Vísir - 10.07.1943, Blaðsíða 2

Vísir - 10.07.1943, Blaðsíða 2
VISIR VÍSIR DAGBLAÐ títgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 1 6 60 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsniiðjan h.f. Hagkvæmir samningar. NÝLEGA Jiefir samninga- nefnd utanríl-íisviðskipta lokið samningum við fulljtrúa Bandarikjastjórftar um kaup á lielztu framleiðsluvörum vor- um, og má segja að fyrri samn- ingar væru að mestu fram- lengdir. Þó er það ekki með öllu. Helztu breytingar, sem gerðar voru eru þær, er hér greinir: Síldarlýsi hækkaði i verði úp 130 dollurum tonnið í 145 doliara. Vélþurrkað fiski- mjölTiækkaði einnig þannig að á fyrstu 1000 tonnunum liækk- aði verðið úr 66 dollurum í 75 dollara á tonn, en það, sem selt er umfram þúsund tonn skal selt með hinu fyrra verði. Sól- þurrkað fiskimjöl hækkaði úr 60 dollurum tonnið í 66 dollara, fyrir alít að 1000 tonn. Eru þá breytingámar taldar. Verður ekki annað sagt en að samning- ar þessir séu vel við unandi, eins og sakir standa og er í rauninni leystur mikill vandi með þessum giftusamlega árangri. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar, Hjálmar Björnsson, liefir í bili lokið síarfi sínu liér, en óhætt er að fullyrða að hann hafi aflað sér almennra vinsælda. Illaut hann að sjálfsögðu fyrst og fremst að gæta liags heimalands síns, en leit með fyllstu velvild og skilningi á kjör okkar ís- lendinga og aðstöðu alla, enda hafði liann nægan kunnugleik á þeim málum áður enn liann kom hingað til lands. Ber mjög að meta það við stjórn Banda- ríkjanna hvílíka vinsemd hún hefir sýnt íslenzku þjóðinni í hvívetna, og er þess að vænta að svo verði einnig í framtíðinni, meðan hin nána sambúð varir, og’ enn lengur er styrjaldar- ástandinu léttir. Samningar þeir, er nú hafa verið gerðir gilda tii næstu ára- móta, en samningaumleitanir verða væntanlejga upp teknir fyrir þann tíma varðandi sölu á’ framleiðslu naista árs, en engu verður um það spáð hverjar lík- ur séu þá fyrir álíka hagkvæm- um samningum, einkum ef dýr- tíð og yérðþennslu verður gef- inn laus faumurinn á komanda hausti. Um miðjan ágústmánuð verður það séð, en svo sem kunnugt er á sex manna nefndin þá að liafa Iokið störfum sínum, en litt hefir af henni heyrst til þessa. Sagt er þó að hún muni nú sem óðast vera að viða að sér gögrium, til þeee að byggja útreikninga sína á, hvort sem um þá endanlegu Iausn verður samkomuíag eða ekki. Tígu- lega fer nefndin af stað, en hvernig yerður hún á sig kom- in er Kún heldur í hlað? Óttast ýmsir að ekki verði glæsileg eða tilkomumikil heimreiðin. Þetta er þó tilraun og hún lofs- verð, og tilraunin verður yænt- anlega undanfari ánæ^jusam- legs árangurs. Það eitt er íslenzku þjóðinni ekki nóg að riú hagkvæmum samningum við velviljaðar er- lendar þjóðir. Hún þarf fyrst og fremst. að keppa að því að Nauðsyn á mein- dýrastofu í Rvík. iflarg'ar nýjar mcin<flýratcgun<lir liufu borizt liiugað til lun<l§in§. Viðtal við Geir Gígju náttúrufræðing. ÞEIR GÍGJA, náttúi'ufræðingur, hefir skýrt Vísi frá því að síðustu mánuðina hafi borist liing- að til lands margar tegundir meindýra, sem valdið geta stórtjóni á trjáviði, timburbyggingum o. fl. ef þau ílengjast hér. Hann telur hættuna aukast við hitaveitulagninguna, því að með auknum liita batna lífsskilyrði þessara dýra. Telur Geir mikla nauðsyn á að koma hér upp meindýrristofu, þangað sem fólk get- ur