Vísir - 02.05.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 02.05.1952, Blaðsíða 1
42. árg. Föstudaginn 2. maí 1952 97. tbi. Þátttaka í samskotum ti Arnasafns mfö§ aimenn. Sí©B*liísiBpiBs.©iist Itafa gefiH S©.©©© lo*. Það er nú greinilegt, að þátttakan í samskotunum til bygg- ingar húss yfir liandritin verður eins almenn og sjálfsagt er, þar sem hér er um mál allrar þjóðarinnar að ræða. Emir Feisal Saud, sonur Ibn Sauds, konungs Saudi-Arabíu, er um þessar mundir í heimsókn á Ítalíu, en bangað fór hann, sem utanríkisráðherra lands síns. Hann sést hér vera að skoða fornar rústir bæjar, er eldfjallið Vesuvíus lagði endur fyrir löngu í eyði. Viegir ailir að opnast, en ern víia iUfærír vegna aurbleytu. AkstrevrarleiAiit Itefar verið apnuð. Eins og getið hefir verið í blöðum, ætlaði þjóðminjavörð- ur að veita samskotunum við- töku fyrst um sinn, en nú er þegar komið á daginn, að hann getur ekki annað því með öðr- um störfum sínum, því að gjafir streyma inn héðan úr bænum og nágrenninu — 10, 50 og 100 kr. rignir yfir hann — og er þó skriðan ut- an af landi ekki byrjuð. Þetta hefir orðið til þess, að Stúdentafélag Reykjavíkur hef- ir ákveðið að leita til þriggja víðtækra samtaka — Vinnuveit endasambands íslands, Alþýðu- sambands íslands og Stéttarsam bands bænda — og óskað eftir því við þau, að þau tilnefni hver sinn fulltrúa, er hafi á hendi stjórn samskotanna með full- trúa frá Stúdentafélaginu. Þarf ekki að efa, að samtök þessi til- nefni fulltrúa sína þegar í stað. Stærsta gjöfin. Félag íslenzkra stórkaup- manna reið á vaðið með stór- gjöf, sem ákveðin var á aðal- fundi þéss fyrri hluta vikunn- ar. Bar formaður félagsins, Eg- Washington (AP). — Truman Bandaríkjaforseti símaði Philip Murray, leiðtoga stáliðnaðarmanna, í gærkvöldi ■og bað hann um að aflýsa verk- falli þeirra, en í því taka nú þátt 650 þús. menn og hefir öll- ura stærstu stálsmiðjum lands- ins verið lokað. Truman hefir boðað Murray og fulltrúa 6 helztu stáliðju- fyrirtækja í landinu, að koma á sinn fund á morgun. Verður þá gerð ný tilraun til þess að ná samkomulagi um deiluatriðin. Öngþveiti yfirvofandi. Truman sagði að því færi fjarri að sér væri að skapi að taka sér nokkurt úrskurðarvald, það, sem hann teldi sér skylt, væri að halda öllu gangandi í landinu, því að ella kæmi til sögunnar öngþveiti í efnahags- og atvinnulífinu, sem hefði ótal hættur í för með sér, og stöðv- un stálsmiðjanna tefldi í voða vamarviðbúnaði N.A.-ríkjanna og hinni gagnkvæmu öryggis- aðstoð. ill Guttormsson, fram tillögu kr. í samskotin til Árnasafns, og var tillagan samþykkt í einu hljóði. Vísir átti tal um þessa stór- gjöf í morgun við Egil Guttorms son og komst hann svo að orði: „Þegar eg hlustaði á kvöld- vöku stúdenta, varð eg þegar mjög hvifinn af tillögunni um Árnasafn, og fannst vel til fall- ið, þar sem aðalfundur okkar stóð fyrir dyrum, að við sýnd- um gott fordæmi með því að styðja tillöguna með þessu fram lagi. Tillögunni var svo vel tek- ið, að engin meðmæli þurfti raunar með henni. Sjálfur er eg ekki í vafa um, að handritin verði afhent fyrr eða síðar. En til þess tíma mætti benda Dönum á, er hingað koma eftir að byggingin er kom in upp, að vel verði búið að handritunum, þegar þeir skilá þeim. Mætti safnið gjarnan standa autt á meðan.“ Nú hefir verið farið svo myndarlega af stað, að ekki má hætta sókninni fyrr en safnhús- byggingin verður komin upp. um það, að félagið gæfi 10,000 Hlítir boði hæstaréttar. En Truman kvaðst mundu hlíta úrskurði hæstaréttar um gerðir sínar í málinu, en til- kynnt var í gær, að stáliðju- höldar myndu skjóta til hæsta- réttar úrskurði yfirréttarins, sem ógilti undirréttardóminn um, að stáliðjufyrirtækin skyldu afhent eigendum sínum. Fimm af níu dómurum yfir- réttarins voru samþykkir dómsniðurstöðunni. Svia váEnéfíB' vitomuafh Fólk vantar enn til landbún- aðarstarfa í Suður-Svíþjóð einkum