Vísir - 19.11.1926, Blaðsíða 3
V Ivsl í*
er samkv. heilbrigðisreglugerS
bæjarins. Vill hann sýnilega koma
því inn í meSvitund fólks, aS fé-
lagi'5 svíki mjólkina með því að
taka úr henni rjóma.
Ef Pétur þorir að skriöa undan
pilsfaldinum og standa við þessi
•orö, þá leyfi eg mér aö lýsa þau
tiú þegar ærumeiöandi ósannandi;
annars veröur „Gróa“ aö meötaka
ble'ssunina i hans staö.
Rvík 18. nóv. 1926.
Eyjólfur Jóhannsson.
Veðrið í morgun.
Frost í Reykjavík 4 st., Vest-
manníievjum liiti 1, ísafirði 0,
Akureyri frost 5, Seyðisfirði 0,
Stykkishólmi 4, Raufarhöfn 1,
Hólum í Hornafirði 0, (engm
akeyti frá Grindavík og Gríms-
stöðum), pórshöfn i Færeyjum
hiti 4, Angmagsalik (í gær) frost
4>, Kaupmannahöfn hiti 9, Utsire
4, Tynemouth 9, Hjaltlandi 7,
Jan Mayen frost 1 st. — Mestur
hiti í Reykjavík siðan kl.8 í gær-
morgun 1 st., minstur -f- 4 st. —
Loftvægislægð um 1000 km.
■suður af Reykjanesi. — Hvöss
uustanátt norðan til í Norður-
*jónum. — Horfur næstu tvö
dægur: Suðvesturland: í dag:
Austlæg átt. 1 nótt: Vaxandi
norðaustanátt. purt veður. —
Faxaflói og Breiðafjörður: I
dag' og nótt: Hæg austan átt.
Hreinviðri. — Vestfirðir og
Norðurland. 1 dag: Norðaust-
Jæg átt. 1 nótt: Sennilega all-
hvass á norðaustan. Dálitil snjó-
koma. — Norðausturland: í dag
•og í nótt: Allhvass á norðaust-
an. Fannkoma. — Austfirðir: I
dag: Vaxandi norðaustan átt.
I nótt: Sennilega allhvass. Snjó-
lcoma. —■ Suðausturland: í dag:
Vaxandi norðaustan átt. í nótt:
Allhvass. tlrkonudítið.
Verslunarmannafél. Rvíkur.
Skemtifundurinn í kveld í Kaup-
þingssalnum byrjar stundvislega
kl. 8)4 meö hljómleikum hinna
ágætu listamanna frá Café Rosen-
berg. Með því að tími þeirra er
tnjög takmarkaður, verða allir fé-
lagsmenn, sem ekki vilja verða af
hljómleikunum, aö koma stundvís-
lega. Ennfremur sýnir hr. Loftur
Guömundsson kvikmyndir, og
fleira verður til skemtunar.
Ejármálaráðuneytið
tilkynnir: — Innfluttar vörur í
októbermánuöi námu alls kr.
2.890.919,00, þar af til Reykjavík-
ur kr. 1.890.734,00.
island
fór í gær frá Leith áleiðis hing-
að. Á meðal farþega er söngkon-
an Germaine le Senne frá óperunni
í París, sem ætlar að syngja hér
nokkurum sinnum.
Háskólafræðsla.
Dr. Kort K. Kortsen hefir æf-
ingar í dnösku í dag kl. 6—7 (en
ekki 5—6, eins og áður).
Spellvirkjar
hafa nýlega verið úti í Örfir-
ísey og brotið allar liurðir og
rúður Sundskálans. Fróðlegt
væri að vita, livaða menn það
eru, sem leggja á sig ómak og
erfiði lil að framkvæma slík
spellvirki, sem jafnvel sjálfir
þeir hafa engan hag af, því að
ekki er kunnugt, að neitt fémætt
hafi verið i skálanum.
Rjúpnaveiðar
eru nú stundaðar af miklu kappi
víða um sveitir, enda er sagt að
óvenju mikið sé um rjúpur í vet-
ur og þó nokkuð misjafnt í sum-
um bygðarlögum hér syðra. Á
sumum bæjum er búið að skjóta
4—5 þúsund. Á einum bæ hér
nærlendis er „Vísi“ kunnugt um,
að bóndinn skaut 215 rjúpur einn
daginn. Þótti það vel að veriö.
Harðindi nyrðra.
