Vísir - 15.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 15.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Siml: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 linur Afgreiðsla 33. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 15. júlí 1943. 159. tbl. Herskip skutu [á Cataniu og Porto Empedocle í gær. Bretar aðeins um 30 k I I t'rií Catanin. Frakkar taka þátt í bardögum. — Herteknir flugvellir aftur í notkun. — ítölskum hrað- bátum sökkt á Messinasundi. Meðan hersveitir bandamanna héldu jafnt og þétt áfram göngu sinni til norðurs og vesturs á Sikiley í gær tóku létt hérskip að skjóta á Cataniu og Porto Empedocle. Það er til þessara borga, sem bandamenn stefna sókn sinni og enn hefir ekki orðið vart við það, að möndulherinn hafi komið sér upp neinum stöðvum, sem geti stöðvað þá til langframa. Herskipin skutu bæði á liöfnina og flugvöllinn í Cataniu, en Porto Empedocle er liafnarborg Agrigento og var einkum skot- ið á höfnina þar. Brezkar og kanadiskar hersveitir voru í nótt sagðar aðeins um 20 km. frá Cataniu, en Bandaríkjamenn eru heldur lengra frá Agrigento og Porto Empedocle. Sóknin til Cataniu er miklu hættulegri fyrir möndulherinn, þvi að ef bandamenn ná henni, þá eru þeir búnir að ná .meira en hálfri austurströnd eyjarinn- ar á vald sitt og hafa jafnféamt opna leið eftir sléttunni, sem heitir eftir borginni og nær inn á miðja eyjuna. Flugmenn, sem hafa flogið yfir sléttuna, skýra frá því, að óslitinn straumur farartækja og lierflokka streymi niður úr fjöll- unum, sem eru sunnan yið hana. Fyrir vestan þá eru mönd- ulhersveitir, sem verið liafa vestan til á eynni, en þær eru enn svo langt í burtu, að þær munu ekki geta liindrað það, að bandaipenn flæði yfir hana. Játa ítalir það líka, að banda- menn muni gela komið svo miklu Iði á sléttuna, áður en meginlið þeirra sjálfra komist þangað, að það sé óvíst, livorir hafi meira lið þar. Harðari bardagar. Það hefir nú frétzt til öflugra sveita Þjóðverja i námunda við Augusta. Hafa þeir gert árásir á Breta og Kanadamenn, en þeir hrundu árásunum. Er búizt við allhörðum árás- um bráðlega á Cataniusléttunni. Sókn til Messina. Sertorius höfuðsmaður, sem er hernaðarsérfræðingur þýzku fréttastofunnar, sagði í gær, að það væri augljóst, hvað fyrir bandamönnum vekti. Þeir ætl- uðu bersýnilega að sækja fyrst norður með austurströndinni til Messina, til að loka leiðinni yfir sundið fyrir möndulveldunum og sækja síðan vestur eftir eynni. Frakkar eru með. Yfirherstjórn Frakka í Alsír hefir skýrt frá því, að franskl lið sé farið að berjast á Sikiley. Þess er ekki getið, hvort Frakk- ar hafi verið meðal fyrstu inn- rásarsveitanna, en svo mun ekki hafa verið, því að ekki var sagt frá þeim í fyrstu tilkynn- ingu Eisenhowers. Flugvellir teknir í notkun. Flugsveitir bandamanna eru farnar að nota þá flugvelli á Sikiley, sem þeir náðu fyrst og höfðu ekki orðið fyrir svo mikl- um skemmdum, að þeir væri ónothæfir. Hafa handamenn nú alls um tíu ítalska.flugvelli á valdi sínu og sá síðasti bættist við í gær. Var það flugvöllur- inn hjá borginni Ponte Oliva, sem var tekinn í gær. Hann er tæpa tíu kílómetra inni í landi fyrir norðan Gela, sem Banda- ríkjamenn tóku. Meðal þeirra flugvéla, sem bandamenn nota, eru amerískar Mustang-vélar af nýrri gerð. Eru þær steypivélar og segja flugmenn þeírra, að þeir hafi eyðilagt um 