Vísir - 22.07.1930, Blaðsíða 2

Vísir - 22.07.1930, Blaðsíða 2
V 1 S I R )) tenHm 1 ©lsemIH Útrýmið flngunnm! Kanpií okkar íengsælu FLUGNAVEIflARA. Uppboð. Opinbert uppbpð verður lialciicS i Aðalstræti 8 (áður Gamla Bíó) fimtudaginn 24. þ. m. kl. 1 e. h. og verður þar selt allskon- ar húsgögn og innanstokksmunir, ennfremur talsvert af merki- legum hókum, bæði ísl. og útlendum. Þá ve'rða seldar útistand- andi skuldir þrotabús Páls J. Þorleifssonar og Guðm. B. Vikar Og loks 500 króna hlutabréf i hlutafélaginu Eimskipáfélag ís- lands o. 11. Lögmaðurinn í Reykjavík, 21. júlí 1930. Björn Þórðarson. Þeir, sem hafa pantað muni á sýningunni, vitji þeirra strax. Símskeyti London (UP), 22. júlí. FB. Hirth kemur um mánaðamótin. Berlín: Uiidirbúningur undir flug Wolfs Hirths, þýsks flugmanns, yfir Atlantshaf, um Orkneyjar, ísland, Grænland og Labrador er vel á veg kominn. — Fluginaöurinn hfcfir viökomu í Kirkwall og Reykjavík, en um viö- komustaöi í Grænlandi og Labra- dor er ekki getið. — Vélin í flug- vél Hirths hefir nýlega veriö reynd til þrautar í Stuttgart. Var flug- vélin á flugi í sólarhring, án þess bætt væri við eldsneyti. Hirth býst við aö koma til Kirk- wall þ. 28. júlí og halda áfram flugferöinni þaðan til íslands und- ír eins og veður leyfir. Hitar í U. S. A. 150 menn bíða bana. ■New York: Eitt hundrað og fimtíu menn hafa beðið bana í fjórtán ríkjum í Bandarikjunum undanfarna daga, af völdum hinna miklu hita, sem nú eru þar í landi. London (UP), 21. júlí. FB. Frá Egiptalandi. Kaíró: Oeiröir brutust út af nýju, er Wafd-menn .gerðu tilraun til þess að koma á þingfundi. Lög- reglan hóf skothríð á manngrúann, sem safnast hafði saman í nánd við þinghúsbygginguna. Hermenn hafa verið settir á vörð á þýðing- armiklum stöðum, svo sem við gasstöðina, vatnsveituna, þinghús- ið og járnbrautarstöðvarnar. Skotið á finskt skip úr rússnesku vígi. Kaupmannahöfn: Finnlands- fregnriti Berlingske Tidende sím- ar, áð skotið hafi verið á finska eimskipið Kaleva, úr -rússneska landamæravíginu Yhinmeci. Gerð- ist þetta er skipið var að fara frá Rússlandi. Utanríkismálaráðuneytið finska hefir sent mótmæli til rússnesku ráðstjórnárinnar. Flotamálasaumiogurinn. Eins og kunnugt er, var haldin flotamálaráðstefna í Lundúnum, scm hóíst snemma á árinu, og lauk imdir vor, með þeim árangri, aðum allverulegar takmarkanir á smíði stærstu herskipanna var að ræða. En það gekk erfiðlega að ná sam- komulagi. Um tíma leit út fyrir, að deilúrnar milli ítala og Frakka myndi verða þess valdándi, að þeir skrifuðu ekki undir samninginn. En samkomulag náðist þó milli fimmveldanna um það er lauk. En samningurinn gengur ekki í gildi fyrr en þing allra fimmveldanna hafa samþykt hann (ratification). Samningsgerðin er af mörgum tal- in skref í friðaráttina og ýmsir mætir menn stórþjóðanna vinna að þvi, að sanmingurinn nái sam- jiykt þinganna, svo sem Ramsay McDonald í Bretlandi, Hoover forseti, í Bandaríkjunum o. s. frv. En þar er skemst af að segja, að ir.iklar árásir hafa verið gerðar á samninginn og þá, sem undirskrif- uðu hann, einkanlega í Japan, ■Bandaríkjunum og Bretlandi. Og eftir þeim tíðindum, er erlend blöð flytja um baráttuna fyrir þingasamþyktinni, þá veröur að teljast vissa fyrir því, að það muni verða erfitt að fá þing fimmveld- anna til þess að fallast á samning- inn. Verði samningurinn ekki sam- þyktur á þingum allra fimmveld- anna, verður afleiðingin auövitað harðvitug samkepni; almenningur í stórveldalöndunum verður enn að taka á sig hernaðar drápsklyfjarn- ar. Á meðal þeirra, sem hörðustum orðum fóru um sanminginn í breska þinginu, voru jarlarnir Jellicoe og Beatty, en þeir voru báðir aðmíráiar á heimsstyrjaldar- árunum. Beatty sagði m. a., að Bretland ætti herskipaflotanum veldi sitt að þakka, flotinn hefði gert Bretland að heimsveldi og verndað Bretland á hinu