Vísir - 03.12.1926, Blaðsíða 4
VlSíR
De auerkjendte
*‘_h.TRÆKSPIL
staar fremdeles
heiest sóm kvalitets•
instrumerit.
Luksuskatalogen 1926
(med nye modeller)
sendes gratis og franko.
Hrukte spil tilsalss.
Nordens Musikforretning |
Kirkegaten 15, Oslo.
CNorges storstc spedalforretning i traekspil)
Nýkomið.
Skyrhákarl þverhandar þykkur
frá Hornströndum. Lúðuriklingur
hertur í hjöllum, frá ísafjatðar-
djúpi Haiðfiskur norðan úr landi.
Steinbitsriklingur á 0,50 aura pr
v. kg. Þurkaður harðfiskur og
skata.
Von. Simi 448
(tvœr linur.)
MQQOOQOOOQ(XXXX)OQOOQQOO«
Nýkomið: j
Mikið úrval af
Samkvœmi skj ólaef nnm,
UUarfannm,
Morgnnkjólaeínnm o. fl.
Visiskaffid gerir aila glaöa
| KENSLA|
Ensku og dönsku kennir Friö-
rik Björnsson, Miðstræti 5 niöri,
(áöur Þingh.str. 35). (3
I
TAPAÐ-FUNDIÐ
I
Kvenregnhlíf skilin eftir síöast-
liöinn þriöjudag, í versl. B. H.
Bjarnason. (60
r
HÚSNÆÐI
1
Tvö ágæt herbergi, raflýst, með
miðstöðvarhitun, ásamt húsgögn-
um, verða til leigu fyrir einhleypa
um miðjan desember, í fyrsta
flokks steinsteypuhúsi á besta stað
í miðbænum. — Tilboð, merkt:
„1867“ leggist inn á afgreiðslu
Vísis. (83
Góð stofa til leigu. Uppl. x ís-
landsbanka. (78
Tvö herbergi, með aðgangi að
eldhúsi, til leigu. Uppl. Bræðra-
borgarstíg 32 A. (77
1 herbergi og eldhús til leigu
strax. Grund á Grímstaðaholti.
(62
Herbergi til leigu með ljósi og
hita. Ámi & Bjami. (55
Herbergi til leigu fyrir reglu-
saman mann, í Þingholtsstræti 35.
(50
I
LBIQt
Orgel eða píanó óskast á leigu.
Tilboð merkt: „Hljóðfæri“ sendist
Vísi. (56
I
TILKYNNING
I
Sparið sporin, með því að líta
inn i hina nýju brauðsölubúð, er
eg undirritaður opna laugardaginn
4. des. 1926. Bergstöðum viö
Laugarnesvegj. Sigurbergur Ein-
arsson. (68
„Eagle Star“ brunatryggir hús-
gögn, vörur o. fl. Sími 281. (1100
r
VINNA
1
Eldhússtúlku og ungling vant-
ar nú þegar. Uppl. á Klapparstíg
5, niðri. (79
Vantar mann til að hirða þrjá
hesta. Talið við Daníel Daniels-
son, Stjórnarráðinu. (76
Kjólar og kápur á börn og full-
orðna, er saumað á óðinsgötu 32,
uppi. (71
Sauma peysuföt, upphluti, stakka
o. fl. Sigríður Ólafsdóttir, Bræðra-
borgarstig 3 B. (70
Telpa um fermingu óskast nú
þegar til að gæta bama. Kristín
Norðmann, Bergstaðastræti 50 A.
(69
Dugleg stúlka óskast. Hátt
kaup. A. v. á. (66
Á Laugaveg 50 B, niðri, eru upp-
hlutir og peysuföt saumuð, einnig
vent karlmannafatnaði. Kristm
Ingimarsdóttir. (61
Drengur, 15—17 ára, getur feng-
ið atvinnu við verslun. Tilboð, auð-
kent: „Drengur" sendist Vísi. (59
Sauma allan kven- og barna-
fatnað. Magnea Sigurðardóttir,
Bergstaðastræti 43 A, áður Aðal-
stræti 8. (54
Stúlka, sem er vön að prjóna á
prjónavél, óskast yfir veturinn, i
grend við Reykjavík. Uppl. á
Bi-æðraborgai-stíg 35, niðri. (51
V. Schram, Ingólfsstræti 6.—
Fyrsta flokks fatasaumur og
bestu tegundir af enskum efn-
um. Nákvæmni í sniði og mót-
un. Lægsta verð. Viðgerðir og
pressun vel af hendi leyst og
framkvæmt fyrir vissan tima
eftir beiðni. Tilbúnir vetrar-
frakkar, saumaðir á saumastofu
minni, seljast ódýrt. — Munið
að eg gef 15% afslátt til jóla.