leitað ráða um útrýmingu dýranna. I. Meindýrum fjölgar. Hvað er að frétta af meindýr- unum? spurði tíðindamaður blaðsins Geir Gigja, er hann heimsótti hann á rannsóknar- stofunni i Atvinnudeild háskól- ans nú fyrir skömmu. Margir senda mér nú mein- dýr, sagði Geir. Sumir til þess að fá þau ákvörðuð og leiðbein- ingar um útrýming þeirra. Aðr- ir senda þau af vinsemd, vegna þess að þeir vita að eg hef áhuga fyrir þessum málum, og þeim er eg sérstaklega þakklátur. Hérna sérðu t. d. lirossamaur, segir Geir, og sýnir mér glas yfirbundið með gisnu lérefti. Hann lifir góðu Iífi i glasinu því arna. Hann er nýkominn frá Ameríku — í trjáviði — og er nærri tveir cm. á lengd. Þessir maurar — eða réttara sagt maurflugur — geta valdið tjóni i timbri og limburhúsum. Og liérna hef eg pílvið. I>ú sóð liolurnar og gangana. Svona naga trjábukkalirfurnar. Trjá- bukkarnir verpa í fyrstu eggj- um sínum í holur og rifur i trénu. Þegar lirfurnar koma úr eggjunum byrja þær að grafa og éta. Þær stækka og holurnar og gangarnir í trénu víkka. Að lok- um koma fullvöxnu dýrin út i dagsljósið. Til hvers átti að nota þenna pílvið ? Úr lionum átti að smíða hús- gögn. En liann er ónýtur eins og þú sérð. — Og þarna sérðu lirf- urnar. Þær eru geymdar í spiri- tus. — En hérna hef eg líka pil- viðargreinar í lokuðu glasi og í þeim eru lifandi lirfur. Þær ætla eg að láta vaxa og vérða full- orðnar. Síðan bana eg jieim með ether og geymi þær í safninu. Það er nauðsynlegt að eiga gott safn af meindýrum til saman- burðar þegar ný dýr bætast stöðugt við. — En nú skal eg sýna þér stærsta dýrið, sem mér hefir verið sent. — Og Geir opnaði skáp og tók þar út stóran eikar- bút vafinn innan í gisið léreft, og tók léreftið frg einum kanti hans með mikilli gætni. — Og sjá — út úr stórri holu í trénu gægðist gulmóraaður haus sem var á annan cm. í þvermál. Hvað er þetta kvikindi langt? Fiðrildislirfan sú arna er ná- kvæmlega 10 cm. á lengd. — Hún kom i eikinni frá Ameriku byggja upp heilbrigt sambýli ís- lenzkra þegna, en mjög hefir skort á að það gæti heitið við- unandi eða árekstralítið. Þjóðin verður einhuga að klifa niður hinn erfiða hjalla dýrtíðarinnar. Hönd verður að lijálpa hendi og fótur fæti, þar til á erfiðleikun- um hefir verið sigrast. Stjóm- málaflokkamir hefja sinar samningaumleitanir í haust. Þá fyrst verður séð hvort við ís- lendingar getum aðeins náð liagkvæmum samningum viji erlendar þjóðir. í vetur. Eg fékk hana i april. Þú sérð hvað liún getur skemmt. Stór hútur af plankanum, sem hún var í er ónothæfur. —Skað- inn nam tugum króna. En hvað getur þú sagt mér af þessum risaskordýrum, sem sagt var frá í útvarpinu að fund- ist hefðu í Dalvík? Þau komu þar út úr viðnum í forstofunni. Eg hef eitt af þeim hérna, sagði Geir, og greip skyndilega öskju upp úr kassa á borðinu og sýndi mér i hana. Hvað heitir nú þessi stóra f luga? Þelta er ekki fluga, þetta er vespa — risatrjávespa — Sirex gigas. — Ingimar Óskarsson grasafræðingur sendi mér hana og spurði hvort hún væri rétt á- kvörðuð. Óg hún var það auð- vitað, eins og hans var von og vísa. Hvað getur liún orðið stór risatrjávespan? Þessi er fullvaxin og liún er um fjóra cm. og þó eru fálmar- ar og varppipa ekki talin þar með. — , Varppípa ? Já, það er þessi broddur, sem þú sérð aftanádýrinu.Meðvarp- pípunni kemur vespan eggjum sínum inn í viðinn. Hún verpir eggjunuin einkum í