Vísir - 29.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Páísson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. haeð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S iinur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 29. júlí 1943.
170. tbl.
Roosevelt forseti
„Ékkert forðar stríðsglæpa-
mönnum frá refsingu
Búsiar
sækja
eon á.
Rússar tóku í gær járnbraut-
arbæinn Stanovoj Kolonets sem
er um 15 km. frá Orel á Kursk-
járnbrautarlínunni og hafa nú
myndað þröngan innsta hring
um borgina, sem er opin til
vesturs, eftir járnbrautinni til
Briansk, en sú járnbrautarlína
liggur undir stórskotahrið Rússa
og er Þjóðverjum þvi ónýt sem
undanhaldsleið. Opið, sem Þjóð-
verjar halda enn til vesturs, er
orðið mjög þröngt, tæpir 40
kílómetrar.
Kosningarnar
í S.-Afríku
Smuts heldur
velli.
Bráðabirgðatölur úr kosn-
ingunum í Suður-Afríku sýna,
að allt útlit er fyrir að Smuts
hershöfðingi muni halda velli.
Sambandsflokkur hans hefir
þegar fengið 65 þinm. kosna,
verkamenn 7 og aðrir stuðn-
ingsflokkar hans 9, en flokkar
I»eir, sem sameinazt hafa undir
forystu dr. Malan og vilja að
S.-Afrika hætti striðsþátttöku,
hafa ekki fengið nema 16 menn
á þing. Talningu er ekki lokið
í öllum kjördæmum.
Smuts var endurkosinn í
kjördæmi því, sem hann hefir
setið á þingi fyrir í 19 ár. Allir
ráðherrarnir voru endurkosnir
með miklum meirililuta.
Hæg framsókn
á Sikiley.
Möndulherinn í norðaustur-
horni Sikileyjar verst nú hraust-
lega liandan liinnar rammgerðu
víglínu sinnai'. '
Ameriski 7. herinn er kom-
inn til San Stefano á norður-
ströndinni og sækir enn fr^m.
Flugberir bandamanna hafa
gert árásir á Milazzo, sem er
innan viggirðinga möndulhers-
ins. Kanadaherinn sækir fram
á miðhluta vígstöðvanna gegn
harðri mótstöðu.
Brezki 8. lierinn heldur uppi
stórskotahríð á varnarlínu Þjóð-
verja við Cataniu.
Loftherinn hefir ráðizt á
nokkra staði á Suður-Ítalíu, þar
á meðal Reggio. Ráðizt hefir
verið á skip möndulsins á Eyja-
hafi, Engar flugvélar týndust.
3000 skip fluttu 160.000
maiiii* til Nildleyjar.
Innrásin skipulögð íyrir misseri,
■
i
, , M
sagði llooscvelt í ræðu sinni I nótt
»Fyrsti brestnr í
möndlinusn....«
ROOSEVELT FORSETI gaf í ræðu sinni i nótt
yfirlit yfir hernaðarástandið og kom víða við.
Minnti liann hlustendur í upphafi ræðu sinnar
á það, að hann hefði fyrir þremur misserum sagt þjóð-
inni, að hernaðarsinnarnir í Berlín, Róm og Tokíó hefði
komið stríðinu af stað, en hinar frjálsu sameinuðu
þjóðir ættu eftir að binda enda á það: Nú hefði fyrsti
bresturinn komið í hernaðarsamvinnu möndulveld-
anna. Italía væri að heltast úr lestinni, eftir að banda-
menn hefði beint sameinuðum herstyrk sinum og yfir-
burðum í lofti, á landi og sjó, að réttu marki á réttum
tíma.
Roosevelt upplýsti að inm-ásin i Sikiley hefði verið skipulögð
fyrir 6 mánuðum, og hefði 3000 skip tekið þátt í fyrstu innrás-
inni, en þau fluttu 160.000 menn, 14.000 flutningatæki, 600
skriðdreka og 1800 fallbyssur ýmissa stærða. Ekkert hlé hefði
verið á flutningum, og hefði skipin jafnharðan snúið við aftur
til Túnis til að sækja meiri vistir og hergögn og fleiri hermenn.
Þótt Mussolini hafi nú sagt
af sér, þá mun það ekki bjarga
honum frá ábyrgð gerða sinna.
Enginn stríðsæsingamanna mun
geta umflúið dóm sinn, sagði
Roosevelt.
Við fasista var ekki hægt að
semja. ítalska þjóðin hefir nú
hrint þeim ófagnaði af höndum
sér. En þótt friðar verði leitað,
munu bandamenn ekki veita
aðra skilmála en skilyrðislausa
uppgjöf. Við höfum sýnt, hvers
við erum megnugir. Á Sikiley
hatar fólkið okkur ekki, þvi að
við komum fram af mannúð.
