lakalérept þríbr.
Kvensokkar, ullar og bómullar.
Kvennbolir. Kvennsvuntur.
Millipils, lastings og moiré.
Vandaðar vörnr! Ódýrar vörnr!
Verslunin Björn Kristjánsson.
Loffskeyti.
Nýtt svar
væntanlegt frá Þjóðverjum.
Berlín 26. okt.
Þó að AVilson forseti hafi á-
kveðið að leggja friðarumleitan-
irnar þessu næst fyj ir bandamenn
sína, þá telur þýzka stjórniu þó
nauðsynlegt nú þegar að skora á
hann að láta uppi vopnahlós-
okilmálana. Orðalag svarsins er
enn óákveðið.
Fullkomið þingræði í Þýskalandi.
Kanslarinn á að bera ábyrgð
á öllum stjórnaratböfnum
þingsins.
Berlin 26. okt.
Vorwaerts skýrir frá efni frum-
varpa þeirra, sem íyrir þinginu
liggja, um breytingar á stjórnar-
skipunarlögum ríkisins, og þar a
meðal eru ákvæði um, að rikis-
kanslarinn skuli hafa traust þings-
ins og bera ábyrgö gagnvart þmg-
inu á öllum stjórnarathöfnum
keisarans. Kanslarinn og umboös-
menn hans bera ábyrgö á öllum
stjónarathöfnum sínum gagnvart
sambandsráðinu og þinginu.
Kanslarinn skal meöundirrita
skipun og afsetningu allra sjóliðs-
foringja og annara embættismanna
flotans. Hermálaráöherrann með-
undirritar á sama hátt skipun allra
embættismanna landhersins og ber
ábyrgð gagnvart þingi og sam-
bandsráöi.
Veröur þannig alt framkvæmda-
vald ríkisins í höndum stjórnar,
sem ber fulla ábyrgð, og þar með
einnig skipun og afsetning' æðstu
herforingja.
Sókn bandamanna.
London 26. okt.
Her Breta hefir umkringt Val-
enciennes að norðan og sunnan.
Þar fyrir sunnan hafa Bretar n&ð
járnbrautinni milli Valenciennes og
Avesnes á sitt vald á 8 mílna kafla.
í miðvikudags- og fimtudagsorust-
unum tóku Bretar 9000 fanga.
Frakkar hófu í gær áhlaup gegm
fleyg þýska hersins milli Oise og
Serre. Þeir sóttu fram á 8 rnílna
svæði við Souche og 17 mílna
svæði við Aisne og tóku 3500
fanga og ruddu sér braut inn í
Hundinglinu Þjóöverja á ýmsum
þýðingarmiklum stöðum. Milli Sis>
sonne og Chateau Porcien var bar-
ist alla nóttina og náðu Frakkar
þar öflugum stöðvum, sem Þjóð-
verjar gerðu 1917 og sóttu fram
um 3 kilómetra á 7 kilóm. svæði.
Þar fyrir austan hafa Frakkar
einnig sótt talsvert fram.
Þjóðverjar og Tyrkir
í enskum loftskeytum er sagt frá
því, að tyrkneskar hersveitir í
Litlu-Asíu hafi gert uppreist og
hlaupist úr her Tyrkja. Og nýlega
á þetta uppreistarlið að hafa ráö-
ist á járnbrautarlest, sem í voru
margir þýskir herforingjar. Voru
Þjóðverjar þessir dregnir út úr
vögnunum og húðstrýktir og'sum-
ir skornir á háls, en sumir þeirra
komust undan og leituðu vemdar
bretskra herfanga, sem voru í
járnbrautarlestinni, og er slíkt ó-
venjulegt. Austurríkismenn, sem
í lestinni voru, sættu engum mis-
þynningum, þvi að Týrkir álíta
að Þjóðverjar hafi gint þá í ófrið-
inn, eins og sig.
Atkvæðagreiðslaa
nm sambanðslögin.
í Eyjafjarðarsýslu voru greidd
533 atkvæði með lögunum og
34 á móti.
í Suður-Þingeyjarsýslu 504
með 57 á móti.
í Norður-Þingeyjarsýslu 175
með, en 26 á móti.
í Snæfellsnessýslu 618 með
en 20 á móti.
RaDgt hafði Vísi verið skýrt
frá atkvæðatöiunni í Skaftafells-
sýsluhreppunum tveim. Þar voru
atkvæðin samtals 98 og öll
með lögunum.
Nú eru að eins þrjú kjördæmi
eftir, sem atkvæði hafa ekki ver-
ið talin í. Það eru: Barða-
strandasýsla, Norður-ísafjarðar-
sýsla og Norðu.r Múlasýsla og
auk þeirra nokkur hluti Vestur-
Skaftafellssýslu.
Taiin atkvæði eru nú 12119
og þar af 858 á móti lögunum
og eru það 7 af hundraði.