Vísir - 08.10.1943, Blaðsíða 2
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteii.n Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsniiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgöid 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (íimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Opinbert eítirlit.
Synd væri að segja að lög-
gjafinn hafi ekki hert hið
opinbera eftirlit á flestum svið-
um á síðustu árum, og jafnvel
þyngt refsingar stórlega fyrir
allar yfirsjónir og brot gegií góð-
um siðum og velsæmi. Öll slík
löggjöf hefir að sjálfsögðu mið-
að að þvi að tryggja þegnana
gegn margvíslegri misbeitingu
á aðstöðu í fjármálalifi eða á
öðrum sviðum þjóðlífsins.Hegn-
ingarlög hafa frá upphafi lagt
þungar refsingar við margskyns
athöfnum, sem almenna hættu
hafa í för með sér, og ekki mið-
að refsingu við ásetningssyndir
einar heldur og gáleysi, sem
leggja verður mat á samkvæmt
almennum mælikvarða en miða
ekki við einstaklinginn eða þjóð-
félagsaðstöðu hans.
Þrátt fyrir hið aukna eftirlit
á ýmsum sviðum og þrátt fyrir
öll refsiákvæði og viðurlög,
brestur mjög á að almenningur
sé fyllilega tryggður gagnvart
ýmsu því framferði, sem al-
menna hættu hefir i för með
sér. Blöðin liafa rætt um sölu á
margskyns neyzluvörum að
undanförnu, en þó fyrst og
Fremst meðferð og sölu landbún-
aðarafurða, og liafa komist að
þeirri niðurstöðu að stórvoði
stafaði af þvi hirðuíeysí, sem
gætt hefði i meðferð þessara
mála. Þannig er það viður-
kennt að mjólkin sé ekki á
stundum í söluhæfu standi, ef
miðað er við hreinlæti, full-
komna gerilsneyðingu og aðra
meðferð svo sem tíðkast
með menningarþjóðum og þá
fyrst og fremst Norðurlanda-
þjóðunum. Eru hér þó ekki allir
undir eina sök seldir. Fullyrt er
að mjólkursala og öll meðferð
mjólkurinnar sé miklum mun
betri á Akureyri, en hér í
Reykjavík og myndu stjórnend-
yir þessara mála hér mikið geta
lært af hinum nyrðra. Stjórn-
endur Mjólkursamsölunnar hér
hafa viðurkennt að mjólkin sé
ekki eins góð vara og æskilegt
væri. Erlendir isérfræðingar
haf talið að gerilsneiðingu sé
mjög áfátt. En neytenduui er
ekki kunnugt um að hlutast hafi
verið til um að heft yrði sala
á mjólk, eða að fullkomið dag-
legt eftirlit sé með því að spillt
mjólk og gerlablandin sé ekki
seld, þótt nokkur almenn hætta
kunni að stafa af slikri sölu. Hér
er þó svo mikið i húfi, að ekki
leikur vafi á, að hver sá ein-
staklingur, sem ábyrgð bæri á
slikri sölu, myndi tafarlaust
sæta opinberri íhlutan og verða
ef til vill að svara til saka fyrir
ásetningssyndir eða gáleysi, og
myndi þá vafalaust ekki verða
tekið tillit til mjólkurþarfarinn-
ar, enda liafa neytendur enga
þörf fyrir skemmda eða skað-
legá mjók.
Svo virðist sem mjög skorti
á opinbert eftirlit með annari
sölu á neyzluvöru. Þannig skýrði
Þjóðviljinn frá þvi nýlega, að
rottuetið kjöt hefði verið selt um
borð í erlent skip af nafngreindu
kaupfélagi. Skipstjórinn hafi
ekki viljað una slíkri afgreiðslu,
enda fengið leiðréttingu er hér
kom suður. Hafi kjötið verið
flutt hér í land, en selt neyt-
Þjóðleikhúsið
skamms.
rýmt innan
\and\vn að nndir-
biía viðg;erðir.
Tj JÓÐLEIKHÚSIÐ verður laust til viðgerðar og
notkunár innan mjög skamms tíma, svaraði tals-
maður utanríkisráðuneytisins spurningu Vísis i gær.