Símað var frá Höskuldsstöðum
á Skagaströnd í gær, að þar í
sveit væri nú öllu sauðfé gefið
inni. Snjór er með langmesta móti
og nýlega gerði spilli-blota, sem
hleypti öllu í gadd. Er búist við
að öll hross verði að taka á gjöf
mjög bráðlega, ef þessu fer fram.
Heyfengur manna í sumar þar um
slóðir var ekki mjög lítill að vöxt-
urn, en heyin reynast létt og illa
verkuð.
Gullfoss
fór héðan á miðnætti í nótt,
áleiðis til Austfjarða og útlanda.
Á meðal farþega voru: E. Nielsen
framkvæmdarstjóri, frú hans og
dóttir, J. Júlíníusson skipstjóri,
Árni Riis kaupm., ungfrú Ása Sig-
urðsson, ungfrú Lilja Hjaltadótt-
ir, Inselmann og Köster. — Til
Seyðisfjarðar fór Guðm. Þllíðdal.
Rjúpa
sat í morgun á barnaleikvellin-
um við Túngötu, og fyrir skömmu
sást rjúpa hér i miðbænum.
Isfisksala.
pessi sldp hafa selt afla sinn
í Englandi 11. til 18. þ. m. —
Júpíter fyrir 1630 st.pund, Bel-
gaum fyrir 1288 og Gyllir fyrir
1611 st.pund.
Gulltoppur
kom af veiðum í gær og fer
til Englands í dag.
J?ýskur botnvörpungur
kom í gær með sjúkan mann.
Samkoman
í fríkirkjunni í gærkveldi var
afarvel sótt.
Jón Eiríksson,
fyrsti stýrimaður á Gullfossi, er
skipstjóri þessa ferð, með því að
skipstjórinn, Sigurður Pétursson,
tók sér hvíld.
Skátar!
Næstk. sunnudag fer fram fána-
vígsla hjá Akraness-skátunum.
Margir skátar ætla héðan úr bæn-
um, en þeir sem enn vilja bætast
við gefi sig sem fyrst fram við
Ársæl Gunnarsson, Hafnarstræti
8. Farið verður kl. 9 um morgun-
inn og komið aftur samdægurs.
Ekkí verður farið nema í ágætis-
veðri.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá Sigríði.
Gjöf
til sjúku stúlkunnar, afh. Vísi:
5 kr. frá E.
; SOíiöKOöOOCOÍSOOOÍKHÍOOOOtÍÍÍÍÍtSÍXÍÍÍtSOOOOCOftíÍÍÍtSÍÍOÍÍftíÍíXSOÖÍSOOO; tstsotstitscotststsotstsootsotststsoetstst S
Avaxtaskálai*
Blómsturvasai*
Konfektskálap
— Skpautgpipaskpín
0. fl. nýkomið, mjög skrantlegar en þó ódýrar vörnr.
K Einsrsson & Björnsson, Binkastrsoti 11
S?sootsooootst50ístststsoooootstsootsosotstststsoeotststsooooooootsotsootstststsooísetsístststststststst50tsotstsotsísoots
FATABUÐIN
í Hafnarstr. 16,
selur það sem eftir er af
kvenkápuin, barna-
k«ipafn me8 afar
lágu verði nú
no k k ra
daga,
ennfremur gulftreyjur.
GENGI ERL. MYNTAR.
Sterlingspund ....kr. 22.15
100 kr. danskar ... — 121.70
100 — sænskar ..... — 121.95
100 — norskar...... — 118.6Ö
Dollar ............ — 4.57)4
100 frankar franskir .. — 16.13
100 — belgiskir . — 12.78
100 — svissn. ... — 88.42
100 lírur ......... — 19.72
100 pesetar ....... — 69.74
100 gyllini ....... — 183.04
100 mörk þýsk (gull). — 108.56
Eftirmáli
heitir nýútkomið rit eftir Sigurö
Þórðarson, fyrrum sýslumann. Er
það í sama broti og Nýi sáttmáli,
sem sami höfundur gaf út síðast-
liðinn vetur, og hið vandaðasta
að öllum frágangi. Rit þetta fjall-
ar að mestu um „Guðjónsmálið"
svo nefnda. Byrjar það á nokkrum
inngangsorðum, og er höfundur
þar allkjarnyrtur, sem og annars-
staðar. Þá kemur næst sakamáls-
rannsóknin. Eru þar bréf þau, sem
fóru milli höfundar og bæjarfó-
geta, eftir að Nýi Sáttmáli kom út
og birtust þá í Morgunblaðinu.