Við förum ekki að dæmi mönd-
ulherjanna, sem svelta fólkið i
herteknu löndunum. Fólkið á
Sikiley fær að liafa uppskeru
sína i friði, þvi að ekki stelum
við lienni. Það fær nú i fyrsta
sinni í mörg ár að lifa lífinu á
þann hátt sem það kýs, án ótta
við harðstjórn.
Það er nú eftir að ráða niður-
lögum Hitlers og Tojo. En þeir
munu hopa, þótt síðar verði.
Tveir lávarðar kynntir í
lávarðadeildinni brezku.
Sir Arcliibald Wavell mar-
skálkur, sem nýlega var tekinn
í lávarða tölu og tók sér nafnið
lávarður af Cyrenaica, var í
gær kynntur lávarðadeildinni
hrezku. Fer sú athöfn fram
með töluverðri viðhöfn. Dar-
\vin flugmarskálkur, sem
stjórnaði hrezka flughernum í
orustunni um Bretland, var
kynntur deildinni við sama
tældfæri.
Harðnamli atök
i
í Kyrrahafi.
Amerikunienn nálgast nú
Munda. Flugvélar þeirra gera
harðar árásir á þessa bækistöð
Japana. Aðrar flugsveitir gera
í sífellu árásir á stöðvar Japana
á norðurhluta Salómonseyja og
i Nýju-Guineu.
Bandamenn munu við ekkert
sætta sig, annað en algeran
fullnaðarsigur.
Síðustu frcllir
Þjóðverjar hafa loks tilkynnt
að þeir hafi orðið að rýma úr
Bolkov, viku eftir að Rússar til-
kynntu að þeir hefði tekið borg-
ina. Bolkov, sem er fyrir norð-
an Orel, féll á fimmtudaginn
var.
Eftirmaður Maiskis sem
sendiherra í London verður
Fédor Gusej, sem verið hefir
sendiherra Sovéts í Ottawa í
Kanada.
Alitið er að Maiski muni hafa
þýðingarmikið verk að vinna í
Rússlandi, þegar til viðræðna
um endurreisn eftir stríðið
kemur, sakir kunnugleika síns á
brezkum stjórnmálum og áliti
almennings.
Bandamenn hafa tekið 4 borg-
ir á Sikiley. Kanadaherinn hefir
tekið Leonforte á miðri eynni
og Ameríkumenn Polina, Castel-
buono og Gangi á norðurströnd-
inni.
Viðsjár á Balkan.
ítalski sendifulltrúinn i Buda-
pest hefir afhent ungversku
stjórninni orðsendingu ítölsku
stjórnarinnar, þar sem gerð er
grein fyrir hernaðarafstöðu
ítala. Er gizkað á, að í orðsend-
JUgunni sé skýring á því, hvers-
vegna ítalir sjá sig tilneydda að
kalla eitthvað af Balkanher sín-
iim heiin.
Fregnin um fall Mussolini hef-
ir vakið uppreistarmenn um all-
an Balkanskaga til nýrra dáða,
enda minnkar nú mótstaða inn-
lendra yfirvalda, sakir liræðslu
þeirra við ósigur.
I Grikklandi liefir brotizt út
allsherjarverkfall. Her var
kvaddur á vettvang til að bæla
niður verkfalið, og kom til hlóð-
ugra bardaga. Fregnir eru af
skornum skammti.
MÖNDULFORINGJAR í FANGABÚÐIR.
Þessir möndulherforingjar komu nýlega til Englands sem
stríðsfangar: Costa hershöfðiiigi, Colombo, kapteinn, Manoin-
elii hcish., Boschi hersh., Aporti hersh. og von Hulsen ofursti
(talið frá vinstri til hægri).
ITALIA I HERS
HÖNDUM.
Ntjörnin fær við
ekkert ráðið.
BAD0GL10 HEFIR EKKI TEKIZT að ráða við
uppreistarhreyfinguna á ítalíu. Hún magnast
stöðugt, og kröfur almennings um frið verða æ
háværari. Á fáeinum stöðum hefir herlið fengizt til að ,
bæla niður óeirðir. Andstaða gegn stríðinu er hörðust '
í Milanó, hinu forna hreiðri fasismans. Þar kom til '
átaka milli fasista og múgsins og herlið skai*st í leikinn. ’
Flutningaverkamenn gerðu verkfall, og strætisvagnar >
borgarinnar voru stanzaðir. Hei*stjórnin hefir tekið ,
strætisvagnana í sínar hendur.
Það var einnig i Mílanó, að fólk safnaðist saman á götunum
og hyllti bandamenn. Herinn réðist að þeim mannfjölda með
handsprengjum og sundraði' hópnum. Amsir aðal-Ieiðtogar
fasista, þar á meðal fyrrverandi aðalritari flokksms Farinacchi,
hafa verið liandteknir. Er ekki vitað, hvort þeim eru bornar
sakir á hrýn eða hvort nauðsynlegt hefir þótt að ’vernda þá
i gegn hatri lýðsins.