Morgan flotaforingi Breta hér á landi hefir skýrt ráðu-
neytinu svo frá, að floiinn muni flytja ailt það, sem
geymt er í húsinu í nýjar vöruskemmur. Bygging þeirra
er þegar hafin, og þegar þær eru lullgerðar, verður
leikhúsþyggingin afhent réttum aðiljum.
Það kemur þá (il kasta íslendinga að hefja tafarlaust vinnu
við liúsið, þégar það hefir verið rýmt, hætti fulltrúinn við. En
afskiptum utanríkisráðuneytisins af Þjóðleikhússmálinu er
senn lokið, en það er orðih löng saga.
rí
— Er langt síðan ráðuneytið
tók málið til athugunar?
Já. Meir en tvö ár. Hefir
ráðuneytið bæði átt viðræður
við sendiherra og sendifulltrúa
Breta hér á landi og falið ís-
lenzka sendiherranum i London
að ræða við hrezka utanríkis-
ráðun&ytið. Viðbárur Breta gegn
rýmingu hússins voru helzt þær,
að húsið hefði staðið ónotað ár-
um saman. Ilinsvegar hefir frá
íslands lilið verið á það bent,
að Þjóðleikhúsið myndi liafa
verið fullgert fyrir löngu, ef fé
hefði verið fyrir hendi. í öðru
lagi var á það bent að þörfin
fyrir samkomu- og skemmti-
staði liefði einmitt beinlínis auk-
izt að miklum mun við komu
setuliðsins.
— Hafa fleiri aðilar tekið
þált í þessum málaleitunum en
hinir opinberu utanríkisþjónar
íslenzkri leiklist.
— Um slík mál er yfirleitt
ekki rætt við aðra en diplomata,
og endanlega afgreiðslu hlýtur
inálið aðeins með samningum
þeírra. Hinsvegar er því ekki að 1
leyna, að margir aðrir hafa átt
sinn góða þátt í þessari heppi-
legu lausn málsins, og á eg
þar einkum við Morgan flota-
foringja, sem sýnt hefir einstaka
lipurð og velvild. Herra Bridges-
Adams, leiklistarráðunautur
British Council í London, hefir
einnig aðstoðað íslendinga í
þessu máli, en það er alkunna
að British Council hefir einnig
á margan hátt annan hlynnt að
slenzkri leiklist.
endum hér sem óskemmd vara.
Sé hér rétt með farið er fyllilega
þörf á opinberri rannsókn. Það
er vitað að rottur eru skaðlegir
sýkilberar, og menn varast yfir-
leitt að leggja sér til munns það,
sem nagdýr þessi hafa farið
tönnuill um, jafnvel þólt
ekki sé ofgnótt vista fyrir
hendi. Slíkt gáleysi að selja
rottuetið kjöt til neytenda,
Mtir að því hefir verið
skilað aftur af þessum sökum,
er svo fráleitt og einstætt, að
þeir menn ættu að sæta þung-
um ákúrum, sem gera sig seka
um slíkt tiltæki. Þótt ekki hafi
hlotizt sannanlegt tjón af, er
það ekki þeim að þakka, og al-
mennt séð er stórháski slikri
neyzluvörusölu samfara, og þess
után slíkur villimennskubrag-
ur á verzluninni, að ekki getur
talist nokkrum siðuðum manni
sæmandi.
Eftirlit með framleiðslu og
sölu matvæla og neyzluvara yf-
irleitt þarf að stórauka, og herða
á refsiákvæðum öllum, sem til
greina geta komið. Það eitt á
ekki að vera refsivert að selja
banvænt brennivín eða tréspiri-
tus. Fleira Ieggja menn sér til
munns en þær veigar, og hættan
er jafnnálæg í skemmdri mjólk
og rottuetnu kjöti. Hér á hið
strangasta opinbera eftirlit bet-
ur við en á nokkru öðru sviði.
Morgan flotaforingi svaraði
spurningum Vísis á þessa leið:
-— Eg get auðvitað ekki sagt
með vissu, hvenær við getum
rýmt húsið, en.eg get fullvissað
yður um að það verður eins
fljótt og mögulegt er. Það fer
eftir því hversu vel gengur með
hyggingu vöruskemmanna, en
við erum undir sömu sök seldir
og aðrir með það, að vinnuafl
er af skornum skammti.