látlausa þroskaskeiði alt fram á þennan dag, — en með sámningnum væri þetta mikla verk fortíbarinnar ónýtt. Og Tellicoe sagði m. a., að elckert stórveldanna hefði lagt eins mikið í sölurnar meö samnings- gerðinni og Bretland. Vegna sampingsins eru orustu- skipin miklu talin úr sögunni. Það er t. d. talið ólíklegt nú, aö skip eins og FJ. M. S. Rodney, verði nokkurn tima smíðað aftur. En vegna samningsatriðanna um or- ustuskipin (battleships) hafa sum stórveldin í huga að auka mjög smálestatölu beitiskipa sinna (cruisers). Beatty sagði í ræðu í lávarðadeildinni, að Bandaríkja- menn ætluðu að auka smálestatölu l:eitiskipa sinna um 233.000 smá- lestir, Japan um 40.000 smálestir, en á Frökkum og Itölum hvíla engar hömlur í Jiessu efni, enda hafi Frakkland ákveðiö að láta smíða 12 18.000 smálesta beitiskip. Og þá keppast ítalir auðvitaö við l.eitiskipabyggingar eins og þeir geta. En á meðan svo horfir, segir Beatty, hafa Bretar dregið úr beitiskipabyggingum. Beatty og Jellicoe lögðu fast að stjórninni aö halda áfram herskipasmíðum, en liætt er við, að jafnaðarmanna- stjórnin daufheyrist við, a. m. k. uns séð verður, hvort flotamála- samningurinn nær samþykt þing- anna, því að ef svo fer, verður samningatilraunum haldið áfram og ný flotamálaráðstefna haldiu W3S rí) ]iess að ræða um frekari takmarkanir, svo sem beitiskipa og kafbáta. Blaðadeilurnar um þessi mál að undanförnu bera það með sér. að stórveldin gruna hvert annað um græsku, eigi síður nú en fyrir heimsstyrjöldina. Og margt bendir til þess, að heimsstyrjald- arreynslan verði ekki nægilega þung á metunum, — fyrr eða síð- ai muni reka að því, að ný heims- styrjöld verði háð. Þíngasamþykt flotamálasamningsins — liver úr- slit verða í því máli á þingum Bandarikjanna, Bretlands, Frakk- lr.nds, Ítalíu og Japan, -— leiðir þó .enn betur í ljós en nú verður séð, hvert stefnir í þessu efni. Af þingasamþyktinni nntn leiða, að unnið verður af kappi að frekari takinörkunum. Sigurinn verður friðarvinunum hvöt. En af ósigri friðarvina i þessu máli leiðir, að um ófyrirsjáanlega langan tíma verður harðvítugri hernaðarsam- kepni haldið áfram. Bæjarfréttir í Veðrið í morgun. Reykjavík liiti 10 st., ísafirði 8, Ákureyri 12, Seyðisfirði 10, Vest- mannaeyjum 7, Stykkishólmi IO, Blönduósi 8, Raufarhöfn 8, Hólum 1 Hornafirði 12, Grindavík 8, Fær- eyjum 13, Tynemouth 9, Jan Mayen 7, Angmagsalik 5, Juliane- ha'ab 12, (vantar skeyti frá Hjalt- landi og Kaupmannahöfn). Mestur hiti i Reykjavik í gær 13 st., minstur 7 st. Úrkoma 2,7 mm. Nærri kyrstæð lægð yfir íslandi. Allstórt háþrýstisvæði fyrir norð- an Jan Mayen og yfir Norður- Grænlandi. — Horfur: Suðvestur- land: Norðvestan kaldi. Smáskúr- ir sumstaðar, en bjart á milli. Faxaflói, Breiðaf jörður: Norð- vestan og norðan kaldi. Sennilega úrkomulaust og yfirleitt léttskýj- að. Vestfirðir: Vaxandi norðan og borðaustan kaldi. Dálítil rigning, sumstaðar. Noröurland, norðaust- urland: Breytileg átt og hægviðri. Urkomulaust, en næturþoka. Aust- íirðir, Suðausturland: Breytileg att, viðast austan gola. Dálitil úr- koma sumstaðar. Landkjörið. I gær kl. 6 síðdegis hélt yfir- Tobler f œ s t hvafvetna, EilEíUca/c m ÚTSALAN í Bai’naskólanum heldur úfram til lielgar. Altaf viðbót af nýjum vörum. Verðið afar lúgt. Allir í Barnaákólann til a ðgera hagfeki og góð kaup. kjörstjórnin fund í Alþingishúsinu til ]>ess að reikna út atkvæðatölur einstakra framltjóðanda á listun- um. nteð hliðsjón af breytingum þeim, er kjósendur höfðu gert á nafnaröð listanna. Langmestar voru breytingarnar á C-listanum, aðallega i þá átt, að frú Guðrún hafði verið flutt upp fyrir Pétur Magnússon. Atkvæði féllu þannig á C-listanuni: Pétur Magnússon hlaut 11386 atkv., frú Guðrún Lár- usdóttir 9763% atkv., Kári Sig- urjónsson (sem verður 1. varamað- ur listans) hlaut 7778% atlcv. og Skúli Thorarensen (annar