700 flutningahíla fyrir ítölum og Þjóðverjum. Hraðbátar á Messinasundi. Brezkir hraðhátar liafa farið alla leið norður undir Messinu. Fóru þeir þangað í fyrrinótt og héldu ítalir, þegar þeirra varð vart, að þar væri þeirra eigin hraðhátar á ferð. Loks mættu Bretarnir tveim itölskum lirað- bátum og var þeim báðum sökkt. Annars hefir orðið vart við allmikið af ítölskum kafbátum við strendur Sikileyjar, en árásir hafa verið gerðar á þá og telja bandamenn. að þeir hafi sökkt tveim þeirra. Loftsóknin. í lofti hafa bandamenn aldrei verið eins athafnasamir, því að síðan þeir byrjuðu að nota flugvelli á ejmni sjálfri geta -orustuflugvélar þeirra farið á hvern stað á henni, enda er það gert. Flugvélar frá Malta taka líka þátt í sókninni og eru þær mikið á ferli á næturþeli. í fýrrinótt skutu þær niður ellefu flugvélar. Heillaskejdi. Þeir Montgomery og Cun- ningham hafa S|ent kanadisku hersveitunum á Sikiley heilla- skeyti fyrir ])að, hversu vel þær gengu fram í landgöngunni. Sagðist Montgomery hafa vitað, hvernig Kanadamenn mundu standa sig, því að þeir væri af- bragðs hermenn, en Cunning- ham lagði áherzlu á það, hversu mikijvæg taka Sikileyjar væri, ekki sízt vegna samgangna hándamanna um Miðjarðar- liafið. Kvenfél. Hallgrímskirkju fer skemmtiferð á þriðjudaginn kemur til Þingvalla og Sogsfossa. Upplýsingar í símum 2338, 4740 og 3169. Munda: Bandaríkjamenn fast . viö völlinn. Bandamenn hafa enn mjak- azt í áttina til Munda-flugvallar- ins á Nýju-Georgiu. Fregnir, sem hárust frá eynni í gærkveldi, voru á þá leið, að ameríska liðið væri á einum, stað 'aðeins eina mílu, rúmlega hálfan annan kilóm., frá vellinum. Flugliðið veitir fótgönguliðinu stuðning, en Japanir eru gjörsamlega án flugvélaverndar. Blaðamaður einn símar, að Bandarikjamenn hafi gengið á land á örlítilli klettaeyju við Kolombangara. Er hún litið annað en kóralrif, en getur komið að notum sem fallbyssu- stæði. Nimitz flotaforingi lét svo um mælt í gær, að nú hærist skip, flugvélar og menn til KjTraliafsins i nægilega ríkum mæli, til þess að Bandaríkin liafi ávallt frumkvæðið. Mikilvæg herstöð tekin á N.-Guineu. Bardagar hafa blossað upp á Nýju-Guineu. Hafa hersveitir bandamanna hjá Muho lagt til atlögu og tekið vel víggirta her- stöð í varnakerfi Japana þar. Með því móti hafa þeir um- kringt allmikið japanskt lið. Búizt er við því að banda- menn hefji lokasókn til Sala- maua bráðlega. Þjoðverjar kvarta um stórrigningar. Bardagar lágu niðri að mestu í gær á vígstöðvunum milli Kursk og Orel, eins og í fyrra- dag. Hinsvegar er barizt af sama kappi þar fyrir sunnan, en engar breytingar hafa átt sér stað svo að teljandi sé. Það eru nú liðnir tiu dagar frá því að bardagar blossuðu upp aftur umhverfis Kursk, en hvorir sem hafa átt upptökin, þá er það víst, að um land- vinninga hefir ekki verið að ræða. Að minnsta kosti hafa herstjórnirnar ekki getið þess. Þjóðverjar sögðu frá því í gær, að hrugðið hefði til mik- illa rigninga, sem geri það að verkum, að erfitt er að flytja þung liergögn til. Áður höfðu þeir minnzt á það, að hersveitir þeirra ætti við erfiðleika að slríða vegna þess, hvað lahds- lagið væri erfitt og vegir yfir- leitt í vondu ásigkomulagi. Síðan farið var að berjast hefir yfirleitt dregið heldur úr loftárásum á borgir langt að baki víglínanna. í fyrrinótt byrjuðu Rússar þó á nýjan leik ]>essar órásir