Vísir - 28.01.1942, Blaðsíða 1

Vísir - 28.01.1942, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstoíur: Félagsprentsmiðjan (3. hzað). 32. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 28. janúar 1942. Ritstjóri 1 Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 linur Afgreiðsla 4. tbl. 25.000 Japönam drekkt á Macassar-stmdi. í dag ep 6. dagup árásaima. P fregnum frá Batavia á Java í morgun, er áætlað, að 25 þús. japanskir hermenn muni hafa drukknað í Mac- assarsundi undanfarna fimm daga, síðan bandamenn urðu varir við japönsku skipalestina og hófu árásir á hana. Hernaðarsérfræðingar í Bandaríkjunum hafa sagt um þessa viðureign, að hún ætti að færa Japönum heim sann- inn um það, að þeir geti ekki farið öllu sínu fram óáreittir. Ætti þeir að sjá af þessu, að róðurinn muni sækjast erfiðleg- ar framvegis, þegar bandamönnum fari að vaxa fiskur um hrygg og þeir geti teflt fram auknu liði með betra útbúnaði. Orrustan, sem byrjaði á Macassarsundi, milli Borneo og Celebes s.l. föstudag, er enn báð af kappi. Herskip banda- manna og flugvélar halda uppi stöðugum árásum á herskip og herflutningaskip Japana þarna á sundinu, en í seinustu fregn- um er talið, að þarna hafi i upp- hafi orrustunnar alls verið um 100 skip, og sýnir þetta, að Jap- anar hafa ætlað að setja mik- inn herafla ó land, sennilega á Borneo. En1 þetta stórfelda á- form kann að hafa farið alveg út um þúfur. Þegar er búið að sökkva 11 skipum, sennilega 16, en yfir 20 liafa laskast \— og árásunum er haldið áfram. Lik- ur eru ekki miklar fyrir, að skipin komist. á brott, því að sundið er langt og fremur mjótt. Það eru Hollendingar og Banda- ríkjamenn, sem árásirnar gera. HoIIendingar hafa alls uni 1600 fyrsta flokks flugvélar i Holl. Austur-Indium, en Bandaríkja- menn hafa að undanförnu sent þangað mikið af flugvélum, og i gærkvökli var tilkynnt, að mikill herafli frá bandamönn- um (U.vS.A.) væri kominn til hafnar i Hollenzku Austur- Asíu, og meira lið væntanlegt. Leikurinn fer áreiðanlega harðn andi og herskipa og annað skipa- tjón Japana er þegar orðið þeim alvarlegt ihugunarefni. í fregn- um i gær var talið líklegt, að japönsku orrustuskipi hefði ver- ið sökkt á Macassarsundi. Á Malakkaskaga og í Suður- Birma eru bandamenn enn á undanhaldi. Á Malakkaskaga segjast .Tapanar nú vera í þann veginn að taka höfuðborg Jo- horefylkis og einnig segjast Jjeir bafa tekið um 5000 brezka fanga og mikið af liergögnum. Á Filipseyjum er lítið barist, segir i fregnum frá Washing- ton, eins og sakir standa, en Japanar segjast hafa náð á sitl vald skaganum, þar sem Mc- Arthur hafði aðalbækistöð sína. Bandaríkjaher á 10 stöðum utan B.S.A. tit Roosevelt forseti talaði við blaðamenn i gær, og spurðu þeir hann ýmissa spurninga. í einu svarinu sagði Roosevelt, að Bandaríkin hefði nú herafla i 3—8—10 löndum utan U.S.A. Ummæli Roosevelts og Cliur- chill eru skilin þannig, að her- afli Bandaríkjanna í Irlandi sé að eins forvarðasveitir mikils hers, sem sendur verður til þess að berjast á vigstöðvum Evrópu. Koma amerisku hermann- anna til Norður-írlands liefir vakið nokkurn urg i Eire, og stafar það af þvi, að Eire, sem er hlutlaust land, kemst í meiri hættu, ef allt Norður-lrland verður lierbúðir, eins og má bú- ast við. Má þá gera ráð fyrir, að fjandmenn Breta reyni frek- ar en áður að gera árásir á N.- írland, og þá gæti svo farið, að crfitt yrði að vernda hlutleysi Eire til lengdar. De Yalcra hefir borið fram mótmæli út af því, að fríríkis- stjórninni var ekkert tilkynnt um livað til stóð. De Yalera tók fram, að engin andúð væri ríkj- andi i Eire gagnvart Bandaríkja- þjóðinni. An drews, f orsætisráðherra N.