Mér hefir alltaf likað illa að
þurfa að nota Þjóðleikhúsið fyr-
ir vöruskemmu. Eg erfði það
eftir fyrirrennara mína og hef
allan þann tíma, sem eg hef
haft yfir því að segja, reynt að
rýma húsið og koma vörunum
fyrir annarsstaðar, en það hefir
reynzt hægara sagt en gert, og
einn hef eg ekki mátt öllu ráða.
En þér megið trúa því, að eg
verð þeirri stundu fegnastur,
þegar eg get afhent húsið aftur
réttum aðiljum, og þess verður
nú vonandi ekki langt að bíða.
Nýlega er komin á bókamark-
aðinn skáldsagan Dagur i Bjarn-
ardal eftir norska rithöfundinn
Trygve Gulbranssen, i þýðingu
Konráðs Vilhjálmssonar. Er hér
um merkan hókmenntaviðburð
að ræða, þvi saga þessi hefir
farið sigurför meðal flestra
menningarþjóða og er talin með
heztu lýsingum siðari tíma rit-
höfunda á daglegu lífi, gleði og
sorgum hins kjarngóða norska
dalafólks. En sérstakur fengur
er Dagur í Bjarnardal íslenzk-
um lesendum vegna þess að til-
tölulega lítið hefir sézt á, is-
lenzku af sögum úr norsku
sveitalífi, og er bætt úr þessu
að nokkru með útkomu bókar-
innar. Þýðing Konráðs Vil-
hjálmssonar er vel af hendi
leyst. Útgefandi er Bókaútgáfan
Norðri, en Prentverk Odds
Björnssonar hefir annast prent-
unina af alkunnri smekkvísi.
C.
I fyrakveldi kastaði brezkur
sjóliði flösku í íslending á Suð-
urgötunni. Lenti flaskan á höfði
hans og var farið með manninn
til læknis til athugunar og að-
gerðar.
Við athugun kom í ljós, að
maður þessi hafði hlotið sár og
marbólgu á hvirfli. Meiðslin
eru þó ekki alvarlegs eðlis.
Islendingurinn kvaðst liafa
,verið að bíða eftir strætisvagni
og hafði þá sjóliði einn, er stadd-
ur var á götunni allt i einu kast-
að flösku í höfuðið á honum.
Sjóliðinn komst undan, en
lögreglan handsamaði tvo félaga
hans.
Frú Anna Ingvarsdóttir
frá Xsafirði iátin vestan
hafs.
Frú Anna Ingvarsdóttir, kona
Jónasar Tómassonar tónskálds
í ísafirði, lézt í fyrard. í sptala
vestan liafs eftir uppskurð við
heilasjúkdómi. Hafði hún verið
flutt vestur í flugvél ameríska
hersins hér til læknisaðgerða.
Heildartekjur
af berklavarnadeginum uröu um
land allt yfir 70 þús. kr. en í
Reykjavík einni um 55 þús. kr.
Vatnsveita i Grímsey
Þingmenn Eyfirðinga, Garð-
ar Þorsteinsson og Bernharð
Stefánsson, bera fram í Sam-
einuðu þingi till. til þál. um
vatnsveitu í Grímsey.
Hljóðar tillagan svo, að Al-
þingi álykti að greiða úr rík-
issjóði kr. 35000 til þess að gera
vatnsveitu í eynni. í greinargerð
segir, að eyjarskeggjar eigi
alltaf í erfiðleikum við að afla
sér góðs vatns til'heimilisþarfa,
en á einuín stað sé þó lindar-
vatn, sem talið er að muni
nægja þörfum þeirra og því
nauðsynlegt, að þeir fái það
leitt heim til sín.
Garðar Þorsteinsson alþing-
ismaður hefir leitað álits Pálma
Einarssonar búnaðarráðunaut-
ar, en hann rannsakaði þetta
mál 1940. Telur hann að allt
Vatnsniagli lindar, sem er í svo-
nefndu Stóraskarði,sé um 15.000
1. á sólarhring og áætlar kostn-
að 35 þús. kr.