Þá kemur kafli úr fyrirlestri, sem
Magnús Magnússon hélt síðastlið-
inn vetur, bæði hér í Reykjavík og
Hafnarfirði. Hafði Magnús, sem
kunnugt er, rannsókn málsins á
hendi, sem fulltrúi bæjarfógeta.
Sí'ðan rífur höfundur (þ. e. S. Þ.)
niður fyrirlesturinn, svo að þar
virðist naumast standa steinn yfir
steini eftir. Þá deilir höfundur og
allmjög á Jóhannes Jóhannesson,
bæjarfógeta. Nefnir meðal annars
nokkur atriði, sem komið hafi í
liós þegar lík Guðjós sál. fanst,
sem hann telur að hafi aukið á
þann grun, að ekki væri alt með
feldu um dauða Guðjóns, en ekki
verið á þau rninst við framhalds-
rannsóknina, sem bæjarfógeti
hafði sjálfur á hendi.
Einnig minnist höf. all-ítar-
lega á umræður þær, sem urðu
í efri deild Alþingis á síðastliðnu
vori, um Nýja Sáttmála, og fá þeir
þunga ádeilur, sem þar eiga hlut
að máli. — Þeir, sem lesið hafa
Nýja Sáttmála, geta ekki hjá því
komist, að lesa Eftirmálann; hann
fæst hjá bóksölum og kostar 3 kr.
G.s.
„Góði frd Slgríður, hvernlg ferð þú að l)úa til
svona góðar k8kur?u
„Eg skal kenna þór galdnrinn, Ólöf mín. Notaðu
aðeins Gerpúlver, Eggjapúlver 0? alla dropa frá Efaa-
gerð Reykjavikur, þá verða köknrnar svoaa fyrirtaks
góðar. t>að fæst hjú ‘óllum kaupmönnnm, og eg bið
nltaf uii) Gerpúlrer frá Efnagorðiuui eða Gerpúlverið
mvð teipumyndinui".
UPPBOÐ
Mánudaginn 22. þ. m. verður opinbert uppboð haldið við
pakkhús h.f. Kol og Salt á vesturuppfyllingunni, og hefst kL 1
e. h.
Verða þar seldir ca. 450 kassar af dósamjólk.
Bæjarfógetinn i Reykjavik, 19. nóvember 1926.
Jóh, Jóhtnnessoii.
.stsotsotstsooootsootsQotseotststststststststs
g
st
st
it
Nýjasta nýtt!
Bráðnau9synlegt hverjum hjólreiða-
mannil
Allar slönguviðgerðir óþarfarl
Hvað er Gúmmílysin ? ?
GU3IMILYS1N lagar af sjálfu sér allar skemdir á slöngum
fyrirhafnarlaust, hvort sem þær orsakast af nöglum, gler-
brotum, hvössum steinum eða þess háttar.
GUMMILYSIN gerir allar slöngur loftþéttar þó óþéttar séu
og gerir þær mjúkar eða þensluliprar, þannig, að gamlar
ónýtar slöngur verða nothæfar.
GU3IMILYSIN varnar loftinu að sytra út, eykur haldgæði
togleðursins og veitir þannig hjólreiðamanninum ýms þæg-
indi sem spara tíma, peninga og erfiði
GU3I3IILYrSIN geta allir notað fyrirhafnarlítið. Nákvæm
notkunaraðferð er prentuð á hvern pakka (öskju)-
VERÐ; 1 askja: 1 kr.
Er nægileg á eina lijólliestsslöngu í eitt ár. Þamiig
nægja i öskjur fyrir hjólliestinn, fyrir mótorlijólliest 4
öskjur í eitt ár. Hið lága verð Gunimilysins hvcrfur,
er það er borið saman við hina miklu kosti þess.
Fæst hjá aðalnmboðsmanni
Guðm. Pétupssyni nuddi.
Eskiílrði.
Fæst fyrst um sinn hjá aðalumboðsmanni pr. borgun eða eft-
irkröfu, uns útsölumenn koma í Rvik og öðrum kaupstöðum
landsins.
soooooooootsísoootststsootsoootststststsoctsootsotsootstsotsoootstsoooooc
Ludsins mesta úrval ai rammalistum.
Myndir lnnrammafiar fljótt og vel. — Hvergi eins ódýrt.
Kuðmnndnr Ásbjðrnsson,
Laugave* 1.