Vísir - 01.11.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 01.11.1934, Blaðsíða 3
V !SiR Það getur vel verið. En þeir eru ekki menn til þess. Þá vantar alla hæfileika til þeirra hluta. Þeir berjast um eins og naut í flagi, liafa hátt um sig, busla beint af augum. Þeir eru óvanir öllum stjórnarstörfum, greind- arlitlir og fákænir að því er virðist, bera fullkominn óvild- nrlmg í brjósti til meiri liluía landsmanna og eru stöðugt undir áhrifum manns, sem öll- um verður til ófarnaðar og tjóns að lokum. Smábændurnir i nágrenni Reykjavíkur hafa nú orðið fyrir barðinu á stjórn „hinna yinn- andi stétla“ með þeim liættf, ac eins dæmi munu vera hér á landi á siðari timuin. Rikis- valdið hefir látið veita þeim fyrirsát á vegum úti og hindra, þá i þeirri viðleitni, að bjarga sér og sinuin. Hafa bændur þcssir það éitt til saka unnið, að þá langar til þess að mega balda því áfram, hér eftir sem bingað til, að selja mjólk 'sína beinl til neytanda, án „milli- liða“. „Stjórn hinna vimiandi stétta“ er alt af að rífast um „millibðakostnaðinn“ hér á landi. Og þjónustulið hennar hefir tekið undir þann söng. — Hefir lierskari þessi allur látið i veðri vaka, að „milliliðirnir“ væri. eitt liið versta' átumein í islensku þjóðlífi. Þeir væri ekki til annars en að skapa dýrtið og halda henni við. — Sumir liafa trúað því, að „hersingin“ meinti eitthvað með þessu rifr- íldi og rausi. Og um það leyti sem núverandi stjórn tók við völdum vár um það talað, að eitt liið fyrsta verk hennar mundi verða það, að „uppræta milliliðina“. — Þeir áttu að vera sérstaklega hættulegir og standa þjóðinni mjög fyrir þrifum. En stjórn „liinna vinnandi •stétta“ var ekki fyr komin til valda en hún fór að braska í þvi, að „koma upp“ nýjum milliliðum. Hún selti af skynd- ingu lög um það, að enginn maður mætti selja granna sin- mn eða öðrum kjötbita „milli- liðalaust". En slík bein verslun hafði reynst bændum mjög hagkvæm. Og þess vegna var líká fyrir hana tekið með lög- iim. Svo kemur mjólkin. — Fá- tækir bændur í nágrenni höfuðstaðarins leggja af stað með mjólkur-dropann sinn hingað til bæjarins, eins og þeir eru vanir. En þá bregður svo við, að þeir reka sig á lögreglú- vörð á öílum vegum. Og ástæð- an til fyrirsátarinnar er sú, að ákveðið hefir verið, að koma í veg fyrir, að þeir gæti selt mjólkina án „milliliða“. Smá- bændunum virðast þetta harðir koslir, sem von er til. En ]>ar er engin miskunn. „Milliliðalaust“ skal enginn mjólkurdropi seld- ur i þessum bæ, ef kominn er frá bónda u^m lögsagnar-um- dæmisins! Skatturinn, sem á bændur cr 'lagður með þessum hætti — hreinsunarskattur o. fl. —; er mjög tilfinnanlegur og rang- látur. En sljórnin situr við sinn keip og hugsar sem svo: Engin verslun án milliliða! I Ferðagrammófónn, sem 1 nýr, til sölu ódýrt. A., v. á. Veðri'ð í morgun. Frost um land alt. í Reykjavík 8 stig, Bolungarvík 5, Akureyri 4, Skálanesi 2, Vestmannaeyjuin \. Sandi 2, Kvigindisdal 6, Hesteyri 5, Gjögri 3, Blönduósi 5, Siglunesi 1, Grímsey 4, Raufarhöfn 4, Fagra- dal 4, Hólum í Hornaf. 