tré i greni- skógum, helzt sjúk eða fallin. í viðnum ungast eggin út. Lirf- urnar, sem koma úr eggjunum nærast á trénu, grafa það í sund- ur og valda miklu tjóni. Síðan verða lirfurnar að púpum og svo trjávespum. Og að lokum koma þær út úr víðnum eins og á Dalvík. En hvaða skordýr valda mestu tjóni hér í görðum um þessar mundir? Ýmsar fiðrildalirfur eru mjög "hyimleiðar á birki, ribsi, sól- berjum o. fl. Eg er nýkominn frá þvi að skoða garð utan við bæinn. Þar voru sólberjarunn- arnir stórskemmdir af haust- fiðrildalirfum. Og hvernig er hægt að út- rýrna þeim? Eg ráðlagði þeim mæta manni, sem átti garðinn að úða runnana mjög rækilega með nicotínlegi. (Tveir hlutar hreint nicotín eru blandaðir í 1000 hluta vatns). Svo ,er kálflugan. Hún hefir valdið hér stórtjóni undanfarin ár. Nú í ár er hún byrjuð að verpa við gulrófu- og kálplönt- ur. Fólk þarf nú þegar að nota varnarráðin. Vökva með eitur- lyfjum kringum jurtirnar. Ein tafla sublimats í 1 lítra af vatni eða 2,5 grömin Ovicide i 1 litra af vatni nægir vel til þess að vökva með 10 jurtir. Sublimat fæst í lyfjabúðum og er mjög eitrað. Það má ekki vera í málmíláti. Ovicide fæst í Áburð- arsölunni. II. Eykst meindýraplágan með hitaveitunni? Hvernig verður þegar hita- veitan er komin, losnar maður þá elcki alveg við margt af þess- um meindýrum, sem nú angra okkur? Eg hygg — segir Geir — að meindýraplágan magnist við hitavéituna, ef ekkert verður að gert frekar en nú er. Því öll þau meindýr, sem nú eru hér og valda tjóni geta engu að síður lifað þótt liitaveitan komi og sum jafnvel betur. Auk þess ' hygg eg að skilyrði skapist fyrir erlendar meindýrategundir — sem lítt eða ekki hefir orðið vart hér enn — þegar heitar leiðslur koma um allan bæinn — inn i livert hús — liúsin verða miklu betur upphituð en áður, og síð- ast en ekki sízt ef misliirtir gróðurskálar rísa upp við fjölda húsa. Enn má minna á stórt atriði í sámbandi við liitaveituna og meindýrin í bænum. Það er sorpframleiðsla bæjarbúa. (í sambandi við hana má minnast með þakklæti á nýlega fengna sorpbíla). Nú er miklu sorpi brennt. En þegar hitaveitan er komin á laggirnar og engu eða litlu af sorpi verður eitt á þann hátt, hlýtur sorpframleiðslan að aukast gífurlega. Og ef sorp- hreinsunin í bænum verður ekki aukin og framkvæmd af meiri nákvæmni en nú er, og sorpið flutt í hauga í útjaðri bæjariiis eins og að undanförnu, en ekki eytt á annan hátt, verður það mikil meindýrauppspretta, ekki aðéins fyrir húsflugur og önnur lægri dýr, heldur og hinar stór- liættulegu rottur og mýs, sem aldar eru á matarúrgangi bæj- arbúa, bæði við liúsin — vegna lélegra sorpíláta — og í sorp- haugunum. Bærinn ætti að leggja bæjarhúum til sorpílát til þess að tryggja það að þau væru alltaf í lagi. Og bærinn ætti taf- arlaust að láta rifa hesthús og fjós, sem standa í bænum. Svo sém fjósið og hesthúsið rétt við Bergstaðastræti, norðan við Hallveigarstíginn. Þessar flugnauppsprettur, — þar sem fjósgluggarnir — með brotnum rúðum — eru ekki nema þrjá metra frá íbúðargluggum fólks- ins. Ýmsir óvandaðir skúrar, sem standa liér og livar um bæinn — liklega margir í óleyfi — eru mestu meindýrabæli. Þar eru rottur og fleiri meindýr. Skúr- arnir þurfa að hverfa. III. Meindýrastofa nauðsynleg. Hvert á fólk að snúa sér, ef það verður vart við meindýr á heimilum sínuin, meindýr, sem það þekkir ekki og getur ekki ákvarðað