Itölsku blaðamennirnir An-
saldo og Gayda („málpípa
Mussolini“) eru meðal þeirra
háttsettu fasista, sem handtekn-
ir hafa verið. y
í Mílanó berjast fastistar við
herinn. Herliði var skipað að
hreinsa aðalbækistöðvar fasista-
flokksins, þegar reglugerðin um
upplausn flokksins var gefin út,
en flokksmenn hjuggust til
varnar. Fjórir fasistaleiðtogar
Jiöfðu verið drepnir, þegar sið-
I ast fréttist.
Hvar er Benito?
Ýmsum getum er að því leitt
ennþá, livar Mussolini muni
vera niður kominn. Segja sum-
ar fréttir að hann sé kominn til
Spánai', aðrar að hann hafi ver-
ið handtekinn, þegar hann var
að reyna að flýja til Sviss, en
trúlegust, er sú frétt, sem herst
frá Madrid, og telur hann vera
hafðan i gæzlu í stórhýsi milli
Róms og Ostia.
„GEFIZT UPP!“
Askorun til Ítalíukonungs og
ítölsku þjóðarinnar var útvarp-
að frá aðalstöðvum Eisenhow.
ers í Tunis. Var skorað á þjóð-
ina og yfirvöld að gefast upp og
hætta hernaðaraðstoð við Þjóð-
verja til að forða frekara tjóni
en orðið er!
Bent var á hversu drengilega
bandamenn liefði komið fram
við Sikileyjarbúa. Það skilvrði
var gert að.öllum herföngum
handamannaþjóða yrði skilað
aftur, en á móti lieitið því, að
ítalskir fangar skyldu sendir
heim. Var sérstaklega varað við
því að framselja Þjóðverjum
herfangana.
Þessi áskorun tekur af öll tvi-
mæli um það, að ítalir hafi heð-
izt friðar, því að vitanlega
myndi ekki sliku vera útvarpað,
ef friðarumleitanir hefðu þegar
hafizt, eins og flugufregnir hafa
hermt hvað eftir annað í gær og
í morgun.
Brezkar flugvélar gerðu í nótt
harða árás á Oschersleben, 150
Itm. suðvestan við Berlín.
Amerísk flugvirki gerðu í
gæi’dag loftárásir á CaSsel,
Magdeburg og fleiri staði i Mið-
Þýzkalandi. Sægur þýzkra or-
ustuflugvéla réðist gegn þeim
og kom til harðra bardaga.
Virkin skutu niður 60 þýzkar
orustuflugvélar en 23 þeirra
komu ekki heim. Mikill árangur
varð af árásinni, segja flug-
menn.
I loftárásunum vörpuðu
Bandaríkjamenn niður fjölda
flugrita, þar sem Þjóðverjar
voru minntir á orð Roosevelts,
að árásirnar myndu fara sifellt
harðnandi, þar til Þýzkaland
gæfist upp.
Brezkar orustuflugvélar flugu
til verndar virkjunum á heim-
leið og skutu niður 9 orustu-
flugvélar þýzkar.
Á þrem sólarhringum hafa
verið gerðar sex loftárásir á
Hamborg, og var sú síðasta
miklu hörðust. 2300 smálestum
sprengja var varpað niður á 45
minútum, en 18 flugvélar týnd-
ust.
Loftmyndir frá Hamborg,
sem teknar voru í loftárás flug-
vii-kja á þriðjudag, eru birtar
í Lundúnahlöðunum í morgun.
Sýna myndirnar, hvar sprengj-
ur springa, og má greinilega sjá
gamlan reykjarmökk yfir boi-g-
inni, en hann stafar frá fyrri
árásunum tveim.
í gær réðust orustuflugvélar
og léttar sprengjuflugvélar
: Bieta á ýmsa staði í herteknu
löndunum, Belgíu, Hollandi og
Frakklandi.
★
Hættumerki voru gefin í
London i nótt. Engar sprengjur
féllu á borgina, en þýzkar flug-
vélar ollu nokkru tjóni i Austur-
Angtiu.
lækkar til
muna.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið
að núgildandi grunntaxti múr-
ara fyrir ákvæðisvinnu skuli
lækka frá og með 3. ág. n. k.
um 30% í múrvinnu utanhúss
og um 20% í múrvinnu innan-
húss.
Hinn lækkaði taxti felur í sér
greiðslu fyrir handlöngun. Ef
verksali leggur til handlöngun
við grófhúðun lækkar taxtinn
enn um 20%, en við finhúðun,
flislögn og aðra fínvinnu um
5%.
Múrurum er óheimilt að taka
hærri greiðslu fyrir ákvæðis-
vinnu en verðlagsnefnd ákveður.