4, Fagur- hólsmýri 5, Reykjanesi 6 stig. — Mest frost hér í gær S.stig, minst 1 stig. Sólskin 2,3 st.■ Yfirlit: Háþrýstisvæöi um ísland og Aust- ur-Grænland. — Horfur: Suðvest- urland, Faxaflói,' BreiðafjörSur: Noröaustan gola. Úrkömulaust og víöast léttskýjaö. Vestfiröir, Norð-. urland: NorÖaustan gola. Skýjaö, en víöast úrkomulaust. Noröaust- urland, Austfiröir: Stinningskaldi á noröan. Eljagangur. Suöaustur- land: Noröan gola. Léttskýjaö. Einökunarfarganið. Alþingi hafa borist mótmæla- skjöl frá vérslunarstéttinni gegn einokunarfrumvörpum þeim, sem stjórnin hefir ungað út og lagt fyrir þingið. Verslun- arráðinu hefir verið falin for- usta i málinu. — Þessi félög hafa þegar mótmælt, en von mun á fleiri mótmælaskjölum: Félag ísl. stórkaupmanna, Félag vefnaðarvörukaupmanna í Reykjavík, Félag matvörukaup- manna í Reykjavík, Lyfsalafé- lag íslands, Félag kolakaup- manna við Faxaflóa, Félag ísl. byggingarefnakaupmanna í Reykjavík og Kaupmannafélag Hafnarfjarðar. 100 ára er í dag Ólöf Bjaruadóttir á Egilsstöðum á Völlum. Skip Eimskipafélagsins. Gullfoss er á útleiö. Goðafoss er á leið til Hull frá Hamborg. Detti- foss er á Siglufirði. Brúarfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Leith. Lagarfoss er í Kaumannahöfn. Sel- foss er væntanlegur til Vestmanna- eyja í dag. Frá Englandi komu í nótt Karlsefui, Belgaum og línuveiöarinn Sigriöur. M.s. Dronning Alexandrine fer frá ísafirði ld. 4 e. h. í dag. Væntanleg hingað í fyrraináliö. Prentvilla, sem rétt þykir að leiðrétta, var í nokkurum hluta upplags- ins af blaðinu í gær í grein- inni um Einar skáld Benedikts- son. Þriðji dálkur 11. lína: hreggi rokviðrum, en átti auð- vitað að vera: hreggi og rok- viðrum. Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefir bókaútlán og spilakveld kl. 834 t Oddfellowhúsinu. Meyjaskemman veröur sýnd annaö kveld, Lækk- aö verö. Knattspyrnufél Valur ætlar að halda hlutaveltú' í K.R.- húsínu n. k. sunnudag. Meðlimir og þeir aörir velunharar félagsins, sem gætu gefið eitthvað á hluta- veltúna, eru vinsamlega beönir aö gera viövart, þeim Hólmgeiri Jóns- syni í versl Vaönes, sími 3228 eða Frímanni Helgasyni, sítna 3905, eöa koma mununum í K. R.-húsiö, suöurdyr, á laugardag kl. 3—8 síö- degis. Heimatrúboð leikmanna Vatnsstíg 3. Samkoma í lcveld kl. 8. Allir velkomnir. Ðagatöl og almanaksbækur fæst í Stein- dórsprenti h.f„ Aðalstræti 4. — Hjálpræðisherinn. Hjálpræðissamkoma í kveld kl. 8y2. Mikill söngur og hljófæra- sláttur. Opinber helgunarsamkoma annað kveid kl. 8þ4. Adjudant Sne- fryd Larsen talar. Allir’ velkomnir. Gengið í dag. Sterlingspund ........ kr. 22.15 Dollar................... — 4.45ýí 100 ríkistnörk ........... — 178.58 — franskir frankar . — 29.37 — belgur..........1. — — svissn. fratikar .. — I45-01 — lírur ................ — 38.65 — finsk mörk ........... — 9.93 — pesetar .............. — 61.57 — gyllini........... — 301.25 — tékkósl. krónur .. —- 18.93 — sænskar krónur .. — 114.36 — norskar krónur .. —■ 1 u .44 — danskar krónur . —• 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 49,80, miöaö viö frakkneskan franka: Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Lækjargötu 4. Sími 2234. — Næt- urvörður i Laugavegs apóteki og Ingólfs apóteki. Basar templara til styrktar byggingarsjóönum. Félagar eru beðnir koma gjöfum á íöstudag 2. þ. m. kl. 4 niöur í Templarahús. — Basarnefndin. Glímufélagið Ármann fiélt félögum sínum skemtun í Iðnó í fyrrakveld og var hún mjög fjöl- sótt, eins og vænta mátti, þar sem félagið er afar fjölment. Þar voru afhent verðlaun frá nokkram mót- um í suiiiar, svo sem in’nanfélags- móti, innanfélagssundmóti, kapp- róðrarmóti Ármanns og kapþróðr- armóti íslands. A-liði Ármanns, sem sigraði í báðum kappróðrar- mótunum, var afhent kappróðrar- horn íslands, og hlaut það hornið nú í sjötta sinn i röð. Einnig Voru veitt verðlaun fyrir tugþrautar- kepnina, sem háð var í fyrsta skifti í sumar. Tugþrautina vánn Karl Vihnundsson og hlaut hann silfurbikar að launum. Hafliöi Magnússon hlaut forkunnar fagr- an bikar útskorinn, aö launum fyr- ir flest einstaklingsstig á innanfé- lagssundmóti. Þetta er i þriðja skifti sem hann vinnur bikar þenn- an, og nú til fullrar eignar. Forseti í. S. í., Ben G. Waage, afhenti öll verölaunin, og skoraöi hann á íþróttamenn aö æfa sig vel °g dyggiíega. Aö lokum var hrópað ferfalt húrra fyrir iþróttamönnum Ár- manns. Kvennakór Reykjavíkur. Allar stúlkur, sem eru í Kvenna- kór Reykjavíkur, eru beðnar aö mæta næstkomandi föstudag 2. nóv. í gömlu símstöðinni. E.s. Súðin fór í strandferö í gærkveldi. Útvarpið í kveld: 19,00 Tónleikar'. 19,10 Veður- fregnir. 19,20 Þingfréttir. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Frá útlöndum : „Firdausi" og konunga- bókin; 1000 ára minning (Vilhj. Þ. Gíslason). 21,00 Lesin dagskrá næstu viku. 21,10 Tónleikar: a) Útvarpshljómsveitin; b) Einsöng- ur: Eggert Stefánsson; c) Grammófónmúsik. tJtvarpsfpéttir. Verður dr. Muller vikið úr embætti ? • London, 30. okt. FÚ. Biskupará'ðið vár kvatt á fund Hitlers í dag. Álitið er, að þar hafi verið rætt um, að setja einhvern annan í embætti Ríkisbiskups, en vikja dr. Muller frá. Engin opin- ber tilkynning var gefin að fund- inum loknum, en hann stóð í tvær klukkustundir. Fannkoma á Skotlandi. London. 30. okt. FÚ. í dag snjóaði á láglendi i Skot- landi, og var sagður fjögra þunih unga djúpur snjór á þjóðveginum frá Glasgow til London. í dag var 6.6 stiga frost (C-) > Hampshire i Englandi. Mannfall stjórnurliðsins ó Spáni í byltingartilrauninni. Londoh, 30. okt. FÚ. Lerroux, forsætisráðherra á Spáni, hefir tilkynt, að í byltingunni haíi fallið 220 manns af stjórnarliðinu og lögreglunni: 743 hafi .særst og 46 hafi tapast. Njósnari dæmdur. Berlín 1. nóv. FÚ. Verkamaður einn, sem vann í vopnasmiðju tékknesku stjórnar- innar í Pilsen, var dæmdur í gær fyrir rétti í Prag í fjögurra ára fangelsi fyrir njósnir í þágu Sovét- Rússlands. Þýska lögreglan og prestarnir. London 31. okt. FÚ. Lögreglunni í Þýskalandi hefir veriö skipaö aö skifta sér ekkert af prestum