með því að varpa sprengjum á Orel. Segjast þeir hafa hæft flutningalestir á brautarstöðinni þar. Japanix hefja sókn, Japanir hafa byrjað sókn í Shansi-fylki, segir í tilkynningu frá Chungking. Þeir liafa mikið lið og það nýt- ur stuðnings aragrúa flugvéla. Geta (Kínverjar ekki stöðvað Japani, en þeir eru öruggir um að geta nejdt þá til undanhalds, þegar flutningaleiðir þeirra fara að lengjast um of. Ameriskar flugvélar i Kína hafa gert árás á Haiphong i Franska Indo-Kína. Skip i höfn- inni urðu fyrir sprengjum. Járnbraut rofin í Jugoslaviu. Skæruflokkar i Jugoslaviu hafa rofið járnbraut frá Sara- jevo á mörgum stöðum á 30 km. svæði. Með því að rjúfa samgöngur um brautina gátu þeir yfirhug- að setuliðið í smáhorg einni, en þar var mikil birgðastöð hraut- arinnar. Meðal lierfangs þess, er skæruflokkurinn náði voru tvær smálestir af dynamíti og mikið af allskonar skotfærum. Ný pólsk stjóin. Pólverjar eru nú búnir að mynda nýja stjórn í London. Forsætisráðherra er Mikola- jczky, én varamaður hans Kara- pinski. Taddeus Romer, sem var sendiherra Pólverja i Moskva, þegar Rússar slitu stjórnmála- sambandi við Pólverja, verður utanrikisráðherra. Þrettán inenn eru í stjórn- inni og eru þeir úr fimm flokk- um. ^íðustu fréttir Tilkynning Eisenhowers: 1 gær sóttu hersveitir banda- manna talsvert á. 8. herinn sótti fram nokkrar, mílur frá Agusta og amerískar hersveitir, sem sækja fram hjá Gela hafa tekið þar flugvöll og nokkrar mikil- vægar hæðir umhverfis hann. Fangatalan er komin upp í 12.000 og hafa 8000 þegar verið fluttir á brott. Messina hefir síðustu 36 stundir orðið fyrir meiri loft- urásum en nokkru sinni. í íyrrinótt gerðu kanadiskar Wellington-vélar árás á hana, í gær fóru um 200 flugvélar frá Tunis þangað og síðar um dag- inn Liberator-vélar frá Lýbiu. Loks skýra ítalir frá því, að enn ein árás hafi verið gerð í nótt. Þjóðverjar tilkynna: Rússar halda áfram árásum sínum hjá Byelgorod, en vinna ekki á. Þeir misstu í gær 330 skriðdreka og 70 flugvélar. Þessi orusta er mesta orusta Rússlandsstyrj- aldarinnar. í loftárásum á Frakkland í gær voru 23 flugvélar skotnar tiiður, þar af 14 4-hreyfla. llikBar loftárásir á ( Frakkland í gser. Flugvirki réðust á flughöfn Parisar. Bandamenn héidu meðal annars upp á þjóðhátíðardag Frakka í gær með því að fara til árása á marga staði í Frakklandi. Voru bæði amerískar, brezkar, fransbar og pólsk- ar flugsveitir sendar frá Bretlandi, auk flugsveita frá samveld- islöndum Breta. Flugvirkin fóru til þpiggja staða, meðal annars til Le Bourget við Paris, sem var stærsti flugvöllur Frakklands fyrir strið. Sprengjum var lálið rigna jTfir flugsýli vallarins og flugvélar á honum. Mjög liarðir hardagar voru háðir við þýzkar orustuflugvélar og segir brezk- ur blaðamaður, sem var i einu virkinu, að á 25 mínútum hafi að jafnaði verið gerðar þrjár árásir á það. á hverri mínútu. Þau réðust líka á viðgerðar- skýli fjrrir Focke-Wulf-vélar, sem er í Villa Coublet skammt frá París og flugvöllinn við Amiens Frönsk flugsveit, sem var stofnuð fyrir nokkuru og hefir verið nefnd Lorraine-sveitin réðst á flugvellina í Ahbevile og Triqueville. Auk þess fóru or- ustuvélar til árása á járnbrautir og pramma á skipaskurðum. Átta af sprengjuflugvélunum voru skotnar niður og fjórar or- ustuvélar. Skj'tturnar í flug- virkjunum telja sig hafa skotið niður 45 vélar og