Vísir - 10.07.1943, Blaðsíða 4

Vísir - 10.07.1943, Blaðsíða 4
VISIR NÝJA BÍÓ R dams-f jölskyldan fAdam Had Four Sons) INGRID BER.GMAN WARNER BAXTER. Sýning kl. 3 — 5 — 7 — 9. Sala aðgöngumiða hefst kl. 11 f. h. ■ TJARNARBlÓ H Litfríö og ljóshærð (My Favorite Blonde). Bráðskem m ti legu r gama n- leikur. BOB HOPE MADELEINE CARROLL. Sýning kl. 3 5 — 7 9. Börn innan 12 ára fá ekki aðgang. F. I. Á. I)an*leikur í Oddfellowhúsina í kvöld Jd. 10. GÖMLU OG NÝJU DANSARNIR. Áðgöngumiðar seldir í Oddfellowhúsinu frá kl. 6. Í.K. Dan§leikur í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 10. GÖmlu og nýju dansarnir. Aðgöngumiðar frá kl. 6. 4 Hiarmonikur. (5 manna híjómsveit). S. G* T* dansleikar í Listamannaskálan um i kvöld kl. 10. — Aðgöngumiðasala kl. — Sími 3240. — Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. — Tilkynning Viðskiptaraðið hefir ákveðið að verð á keniiskri lit- un, kemiskri iireinsun o. fl., eins og það er ákveðið í verðlLstum Félags efnalauganna í Reyk.javík frá sept- ember 1942, skuli lækka um 10%, og að verð á þjón- ustu þeirri, sem hér er um að ræða, megi hvergi í land- inu vera hærri en samkvæmt því. Akvæði tiikynningar þessarar koma til framkvæmda frá og með ÍU. júlí 1943. Reykjavík, 9. júlí 1943. VERÐLAGSSTJÓRINN; Rafmagnssam- setningartæki fyrir bandsagarblöð, nýtt eða notað, óskast til kaups. SKIPASMÍÐASTÖÐ HAFNARFJARÐAR, Júl. V. J. Nýborg. Höfiim opnað nýja Rakarastofu í Ingólfsstr. 3 Rakarastofan er útbúin fáanlegustu og beztu hús- gögnum og áhöldum. Munum vér kappkosta að gera viðskiptavini ánægða. Virðingarfyllst, O. NIELSEN. GUÐM. GUÐGEIRSSON. Tilkynning t Viðskiptaráðið hefir ákveðið hámarksverð á stállýs- j istunnum kr. 50,50 heiltunnuna, miðað við afhendingu á framleiðslustað. Verð þetta kernur til framkvæmda frá og með 12. júlí 1943. Reykjavík, 9. júlí 1943. VERÐLAGSSTJÓRINN. Tilkynning Viðskiptaráðið hefir ákveðið að álagning á allskonar sápu og önnur þvottaefni megi hæst vera sem hér segir: I heildsölu 11% í smásölu 28% Með tilkynningu þessari er úr gildi fallin tilkynning Dómnefndar i verðlagsmálum, dags. 9. janúar 1943, að því er snertir ofangreindar vörur. Ákvæði tilkynningar þessarar koma til framkvæmda frá og með 12. júlí 1943. Reykjavík, 9. júlí 1943. VERÐLAGSSTJÓRINN. Vcrönpphætnr á mjolk. Alþýðublaðið skrifar langa grein í gær um verðuppbætur á mjólk, og kemst að þeirri nið- urstöðu, að þær muni nema meiru en lækkun útsöluverðs- ins, sem byggist á því að líter- inn sé lækkaður, en kílógramm- ið verðbætt. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir liefir fengið, byggist þetta á hinum mesta misskiln- ingi og mun sú ástæðan ein að sökum bókhaldsfyrirkomulags er mjólkin færð í kílógrömm- um lijá mjólkurbúunum, en þvínæst umreiknuð í litra og uppbætur greiddar samkvæmt því. Þetta ætti blaðið að lcynna sér nánar og ganga úr skugga um, að hér er rétt frá skýrt. Það mun einnig vera misskiln- ingur, sem raunar er fjarri öllu lagi, að hændur fái greiddar tvennar uppbætur á mjólk, sem notuð er til smjörgerðar af mj ólkurbuunum. Þótt margt megi með rökum að núverandi mjólkurskipulagi finna, er engum ger greiði með því að flytja um þau mál rang- ar eða villandi