eftir íslenzkuin bók- um — ef til vill nýflutt til lands- ins? Þvi er fljótsvarað. Það er engin slík upplýsingarstöð til á þessu landi. Hinsvegar liafa r Scrutator: 'RjaAxlbi cdlÍMejwMfys Hirðing búfjár. í bæklingi þeim um hir'Sing búfjár, sem dýralæknar B.andaríkja- hersins hafa sent út á íslenzku, eru nokkrar algildar undirstöðureglur setíar fram á ljósan og skemmti- legan Jiátt me'ð myndum. Ein regl- an er þessi: Heilbrigðar kýr -f- hrein fjós + hreinar hendur -|- kæling -f hrein ílát — heilnæm, heilsustyrkjandi mjólk. Hvert at- riSi í réikningsdæminu er skýrt meS viSeigandi mynd. LeiSbeining- ar þær, sem gefnar eru, eru stutt- ar en tæmandi, og birtist hér ein, valin af handahófi: „Til þess aS framleiSa hreina mjólk, verður bæSi fjósið og mjólkurhúsið að vera hreint. Tilraunir gerSar á rann- sóknarstofum sýna, að mjólk úr kúm í óhreinum básum eða óhrein- um fjósum, er óhrein og súrnar miklu fyrr en mjólk úr hreinum fjósum.“ í lok kaflans um kýrnar segir svo: „ÞaS ætti aS vera í aug- um uppi, að sá bóndi, sem eyðir þeim tíma og þeirri varkárni, sem nauðsynleg er, til þess að hafa mjólkina hreina og heilnæma, ætti að fá meira fyrir vöru sína en hinn, sem er jafnkærulaus um allt frá upphafi til enda.“ Bæklingur- inn er gefinn út í samráði við Mjólkursamsöluna, meðal annara. ÞaS þarf líklega ekki að óttast að samsölustjórnin láti undir höfu'S leggjast að athuga þessi augljósu sannindi. Samsalan. ÞaS hefir samt viljað brenna við, að mjólkin hér í Reykjavík væri orSin súr, þegar hún var seld úr búSum samsölunnar. En jafn- vel þótt sjaldan hafi veriS svo illa komið, þá er hitt þó miklu algeng- ara, að mjólkin sé orðin svo göm- ul, þegar hún er seld, að, hún súni- ar í heimahúsum fyrir miSjan dag, þrátt fyrir vandaða geymslu. Hér skal ekki reynt að gera lítið úr þeim erfiSleikum, sem forráSamenn mjólkursamsölunnar eiga við að strí'Sa, og heldur skal ekki efazt um góðan vilja þeirra. En niður- staðan er jafn-óhagganleg fyrir því: Mjólk sú, sem seld er í Reykjavík, uppfyllir hvergi nærri þær kröfur, sem gera verSur til slikrar vöru. Mestur hluti hennar er litiS betri en sú mjólk, sem ann- arstaSar er seld til eldamennsku og ekki ætluð til drykkjar. SkólpiS meS mjólkina vestur yfir heiði, gerilsneyðing í bænum, útsending í búðirnar og mæling á ílát er auð- vitað búið að ræna mjólkina miklu af þeirri hollustu, sem auglýst er. ÞaS skal tekið fram, að síðasti liS- urinn, afgreiðslan í mjólkurbúSun- um, er óviSráðanlegum atvikum að kenna, því að ekki er lengur hægt að selja mjólk á flöskum, sakir þess að flöskulokin vantar. Hins- vegar virðist vera nóg til af lokum á allar aðrar flöskur, hverju nafni sem nefnast. Nú hefir Mjólkur- samsalan skipt um eigendur, þaS er að segja öðlazt eigendur, því að enginn vissi áður, hver eiginlega átti hana. Eigendurnir eru grun- samlega nálægt því að vera sömu mennirnir og mestu réðu áður, en þeir spjara sig kannske nú, þegar eignaratriðiS hefir verið upplýst — eða verða þeir kannske enn verri viðureignar á eftir? ið Göturnar. Það situr enn við gamla prinsíp- þessum bæ, að klára aldrei neitt, að minnsta kosti ekki alveg. Bæjarbúar bera hitaveituskurðina með þögn og þolinmæði, af því að nú ríður á þvi meir en nokkru sinni áður,aS ljúka lögnunum fyrir haust- ið. En það er undarleg ráðstöfun að gera það ekki strax, sem hvort sem er er ekki hægt aS draga fram á