Vísir - 05.10.1934, Blaðsíða 2

Vísir - 05.10.1934, Blaðsíða 2
V I S l R Flokksþing breskra (haldsmanna var sett í Bristol í gær. — Umræður um landvarnir Breta o. fl. Bristol 4. okt. — FB. Flokksþing breska íhaldsflokks- ins var sett hér í dag og sitja þa'S fulltrúar allra félaga íhaldsmanna um land alt. Idoyd lávarður setti ])ingið með ræðu. Kvað hann það rnikið áhyggjuefni, að landvarnar- málunum hefði hvergi nærri verið sint sem skyldi að undanförnu. Samþykti flokksþingið jkröfu um, að gerð væri gangskör að þvi að koma landvörnunum í fullnægjandi horf, þrátt fyrir ræðu þá, sem 'Ne- ville Chamberlain hélt, en í ræðu þessari skýrði hann frá því að rik- isstjórnin hefið látið fara fram gagngerða athugun á því, hvernig landvörnuriúm skyldi hagað ög hefði hún fullgert áætiun um end- urbætur þeirra, en áætluninni væri haldið leyndri. Ef til vill yrði áætl- unin ekki framkvæmd i öllum at- riðum og væri henni hagað þannig að hreyta mætti einstökum greinum hennar, eftir því sem horfurnar væri og nauðsynlegt þætti, en rik- istjórnin væri þess fullviss, að henni hefði tekist að finna meðal- veg í þessu máli, þ. e. að gera ráð- stafanir til skynsamlegra fram- kvæmda, en forðast allar öfgar. I þessum málum væri jafn hættulegt að fara að ráðum þeirra sem vildu ekkert úm landvarnir hugsa, sem þeirra, er væri eindregnastir fylg- 'ismenn víghúnaðarstefnunnar. — (United Press). ppá Akureypi. Akureyri 4. okt. — FÚ. Mentaskóli Norðurlands. var settur 2. ]). m. að viðstöddu fjölmenni. — Sigurður Guðmunds- son skólameistari setti skólann og flutti ræðu um sögu hans og mint- ist ýmissa merkra manna, sem ver- ið höfðu nemendur hans. — Eru nú liðin 30 ár frá því skólahúsið var reist hér á Akureyri og flutt var í það. Aðsókn að skólanum ermjög mikil, hafa aldrei í sögu skólans jafnmargir nemendur sótt um inn- töku í fyrsta og fjórða bekk,skól- ans og nú. — Próf standa nú yfir, en kensla hefst í Mentadeild á morgun og í Gagnfræðadeild á laugardag. Úrkoma og heyskemdir. Undanfarna daga hafa verið sí- feldar stórrigningar hér á Akur- eyri og hér í grend, með stuttum hléum á milli. — Óttast menn um að hey muni skemmast í hlöðum og heytóftum. Frá Alþingi í gær. Jón Baldvinsson heldur fast við „úrskurð“ sinn og brýtur þingvenjur og skýlausar reglur þingskapa. —o— Fundur var seltur í samein- uðu þingi í gær kl. 1 og voru á dagskrá kosningar á fastanefnd- um sameinaðs Alþingis, fjár- veitinganefnd og utanrikismála- nefnd, og ennfremur kosning yfirskoðunarmanna landsreikn- ingsins 1933. En áður en gengið væri til dagskrár,. kvaddi Þorsteinn Briem sér liljóðs til að tala um þingsköp. Komu nökkurar vöfl- ur á forseta, því harin vissi á hverju hann átti von — en ekki sá hann sér þó fært að neita þm. um orðið. — Þ. Br. kvaðst verða að nola þetla fyrsla tækifæri sein gæfist, til þess að mótmæla úrskurði þeim sem forseti feldi í fyrradag um kosninguna til efri deildar. Sagðist hann ekki geta betur séð en að forseta