upplýsingar, enda skylt að halda því einu fram, er sannast reynist, og skiptir þá ekki máli hver eða hverjir eiga i hlut. Alþýðuhlað- ið kemst að þeirri níðurstöðu, að láta muni nærri að greitt sé í uppbót ranglega 560 þúsundir króna miðað við 16 milljónir lítra mjólkurmagn, en þessi út- reikningur hlaðsins byggist á al- gerum misskilningi, svo sem að ofan greinir. W PLA^ FJELA6SPRENTSH1ÐJUNNAR Félagslíf BETANlA. — Samkoma á sunnudag kl. 8% siðd. Stud. theol. Jóhann Hlíðar talar. — GAMLA BÍÓ Ár vas alda“ (One Million B. C.). Carole Landis. Victor Mature. Lon Chaney, Jr. Sýnd kl. 7 og 9. Börn innan 12 ára fá ekki aðgang. Kl. 31/0—61/2. WALT DISNEY-myndin HUGLAUSI DREKINN með Robert Benchley. BJARNI GUÐMUNDSSON I löggiltur skjalaþý'öari (enska) Suðurgötu 16 Sími 5828 «1 SAUMAKONA óskast strax. Saumastofan Singer. Sími 5812. (169 ÚTSVARS- og SKATTKÆR- UR skrifar Pétur Jakobsson, Kárastíg 12. (39 MATREIÐSLUKONA óskast á stórt sveitaheimili. Hátt kaup i boði. — Uppl. i Kaffisölunni Hafnarstræti 16. (182 STÚLKU vantar stxax. Mat- salan, Baldursgötu 32. (175 ELDRI kona eða stúlka ósk- ast til að sjá um veika konu. — Uppl. á Eiríksgötu 17, sími 2663._________________(202 MAÐUR óskast til heyvinnu í nágrenni Reykjavíkur. Uppl. hjá Guðjóni Jónssyni, Hverfis- götu 50. (193 STÚLIÍA óskar eftir vel launuðu, ekki ei’fiðu starfi í 2 —3 mánuði. Tilboð sendist blaðinu, merkt: „333“. (187 KKAUPSKAItlKS HEIMALITUN heppnast bezt úr litum frá mér. Sendi um alí- au bæinn og út um land gegu póstkröfu. Hjörtur Hjartarsou. Bræðraborgarstío 1. Simi 4256 TVÍSETTIR klæðaskápar og rúmfatakassar, Hverfisgötu 65, bakhúsið. (141 G]ÓÐ kolaeldavél óskast. Upp- lýsingar í síma 1041. (123 GOTT ORGEL til sOlu og sýnis á Hringbraut 36, kjallar- anum eftir kl. 7 á kvöldin. (203 NÝ DÖMUKÁPA, með tæki- færisverði til sölu á Bergstaða- stræti 66 C, uppk (201 KRAKKAREIÐHJÓL og karl- mannsreiðhjól til sölu á Loka- stíg 4, kl. 8 til 10 í kvöld. (200 TIMBUR til sölu á Framnes- veg 68. Uppl. kl. 5—7 í dag. — ______________________(199 NÝ FERÐAVÉL til sölu. - Uppl. á Njálsgötu 32. (198 Tarzan í borg leyndar- dómanna Mp. 96 Sex prestar flýttu sér sem mest þeir máttu að komast i búninga sina og hröðuðu sér því næst út á vatnsbotn- inn i áttina til afhýsisins. Þeir áttu að vinna tvö verk, annað _að koma í veg fyrir að Helenu væri bjargað, ef hún var þá ekki drukknuð og hitt að handsama Tarzan og Herkuf. Þeir þóttust vissir um að geta gert þetta..., .... Tarzan fór að verða örvænting- arfullur, svo að honuin jukust kraftar um allan helming og hann tók á með enn meira afli en áður. I þetta skipti lét hurðin undan og laukst upp. Tarzan gægðist niður með ótta í hjarta. Hann kom þegar í stað auga á fölt andlit stúlkunnar, þar sem hún flaut með lokuð augu undir hlemminum. .... .... Meðan þessu fór fram í landi Athairinga, var Marga stödd í fagurri íbúð, sem henni hafði verið fengin ■ i höllinni i Þobos. Hún gekk um gólf i þungum þönkum, því að Tarzan var búinn að vera svo lengi burtu, að hún var farin að óttast um hann. Hún vildi helzt vera komin til hans, til að vita, hvað honum liði, þvi hún elskaði hann. Henni var þjónað eins og hún væri prinsessa, en samt