Vísir - 24.07.1926, Blaðsíða 2

Vísir - 24.07.1926, Blaðsíða 2
Nýkomiö s Sinntp „Colmans", „Stifelsi“> — „Maggi“ súputeningar, „Maggí“ kjötseyði, Ediksýra, Soya. Kanel, Pipar, Tomato Catsnp, Símskeyti —o— Khöfn 23. júlí. FB. Poincaré verður stjórnarformaður. SímaS er frá París, að Poincaré myndi líklega stjórn, og verði rá'Suneyti hans þjóðlegt samsteypu- ráðuneyti, meS stuSningi hægri miðflokkanna og nokkurs hluta radikala. Fjárhagur Frakka. Ríkissjóðurinn hefir að eins yfir aS ráða þrjátíu miljónum dollara, nefnilega afgangi Morganlánsins. Bandaríkin og f jármál Frakka. Símað er frá Washington, a'o fullyrt sé, að stjórnin hafi tilkynt Frökkum, að engin lán verði fá- atileg, nema varanleg stjórn verði mynduð og skuldasamningurinn samþyktur. Utan af landi. —o— Akureyri 23. júlí. FB. Votviðrasamt undanfarið. Ligg- ur taða víða undir skemdum. 1 nótt snjóaði í fjöll. SíldveiSi sáralítil síðustu dagana, vegna óhagstæðr- ar veöráttu. Fylla er hér meö land- varnarráðherra Dana og nokkra þingmenn. Fóru þeir til Mývatns í niorgun. — íslendingur. og Sameinaða. Sameinaða gufuskipafélagið hef- ir orðið þess valdandi, að allmikill kurr er í mönnum i Færeyjum í garð Dana og harla mikil óánægja út af skipaferðum félagsins. Eftir því sem Færeyingum segist frá á Sameinaða að hafa beitt öllum kröftum til þess að bola hinu nýja færeyska skipafélagi frá á sigl- ingaleiðinni milli Hafnar og eyj- anna. Formaður skipafélags Færeyja, Edv. Mitens, fv. þingmaður, skrif- aði dönskum blöðum um málið, og er rétt að gefa íslenskum lesend- um tækifæri til þess að kynnast ákærum hans á hendur Sameinaða. Mitens segist svo frá: „7. apríl í fyrra, er „ Skipafjelagid Föroy- ars“ hóf beinar ferðir milli Hafn- ar og Eyja var farmgjald til ís- lands 10% hærra en farmgjald til Eplf, þnrknð, Apricots, þnrkaðar, Ferskjur, — Blandaðir ávextir, Bláber, Knrennnr, Döðlur, Sveskjnr. Færeyja. Þá beitti Sameinaða því bragði gegn skipafélaginu, að lækka farmgjald til Færeyja um 15%, án þess þó að breyta farm- gjaldinu til Islands fyr en um ára- mót, er það einnig var lækkað um 10%. En þá lækkar Sameinaða enn farmgjald til Færeyja um ca. 30%, án Jsess að hrófla við farm- gjaldi til íslands. Þetta var 1. júní þ. á. Þá er svo komið, að farm- gjald til íslands er 50% hærra en. farmgjald til Færeyja. Færeyingar álíta, að þessi lækk- un sé bragð gegn skipafélaginu færeyska, sem miði að því, að bola félaginu frá, en stjórn félagsins hefir tilkynt Sameinaða, að hún sjái sér ekki fært að lækka farm- gjaldið á öðru en þá fiski. Kaup- menn og almenningur í Færeyj- um hefir lofað Skipafélagi Fær- eyinga stuðningi eftir sem áður, og lofað að senda vörur með skipi félagsins, Ss. „Tjaldur", þrátt fyr- ir lækkun farmgjalds keppinauts- ins.“ Ennfremur segir hr. Mitens: „Verði hinu færeyska eimskipafé- lagi bolað frá, mun það verða til þess eins, að vekja gremju (Bitter- lied) og vonbrigði hjá allri alþýðu færeyskri, og sá orðrómur leikur á, að ef svo fari, muni verða leit- ast fyrir um nánari verslunarvið- skifti við Norðmenn, bæði beina leið milli Noregs og Eyja, og eins mun ef til vill reynt að fá þekt norskt eimskipafélag til þess að hefja ferðir milli Hafnar og Fær- eyja.“ Eftir þessu að dæma, eru Fær- eyingar reiðubúnir til þess að sýna hart á móti hörðu, og þurfa fs- lendingar ekki að furða sig á því, þeir, er muna eftir uppvaxtarárum Eimskipafélagsins. Hætt er við, að vér hefðum heldur eigi unað því vel, að vera beittir þrælabrögð- um, meðan félagið það var ungt og óreynt. L. S. Blikup. —o— I. Óþekk tíðindi munu það hafa verið íslendingum, er þeir lásu um daginn læðugrein litla í Morgun- blaðinu þess efnis, að Danastjórn hefði nú gert þá nýbreyting á meðferð sinni á málefnum Færeyinga — ódanskri þjóð, — að skifta málefnum þeirra meðal ýmissa danskra skrifstofu- \alda, en áður hefði þau legið öll undir eina stjórnardeild þar í Dan- mörk. íslendingar muna vel, — og þó varla sem skyldi, — hversu farið var með mál þeirra ' fyrrum þar suður við sundin. Má þeirn því vera íull-ljóst, hvað nú er aðhafst gegn Færeyingum. Færeyingar hafa haldið þjóðerni sínu furðanlega hingað til, bók- mentalitlir, að öðru, en gömlum þjóðkvæðum, en kúgaðir af kirkju og