Vísir


Vísir - 05.04.1951, Qupperneq 8

Vísir - 05.04.1951, Qupperneq 8
VISIR Fimmtudaginn 5. apríl 1951 Morrison talar m mikiSvægi Atlantshafsbandalagsins. Stofnun þess einstæður atburður. Herbert Morrison, utanrík- isráðherra Bretlands, flutti ræðu í gærkvöldi í veizlu, sem borgarstjóri Lundúna efndi til. Var ræðu Morrisons útvarp- að. Fjallaði hún um Norður- Atlantshafsvarnarbandalagið í tilefni af, að tvö ár eru lið- in frá undirritun þess í Wash- ington. Morrison minnti á mikil- vægi þessa atburðar, sem var einstæður í sögunni, því að þann dag var í fyrsta skipti stofnað til samvinnu og var.n- arbandalags í þágu friðarins milli frjálsra þjóða hins gamla og nýja heims, en það voru 10 Evrópuþjóðir og 2 Vesturálfu- þjóðir, sem undirrituðu sátt- fnálann. Rakti Morrison því næst í. höfuðatriðum hver er tilgangurinn með bandalaginu, og vísaði á bug öllum ásökun- um, sem fram hafa komið í seinni tíð, m. a. í sambandi við komu Eisenhowers hershöfð- ingja til Evrópu, sem ganga í þá átt, að til varnarbandalags- ins sé stofnað í árásarskyni. Þetta væru staðlausir stafir — hinar frjálsu þjóðir, sem að bandalaginu stæðu, hyggðu ekki til árása á neina og þyrfti því engin þjóð að óttast sam- tök þeirra. Kaldur marz. Miiii st. mmetÍB' BsteðalSaeji. Meðalhiti í marzmánuði Iiér í Reykjavík hefir verið 0,5 stig — eða aðeins fyrir cfan frostmark. 1 marzmánuði síðast liðn- um var hinsvegar ekki því að fagna, að hiti væri yfir frostmarki, því að hann reyndist langt undir meðal- lagi eða —3,0 stig. Hefir ekki verið eins kalt í marzmánuði hér síðustu tvo mannsaldrana en 1891 var meðalhiti einu stigi minni eða -h 4,5 stig. Græna lyftan í Vestmannaeyjum. Skemmtifélag í Vestmanna- eyjum hefir nú haft tvær sýningar á gamanleiknum <4rænu lyftunni undir stjórn Hildar Karlmann. Fór frumsýning fram á mánudag fyrir fullu húsi á- horfenda og skemmtu menn sér hið bezta, önnur sýning hefir einnig farið fram við ágæta aðsókn. Aðalhlutverk leika frú Guðfinna Thor- herg og Július Júlíusson, Morrison kvaðst þeirrar skoðunar, að kleift yrði að varðveita friðinn, og það ætii ekki að verða því til hindrun- ar, þótt ólík stjórnmálakerfi séu við lýði í heiminum. Fjölda margir stjórnmála- leiðtogar hinna frjálsu þjóða minntust í gær undirskriftar varnarbandalagsins fyrir tveimur árum. Hæítir viö umsókn um Dóm- kirkjuprestsembættiö. Síra Jóhann Hannesson hefir afturkallað umsókn sína um dómkirkjuprests- embættið í Reykjavík, sem Iaust er til umsóknar. Það er nú komig í Ijós, að umsóknin var send, án þess að fullt umboð lægi fyrir frá síra Jóhanni, sem nú dvelst í Hongkong, seín kunnugt er. ■----♦----- Trumasi haföl sigur á þingi. Einkaskeyti frá U. P. London í morgun. Öldungadeild þjóðþings Bandaríkjanna samþykkti í gær að fallast á ákvörðun Tru- mans forseta um að send verði til Evrópu 4 herfylki, til vi'ð- ! bótar þeim, sem fyrir eru. Var þetta samþykkt með því orðalagi, að fram kemur vilji deildarinnar um, að Truman forseti leiti samþykktar þjóð- þingsins, ef frekari liðflutning ar eru áformaðir. Umræður um þetta drógust mjög á langinn, vegna baráttu republikana, sem vilja skerða vald forsetans í þessum efn- um. Fóru þeir að lokum þá leið, að reyna að fá málinu vísað aftur til nefndar, en það var fellt með 56 atkvæðum gegn 31. -----♦------ Póst- og símagjöll liækka s Bretlandi og Frakklandi. Póst og- símagjöld eiga að hækka að miklum mun í Bretlandi og Frakklandi, samkvæmt nýteknum á- kvörðunum þar um. Franska stjórnin liefir nú til athugunar víðtækar skatta og tollahækkanir til að slanda straum af hækk- uðu kaupi opinberra starfs- Lemuel Matthewson var ný- lega skipaður yfirmaður her- sveifa Bandaríkjanna í Berlín. * Isf ssksaia s Gott verð, þrátt íyrir mikið fram- boð. B.v. Geir seldi um 241 lest (3843 kit) í Grimsby í gær, fyrir 13 747 stpd. Er það eftir átvikum mjög góð sala, því að mikið barst að af fiski í gær og fyrradag til Grimsby, 15 000 kit í fyrradag og 10 000 í gær. Ef svipað verð licfði haldist á laugardag og mánudag s.l. rnundi Geir hafa fengið 2000 stpd. meira fyrir afla sinn, sem var nýr og afbragðs fisk- ur, þar af um 1500 kit ýsa, og hefir það hjálpað sölunni. — Askur átli að selja í Grimby í gær,' en komst ekl;i að. Þar, sem lieldur minna var í Hull, var hann látinn fara þangað, landaði þar í gærkveldi og scldi aflann ár- degis í dag. -----♦----- Körfuknattleiks- keppni í kvöld. Í.R. og starfsmenn á Kefla- víkurflugvelli þreyta með sér keppni í körfuknattleik að Hálogalandi í kvöld. Sömuleiðis keppir Mennta- skólinn í sömu iþrótt við Í.R.