Vísir - 20.11.1918, Blaðsíða 1
8. 6rj.
MtðTÍkaáagÍBa 20 nÓTembcr 1018
806. tbl.
r°
Jarðarför Sveins eál I>órðarsonar fer fram frá dómkirkj-
■ unni, fimtudaginn 21. þ. m. kl. 2 e. m.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristín Þorkelsdóttir.
tsm
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að jarðar-
för litla diengsins okkar, Amórs, fer fram frá heimili okk-
ar, Bankaetræti 10, fimtndaginn 21. þ. m. kl. 11.
Guðrún Jónsdóttir. Björn Arnórsson.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnnm, að okkar
elskuleg móðir og tengdamóðir, Kristin Magnúsdóttir, and-
aðist að heimili okkar, Skólavörðustíg 25, miðvikudag 13.
þ. m. Jarðarförin verður ákveðin eiðar.
Halldóra Þórarinsdóttir. Andrés Andsésson.
Guðrún Hákonardóttir. Magnús Þórarinsson.
Símskeyti
frá fréttaritara Vísls.
Khöfn 18. nóv.
Iniiuensan er mjög mikið að
réna. Á fimtudaginn voru opn-
aðir aftur allir opinberir skemti-
staðir o. s. frv.
Deuntser, fyrsti forsætisráðherra
vinstrimanna, er látinn.
Islandsmálanefnd danska þings-,
ins, sem i ern 15 menn, gerði i
dag fyrirspurn til stjórnarinnar
út af hinum ægilegu fregnum af
influensunni í Reykjavík, sem
vakið hefir áhyggju mikla.
Þýska stjómin hefir viðurkent
sjálfsákvörðunarrétt Norður-Slés-
vikur.
Vopnahléið.
Bandamenn taka Helgoland.
í opinberri tllkynningu frá
bresku stjórninni er skýrt nánar
frá vopnahlésskilmálunum enáð-
nr hefir verið gert i skeytum,
sem hingað hafa borist.
Þar er sagt, að bandamenn
kafi áskilið sér rótt tij að setjast
að í Helgolandi og hafa það sem
tryggingu fyiir því, að vopna-
hlésskilyrðin verði haldin. 30 þús-
vélbyssur eiga Þjóðverjar að af-
henda bandamönnum og allo
kaíbáta sína, 6 brynvarin
beitiskip, 10 bryndreka, 8 létt,
vopnuð beitiskip og 60 tundur-
spilla og önnur smærri skip eiga
Þjóðverjar að afvopna.
Járnbrautir i Elsass-Lothringen
eiga Þjóðverjar aö afhenda og
verða þaðan með her sinn og úr
öðrum kéruðum fyrir vestan Ein
innan 16| daga frá því vopna-
hléið var samið.
Öllum vopnahlésskilmélunum
skal fullnægt innan 36 daga.
Bandamenn heita því, að sjá
miðveldaþjóðunuui fyrir matvæ!-
um og ætla bráðlega að halda
ráðstefnu um, hvernig fram úr
matvælaskorti þeirra verði ráðið.
Loftskeyti.
London 18. nóv.
Ftmðnr breskra og þýskra
flotaforingjo.
A föstudagskvöJdið kom Hugo
von Meurer, þýskur yfirflotafor-
ingi á fund Davíðs Beatty, yfir-
fiotaforingja Breta, á skipi hans
(v)ueen Elizabeth. í för með
von Meurer voru 4 þýskir sjó-
liðsforingjar og voru þeir fiuttir
frá þýska herskipinu „Königs-
berg“ á breska tundurspillinum
„Oak“, sem meðal breska sjóhðs-
ins er kaliaður „tundurspiilir
Beattys“. Sátu þeir Beatty og
Meurer á fundi í herbergi Beat-
tys þangað til langt var iiðið á
nótt. Síðan hófst ráðstefnan aft-
ur fyrir hádegi á laugardag og
var ekki lokið fyr en um kl. 6.
Beatty sat við borðsendann,
að baki hans var mynd af Nel-
son en fyrir framan hunn dálít-
ið Ijónslíkan, sem hann hefir lát-
ið gera til minningar um for-
ingjaskip sitt „Lion“, sem hann
var á meðan hann var flotafor-
ingi oiustuskipaflotadeildarinnar.
(Á fundi þeesum hefir vænt-
anlega verið rætt um framkvæmd
vopnahlésskilmálanna að því er
enertir flotann, afhendinguHelgo-
lands o. s. frv.)
Frá vigvellinum.
Her bandamanna hefii nú haf-
ið för sina til Rínar, samkvæmt
v'vnnahlósskiimálunum.
list er við því, að her Frakka
komi til Metz og Strassborgar á
morgun, ef liann er ekki þegar
kominn þaDgað.
Bandarikjaliarinn hóf för sína
?r.eiama f gærmorgun. Fyrati
og fjórði her Breta halda'og aust-
ur á bóginn.
/
Keisarinn og ættmeim iians.
Þýskalandskeisari, sem nú hef-
ir sagt af sér, ætlar að fara heim
aftur frá Hollandi, vegna óeirða
þar í landi, og „Lokal Auzeiger8
telur það líklegast, að honum
verði leyft það. Sagt er að laun
keisarans muni verða greidd til
þess tíma er hann sagði af sér.
EíkiserfingÍDn þýski erí Þýska-
landi og dvelur í Cecilienhof.
Eidel Friedrich prins hefir op-
inberlega skorað á félaga sína
í setuliðinu í Potsdam, að ganga
í þjónustu nýju stjórnarinnar.
Þingkosningar
í Bretlandi 14. desember.
í opinberri tilkynningu bresku
stjórnarinnar er skýrt frá því, að
þingkosningar eigi fram að fara
í Bretlandi 14. desember.
Þingið verður leyst upp nú í
vikunni og hefir verkamanna-
flokkurinn ákveðið að léta fnll-
trúa sína ganga úr stjórninni
um leið og þingi verður slitið.
Sagt hefir verið að verkamenn
ætli sér 'að bafa menn í kjöri í
miklu fleiri kjördæmum en áður
og berjast til* valda við kosning-
ainar.
Héraðslæknirinn,
Jón Hj. Signrðsson hefir beðið
Vísi að leiðrétta ónákvæmni
nokkra, sem var í blaðinu í fyrrad.
í frásögninn um komu influens-
unnar hingað. Hann kveðst hafa
borið það undir landlækni ein-
an, en ekki forsætisréðherra, hvort
Botnia skyldi sóttkvíuð, er hún
kom hingað i október, og gert
það áður en skipið var komiÖ
inn á höfnina. Daginn eftir kom
Willemoes frá Ameriku með
skipshöfnint veika. Þá náði hér-
aðslæknirinn ekki til landlæknis
og bar þaö þess vegna undir for-
sætisráðherra, hvort lað skip
skyldi sett í sóttkví. Ráðherr-
ann hafði víeað málinu til land-
læknis og voru allar samgöngur
bannaðar viö 'skipið, þangáð til
svar hans var fengið.
Esmpiö aigi Teiðar’seri án
þoss að npyrja nm verð hjá
Ails konar vörurtil
® véiabáta og seglsbipa