skólum, til þess að afrækja feðratungu sína, en taka upp er- lent mál. — Óðara en því fargi létti, mundi málfar þeirra mega rísa á fastan fót af nýju, við sjálf- lcjörinn stuðning íslenskrar tungu. Það er nokkuð undarlegt, aö Danastjórn skuli nú fremja þetta „uppátæki“ við Færeyinga, að skifta málefnum þeirra, sem al- dönskum málum milli stjórnar- deildanna dönsku i Kaupmanna- höfn, í stað þess aö virða Eyjarn- ar svo mikils, sem þó hefir verið gert hingað til, að ein stjómar- deild hefði mál þeirra til meðferð- ar. Hins hefði hgldur mátt vænta, að eitthvað væri létt hramminum af þessari sérstæðu frændþjóð vorri i Atlantshafinu, í minning þess, að Suður-Jótland hvarf aftur til Danmerkur. Þess er því að vænta, að betri og hyggnari völd þar syðra slæði snarlega upp aftur þessi nýju „tundurdufl", sem lögð eru nú heiman að utan við dönsku sundin, — svo að rætist hið fornkveðna, að „ekki verðr þat allt at regni, er röklcr í Iofti“. Götuskeggi. —o— Svoláfandi símskeyti barst for- manni deildarinnar hér á landi frá hinum norrænu gestunj: Um leið og vér kveðjum ísland viljum vér votta yður sem for- rnanni hinnar íslensku deildar hins norræna bandalags embætt- ismanna, vort innilegasta þakk- læti fyrir veru vora á íslandi. Það er sannfæring vor, að gerðir fund- arins, og þau nánari persónulegu kynni, sem vér höfum fengið á hinni íslensku þjóð, og umboðs- stjórn landsins, og ekki síst hin stórkostlega gestrisni, er oss hef- ir verið sýnd á íslenskum heimil- um, muni stuðla til þess, að þvi markmiði verði náð, er samband- ið hefir sett sér, og jafnframt verða til eflingar samvinnunni á Norðurlöndum. Michael Koefod. Yrjo Loimaranta. Carl Platon. Gabriel Thulin. Messur á inorgun. í dómirkjunni kl. 11, síra Bjanii Jónsson. í fríkirkjunni kl. 5 síðd. síra Árni Sigurðsson. í Landakofskirkju : Hámessa kl. 9 árdegis. Engin síðdegismessa. í Sjómannastofunni: Guðsþjón- usta kl. 6 síðd. Allir velkomnir. Páll Steingrímsson, ritstjóri Vísis, kom til bæjarins í gærkveldi, landveg norðan úr Húnavatnssýslu. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 10 st., Vest- niannaeyjum 10, Isafiröi 10, Akur- eyri 14, Seyðisfirði 11, Grindavík 10, Stykkishólmi 9, Grímsstöðum 10, Raufarhöfn 8, Hóíum í Horna- firði 10, Þórshöfn í Færeyjum 11, Angmagsalik (i gær) 5, Utsira 14, Tynemouth 16, Leirvík 42, Jan Mayen 8 st. — Mestur hiti hér í gær 11 st., minstur 7 st. —- Loft- vægislægð fyrir norðaustan land. Horfur: í dag: Fremur hægur útnorðan, lítilsháttar úrkoma á Norðurlandi og Vesturlandi. Þurt á suðausturlandi og Suðurlandi. I n ó 11: Útnorðan og norðan. Þoka og dálítil úrkoma norðanlands. Þurt annars staðar. Gullfoss kom að vestan í morgun. Meðal farþega voru: bræðurnir Björg- úlfur og Grímúlfur Ólafssynir, og frúr þeirra, Ó. G. Eyjólfsson, Páll Bjarnason, cand. juris, Gunnar Bjarnason, Elias Hólm, Jóhann Bárðarson kaupm. frá ísafirði og fleiri. Álafosshlaupið verður hlaupið á morgun, og hefst frá Álafossi kl. 12J4. Þátt- takendur eru 5, þar á meðal Magn- ús Guðbjörnsson, setn hefir unnið hlaupið tvö undanfarin ár, og ef hann vinnur nú, hlýtur hann hinn mikla Álafossbikar til eignar. — Hlaupiö endar á íþróttavellinum og er öllum heimill ókeypis að- gangur. Þýska skemtiskipið er vætanlegt hingað kl. 5 í fyrra- málið og verður hér til mánudags- kvelds. Ferðafólkið fer til Þing- valla báða dagana. Móttökur skips- ins annast Knud Thomsen, og hef- ir skrifstofur i Thomsenshúsi. Loftur Guðmundsson tók kvikmynd af konungskom- unni í sumar, og verður hún sýnd í Nýja Bíó í kveld. Ágætur þurkur hefir verið hér tvo undanfarna ciaga. I nótt rigndi lítilsháttar, en ]>urrviðri er spáð í dag. — Mikið var hirt hér af heyi í gær, og í clag mun nást alt hey, sem losað var, þegar þurkurinn kom. í Vatnaskóg ætlar K. F. U. M. að fara á morgun, ef veður leyfir. Listsýningin verður opin á morgun og mánu- dag kl. 10 árd. til 9 síðdegis, og eru þetta síðustu forvöð fyrir þá. sem sjá vilja sýninguna. Aðgang- ur 1 kr. Börn fá frían aðgang, ef þau koma með fullorðnum. Botnia fór í gærkveldi kl. 7 síðd. frá Færeyjum; kemur hingað annað kvöld. — Þriðjudaginn 27. fer hún vestur og norður um land.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.