l>æri skylda til að láta kosningu fram fara um alla ])á lisla sem fram kæmu, og engin heimild væri fyrir því, að vísa listum frá, enda hefði forseti ekki virst líta svo á er listarnir voru bornir fram á þriðjudaginn. Krafðist hann því að forseti bæri úrskurð sinn undir þingið. Ólafur Thors las upþ sam- þykt frá Sjálfslæðisflokknum, þar sem sýnt var fram á ólög- mæti .,úrskurðarins“ og þess krafist, að hann yrði borinn undir þingið. Sagði Ó. Th., að það væri ekki vansalaust fyrir þingið, ef það léti slíka vitleysu sem þessa viðgangast, og yrði forseti að gefa þvi tækifæri til þess að hreinsa hendur sínar af þessari forsmán. Jón Baldvinsson kvaðst ekki sjá neina ástæðu til þess nú frekar en í fyrradag, að leyfa atkvæðagreiðslu um úrskurð- inn, því að liann væri alveg á- reiðanlega réttur, ef litið væri á stjórnarskrána og kosningalög- in, og þvi í samræmi við þing- sköp! Auk þess væri það alls ekki venja, að bera forsetaúr- skurði undir atkvæði. Jakob Möller hélt þvi aftur á móti fram, að það væri föst venja, að bera forsetaúrskurði undir atkvæði. Hann myndi að eins eftir einni undantekningu — þegar Guðm. Ólafsson þáv. fors. efri deildar úrskurðaði Jón Baldvinsson óatkvæðisbær- an á sumarþinginu 1932, er Jón var að hjálpa framsóknar- flokknum til að fá samþykt „fjáraukalögin miklu“, með því að greiða ekki atkv. En þessi undantekning staðfesti einmitt aðalregluna, með því að forseti bygði synjun sína um atkvæða- gr. á því, að krafan um hana hefði ekki komið frá ré.ttum að- ila, en ekki á hinu, að það væri ekki venja að slik atkvæða- greiðsla færi fram, ef hennar væri réttilega krafist. Ef Jón Baldvinsson liéldi fast við synj- un sina núna þrált fyrir ])að þólt hann styddist við meiri hluta þingsins, þá sagðist Jak. M. ekki geta skilið það öðru vísi en svo, að Iiann væri sér meðvitandi um ólögmæti úr- skurðarins og þyrði ekki að trevsta á það, að allir þingmenn stjórnarflokkanna fengist til þess að samþykkja liann. Ásgeir Ásgeirsson kvaddi sér hljóðs, og bjuggust sumir við þvi, að liajm ætlaði að flytja er- indi um lýðræði, en svo vav ekki, heldur kom hann með þá uppástungu til samkomulags, að Bændaflokknum yrði leyft að skifta um mann í efri dcild, ef liann óskaði eftir því. Stóð nú i þófi um þetta góða stund og tóku ýmsir til máls. M. a. sagði Jónas Jónsson, að flestum þing- mönnum mundi koma saman um það, að Bændaflokknum h'efði borið að leggja til mann til efri deildar og skifti því litlu máli livernig því hefði verið komið til leiðar eða livort úr- skurður forseta væri vitlaus eða ekki. Héðinn upplýsti, að al- þýðuflokkurinn stæði óskiftur að baki ,;úrskurði“ Jóns Bald- vinssonar. Þótti mönnum það ekki miklar fréttir og kom eng- um á óvart, þvi að „lýðræði'* þeirra rauðu nær sjaldan lengra en svo, að það geti ^amrýmst geðþótta þcirra. * Að lokum har Jakob Möller fram áskorun lil 1‘orsela, um að hann léti atkvæðagreiðsluna fram fara, og var áskorunin uiídirrituð af öllum 20 þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins. Var í lienrii visað til 45. gr. þing- skapanna, sem mælir svo fyrir, að' hera skuli úrskurði forseta undir atkvæði, cf 3 þingmenn krefjist þess í efri deild, 6 Jl. neðri deild, eða 9 í sameinuðu þingi.. Sagði Jakob Möller, að úrskurðir þeir, sem um ræddi í þessari grein, væru um miklu þýðingarminni atriði en hér væri um gð ræða. En úr þvi að úrskurðarvald forseta væri þannig takmarkað í þýðingar- minni máluin, þá leiddi það aí almennum lögskýringarreglum, að það Iilyti að vera það ekki siður í þýðíngarmeiri málum. En Jón Baldvinsson skelti skoll- eyrum við öllum rökum og gekk til dagskrár, án þcss að gegna þeirri tvímælalausu skvldu sinni, að verða við kröf- um 23 þingmanna um þetta efni. I fjárveitingarnefnd voru kosnir: P. Ottesen, Jón Sig., Þorst. Þorst., M. G., Jónas J. Jónas Gúðm., Bjarni Bjarnason, Sig Ein. og Þorh. Þorl. í utanríkismálanefnd var á- kveðið að kjósa 9 meun í stað 7 og hlutu kosningu: Ó. Th., P M., M. J., J. J., B. Á„ H. V. St. Jóh. St„ M. Torfas. og Á. Á. JEfri deild. Þar fóru fram kosningar í fastanefndir og voru þessir kjörnir: Fjárhagsnefnd: M. J„ J. Bald. og B. Stef. Samgöngumálanefnd: J. A. J„ P. Herm. og Sigurj. Á. Ól. Landbúnaðarnefnd. I Iienni var fjölgað upp í 5 menn eftir till. P. M„ og hlutu þessir kosn- ingu: P. M„ Þ. Briem, J. Bald„ P. Herm. og' J. J. Sjávarútvegsnefnd: .1. A. J„ I. P. og Sigurj. Á. Ól. Iðnaðarnefnd: G. Lár., B. Stef. og P. Ilerm. Mentamálanefnd: G. Lár., .1. .T. og B. Slef. Allsherjarnefnd: P. M„ I. P. og S. Á. ÓI. Neðri deild. Það tóksl nú loks, á fjórða degi þingsins, að koma á fundi í neðri deild, lil að kjósa forseta og skrifara. Forseti var kosinn Jörundur Brynjólfssori- mcð 17. atkv., Gísli Sveinsson fékk 14 atkv. cn 2 seðlar voru auðir. Varafor- setar voru kosnir Stefán Jóh. Stefánsson og Páll Zophonías- son með saina atkv. magni og aðalforseti, cn í kjöri voru í þær stöður af hálfu sjálfstæðis- manna Jón Sigurðsson og Jón Ólafsson. — Skrifarar voru kosnir með hlutfallskosningu Guðbrandur ísberg og Jónas Guðmundsson. Var siðan lilutað um sæti þingmanna, mjög á móti skapi socialista og var mikil eftir- vænting suriira þingmanna meðan á því happdrætti stóð. frfi hæjarstjfirnarfundi í gær. íbúd í kjöllurum. Bjarni Benediktsson spurðist fyrir um ])að, hvernig á þvi stæði, að byggingarnefnd leyfði riýjar í- búðir i kjöllurum, þrátt fyrir ákvæði Iaga,/sem þetta hönn- uðu. Borgarstjóri sýndi fram á, að ákvæði um livað væri „kjallari“ vantaði í lögin og byggingarsamþykt. Bvggingar- nefnd gæti liins vegar ekki hundið sig við það, þótt um- sækjendur kölluðu neð.stu hæð húsa kjaUara, ef hæðin stæði alveg eða því nær alveg úr jörðu og væri forsvaranleg til íhúðar, enda væri orðið „kjall- ari“ eða tilsvarandi orð alls ekki notað í þeim tilfellum i öðrum skyldum málum. Bjarni Ben. taldi þessar upplýsingar fullnægjandi. Atvinnubótavinna kvenna. — Út af erindi verkakv'ennafé- lagsins