Vísir - 11.12.1938, Blaðsíða 2
2
VlSIR
Sunnudaginn 11. desember 1938-
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S I m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Verndun
kynstofnsins.
CNGUM er jafnhættulegt og
“ smáþjóðum sem íslending-
um, innflutningur erlendra
manna og blöndun kynstofnsins
á þann hátt. Merkur íslenskur
visindamaður hefir sagt, að ekki
þyrfti nema fimmtíu Gyðinga,
er blonduðust þjóðstofninum,
til þess að þjóðin hefði mist sin
norrænu einkenni eftir 2—3
mannsaldra.
Vegna þeirra ofsókna sem
eiga sér stað í Þýskalandi gegn
Gyðingum, er mjög skiljanlegt
að þessi hrjáði kynflokkur leiti
þaðan og reyni einhversstaðar
að finna sér griðland. En þótt
forráðamenn stórþjóðanna
haldi lijartnæmar ræður og for-
dæmi ofsóknirnar virðist litið
gert af þeirra hálfu til að veita
því fólki viðtöku sem Ieitar
burlu frá Þýskalandi. Af þeim
hundruðum þúsunda sem biðja
stórveldi álfunnar um landvist,
fá að eins nokkur hundruð
manns dvalarleyfi. Þetta sýnir
að stórþjóðirnar eru á verði
gegn því að hleypa inn til sín
nýju fólki af erlendum kyn-
stofni, sem þarfnast starfs og
viðurværis, meðan landsins eig-
in börn skortir atvinnu.
Ef þjóðir með 400 mil-
jónum íbúa treystast ekki til að
taka við nema nokkur hundruð
Gyðingum, þá mundi á sama
mælilcvarða ekki verða margir
sem íslenska þjóðin veitti við-
töku. Nú þegar er farið að bera
á því að þýskir Gyðingar eru
farnir að leita hingað til dvalar.
Er hér um að ræða svo alvarlegt
nuál fyrir þjóðina, að full á-
stæða er til að gera sér grein
fyrir hvað er að gerast áður eii
það er orðið um seinan. Pukis-
stjórnin hefir að vísu látið hafa
nokkurt eftirlit með útlending-
um, en ekki virðist því vera
fylgt fram af neinni festu.
Hér í hænum er félagsskapur
einn er nefnir sig „friðarvina-
félagið“. Er sagt að félag þetta
sé stofnað til að greiða götu
þýskra flóttamanna hingað til
Iands. Þótt félag þetta sé í orði
kveðnu mannúðarfélagsskapur,
þá mun sannara sagt að starf-
semi þess sé þjóðinni stórhættu-
leg. Félagið mun skipað öfga-
fólki, aðallega kommúnistum.
Eitt af afrekum þessa félags er
sagt að sé það, að útvega gyð-
ingakonu einni þýskri íslenskan
mann, svo að hún gæti fengið
hér landvist. Fjölskylda hennar
mun nú hingað komin og hún
hefir nú sett á stofn hér fyrir-
tæki' í samkeppni við samskon-
ar Innlend fyrirtæki. Slík fé-
Iagsstarfsemi sem þessi ætti að
varða við Iög.
Þótt eðlilegt sé að íslenskir
borgarar liafi samúð með Gyð-
ingunum í Þýskalandi í þeim
hörmungum sem að þeim
steðja, þá er þó hver sjálfum sér
næstur og islenska þjóðin verð-
ur fyrst að sjá farborða sínum
eigin hörnum,áður en húntekur
á sig framfærslu erlendra flótta-
manna. Og þjóðin hefir enn-
fremur þá helgu skyldu, að
vernda hinn íslenska kynstofn,
hið norræna og keltneska blóð,
svo að ekki blandist honum
sterkur erlendur stofn sem
þurkað getur út hin norrænu
ættarmerki eftir fáa manns-
aldra. Það hlýtur að verða ófrá-
víkjanleg krafa hvers einasta
íslendings, að ríkisstjórnin sjái
svo um að setlar verði rammar
skorður við innflutningi útlend-
inga, sem nú leita dvalar um
gervalla Evrópu. Þjóðin er ein-
huga um slíka ákvörðun.
Skákmðtið á Aknreyri.
Akureyri í dag.
Einkaskeyti til Yísis.
Áttunda umferð í skákmótinu
á Akureyri var háð í fyrra-
kvöld og fóru leikar svo, að
Baldur Möller vann Jóhann,
Guðmundur Arnlaugsson vann
Björn, Guðmundur Eiðsson
vann Jón Sigurðsson, Unnsteinn
vann Guðmund Guðlaugsson
en Júlíus gerði jafntefli við Jón
Ingimarsson.