kirkjunnar, eða gerðum þeirra. Þannig vildi það til, að gamli fáni kirkjunnar, fjólublár kross á hvítum grunni, var dreginn að hún í dag, á afmæli siðabótar- iniiar, en áður hafði þetta verið bannað, og skipað að flagga með bakakrossfánanum. Þeim biskup- um, sem vikið hafði veriö úr em- bætti um stundarsakir, var tilkynt aö þeir mættu taka aftur til starfa. Hjónaböndum og barnsfæðingum f jölgar í Þýskalandi. Berlín 1. nóv. FU. í nýútkomnum hagskýrslum um íólksfjölda í Þýskalandi er þess getið, aö fvrra helniing þessa árs hafi verið stofnuð 25% fleiri hjónabönd en á sama tíma í fyrra, og að barnsfæðingum hafi á sama tíma fjölgað um 30 af hundraði. Hitt og þetta Kvikmyndir sýndar í frægasta leikhúsi Frakka. París í okt. FB. Fyrir skönnnu var sú á- kvörðun tekin, að sýndar yrði kvikmyndir við og við í hinu fræga leikhúsi Coniedie Fran- eaise, sem til þessa hefir aðeins sýnt sígild (klassisk) leikrit. Er þetta gert lil þess, að liægt sé að draga úr rekstrarkostnaði leik- liússins, og ýmsir gera sér von- ir um, að meö því að nota það að nokkru leyti til kvikmynda- sýninga, verði hægt að láta það bera sig. Fyrst um sinn verða þó Hundruð þúsunda nota Buttn- erspípuna, stórar og litlar. Þær vernda tungu, hjarta og lungu. Fásl ásamt öllum varahlutum mjög víða. Tilvaldar tækifæris- gjafir. K.F.U.K. Fundur annað kvöld, 2. nóv. Einar Einarsson talar. Alt kvenfólk velkomið. Hljómsveit Reykjavíkur: Meyjaskemman leikin annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar í dag kl. 4—7 og á morgun kl. 1—7. LÆKKAÐ VERÐ Góð kanp. Ef þér viljið gera góð kaup a góðum húsgögnum, þá komið á Grundarstíg 11. Höfum til nokkra stóla sem við seljum með tækifærisverði. Stökur kveðnar í illviðri. að kveldi dags. Veltur Græðir válegnr. varla flæöi skarðar. Stonnur næöir nákaldur nístir svæöi jaröar. Mekkir hlaöast hafs viö brún hátt, og skaöa valdá. Loftið baðast Ijótri rún leiöir þaöan kalda. , Fela sólu ferleg ský, færist njóla á línu. Lífsins sjóli lát oss því lifa í skjóli þínu. P. Jak. aðeins sýndar tvær kvikmynd- ir. Fyrri kvikmyndin verður lýsing á lifi og starfi frægra leikara, svo sem Sarah Bem- liardt og Eduard de Max. — Hin kvikmyndin verður gerð samkvæmt „Les Precieuses Ridicules“ eftir Moliere. Bann- að verður að sýna þessar kvik- myndir í öðrum leikhúsum eða kvikmyndahúsum i París eða nágrenni. — Comedie Fran- caise nýtur enn styrks lir ríkis- sjóði Frakklands. Það var sett á stofn 1680 að hoði Lúðviks XIV. Frakkakonungs og liefir ávalt síðan verið frægasta leik- hús Frakklands, er sýnir klassisk leikrit. (United Press). Sjómannaverkfall fer út um þúfur. Tilráun var gerö til þess aS koma á sjómannaverkfalli í New York snemma í siöastíiðnu.m mán- uði. Var markmiðið að stöðva öll amerísk skip, sem eru í förum 4 Norður-Atlantshafi. Giskaö, var á, að 40,000 sjómenn myndi taka þátt i henni, en fyrsta daginn lögðu aö- eins 350 niður vinnu, og var þá þegar víst, að verkfallið myndi fara út um þúfur, enda varð sú raunin á.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.