Vísir - 18.12.1933, Blaðsíða 4

Vísir - 18.12.1933, Blaðsíða 4
VtSTR / Landsmálafélagiö YOrðnr heldur fund í kveld, kl. 8% í Varðarhúsinu. FUNDAREFNI: Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segja þingfréttir. Allir Sjálfstæðismenn velkomnir. STJORNIN. Iðnaður & Tízka. Ef þér hafið ekki nú þegar keypt hið nýútkomna rit, „lðn- aður & Tízka“, ritið, sem segir yður hvernig þér eigið að klæða yður eftir nýjustu tísku, þá gerið það strax, áður en allt er upp- selt. — Ritið er með yfir 30 myndum og kostar að eins 1 krónu. Nokkrir duglegir drengir óskast til að selja ritið. Þeir komi i klæðabúðina á Laugavegi 3. Erlendar fréttir. Lengsti þjóðvegur í heimi Innan fárra mánaða verður fullgerður hinn mikJi þjóðveg- ur, sem verið er að leggja frá Laredo, Texas, Bandaríkjum, alla leið suður til Mexico City, höfuðborgar Mexico, en þjóð- vegur þessi verður um 800 enskar mílur á lengd, og ligg- ur viða um sérkennilega fögur héruð, enda er biíist við, að hann verði afar mikið notaður af ferðamönnum; einkanlega muni Bandaríkjamenn nota Jiann mikið til bifreiðaferða til Mexico. — Kunnur ameriskur blaðamaður, William G. Shep- herd, sem á ófriðarárunum var styrjaldarfregnritari tímaritsins Colliers Weekly, hefir fyrir skömmu skrifað skemtilegar blaðagreinir um fyrirtæki þetta og héruð þau, sem hann liggur um. Undir eins og kemur suð- ur fyrir Rio Grande, sem skil- ur Mexico frá Bandarikjuniun, segir Shepherd, mun ameríska ferðamanninum, sem fer þessa leið, finnast, að hann sé kominn i undraland, svo fagurt og sér- kÁinilegt sé á þessum slóðum. „Þessi þjóðvegur Mexicobúa er i rauninni jafnframt nokkurs konar gjöf til þeirra, er byggja Norður-Ameríku“, segir Shep- herd, „og hann er hluti hins mikla þjóðvegar, sem á að ná alla leið frá Canada, suður Bandarikin og Mexico og eftir endilangri Mið-Ameriku, til Suður-Ameríku, um Iönd tólf þjóða.“ — „Þegar frú Laredo er farið, liggur vegurinn í þráð- beinni linu 45 enskar mílur og mun hvergi i heiminum vera slikur vegur sem þessi jafnlanga leið, án þess að nokkur bugða sé á. Þegar komið er suður fyrir Monterry, fer landið hækkandi og þar sem hæst er liggur veg- urinn í 8.600 feta hæð yfir sjáv- arflöt. Yfirborð vegarins er ekki alstaðar steypt, en vegur- inn er hvarvetna breiður og góður.“ (UP.-FB.). Nýtt verslunarfyrirkomulag. Nazistar hafa fyrir nokkru reynt nýtt sölubúðafyrirkomu- lag, en að svo stöddu er of sncmt að spá um, hvernig það muni gefast. Verslunarhúsin eru þannig útbúin, að í þeim eru 30—10 söludéildir og fljótt á litið skyldi menn ætla, að hér væri um vanalegt stórverslunar- fyrirkomulag að ræða, þar sem ákveðnar vörutegundir ei*u sett- ar sér i flokk og seldar sér i hinum ýmsu deildum. En sá er Sendi tilbninn mat heim til fólks, fleiri eða færri rétti. Afgreiði einnig með stutt- um fyrirvara smurt brauð og allskonar ábætisrétti (deserta). Vel til búinn matur með lægsta verði. Thecdóra Sveinsdóttir. Þingholtsstræti 24. Simi: 4293. munur á hér, að hver deild er seld á leigu, og er leigan mið- uð við gólflföt hverrar deildar og er 1.40—2.00 ríkismörk á fermeter. í þessum verslunar- húsum eru kaffideildir, ritvéla- deildir, ritfangadeildir, lyfja- deildir o. fl. o. fl. Tvær slíkar verslanir hafa verið opnaðar í Potsdammerstrasse. Nazistar höfðu, sem kunnugt er, horn i síðu eigenda stórverslananna, sem flestar voru i eigu Gyð- inga, og þessi nýja stefna er í samræmi við óskir fylgjenda nazista, því að þeir hafa gengið út frá þvi sem gefnu, að stór- verslanimar yrði afnumdar og leigðar út smákaupmönnum á þann hátt, sem að framan get- ur. En nokkur óvissa er um, hvað langt verður farið i þess- um efnum og víst er, að breyt- ingin í þessa átt hefir verið hægfara. (UP.