_____________________________(19
Örkin hans Nóa, Klapparstíg
37, er nú aftur tekin til starfa
og þar fáið þið traustar við-
gerðir á saumavélum, grammó-
fónum og ýmsu fleira. Sími:
1271. (20
Með nýjustu ljós- og gufu-böð-
un tökum við í burtu: Fílapensa,
búðorma, vörtur og öll önnur ó-
hreinindi í húðinni. Einnig flösu,
hárrot. Hárgreiðslustofan, Lauga-
veg 12. , (1055
Ef þið þurfið að fá stækkaðar
myndir, þá komið i Fatabúðina.
Þar fáið þið það fljótt og vel af
hendi leyst. (458
r
KAUPSKAPUR
[[ggr3 Hús til sölu með lausutn
íbúðum. Finnið Sigurð Þorsteins-
son, Freyjugötu 10 A. (85
Mannborg harmóníum til sölu
með tækifærisverði. G. Eiríkss.
Sími 1980. (84
Nýr grammófónn til sölu með;
tækifærisverði. A. v. á. (82
Allskonar munir til sölu. Lausa-
'fjármunasalan, Laufásveg 5. (81
Notaðir kjólar, kápur og
drengjafrakkar. Tjarnargötu 3,
uppi. (Bo
STEINOLÍA, besta tegund, ó-
dýr. Laugaveg 64. Sími 1403. (75
Rjúpur frá 35 au„ Spaðkjöt.
Hangikjöt, Kæfa, Tólg, Ostur, alt
ódýrast á Laugavge 64. Sími 1403.
(74
SYKURKASSAR 21 kr., kar-
töflur, ágætis tegund, 11 kr. pok-
inn, hveiti-pokinn frá 23,50. —
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
(73
Nýkomið: Hattar, húfur, sokk-
ar, manc.hettskyrtur, axlabönd,
regnhlífar, kápur, handklæði,
vasaklútar o. fl., ódýrast. Karl-
mannahattabúðin. Einnig gamlir
hattar gerðir sem nýir. (72
Fyrsta flokks dilkakjöt frá
Hvammstanga, ásamt fleiri land-
vörutegundum, fæst með lægsta
verði hjá Ásgeir Hraundal, Lækj-
arhvammi, Hafnarfirði. Sími 131.
(67
Stór grammófónn og nokkrar
plötur til sölu. Verð alls aðeins
100 krónur. Þingholtsstræti 18,
úppi. (5-
Reiðhjól til sölu, vegna burt-
fíutnings. Tækifæriskaup. A. v. á.
(64
Elegant, ónotaður samkvæmis-
kjóll (í mode farve), fæst keypt-
ur með góðu verði. A. v. á. (63
Svart silki í upphlutsskyrtur er
til sölu mjög ódýrt á Laugaveg
53 B. Jóhanna Arngrímsdóttir.
_____________________________(53
Ný smokingföt á meðalmann,
ballkjóll og upphlutur, til sölu. A.
v. á. (57
Vörubifreið (Ford) til sölu.
Uppl. hjá Nikulási Steingrímssyni,
Fálkanum. (86
Stórt og fallegt, svart hunds-
skinn til sölu. A. vr á, (65A
Til jóla sel eg, með sérstaklega
lágu verði, neðantaldar vörur:
Karlmannsúr, kvenúr, armbands-
úr, 20% afsláttur, með 2—4 ára
ábyrgð, úrfestar, kapsel, brj óstnæl-
ur, stásshringi, manchettuhnappa,
fingurbjargir, tóbaksdósir, sígar-
ettuveski, eggjabikara, ávaxta-
skálar, silfur- og plettskeiðar,.
kaffiskeiðar, kökuspaða, alt meí4
10—15% afslætti, kápuskildi i
miklu úrvali, áletrun á sama staö-
Daníel Danielsson, leturgrafarí,
Laugaveg 55. Sími 1178. (55,
Til sölu með tækifærisverði: I
kjólklæðnaður (nýr), 1 yfirfrakkj
á ungling (notaður), 1 smoking-
klæðnaður (notaður), nokkrir
jakkaklæðnaðir og yfirfrakkar,
sem ekki hafa verið sóttir. — Nú
er tækifærið að gera góð fatakaup..
Reinh. Andersson, Laugav. 2. (iE
„Fjallkonan", skósvertan frá.
Efnagerð Reykjavíkur, er best.
Gerir *skóna gljáandi sem spegil
og yfirleðrið mjúkt og sterkt,
Kaupið að eins Fjallkonu skó-
svertuna. Fæst alstaðar. (918
Filsplástur er ný tegund af gigt-
arplástri, sem hefir rutt sér braut
um allan heim. Þúsundir manna
rtiða sig á hann. Eyðir gigt og:
taki. Fæst í Laugavegs-Apóteki.
_____________________________ (45^
Frá Alþýðubrauðgerðinni. —
Til minnis: Aðalbúðin, Lauga-
veg 61. Sími 835. Brauð, kökuTo,
mjólk og rjómi. (711
Hár við íslenskan og erlendaE
búning, fáið þið hvergi betra né
ódýrara en á Laugaveg 5. Versl.
Goðafoss. — Unnið úr rothári.