Jakob.
Málverkasyning Conn-
langs filðndals.
Stokkhólmi 8. des. FB.
Síðasti dagur málverkasýn-
ingai’ Gunnlaugs Blöndals list-
málara var í dag. Fjölda margir
hafa sólt sýninguna og fær hún
góða dóma í sænkum blöðum.
H. W.
Knattspyrnan á
Englandi.
í gær fóru leikar svo: Bir-
mingham -—- Brentford 5:1;
Bolton W.—Aston Villa 1:2;
Charlton A: Wolverhampton
0:4; Chelsea — Huddersfield
3:0; Leeds — Sunderland 3:3;
Leicester C. — Derby C. 2:3;
Liverpool — Grimsby 2:2; Man-
chester U. — Arsenal 1:0; Mid-
dlesbro’—Blackpool 9:2; Pres-
ton—Everton 0:1 og Stoke City
—Portsmouth 1:1.
Það sem mesta undrun vekur
er hin góða frammistaða hjá
Middlesbro’, Aston V. og Man-
chester U. og liin auma frammi-
staða Charlton og Arsenal.
Derby Co. og Everton fara nú
enn lengra fram úr hinum og er
röðin þessi:
Leikir Mérk Stig
Derby 19 39—19 29
Evertón 18 38—16 27
Liverpool 18 31—14 21
W’hampton W. 18 28—14 21
Leeds U. 18 34—33 21
Middlesbro’ 18 38—30 20
Charlton A. 18 24—24 20
Grimsby T. 18 22—24 19
Bolton W. 18 28—26 18
Aston V. 18 29—28 17
Arsenal 18 20—19 17
Sunderland 18 23—26 17
Leicester C. 19 25—30 17
Stoke C. 18 26—33 \%
Blackpool 18 25—29 16
Preston N. EL 18 23-27 16
Portsmouth 18 19—29 16
Chelsea 18 21—37 15
Birmingham 19 30—34 14
Manchester U. 18 20—26 14
Huddersfield 19 23—33 14'
Brentford 18 22—36 14
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Frá Rómborg er símað, að dr. Gayda hafi stungið
upp á því, að gagngerða breyting verði að gera
á Suezskurðarfélaginu. Vill hann að því verði
breytt þannig, að allar þjóðir standi jafnt að vígi að því
er siglingar um skurðinn snertir.
Það má ekki Iengur svo til ganga, segir dr. Gayda, að
stjóvn skurðsins sé í höndum nokkurra auðmanna,
heldur eiga fulltrúar allra þjóða að hafa þar yfirstjórn
með höndum, þannig að réttindi þeirra sé í hlutfalli við
hversu mikið þær nota skurðinn vegna siglinga skipa
sinna. Ennfremur vill dr. Gayda, að breytingar verði
gerðar á ákvæðum um tolla og gjöld, sem lögð eru á
skip, sem fara um skurðinn, og færa þau eins mikið
niður og með nokkuru móti er unt.
Dr. Gayda segir, að Suezsskurðarmálið verði að leysa
um leið og önnur mikil vandamál Evrópuþjóðanna eru
tekin til meðferðar. Þau verður að leysa, segir hann,
þannig, að niðurstaðan verði einn þáttur allsherjar
samkomulags Evrópuþjóðanna um vandamál þeirra, og
það samkomulag verður að nást á grundvelli jafnaðar
og réttlætis.
Það vekur allmikla athygli, að Suezskurðarmálið er
aðalmálið í ítölskum blöðum í dag. Það er minna rætt
um kröfur ítala viðvíkjandi Tunis, Korsíku og Dji-
bouti, þótt einnig sé á þau mál minst.
, United Press.
Bretar áforma að stofna
þjóðheimili fyrir Gyðinga
í Norður-Rhodesiu,
ð landssTaðl, sem er stærra en England,
Osló, 10. des-
Breska st jórnin hefir á pr jónunum mikla áætlun til
þess að leysa flóttamannavandamálið. Hefir komið til
orða, að breska stjómin b.jóðist til þess að koma á fót
þ.jóðheimili fyrir Gyðinga í norðausturhluta Rhodesíu,
á landssvæði, sem er stærra en England. Er þar gnægð
af frjórri jorð og loftslag gott. Er talið, að þarna sé nóg
landrými til þess að hægt sé að taka við Gyðingum, sem
vil.ja nema land frá öllum löndum heims, um langa
framtíð. — NRP.—FB.