- inga. KörfUknattleikur er mjög skemmtileg iþrólt og spenn- andi og er nú að mestu fyrir atbeina ].R.; að ryðja sér lil rúms hér á landi. Ferðir verða frá Ferða- skrifstofunni i kvöld. nianna. M. a. er búizt við að áfengi( tóhak og ýmsar mun- aðarvörur hækki xnikið í verði vegna kauphækkan- anna. WiSgerð á gölyin Eiafio í gær. Pær em miög iila farnar eflir veturinn. Eins og flestum er kunn- ugt er ásigkomulag malbik- uðu gatnanna í bænum nú verra en efir marga undan- gengna vetur. Stafar þetta af því, að bifreiðir hafa orðið að aka á keðjum vikum og jafnvel mánuðum saman, þar sem hálka eða snjóþyngsli hafa verið víða um bæinn, en maE bikið slitnað, þar sem umferð Iifir verið mikil, þar eð klaki Hæfnisgfímsn háð þ. 12 þ. m. Hæfniglíma Islands verður háð hér í Reykjavík fimmtu- dagirm 12. þ.m, Glimufélagið Ármann sér um glhnuna, sem fer fram í þrem þyngdarflokkúm. I fyrsta flokki glíma menn, sem eru 83 kg. og þyngri, í öðrum flokki menn, sem eru 75—83 kg. að þyngd og í þriðja og léttasta flokld menn undir 75 kg. Hæfniglíman er nokkurs konar kunnáttupróf glímu- manna, og kemur þar margt 1il greina, svo sem snerpa, fegurð í glímunni, léttleiki og fleira. Sigurvegari í fyrsta flokki i fvrra var Rúnar Gnðmunds- son, í öðrum flokki Steinn Guðmúndsson og í þriðja flokki Ingólfur Guðnason, allir úr Ármanni. Öilum glímumönnum er heimil þátltaka, sem tilkynn- ist stjóm Ármanns fyrir 7. þ.m. Nú fæst brátt molasopinn! Skíp kom fullhlaðið sykri í gær. E.s. Skagen, eitt af leigu- skipum Eimskipafélagsins, kom hingað í gær frá Lon- don. I þessari ferð hingað til Jands flutti skipið að- einsi sykurbirgðir, bæði strásykur og molasykur, og verður þeim skipað upp hér og á fjölda mörgum stöðum úti á Iandi. Mplasykur mun óvíða hafa fengist um hríð og maxgir saknað molasop- ans, ennú þurfa menn ekki að bíða Iengi úr þessu. Cementskip er nýkomið til J. Þorláksson .og Norð- mann. Færeyskur togari kom inn í gær. og snjór voru þar ekki til varnar. Veðurfarið hefir hinsvegar einnig komið I veg fyrir, að hægt væri að vinna hið minnsta við við- gerðir gatna, þótt ekki væri nema til bráðabil’gða og' það var ekki fyrr en nú um miðja þessa viku, að hægt var að liefja viðgerðarstarfið. Var hyrjað á því í gær að fylla í stærstu holurnar í Aðal- stræti, Snorrabraut, Sóleyjar- götu og Fríkirkjuveg, en í morgun var ekið til við Hafn- arstrættið. Verður væntan- deg haldið áfram að fylla í stærstu holurnar á næstunni, iinz svo verður komið, að unnt verður að tkaa þær al- mennilega „í gegn“, eins og sagt er á reykvízku og setja á þær nýtt slitlag, en til- raunir þær, sem hafnar voru í fyrra með mismunandi steinblöndur, munu liafa gcfið mikilsverðar hendingar um það, hvaða steintegundir sé heppilegastar í þessuin efnum. Vísir getur væntanlega greint nánar frá gatnagerð- og viðgerðum á ,næstunni, enda er það kappsmál allra bæjarbúa, að sem hezt talc- izt í þeim efnum. ----->----- Nýr þýzkur togari tekinn í landhelgi. Varðskipið Óðinn tók í fyrrakvöld togara, sem var að veiðurn í landhelgi austur með söndum og fór með haun til Vestmannaeyja. Togari þessi nefnist Bertha Lahtmann og er fx*á' Hamborg. Mun þetta vera éinna af nýjustu togurum Þjóðverja. Réttarhöldum var ekkt lokið, er síðast fréttist. -----9----- Heílsufar lé- legt í bænum, Heilsufar í bænum er all- slæmt um þessar mur.dir, þótt inflúenzan hafi smáf jar- að út og sé úr sögunni mestu. Mislingar eru mjög út- breiddir enn, svo og kikliósti. Ennfremur mun vera tölu- vert um lungnakvef og lungnabólgu, einkum í börn- um. í dag mun verða gengi'ð frá heilsufarsyfirliti sam- kvæmt skýrslum lækna í bænuin fyrir seinustu yilui, en í næstu vilui kemur greini- legar fram hversu ástatt er í þessum efnum, '

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.