_____________________________(37t
Fallegastir verða jólakjólarnir á
eldri og yngri, ef efnið er keypt
í versl. Amunda Árnasonar. (15
Munið eftir kjólaflauelinu í
versl. Ámunda Árnasonar. (i2'
Nýkomnar golftreyjur á börn og
fullorðna, úr silki og ull. Hvergí
meira úrval í borginni. Verslun
Amxmda Árnasonar. (16
FélagwpreatumiB) ao.
ÁST OG ÖFRHÍUR.
„Sálgið þér mér heldur," sagði hún í örvæntingu sinni.
„Það get eg ekki,“ svaraði hann hálfbrosandi, „en trú-
ið mér: Þetta, sem eg býð yður, er betra en dauðinn, og
yður mun ekki iðra þess, ef þér viljið þiggja það.“
„Hvílík óttaleg tilhugsun!" sagði hún lágt og kvein-
andi og sló út höndunum. j
Reutlingen strauk kampinn, langan og hermannlegan.
Hann gat ekki að sér gert að brosa að þessu svari, en
vildi ekki láta bera á því.
„Svar yðar er eiginlega ekki neinir sérlegir gullhamr-
ar mér til handa,“ sagði hann. „En gerið nú svo vel
að hlusta rólega á mig. Viljið þér gera það?“
„Já, eg skal hlusta á yður.“
„Jæja-þá! Eg leita fyrst og fremst samþykkis hans
Hátignar og fæ það vonandi. Þér þekkið gamla her-
prestinn. Hann gefur okkur svo saman daginn áður en
við leggjum upp. Þjer verðið okkur samferða til Gróssen-
hayn. Þaðan fylgi eg yður til Steinhövel og þar setjist
þér að, ekki sem gestur eða framandi, heldur sem hús-
freyja eða drotnandi húsmóðir. Og þetta er alt og sumt,
sem verður til þess að minna yður á giftingu okkar —
aS öðru leyti breytast okkar persónulegu hagir ekki
minstu vitund. Eg skal ekki einu siimi dirfast að snerta
hönd yðar, nema því að eins, að þér réttið mér hana
að fyrra bragði. Ef mér auðnast að koma aftur heim
til mín, þegar styrjöldinni er lokið, heill heilsu og ófatl-
aður, þá ætla eg að spyrja yður hvort þér viljið vera
eiginkona mín og halda áfram að vera það. Ef þér neitið
því, þá mun eg leysa hjónabandið og gefa yður aftur
fult frelsi. Og nú er best, að þér íhugið þetta, sem eg
hefi sagt,“ bætti hann við og reis skyndilega úr sæti
sínu. „Eg vænti svars yðar klukkan tíu árdegis á
morgun.“
Hann hneigði sig djúpt, gekk burt og lét hurðina
aftur á eftir sér.
Hjarta bennar barðist af angist og kvíða, því að hún
vissi, að hún átti einskÍ9 annars úrkosti.
En Reutlingen skundaði til borðstofunnar, þar sem
hann hafði skilið við liðsforingja sína fyrir einni klukku-
stund og hratt upp hurðinni. Þar inni var alt fult af
tóbaksreyk, en hlátrasköll og hávaði glumdi á móti
honum.
„Wolf!“ kallaði hann beint inn í hávaðann með skip-
andi rödd.
„Herra höfuðsmaður!“ svaraði Wolf og flýtti sér til
hans, en Reutlingen skelti aftur hurðinni.
„Ertu alveg ódrukkinn ?“ spurði hann og hvesti aug-
un á liðsforingjann.
„Hvað er þetta? Já, vitanlega er eg það!“
„Viltu leggja við drengskaparorð ? Eg þarf að segja-
þér áríðandi alvörumál."
„Þú getur sjálfur gengið úr skugga um það. Við skul-
um ganga niður i garðinn. Þar er að vísu hundkalt, en
það er bara betra.“
Það marraði í snjónúm er þeir gengu um hann, og
námu þeir staðar á miðri fönninni. Reutlingen sagðí
nú vini sínurn alt sarntal þeirra Úlriku, og varð hann
alveg steinhissa.
„Ertu með öllum mjalla, maður? Getur þetta verið-
satt og hefirðu hugsað málið vel, eða ertu bara að'
skrökva þessu að mér?“ spurði Wolf.
Höfuðsmaðurinn neri hendurnar og sagði hlæjandi:
„Segðu mér nú satt, Wolf — kemur þetta nokkuð í bága
við þig? Við megum ekki fara í launkofa með neitt;.
hvað þetta snertir.“
„Nei, það máttu vera viss um. En þetta nær-engrí
átt, Jobst, — hún gengur aldrei að þessu.“
„O-jú — það gerir hún reyndar. Mundu, hvað eg sagði
við ykkur: „Reutlingen tekur það, sem honum leik-
ur hugur á.“
„En þú ímyndar þér þó ekki, að hans Hátign farl
að samþykkja þessa endileysu?“
„Hans Hátign er enn þá i skuld við mig um náðar-