Framsókn uni þetta efni, tók horgarstjóri það fram, að enginn ágreiningur væri um, að konur ættu út af fyrir sig jafnan rétt til atvinnubóta og karlar. Ilitt væri eðlilegt, að þær væru yfirleitt ekki í at- vinnubótavinnu vegna þess, að í fyrsta lagi væri mjög lítið um atvinnuleysi kvenfólks. í öðru lagi væri sú vinna, sém unnin væri nú, alls ekki við kvenna hæfi og ekki hefði tekist að benda á heppilega vinriú handa þeim konum, sem annað hvort væru atvinnulausar eða að visu væri þröngt i húi hjá, vegna skorls á fyrirvinnu, en; ættu ekki lieiirian gengt vegna heimilisstarfa. —- Samþykt var skv. tillögu Aðalbjargar Sig- urðardóttur, að kjósa þriggja kvenna nefnd til að atliuga, hvort liægt væri að finna heppilega vinnu í þessu skyni. Kosningu í nefndina var frest- að. — Eftirlaun starfsmanna bæj- arins. — Borgarstjóri bar fram að tilhlutun eftirlaunasjóðs- Svid lifui* tai]ötu ný kæfa Kjötverslunin Herðnbreið Fríkirkjuveg 7. Simi 4565. Dans Eldri .dansarnir. Laugardaginn 6. október kl. 9(4 síðd. Áskriftalisti í TEMPLARA- HÚSINU, sími 3355. - Góð hijóm- svei't (Bernburg). — Aðgöngumið- ar afhentir á laugardag kl. 5—8. stjórnar og bæjarráðs, til- lögur um breytirigar í efiir- launasjóðsreglugerð. Samkv. þeim skyldi breýtt um kosn- ingu á fulltrúum sarfsmann- anna i sjóðstjórnina. En höf- uðhreytingin var sú, að setja liámark fyrir eftirlaun: 6000 kr. fyrir starfsmennina sjálfa og 3600-kr. fyrir ekkjur þeirra. Slefán Jóhann vildi lækka há- markið i 5000 kr. og 3000 kr. Loks bar Bjarni Benediktsson fram . till. um annan útreikn- ing á dýrtíðaruppbót í sam- bandi við eftirlaunin, sem þó hefir ekki praktiska þýðingu, eins og nú standa sakir. Öll- um þessum till. var vísað til 2. umr. 15 bæjarvinnukonur. Rauð- liðar vildu láta hæinn ráða 15 vinnukonur til að senda í hús og láta vinna þar eftir óskum bæjarhúa. Fátækrafulltrúar liöfðu í umsögn látið uppi það ált, að á þessu væri engin þörf, enda útveguðu þeir þurfaling- um ætíð nauðsynlega aðstoð. Borgarstjóri tók undir ummæli þeirra og* sýndi fram á, að nú vær hörgull á vinnukonum i bænum og væri fráleitt fyrir hæinn að fara að keppa við liúsmæður um þær, til þess að halda þeim svo uppi á bæjar- ins fé. Ef menn vantaði aðstoð lil bráðahirgða i hús sín, mundi ráðningarskrifstofan, sem bær- inn nú væri að koma upp, mikLu hetur geta bælt úr því. Till. rauðliða í þessu máli voru feldar með 8 atkv. gegn 7. Atvinnubætur. Fulltrúi kom- múnista bar upp sina venju- legu till. um stórkostlega fjölg- un i atvinnubótavinnu. Enn- fremur vildi hann nú láta kaupið haldast óbreylt, þrátt fyrir styttan vinnutíma. Þessar till. hans fengu einungis hans eigið atkv. / mjólkursölunefnd var Guð- mundur Áshjörnsson kosinn, en í mjólkurverðlagsnefnd þeir Guðmundur Eiríksson, af hálfu sjálfstæðismanna, og Guð- mundur Oddsson, af liálfu rauðliða. Úthlutun ellistyrks. Bæjar- ráði var falið að úthluta elli- stvrk.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.