Fjórar ljósmæður
verða skipaðar hér eftir í Reykja-
vík, samkvæmt ákvörðun bæjar-
stjórnar í gær. Til þessa hefir að-
eins ein ljósmóðir verið launuð úr
bæjarsjóði.
Alþingishátíðarkant-
atan flutt á sunnud,
Á sunnudaginn flytur samkór
og hljómsveit, alls 130 manns,
Alþingishátíðarkantötu Páls ís-
ólfssonar í Fríkirkjunni undir
stjórn höfundarins.
Það er karlakórinn Fósthræð-
ur og Tónlistarfélagið, sem
standa fyrir hljómleikunum.
Karlakórinn syngur allur í sam-
kórnum, en sá kór söng einnig
í alþingishátiðarkórnum 1930.
Einsöng annast Pétur A. Jóns-
son óperusöngvari og framsögn
hefir Óskar Borg á hendi, en þeir
fóru með sömu hlutverk á há-
tíðinni.
Auk þess leikur dr. Urbant-
scliitsch einleik, það ér Chacon-
ne fyrir orgel eftir Pál ísólfsson.
Kvenfélag Frjálslynda safnaðaríns
efnir til hlutaveltu til ágóða fyrir
kirkjusjóð sinn 15. okt., í Sýningar-
skálanum. Meðlimir safnaðarins og
aðrir velunnarar hans, eru beðnir
að styrkja hlutaveltuna, sem bezt
þeir megá. Gjöfum er veitt mót-
taka á eftirtöldum stöðum: Soffía
Ólafsdóttir, Skólavörðust. 19, sími
3321. Guðrún Eiríksd., Thorvald-
sensstr. 6, símí 5105. María Maack,
Þingholtsstr. 24, sími 4015. Val-
gerður Gíslad., Laugaveg 93, sími
1995. Ásta Guðjónsd., Suðurg. 35,
simi 4252. Guðný Björnæs," Lind-
argötu 47, sími 3368. Þorbjörg
Skjaldberg, Túng. 12, sími 1494.
Guðný Richter, Grettisg. 42B, sími
5716. Ingibjörg Sigurðard., Kirkju-
str. 6, sími 5193.
Glímufélagið Ármann
hefir ákveðið að efna til nám-
skeiös í glímu fyrir byrjendur,
sem hefst í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar á morgun klukkan 8
e. h. Aðalkennari námskeiðsins
verður Jón Þorsteinson en honum
til aðstoðar kennir Ingimundur
Guðmundsson frv. glímukóngur.
n
Scrutator:
JZjCucLcL a aÉmmnín^s
Mjólk Og setulið,
Maður hringdi tíi trtíit i gær og
sagði mér að konan sín hefði fal-
azt eftir mjólk i mjólkurbúð, en
enga' fengið. Hinsvegar voru setu-
liðsmenn afgreiddir, og ekkert dreg-
ið af mjólkurpöntun þeirra. Þetta
fannst honum að vonum ranglæti
í meira lagi, þvi að þau hjón eiga
fimm ung börn. Það hefir nýlega
verið upplýst, að ekkert sé dregið
af mjólkurskerf til setuliðsins, þótt
mjólkurskortur sé orðinn tilfinnan-
legur og verði sennilega meiri, og
ér þetta vægast sagt dæmalaus ráðs-
mennska. Því er borið við, að setu-
liðið anzi þvi, að fái það ekki um-
samið mjólkurmagn, vilji það ekki
kaupa neina mjólk. Virðist þetta
svar vera mjög ólíkt því, að nokk-
ur ábyrgur foringi hafi gefið það,
og á eg bágt með að trúa því upp
á Key hershöfðingja, ef dæma skal
eftir annari framkomu hans, sem
öll hefir verið hin vinsamlegasta.
En sé það virkilega meining setu-
liðsins að vilja annaðhvort allan
mjólkurskammt sinn eða engan, þá
eiga hermennirnir auðvitað ekkert
að fá, heldur eiga borgararnir að
ganga fyrir. Það er rétt, að minna
á það í þessu sambandi, að mjólk-
in til setuliösins er verðbætt úr rík-
issjóði, og virðást það lítil búhygg-
indi að svipta borgarana mjólkinni
til þess að leyfa þeim að greiða
með henni til útlendinga.
Vaxtabréf.