á Skáni og Kalmarléni. Málmiðnaðinn hefir til þessa vantað inðlært fólk. Þess má geta að þeir sem kynnu hð hafa í hyggju að leita sér atvinnu í Svíþjóð, þurfa að snúa sér til sænska sendiráðsins Fjólugötu 9 hér í bæ, ef þeir vilja njóta sérstakrar fyrirgreiðslu í sam- bandi við Svíþjóðarfarðir. ÁætlunarfEug itteð þrýsti- Iðftsvéluns. Milli ejg! ll@fllal®@pgai* á klst. Eondon (AP). — í dag hefj- ast í fyrsta skipti í sögu heims skipulagsbundnar áætlunar- flugferðir í þrýstiloftskminum farþegaflugvéium. Þykir þetta sögulegur við- burður og eru það Bretar, sem í þéssu hafa tekið forystuna. Flogið verður milli Londön og Höfðaborgar í de Havilland Cometflugvélum, einni fyrst í stað, en brátt verða þrjár í för- um. Áformað er að koma á saras konar áætlunarflugferðum til Ástralíu. Flogið verður í 11—13 kíló- metra hæð. Flugleiðin til Höfða- borgar er um 10.700 km. og er ráðgert að fljúga þangað á sól- arhring, en raunverulegur flug tími vei'ði tæpar 19 klst.. Gin- og kkufaveiki í Skotkndi. London (AP). — Gin- og klaufaveiki er nú komin upp í Skotlandi. Hefir verið gripið til venju- legra varúðarráðstafana, en Skotland hefir sloppið við gin- og klaufaveikina þar til nú. ----*---- Pómarastarfið er hættulegt. B. Aires (UP). — Knatt- spyrnudómarar í Cordoba-hér- aði hér í landi mega vara sig framvegis. Þar hefir verið sett lögreglu- samþykkt, sem kveður á um það, að ef dómarar sé svo hlut- drægir, að uppþot verði af þeim sökum, skuli þeim stefnt fyrir rétt, og má dæma þá í viku varðhald. ■...«——— Sinjuítivcihjuw* BBnglinfjn* Nokkur brögð hafa verið að því að krakkar hafi gert sér leik að því að kveikja í sinu hér í bænum eða næsta nágrenni hans. Af þessari ástæðu var lög- reglan kvödd inn á Sigtún til að slökkva þar sinueld sem krakk- ar höfðu kveikt. í gær höfðu einhverjir kveikt í sinu í Vatnsmýrinni, rétt hjá flugvellinum og var slökkvilið- ið kallað þangað til að slökkva eldinn. Leiðin allt norður á Akureyri er nú opin til umferðar, en veg- ir víða allslæmir vegna aur- bleytu. í fyrrakvöld var lokið við að ryðja af veginum yfir Holta- vörðuheiði, en það var nokk- urra daga verk, og þá hafði ver- ið lokið við að ryðja snjó af veg- unum yfir Hrútaf jarðarháls, Miðfjarðarháls og Öxnadals- heiði. Víða í Húnavatnssýslunum, Skagafirði og einkum í Eyjaf., eru slæmir kaflar vegna aur- bleytu, og má búast við smáerf- iðleikum yfirleitt meðan klaka er að leysa úr vegum. Er ósk- að eftir, að menn leggi ekki í bílferðir norður eins og sakir standa, því að nauðsynlegt er að hlífa vegunum við umferð VÍSIR kemur út árdegis á morgun, laugardag, og mun svo verða framvegis á laugardögum til hausts. Þeir, sem þurfa að koma einhverju efni í laugardags- blöðin í sumar, verða að hafa samband við ritstjórn blaðsins fyrir kl. 7 síðdegis á föstudög- um. eins og hægt er í bili, ekki að- eins á norðurleiðinni heldur yf- irleitt. Ýtur hafa verið að verki á Höfðabrekkuheiði og Mýrdals- sandi og leiðin austur opin, en einnig þar má búast við að hvörf myndist í vegum næstu daga. Slæmir kaflar eru viða austanfjalls vegna aurbleytu, t. d. í Selvogi, á vegum til Eyrar- bakka og Stokkseyrar og víðar. Óeirðir í Tokyo. London (AP). — 1 maí há- tíðahöldin fóru friðsamlega fram víðast, en þó urðu óeirðir í nokkrum borgum, einkanlega í Tokyo, þar sem á að gizka 2—3 hundruð búsund söfnuð- ust saman. Tókst kommúnistum að æsa menn upp til árása á aðalstöð Ridgways, en bandarískir her- menn, vopnaðir kylfum og tára gasi, flæmdu burt múginn, og vernda nú bandarískir hermenn líf og eignir útlendinga í borg- inni. Þegar þessi árás fór út um þúfur, var haldið til keisara- hallarinnar og reynt að komast inn í hana, en japönsk lögregla hrakti æsingamennina burt. ? •• Olkim stærstu stálstnftjum iandðrÉjannð lokað. Truman boðar iðjuhölda og Mltrúa stáliðnaðarmanna á sinn fund.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.