-FB.). Ník kelframleiðsla og ófriðar- hætta. Nikkelframleiðslan í lieimin- um hefir farið vaxandi á síðari tímum og eftirspumin eftir nikkel er afar mikil að undan- fömu. Veldur þetta miklum áhyggjum meðal friðarvina. þvi að aukin eftirspum er talin stafa af þvi, að ófriðarhættan færist sífelt nær, en nikkel er afar mikið notað við skotfæra- og vopnagerð. Það landið, sem er mesta nikkel-útflutningsland í heimi, hefir ferfaldað útflutn- ing sinn á þessu ári. Þá hefir framleiðsla á nikkel aukist afar mikið i sumum nýlendum Frakka. Aukin eftirspum staf- ar að vísu nokkuð af þvi, að t. d. Frakkar hafa byrjað á sláttu nikkelpeninga, en það þykir eigi að síður gi-unsam- legt, að t. d. héfir nikkelinn- flutningúr til Hollands frá Can- ada aukist um meira en helm- ing á þessu ári, og ætla menn, að málmurinn hafi verið seld- ur þaðan til ýmissa laqda álf- unnar, þar sem menn óttast ó- frið og búa sig undir hann. UP. FB.). BakaraofflsplOtnr Kökukefli Kökumót Kleinujám Hringmót Tertumót Pönnukökupönnur. Fjölbreytt og ódýrt úrval. E Biering. Laugavegi 3. Sími: 4550. Notið eingðngu Jarðarberja- Hindberja- Tytuberja- Ekkert innlent sultufau eins gott. Fæst í flestum matvöru- verslunum. Góðar bækiir- hentugar til jóiagjafa: Ritsafn Steingríms Thorsteinsonar, 1. —II. bindi. Verð kr. 10.00 hvort bindi. Æfintýrabókin. Verð ib. kr. 5.00. Einhver allra besta barnabókin, þó að hún sé ekki með myndum. Sawitri og Sakúntala. Indversku sögurnar frægu i þýðingu Stgr. Tb. Verð ib. jkr. 5.00. Eunfremur hentugar til gjafa handa börnum: Sagan af Trölla-EIínu og Glensbróð- nr og Sankti Pétur og Sagan al' prinsinum Kalaf og keisaradótt- urinni kínversku. Báðar þýddar nf Stgr. Th. Verð hvorrar bókar- innar um sig ein króna. NÝJAR BÆKUR: í leikslok, eftir Axel Thorsteinson, 2. útg. Sögur frá heimsstyrjaldar- árunum. Verk kr. 4.00 ób. Heim er haustar og nokkrar smá- sögur aðrar, eftir Axel Thorstein- son. í þessari bók eru þrjár sög- ur sem áður hafa birst í jólablöð- um Visis. Verð bókarinnar er kr. 3.00 ób. Bækurnar fást hjá ölium bóksölum. AFGREIÐSLA RÖKKURS. Edinborg nr. 3. Kl. 4—6.30 virka d. SnjókeBjnr sel eg með sérstöku tækifæris- verði. Fyrir fólksbila frá 11 kr. parið, fyrir vörubíla frá 30 kr. parið. Einnig þverbönd, lang- bönd og Iásakeðjustrekkjara, 2 kr. parið. Komið, skoðið og þér inunuð kaupa. Haraldur Sveinbjarnarson. Laugavegi 84. Sími 1909. ■ w. - „ v.-v. | LEIGA Mjólkur- og brauðabúð til leigu strax. Simi 3664. (369 VINNA I Tilboð ðskast í að steypa kjallara og hrein- húða utan timburiiús. — Uppl. Sími: 2922. »QO(XiOCKX)C04XæO(XSCC4SQOOq( Stúlka óskast nú þegar. Aðeins tvent i heimili. Helga Torfasoru Laugaveg 13. i«m)oo«iQOQ(xmxxxxx»tt STÚLKA óskast fyrri hluta dags. Þvergötu 5. Simi 2154. (359 1 b ú ð. 2 herbergi og eldhús. með öllum nýtísku þægindum, óskast frá 1. jan. A. v. á. (370 Tvær stúlkur óskast á .JBjörn- inn“ i Hafnarfirði 1. janúar. Sími 9292. (361 Góð stúlka óskast i vist til Vestmannaeyja nú þegar. — Uppl. gefur Einvarður Hall- varðsson, Laufásveg 35. (360 HÚSNÆÐI I Nálægt miðbænum óskast til leigu 4 herbergi og eldhús, með þægindum. Fvrirframgreiðsla. Tilboð merkt: „Húsnæði” sendist Visi. (373 T APAÐ - FUNDIÐ Svartrósótt svunta hefir tap- ast á