-frlands, er hins yegar liinn ánægðasti. Sagði hann í þing- ræðu, að koma amerísku her- mannánna væri sögulegur við- urður, og allir Norður-frar fögn- uðu þeim innilega 18.000 MILLJÓNIR DOLLARA TIL ÞESS AÐ AUKA HER- SKIPAFLOTA U. S. A. Fulltrúadeild þjóðþingsins i Washington hefir samþykkt fjárveitingu að upphæð 18.000 millj. dollara til þess að hraða smiði herskipa og smiða ný her- skip, en Bandarikjamenn eiga nú 383 ný herskip í smíðum. Hluta af fyrrnefndri fjrhæð verður varið til þess að smíða 27.000 flolaflúgvélar. Illé í Cyrenaica 120 VÉLKNÚIN HERNAÐAR- TÆKI EYÐILÖGÐ FYRIR ROMMEL í GÆR. Nokkurt hlé virðist nú vera í skriðdrekaorrustunni fyrir norðan og norðaustan Msus, sem er um 100 km. til suðaust- urs frá Benghazi. Hefir nú ver- ið barisl af kappi nokkur dæg- um, en i skriðdrekaorrustum er ekki hægt að halda áfram til lengdar, nema Unt sé að tefla fram nýjum skriðdrekasveit- um. Eftir að barist hefir verið um skeið er allt af óhjákvæmi- legt að taka skriðdrekana til smurningar og eftirlits, o. s. frv. En ekki er talið, að langt hlé verði. Bandamenn hafa vafa- lausl sent aukið lið á vetlvang, 'en allt vafasamara, að Romnfel geti komð mjög auknu liði á bardagasvæðið. í gær var einhver bezti dag- ur flugliðsins, var simað fró Kairo i morgun, og eyðilögðu Hurricane og Tomabawk-flug- vélar um 120 vélknúin hernað- artæki fjtrir Rommel. ’bONGKLé BritisH Maloyo includos ^ v fhc Sfroifs Settlernents, and the Malay States. Totol pop.: 5,237,341 KEDAH ......... +. I; Georgetown jTciiping W Porí'vWel<( ITA BHARU] Tanah Js^erah = kel'antan ,\-j KualaeS perakmalay Pana | TRENCCANU Tahan STÁTES ríKuala Lipis w ' \ hTelokS* Koub # Benom »Anson \ ® i SELANGOR l : Kuala SelanSJr\ t<KUALA \ *LUMPUR, SEMBILAN COMPARATIVE AREA MALAYA 5l,r/2*q. mi. kLABAMA 51,998 «q. mi . Port Swcttenhom Pekanj PAHANG Rompin Gemas Tampin MALACCÁ1 « Bendar \, O Maharani PULAU 11OMAN \ riOuth Blumut® sChino Seaj SUMATRA JNeth.) Ö>AT Bengkalis A JOHORE Scole of Miles oc'.'-r.i Af þessu korti geta menn áttað sig á afstöðunni á Malakka- skaga. í efra horninu til hægri eru samanburðarmyndir af hinum brezka liluta slcagans og Alabama-fylki í Bandaríkj- unum (stærð í fer.km. fæst með þvi að margfalda fermílurn- ar með 2,5). Jarðarför Pólverjanna sem, fórust með Wigry fór fram í gær. Mikil viðhöfn að kaþólskum og lutherskum sið. Fyrir nokkru fórst við Snæ- fellsnes pólska skipið Wigry, í aftaka veðri. Af 27 manna áhöfn björguðust að eins tveir menn. Var annar þeirra 18 ára íslend- ingur, Bragi Kristjánsson, en hinn var Pólverji, Imalski að nafni, og var 2. stýrimaður á skipinu. Er sýnt var að hverju dró yfirgaf skipshöfnin skipið og fór í björgunarbát, að skip- stjóra og matsveini undantekn- um, er fórust með skipinu, en leiðbeindu bátsverjum með kaslljósum meðan unnt var. Bátsverjar lentu hins vegar i lirakningi iniklum, og svo sem að ofan greinir komust að eins tveir þeirra lifs af. Átján lík hefir rekið og voru sextán þeirra jarðsett i gær. Voru það alll erlendir menn, flestir Pólverjar. Sá pólska ræð- ismannsskrifstofan um útför- ina, er fór fram með mikilli við- liöfn. Kb 10 árdegis var sálu- messa í Kristskirkju í Landa- koti, að kaþólskum sið, en flokkur úr Lúðrasveit Reykja- víkur lék m. a. sorgarlag Chop- ins, hins heimsfræga pólska meistara. Brezkir hermenn og pólskir sjóliðar báru kisturnar úr kirkju, sveipaðar fánum, og voru þær fluttar i bifreiðum hersins 'i kirkjugarð. Þar fór