vara- maður) 5838% atkv. B-listinn: Jónas Jónsson hlaut 7554% atkv. og sira Jakob Ó. Lárusson (vara- maöur J. J.) 6216% atkv. Sam- kværnt þessu hefir þriðji maður á C-lista mun hærri atkvæðatölu að baki sér, en fyrsti maður B-listans, og fjórði maður C-listans nálega 1000 atkv. meira en 1. maður A- listans. aí’ að utanfélagsmenn geti fengið far, svo lengi senr rúm leyfir. — Kaffí verðitr selt á staðnum viC sanngjörnu veröi, en allir eru ámintir um að hafa með sér nesti. Fylgist vel með auglýsingum uca þetta í blaðinu, sérstakl. á föstu- dag og laugardag, því að þá verð- ur afráðið á hvaða tima jg hvaðan farið verður. Fél. Nýstárleg og fróðleg skemtun. var haldin i Nýja Bió í gær- kveldi, til ágóða fyrir Slysavarna- félag íslands. Capt. Mac. Millaa, sem kuhnur er af þátttöku sinni í heimsskautaferðum Peary's, flutti fyrirlestur og sýndi myndir úr Norðurhöfum. Erindi MacMillan var ágætlega tekið, enda er hann skörulegur fyrirlesari og kvik- mynd sú, er hann sýndi, var hitt fróðlegasta. Þess skal sérstaklega minst, að capt. MacMillan tók þaö upp af sjálfsdáðum, að láta Slysa- varnafélag íslands njóta ágóðans af skemtun þessari. Pétur Á. Jónsson syngur í íþróttahúsi K. R. ann- a'ð kveld kl. 9. — Ernil Thorodd- sen aðstoðar. Sýning óháðra listamanna. Vegna misskilnings á síðustu auglýsingu um sýninguna skal það tekið fram, að sýningin verður að minsta kosti opin til laugardags. Nýja Bíó sýnir enn í kveld hina afar vinsælu mynd Sigrún á Sunnu- hvoli, er sýnd hefir verið við mjog góða aðsókn undanfarið. Af ein- hverjum misgáningi i prentsmiðj- unni, féll niður augl. úr siðasta tbl. Visis, en röng augl. var sett í staðinn. Ertt viðkomendur Ireðnir að afsaka þetta. Trúlofun. 12. þ. mán. birtu trúlofun sína ungfrú Ingibjörg Auðbergsdóttir, Skólavörðustíg 15, og Axel Sig- urður Þórðarson, bifreiðárstjóri, Hverfisgötu 121. María Markan syngur í K.R.-húsinu kl. 9 í kveld. Skemtiför K.F.U.M. og K. Eins og sjá má á augiýsingu á öðrum stað i blaðinu, efnir K. F. U. M. og K. til skemtiíerðar upp I Vatnaskóg næsta sunnudag, 27. júlí. Allir þeir, sem tekið hafa ])átt i þeim ferðum undanfarin sumur, hafa skemt sér hið ákjósanlegasta og fundist mikið til um þennan fagra stað. Nú er tækifæri fyrir alla félagsmenn og konur að taka þátt i þessari för. í þetta sinn fer hraðskreytt gufuskip upp i Hval- fjörð i staö mótorbáts áður, og hefir ]>vi ekki að undanförnu ver- íð híegt að gefa fólki svo góða og fijóta ferð þangað. Er því skorað á öll félagssystkini að taka ])átt i þessári skemtiför. Ekki er útilok- Dr. Franz Mixa fór utan á Lyru síðast, áleiðis til Vínarborgar. Dr. Mixa hefir unnið mikið og þarft starf þatnaiz stutta tíma, er hann clvaldist hér. Hljómsveit og Lúðrasveit Reykja- víkur héldu honum skilnaðarsam- sæti á Skjaldbreið fyrir skönutm, og færðu honum að g'jöf fagurt málverk eftir Ásgrínt Jónsson. t ráði er að Dr. Mixa, sem er mikils metinn af öllutn, er honum hafa hljóðar nú: »Náið húðinni af tönnunum, •vo að þær verði heiibrigðari og betrU, TANNHIRÐINGAR hafa tekið stðrum framförum. Tannlæknavlsindin rekja nú fjölda tann- kvllla tll húðar (lags), sem myndast á tönnunum. Rennið tungunni yfir tenn- urnar; þá finnið þér sllmkent lag. Nú hafa vísindin gert tannpastað Pep- sodent og þar með fundið ráð til að eyða *ð fullu þessari húð. Það losar húðina og nær henni af. >að inniheldur hvorkí klsil né vikur. Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn- urnar hvítna jafnóðum og húðlagið hverf- ur. Fárra daga notkun færir yður heim sanninn um mátt þess. Skrifið eftir ókeypis 10 daga sýnishorni til: A. H. Riise, Afd. 1682-68 Bredgade 25, EX, Kaupmannahöfn, K. FÁIÐ TÚPU 1 DAGI nBPTh Skrásctt ■ FéösZflðM Vörumerki Afburða-íannpasta nútimans. Hefur meömæli helztu tannlækna í öliúm heiml. 1683

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.