Alls engar tilslakanir í gard
Itala og I»jódverja, segip
Cranboupne mapkgreifi 1
hvasspi ræðu, —
það væri uppgjöf vegna ofbeldis-
fullra hótana.
Kosningar fara fram í Meinel í dag.
Sameining Memel og Þýskalands talin
standa fyrir dyrum.
Osló, 10. des.
Barátta Þjóðverja fyrir því, að gera Memel-búa „nasistiska“
er nú svo vel á veg komin, að allir Þjóðverjar og flestir Lithau-
ar eru sagðir orðnir þeirrar skoðunar, að þess muni ekki langt
að bíða, að Memel sameinist Þýskalandi. Menn gera alment ráð
fyrir því, að sameiningin komist til framkvæmda í seinasta lagi
fyrir næsta vor. — NRP.-FB.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í gærkveldi»
Ræða, sem Weymouth markgreifi hefir flutt í Weymouth,
vekur gífurlega athygli. Er liann einn af kunnustu stjórnmála-
mönnum Bretlands og hefir gegnt embætti sem aðstoöar-utan-
ríkismálaráðherra.
Ræðu þessa flutti hann á fundi í félagi íhaldsmanna. Réðist
hann hvasslega á Ítalíu og Þýskaland í ræðu sinni og lcrafðist
þess, að stjómin hefðist handa um að auka vígbúnað sinn eins
og þol þjóðarinnar leyfði.
Cranbourne hélt því fram, að ef nokkurar tilslakanir í garð
Þjóðverja yrði gerðar væri það sama sem uppgjöf vegna of-
beldisfullra liótana
Vér verðum að vighúast, sagði Granbourne, og halda áfram
að vígbúast af öllum krafti.
London, 10. des. — FÚ.
Þingkosningar fara fram í
Memel á morgun.
Leiðtogi Þjóðverja í Memel
hefir sagt, að kröfur mun verða
bomar fram um það snemma á
næsta ári, að Memel sameinist
Þýskalandi.
Kosningabarátta Þjóðverja í
Memel er háð að þýskri fyrir-
mynd. Þeir segja, að kosning-
arnar sé raunveruléga þjóðar-
atkvæði um sameiningu Memel
og Þýskalands.
Þýsk blöð segja, að Lithauar
séu búnir að átta sig á því, að
framtíðarsambúð Lithauen og
Þýskalands sé undir því komin,
að Þjóðverjar í Memel fái að
njóta allra sinna réttinda.
400—500 Gyðingafjölskyld-
ur í Memel hafa flust þaðan að
undanfömu.
Betrl horfnr I Tunis.
EINKASKEYTI TIL YÍSIS.
London, í gærkveldi.
Vegna ráðstafana þeirra, sem
frakkneska stjómin hefir gert
til þess að halda uppi reglu í
Tunis, er þar nú alt með kyrr-
um kjömm. Gera menn sér
nú nokkurar vonir um, að ekki
komi til neinna uppþota á
morgun. — I dag er fyrsti dag-
urinn í Tunisborg þessa viku,
sem ekki hefir komið til neinna
ýfppþota.
United Press.
United Press.
ANDRÉ PONCET SENDIHERRA
er talinn slyngastur allra sendiherra Frakka, enda em lionum falin vandasömustu og viðkvæmustu
stjórttmálaerindi til úrlausnar. Poncet hefir lil skamms tíma verið sendiherra Frakka í Berlín og
notið þar mikilla vinsælda. Eins og kunnugt er, varð það úr fyrir skömmu, að Frakkar viður-
kendu yfirráð Itala í Abessiniu, en það hafði verið stutt í því milli Frakka og ítala út af þeim mál-
um langa hríð, og Frakkar engan sendiherra haft í Róm alllengi. Þótti nú mikið við liggja, að
reyndur og Iipur stjómmálamaður væri sendur þangað, enda varð Poncet fyrir valinu. Og það er
víst um það, að hann fær þar erfið og vandasöm mál að leysa, því að þrátt fyrir viðurkenningu
Frakka á yfirráðum Itala í Abessiniu, er sambúð Frakka og ítala orðin örðugri en nokkuru sinni,
og stafar það af hinum víðtæku kröfum ítala á hendur Frökkum sem undanfarna daga hafa leitt
til æsinga á Italíu, Tunis og Frakklandi. — Hér á myndiimi sést Poncet í viðræðu við dr. Göbbels,
útbreiðslumálaráðherra Þýskalands. —