var hún fangi í höllinni. Allt í einu heyrði hún fótatak nálgast fyrir utan dyrnar og andartaki síðar var hurðinni lokið upp, en inn gekk Herat konungur. Hann brosti ein- kennilega, er hann kom auga á Mörgu og gekk síðan hægt og rólega í áttina til hennar . JAMES HILTON: Á vígaslóö, 135 hversu miklar te- og brauð- hirgðirnar væru. \riðræða þessi stóð þó ekki lengur, því að allt í einu kvað við skothríð úr farþegavagnin- um og óp heyrðust. Þeir sem höfðust við á tengslunum milli vagnanna lientu séiv niður og skriðu undir vagnana. Mörgum skotum var nú hleypt af í senn og allt i einu kom flokkur manna út úr farþegavagninum. Sveifluðu menn þessir skamm- byssum sínuni og létu ófrið- lega. Einn {teirra har ljósker að andliti A. J. og æpti: „Hvað ert þú að gera þarna? Heyrðii’ðu ekki skipunina um, að enginn mætti fara út úr vögnunum ?“ A. J. skýrði frá þvi óslcöp ró* lega og blátt áfram, að hann hefði alls ekki verið í neinum lestarvagninum, — hann hefði borið að þama í það mund, er lestin nam staðar. Hann kvaðst vei*a bóndi og væri hann að reyna af fá far fyrir sig og Daly, konuna, sem með honurn var. Maður nokkur alldólgslegur úr flokki hinna vopnuðu manna lagði nú orð í belg og var auð- heyrt, að hann vildi skjóta A. J. og Daly þegar í stað, en hin- um tókst með nokkrum fortöl- um, að hafa hann ofan af því. „Þetta er meinlaust sveita- fólk,‘‘ sagði hann. Svo snéri hann sér að A. J og sagði: „Þú segist hafa ætlað að fá far?“ A. J. reyndi að fullvissa hann um, að svo væri, og sagði þá einhver, sem áræddi að gægj- ast út úr vagniunm skjálfandi röcldu: „Iíann segir satt, yðar göfgi — hann bauð okkur te og sykur, ef við vildum reyna að hliðra til, svo að þau kæmust með.“ Maðurinn sem bar Ijóskerið hló kuldalega: „Te og sykur, ha? Komdu með það “ Það gat ekki verið um annað að ræða en láta þetta verðmæti af hendi, eins og ástatt var, en inennirnir vopnuðu æptu, er þeir tóku við þessu, og héldu svo á brott, en um leið skutu þeir út i loftið. Og þarna stóðu þau nú, A. J. og Daly, ómeidd, en þau höfðu misst það er þau áttu, og þeim gat að haldi kom- ið, til þess að fá að komast inn í einhvern lestarvagninn. Eftir nokkra stund fóru far- þegar, járnhrautarmenn og varðmenn lestarinnar að jafna sig, og var nú lestarræningjun- um bölvað hátt og i hljóði. Blásið var í eimreiðarflautuna og nokkrir hermenn úr flokki rauðliða komu úr farþegavagn- inum. Hermenn þessir höfðu riffla með byssustingjunum á- festum. Það kom nú brátt í ljós, að ræningjarnir höfðu komizt yfir talsvert fé. Þeir höfðu drep- ið tvo hermenn þeirra, sem gæta áttu lestarinnar. — Her- mennirnr gizkuðu á, að ræn- ingjarnir hefðu verið 20—30, en A. J. liugði, að þeir hefðu verið í mesta lagi tíu, en að sjálf- sögðu lét hann kyrrt liggja. Þótt einkennilegt væri létu nú margir farþeganna i ljós samúð með Daly og A. J. „Þau ætluðu að gefa okkur te og sykur — eða te og brauð, eg man ekki hvort heldur var,“ sagði skjálfraddaði maðurinn og var nú röddin nokkru styrk- ari. „Eg segi nú fyrir mitt leyti, að það er kannske afsakanlegt að drepa vopnaða varðmenn og ræna fé, en að taka seinasta brauðhitann frá fátæku sveita-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.