Laugavegi. Skilist Ing- ólfsstræti 9. (357 Grár rykfrakki með dökk- brúnu fóðri hefir verið tekinn i misgripum í Hressingarskál- anum siðastl. laugardag. Skil- ist þangað. (353 Lítið, blátt kvenveski hefir tapast á Vesturgötu. Finnandi er vinsamlega beðinn að skila því á Vesturvallagötu 5. (366 ^"lcAUPSKAPUR............. Í‘ Húllsauma. Jóhanna E. Guðnadóttir. Vesturgötu 52 A. Viðtæki og ljósakróna til sölu á sama stað. (367 Nýtt skrifborð til sölu fyrir mjög lítið verð, ef keypt er strax. Frakkastig 10. (365 Klæðaskápar seljast með tækifærisverði. Góðir greiðslu- skilmálar. Miðstræti 5. (364 Blómaverslunin Anna Hall- grimsson. Túngötu 16. Sími 3019. — Nýkomnar til jólanna ýmsar blaðaplöntur, svo sem: Pálmar, Auracariur, Aspedistr- ur og Aspargus. Gerfiblóm í miklu úrvali. Greni, sem ekki fellur, bæði stórslcorið til að leggja á leiði, og smáskorið, til að skreyta með innanhúss. Kransar úr sama efni. Ljóm- andi fallegar körfur, blindra- iðn, skreyttar eftir pöntun. Mjög fallegir Túlípanar. Kom- ið eða pantið í tíma, því að óð- um styttist til jóla. (362 Tveggja manna rúm og ma- dressa til sölu, nýjasta gerð. Tækifærisverð. Að eins i kveld frá 4—10. Þórsgötu 20, niðri. (.368 FÉLAGSPRENTSMIÐJAN. Káluspii er besta jólagjöfin, 3 stærðir. Fæst á Laufásveg 27- Simi 2148. í209 Bjáfapappir i kössum, hent- ugur til jóíagjafa; aldrei meim úry al en nú í bókavcrslim Snæ- biarnar Jónssonar. (235 jólaspilin? — Auðvitaö „góöu spilin" úr bókaversl. Snæbjurnar Jónssonar. ('274 Kjamabrauðið ættu allir að nota. Það er hoU fæða og ódýr. Fæst hjá Kaupfélagsbrauðgerð- inní, Bankastræti. Simi 4562- Teborð, íjós og dökk. Verð kr. 38 og 46. Viðgerðarvinnustofan, Lauf- ásveg 25, tekur föt til kemisk- hreinsunar til miðvikudags, en þurhreinsar og pressar til laug- ardags. — O. RYDELSBORG- Sími 3510. (34fl Armbandsúr og borð- klukkur. Nýtt úrval. — Úr- smíðavinnustofan, Baldursgötu 8. Jóhann Búason. Simi 2239, (351 ÚTVARPSTÆKI til sölu með gjafverði. Uppl. á Njálsgötu 28. (352 Dömupels til sölu. Hálfvirði. Bárugötu 5, miðhæð. (339 JÓLASPILIN og SPILABOBÐ- IN eru best og ódýrust á Vatns- stíg 3. Húsgagnaversl. Rej'kja- víkur. (333- Notað massage-apparat (Vi- brator) tiskast til kaui>s. Tilboð sendist afgr. Visis, merkt: „Vibrator“. (358 Nokkrar hálsfestar, hringir og armbönd nýkomið. Verður- selt með sérstöku tækifæris- verði til jóla. — CARMEN, Laugaveg 64. Sími 3768. (356 TIL SÖLU: Peysufatakápa, dömuregnkápa, silkisvunta ný„ silfur og borðar á telpuupp- lilut. Mjög ódýrt. Grettisgötu 70, niðri. (355 Borðstofuhúsgögn, litið not- uð, seljast fyrir liálfvirði. — Uppl. i húsgagnávinnustofu Kristins Sveinsso.nar, Banka- stræti 7 A. (354 Tveir körfustólar og körfu- borð, ásamt teborði, til sölu ódvrt. — Uppl. á Hverfisgötu 100 B, miðhæð. (352 Heimabakað fæst allan dag- inn á Laugavegi 57. Sími.3726, 35 krónur nýir dívanar oe madressur, viðgerðir og fleira, fáið þér mjög ódýrt og vand- að Laugaveg 49. (Gula timbur- húsinu). (372 TÆKIFÆRISVERÐ. Stofu- borð, sófi, skápur o. fl. selst með tækifærisverði sökum hurtferðar, Til sýnis frá kl. 4 —9. Kárastíg 9A, 3. hæð. (371 Stórl borðstofuborð til sölu. Uppl. Eskihlíð C. (376 Vegna plássleysis óskast stór hægindastóll í skiftum fyrir ný- legan sófa. A. v. á. (375 Nokkrir dívanar, nýir, fást mjög ódýrt til jólanna á Rauð- arái'stíg 5. Skrautritað á sama stað. (371 Ódýr, notaður, upphlutur til sölu á Bergþórugötu 27, uppi. (363

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.