fram virðulcg kveðju- athöfn er hófst með þvi að Finnbogi Kjartansson, vara- ræðismaður, flutti ræðu á pólsku, en að henni lokinni söng kór frelsisbæn Pólverja. Þá flutti síra Jón Tborarensen ræðu, eu að þvi loknu var sung- ið: „Allt eins og blómstrið eina“. Athöfninni lauk með þvi, að fulltrúi brezka sefuliðsins hér á jandi lagði sveig ó gröfina og kvaddi hina látun að hermanna sið. Viðstaddir voru athöfnina pólski ræðismaðuxinn, Hjalti Jónsson, og vararæðismaðurinn, Finnbogi Kjartansson, fulltrú- ar frá islenzku ríkisstjórninni, sendiberrar og ræðismenn er- lendra ríkja og auk þess fjöldi erlendra og innlendra nianna. Tveir Islendingar fórust með skipinu, Þórður Pálsson og Garðar N. Magnússon, og fer jarðarför jæirra fram síðar. Vinnuhæli S.I.B.S. Nefnd skipuð til að undiirbúa það. Nefndin, sem á að annast undirbúning á stofnun vinnu- hælis S. í. B. S., var skipuð fyrir jólin og hafa allir menn- irnir fallizt á að starfa í henni. Miðstjórn sambandsins kaus fjóra mennina, en einn af skip- aður af ríkisstjórninni. Það var Sigurður Sigurðsson, yfirberkla- læknir, en hinir eru: Vilhjálmur Þór, bankastjóri, Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjar- stjórnar, Haraldur Guðmunds- son forsfjóri og Oddur Ólafs- son, læknir á Vífilsstöðum. Þessir menn eiga að vinna að undirbúningi undir fram- kvæmdir, ákveða stað og fyrir- komulag i aðalatriðum, vænt- anlega hvaða verk verða unn- in og hvaða flokkur sjúklinga eigi að vera i\ hælinu. Er um þrjá flokka að ræða — fyrst og fremst sjúklinga, sem hafa ver- ið brottskráðir af heilsuhælum og er hælið aðallega ætlað þeim, berklaöryrkja, sem eru útskrif- aðir, en farlama, og loks er um króniska sjúldinga að ræða, sem annars mundu vera á hæli, þótt þeir sé sæmilega vinnufærir. S. I. B. S. á nú í sjóði um 170 þús. kr., en j>egar sþfnun hófst í haust, voru rúmlega 30 þús. þr. í sjóði. Ætlimin var að hefja framkvæmdir á þessu ári, en miðstjórn sambauclsins er alltaf Iþróttasamband 30 ára. Islands Afmælistagnaðup 1 dag er 30 ára afmæli I. S. I. Sambandið, er hóf starf sitt af veikum mætti, er nú orðið stórt og sterkt, er orðinn fastur og nauðsynlegur liður í þjóðfélags- starfinu, og beinlínis orðin lög- helguð ríkisstofnun, því svo seg- ir í íþróttalögunum frá 12. febr. 1940, að I. S. I. sé æðsti aðili um íþróttastarfsemi áhugamanna í landinu og komi fram erlendis af fslands hálfu í íþróttamálum. Það er því ekki um að villast, hver hér er á ferð. f. S. í. hefir í öll þessi ár átt við þröngan fjárkost að búa miðað við það, sem afkastað hefir verið á Jjessum árum. Þetta iná eingöngu þakka fra- bærri ráðdeild stjórna þeirra, er sambandið hefir haft,' og dugnaði. Þegar öldin hófst voru ekki á íslándi til íþróttir í Evrópu- skilningi eða skilningi vorra daga. Þá blés i þessum efnum, sem mörgum öðrum, vindur inn yfir landið utan úr álfu. íþróttahreyfingin hófst ósjiálf- rátt meðal ungra manna í Rvík, og var í fyrslu, eins og verða vill, handaliófs glingur. Eg býst við, að gusturinn hafi borizt Iiingað með brezku herskipun- um, sem lágu hér lengi við á sumrum. Skipshafnir þeirra gengu oft á land og þreyttu knattspyrnu; ungmenni bæjar- ins horfðu á og höfðu gaman af, og reyndu, eins og ungling- um er títt, að stæla þetta. Þetta yarð, að eg hygg, undirstaðan að íþróltahreyfingunni, og var nijór mikils vísir. Slika iþrótt er ekki til langframa hægt að liefja skipulagslaust, og voru þvi stofnuð knattspyrnufélög, og gátu þau af sér önnur íþrótta- félög, glímufélög og fleiri. Það er ekki nema eðlilegt, að mönnum dytti í hug