vetur. Hitaveitan verður ekkert fljótari fyrir þvi. Eg á við aS moka ofan í skurðina, þegar lögnum er lokiS og aka burtu þeim uppgreftri, sem af gengur. Umferðavandræð- in hafa aldrei verið meiri í bæn- um, og þó eru haugar látnir standa við hitaveituskurði, þar sem lögnum er bersýnilega lokið. Jafnvel þar, sem mokað hefir verið yfir, standa enn haugar um ófyrirsjáanlegan tíma, líklega til að þjálfa vegfar- endur í kristilegrr þolinmæði og jafnlyndi í hverri þraut. Ekki er mark að draummn. „Mig dreymdi undarlegan draum í nótt,“ sagði Bernódus, um leið og hann hlammaði sér niður i sóf- ann við hliðina á Isax. „Nú, hvern- ig var hann ?“ hummaði Isak. „Mig dreymdi að eg mætti tveim drengj- um, sem leiddust, síðan komu aSr- ir tveir og leiddust, og loks þeir þriSju. Fyrir hverju heldurðu að þetta sé?“ — „Fyrir strákapörum,“ azaði Isax. ýmsir náttúrufræðingar í At— vinnudeild liáskólans og víÖar liðsinnt þeim sem leitað liafa til þeirra í þessum efnum, eftir þvr. sem kostur hefir verið á. Fólk er oft í miklum vanda statt, bæði hér í hænuin og ann- arsstaðar á landinu, þegar það verður fyrir heimsókn meindýra eins og t. d. veggjalúsa. Það veit ekkert hvað á að gera. Ýmsir taka þann kostjnn að segja eng- um frá því fyrr en meinið er orðið svo magnað, að því verður ekki leynt og dýrin Iiafa út- breiðst meira eða minna. Því menn geta leigt ibúðir með veggjalúsum og öðrum mein- dýrum og flutt varning með þeim liús úr Iiúsi og hæ frá bæ án opinberra afskipta, flutt kál- plöntur með kálmöðkum livert á land sem vera skal o. s. frv. Slíkt ætti auðvitað að vera ó- leyfilegt og varða sektum. Og þyrftu hér að koma ein lögin til viðbótar. Hvað telur þú að gera beri tii þess að ráða bót á því öngþveiti sem er í þessum meindýramál— um hér á landi? Bæjarstjórn og fyrrverandi ríkisstjórn sýndu lofsverðan á- huga í þessum málum með því að stuðla að því að út verði gef- in alþýðleg fræðibók um mein- dýrin. Nú þarf að stíga næsta spor- ið. Það er upplýsingamiðstöð. Við getum kallað liana mein- dýrastofu til að byrja með. Hún i á að vera í Reykjavík, og hún á að vera fyrir allt landið. Þangað á fólk að geta sent meindýr úr matvælum, fatnaði, trjáviði, gróðri o. s. frv. og fengið þau á- kvörðuð, leiðbeiningar um út- rýming þeirra og aðstoð t. d. þegar nota skal gasbrælu eða annað sem almenningur getur ekki haft um liönd. í sambandi við stofuna þarf að vera og tæki til þess að lireinsa vörur, farang- ur fólks o. fl. í gasbrælu, hita o. s. frv. í stofunni þarf að sam- eina þá starfskrafta sem liér eru nú til og unnið geta að því að fræða fólkið um þessi dýr, leið- beina því um varnir gegn þeim og draga úr tjóni því, sem þau valda. Og vinna um leið að auknum þrifnaði og bættu heilsufari í landinu. Barnið yðar dvelur e. t. v. í sveit í sumar. Hafið þér liugleitt að éitt- hvert hugnæmasta viðfangs- i efni sem þar gefst, er að j " kynna sér jurtaríkið íslenzka. Sendið barni yðar því að gjöf j bókina SMÁVINIR FAGRIR, ! sem er samin í þeim tilgangi i að vera til hjálpar í þessu efni. Þetta er unglingasaga með myndum af fjölmörgum íslenzkum jurtum. | Nýtt íbúðarhús fyrir 1 eða 2 fjölskyldur til sölu. Mikil útborgun. Fyrir- spurnir sendist í pósthólf „824“, Reykjavik. Litið býli eða óbyggt land óskast keypt eða leigt. — Tilboð, merkt: „Býli eða land“ leggist inn ú afgr. þlaðsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.