orustuvélar handamanna grönduðu sex að auki. | ------------------- í siðasta mánuði hiðu 201 manns hana af völdum loftárása á Bretlandi, þar af 82 konur og hörn. Á sama tíma slösuðust , 283 manns svo mikið, að það varð að flytja þá i sjúkrahús. „Doosbrún" ssgir ekki upp samipiu. En krefst endurskoðunar vísitölureiknings. Trúnaðarráð Dagsbrúnar hélt fund í gærkvöldi til þess að ræða um það, hvort segja skyldi upp kaupsamningum við atvinnu- rekendur að þessu sinni. Samþj’kkti fundurinn að leggja fj’rir félagsfund, sem væntanlega verður haldinn næstu daga svohljóðandi álj’kt- un um þessi mál: „Verkamannafélagið Dags- brún ákveður að segja ekki upp samningum sinum við at- vinnurekendur að þessu sinni, þar sem félagið telur að önnur meira aðkallandi verkefni liggi fvrir eins og sakir standa, svo sem endurskoðun vísitöluút- reikningsins eins og lofað var, Jiegar samningar voru gerðir, en sem ekki hefir verið efnt, en félagið telur að vísitalan gefi ranga liugmynd um raunveru- legan vöxt dýrtiðarinnar. Ennfremur vill félagið heita sér af alefli fj’rir því, að frá- dráttur skattaframtals verði hækkaður a.m.k. í samræmi við aukna dýrtíð og að séð verði fyrir nægilegum og hagnýtum verkefnum fyrir verkamenn næsta vetur, svo að komið verði í veg fjrir atvinnulejrsi“. Svifflug æft á Sandskeiði 3 próf tekin í gær. TUTTUGU OG FJÓRIR PILTAR úr Svifflugfélagi íslands, 23 úr Reykjavík og 2 af Akureyri hafa verið að æfa svifflug á Sandskeiði síðan á mánudag. Mótið, sem er sameinað æfinga- mót, prófamót og sumarfrí, mun standa til næsta mánudags. Þessa viku hafa þeir fengið marga góða flugdaga, þar á meðal voru skilyrði ágæt í gær, en þá var flogið samtals 24 flug- tima á tveim æfingavélum, og stóðu flugin frá 15 til 80 min- útur hvert. í gær voru tekin 3 próf, eitt A-próf, eitt C-próf og 1 AC-próf, en ]>að gengur næst hinu endan- lega sviffíugprófi. Aðeins tveir menn hafa fullnaðarpróf, en til þess útheimtist, að fljúga í 1000 metra hæð, 50 km. ákveðna stefnu yfir landi og að halda sér á lofti í minnst fimm klukku- tíma. Þessir tveir menn, Agnar Ivofoed-Hansen lögreglustj óri og Helgi Filippusson svifflug- kennari, hafa fullnæg’t öllum skilyrðum fullnaðarprófs, nema að fljúga 50 lrilómetrana. Áhugi er nú mikill fyrir svif- flugi um land allt, og getur fé- lagið ekki nærri því annað eft- irspurn eftir flugkennslu, enda á það eklci nema þrjár æfinga- vélar. Það komast þvi miklu færri en vilja myndu á þessi námskeið. Prófum er hagað eftir fyrir- mælum Féderation Aéronautiq- ue Internationale, sem hafði að- setur sitt í París fj'rir stríðið og var miðstöð alls sportflugs. — Beglugerð um svifflug er ekki til hér á landi, en þess mun skammt að bíða að hún verði staðfest og byggð á reglum FAI um svifflug og próf. En sam- kvæmt þessum reglum er A- próf veitt fyrir flug beint áfram, B-próf fyrir beygjur og C-próf fyrir lágmarkstima á k>fti og lendingu á sama stað. AC-próf er veitt fyrir 5 flug er standi samtals að minnsta kosti í kl.- stund og silfur-C-próf er hið endanlega svifflugpróf, eins og að ofan getur. Svifflugfélag íslands er með- limur í Flugmálafélagi íslands, sem aftur er meðlimur í Al- þjóðafélaginu, FAI. Nokkrír ungliagar hafa verið dæmdir í 50 króna sekt hver fyrir a8. ganga á gras- inu á Austurvelli og spilla blóma- beiium.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.