sá auðsæja þörf, að koma þessari slarfsemi undir eina stjcirn til allslierjar- samtaka, en sannleikurinn er þó sá, að tilefnið til sambandsstofn- unarinnar mun ekki fyrst og fremst hafa verið hún, heldur ósk nokkurra íþróttamanna um það, að íslenzkur glímuflokkur færi til Ólympíuleikjanna í Stokkhólmi 1912, sem og varð. Var Sigurjón Pétursson verk- smiðjueigandi frumkvöðull að stofnun sambandsins. Stofn- fundinn sátu 26 manns. Þegar sambandið tók til starfa, var ekki neitt til neins, nema áliuginn, og allt var óskipulagt, en nú eru nóg gögn um allt lancl til alls. I samband- inu eru 115 félög, og það starfa i því 18 iþróttaráð. Það liggur í auguin uppi, að öllu þessu hefir sambaudið ekki getað afkastað sjálft eða hjálp- arlaust; til þess voru peninga- ráðin of litil. Það er góðum skilningi hins opinbera að þakka, að svo langt er komið, sem komið ei%en hitt er jafnvíst, að sjá betur og betur að 170 þús. kr. munu hrökkva skammt. Má búast við, að horfið verði að þvi ráði, að byrjað verði í tiltölulega smáum stíl, en auk- ið síðar við, efth’ þvi sem efni pg ástæður leyfa. haldinii I kvöld. að sambandið hefir verið lífið og sálin i, að allt það, sem orð- ið er, tækist, og það er það, sem hefir beint augum liins opin- bera að því, sem gera þurfti. Nú er svo komið, að allir skilja nauðsyn iþrótlanna — þær eru meira að segja orðnar skyldunámsgrein við liáskólann —, að allir vita að öll geta mannsins, andleg og önnur, nýtist betur, ef hraustur er lík- aminn. En fátt er svo, að ekki geti fylgt nokkur hætta, og svo er og um íþróttirnar. Þær eru ekki tilgangur heldur tæki, en ef illa er á haldið, kann þetta að snúast við, og. er ]iá ver farið. En þetta sker liefir í. S. í. forð- ast svo vel, að undrum sætir. Það brýnir það stöðugt fvrir mönnum, að iþróttunum sé ætlað að styrkja bina nothæfu getu manna, það brýnir fyrir mönnum þjóðrækni og virðingu fyrir menntum, og liefir þetta komið bezt fram i hinum árlegu skrúðgöngum sambandsins að gröf Jóns Sigurðssonar á af- mæli bans, og í för íþrótta- mannanna til báskólans á vígsludegi hans. Þjóðin stendur í stórri skuRl við í. S. í. bæði fyrir brautryðj- endastarfið og störfín er við tóku. Því er að þalcka, að Is- land getur nú látið sjá sig meðal annarra líkamsmenntaðra þjóða og það er mikilsvert. Þetta er sjálfu sambandniu að þakka, og þeim mönnum ,sem því bafa stjórnað. Það eru á þessum 30 árum aðeins tveir menn, sem bafa farið með forsetadóm sambandsins, þeir Axel V. Tul- inius sýslumaður og Ben. G. Wáge kaupmaður. Auðvitað hafa margir ágætir menn stutt þá, en þeir liafa veriði höfuðin og ber þetta óvenjulega festu i stjórn sambandsins. Nú á þrjátíu ára afmælinu þakkar öll þjóðin sambandinu vel unnin störf og árnar því giftu til frekara framtaks. Guðbr. Jónsson. Nýja flugvélin. Vísir hafði tal af formanni Flugfélags íslands — Bergi G. Gíslasyni — nýlega og spurði hann -hvort nýja flugvélin væri ekki væntanleg bráðlega. Bergur kvaðst ekki liafa fengið nákvæmar fregnir að veslan um hvenær flugvélin væri væntanleg, en um þessar mundir færi frarn nákvæm skoðun á henni. I fyrri hluta næsta miánaðar mun flugvélin verða tekin i sundur vestra og sett í kassa og flutt þannig bingað. Kemur liún þvi varla hingað fyrri en í marzmánuði. Útvarpið í kvöld. Kl. 1 .30 ísl. kennsla I. fl. 19.00 Þýzku kennsla II. fl. 19.25 Hljómplötur: Lög úr óperum. 20Í00 fréttir. 20.30 Útv. frá 20 ára afm.hátið I. S. I. Ræður og ávörp. Hljóðfæraleikur (Útv.- hljómsveitin). 21.10 Fréttir og dagskráriok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.