Það er ekki langt síðan þeir, sem
vaxtabréf áttu, lásu útdráttarlist-
ana í Lögbirtingablaðinu með tölu-
verðri eftirvæntingu. Ef eitthvert
bréfa þeirra var dregið út, var það
greitt með nafnverði, en kaupandi
hafði ef til vill keypt það á 700
krónur þúsundið, eða þaðan af
minna. Ef heppnin var með, grædd-
ust á þennan hátt 300 krónur eða
meira, sem hægt var að kaupa fyrir
önnur bréf, og svo koll af kolli.
Gagnvart lántakendum leit þetta
hins vegar þannig út, að húseigandi
„tók veðdeild" á hús sitt og hlaut
t. d. 10 þúsund króna lán úr veð-
deildinni á vöxtum. En hann
fékk ekki peningana, heldur veð-
deildarbréf, sem hann gerði sig á-
nægðan með að selja á 75%, eða
með því að tapa 250 krónum á
þúsundinu, og setti þetta raunar
vextina sjálfa upp í 73/3% eða
meira, ef afföll voru hærri. •— Nú
er þetta allt orðið breytt. Menn
geta selt veðdeildarbréf sín á allt
að 101%, eða með öðrum orðum
á fullu nafnverði og að auki 10 kr.
fyrir þúsundið, stundum 15 kr.,
auk þess sem þeir borga 1% lægri
vexti. Það er meira að segja ill-
mögulegt að herja bréfin út úr
bankanum, svo fast sækir hann að
fá að kaupa þau sjálfur. En um hin
eldri bréfin, sem gefa 1% hærri
vexti en nýi flokkurinn, er það að
segja að þau eru yfirleitt því dýrari
sem þau eru eldri (líkt og eðalt
vín), og kosta frá 105% upp í
107%, nema 7. flokkur, sem er kom-
inn of mikið til ára sinna, ef að
líkum lætur, því að hann kostar
ekki nema 10634%. Og loks er
þess ógetið, að eftirspurnin er svo
mögnuð, að bréfin hafa ekki feng-
izt á Kaupþinginu síðan í janúar.
Bréfin eru ekki skömmtuð, svo að
tilgangslaust mun vera að leita
þeirra á „svarta markaÖnum". —
En nú er það með angist í hjarta
að þeir, sem höndlað hafa einhvern
slatta af þessu dýrmæti, bíða eftir
útdrætti. Því að ef þeir eru svo ó-
heppnir að 1000 króna bréf, sem
þeir eiga, sé dregið út, þá þýðir
það bara 60—70 króna tap, auk
vandræðanna við að koma pening-
unum í lóg.
Samkvæmt áætlun.
Fregnir herma, að þýzku her-
sveitirnar á austurvígstöðvunum
iðki morgunleikfimi á hverjum
morgni. Þá skil eg hvað við er átt
með Don-bugðum og Dnjeprbeygj-
um.
yirðingarfyllst,
Isak tsax,
kommissar.
Karlmannanærföt
eru fyrirliggjandi í öllum
stærðum.
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
vanfar á kaffistofu. — Uppl.
á Hringbraut 191.
Kven-, barna- og
karlmanna-
regnkápur
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
„Esja”
austur um land til Siglu-
fjarðar um miðja næstu
viku. Tekið á móti flutningi
til Bakkaf jarðar, Vopnaf jarð-
ar, Borgarfjarðar og Seyðis-
fjarðar á morgun (Iaugar-
dag) og flutningi til Norð-
fjarðar, Eskifjarðar, Reyðar-
fjarðar og Fáskrúðsfjarðar á
mánudag.
V antar
ungling
til að passa barn hálfan eða
allan daginn. Húsnæði gæti
fyigt.
Uppl. lijá Ólafi Ólafssyni,
Laugaveg 43.
Stúlka
óskast í
MATSÖLUNA
Bröttugötu 3 A.
Húsnæði fylgir. Hátt kaup.
Regnfrakkar
mikið úrval.
Herrabúðin
Skólavörðustíg 2
Stúlka
óskast. Húsnæði getur fylgt.
€afe €entral
Hafnarstræti 18. Sími 2200.
2 stúlkur
vantar strax á Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund. Uppl.
gefur yfirhjúkrunarkonan.