Vísir - 27.12.1956, Blaðsíða 8
Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeýpis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það f jöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og
gerist áskrifendur.
Kúgtiðu þjó&irnar munu
öðlast frelsi á ný.
Nixon varaforseti Bandaríkjanna
kom hér við á Þorláksdag.
Fimmtudaginn 27. desember 1956.
asBwa aBatssssssssxsssssssasBSBassammaammm
Hestur týnist
af vörubíl.
Richard Nixson, varaforseti
Bandaríkjanna undanfarin
fjögur ár, kom hér við á leið-
ihni frá Austurríki á Þorláks-
dág.
Eisenhower forseti hafði sent
Bíann gagngert til Austurríkis
fíl að kynna sér ástand meðal
amgversku flóttamannanna,
®g þar sem gert var ráð
fyrír, að flugvél hans mundi
taka eldsneyti hér á leiðinni
vestur um haf, bauð forsetinn,
.herra Ásgeir Ásgeirsson, hon-
um að heimsækja Bessastaði og
hitta ýmsa íslenzka fyrirmenn.
Blaðamönnum gafst kostur á
að ræða við Nixon varaforseta
að Bessastöðum. Kvað hann
það fyrst og fremst vekja at-
hygli, hversu mikið af ungu
fólki væri meðal flóttamann-
anna, svo og hversu mikið hug-
rekki það auðsýndi með því að
ílýja, þar sem það þyrfti að
fara langar leiðir um bersvæði
til að komast að síðustu yfir
Jandamærin til Austurríkis.
Meðal flóttafólksins er á-
berandi stór hópur stúdenta,
verkamanna o" verksmiðju-
stúlkna, og virðist það benda
ótvírætt til þess, að komm-
únistum hafi ekki tekizt að
vinna æskuna til fylgis við
sig, eða, liafi þeim tekizt
það um skeið, b.afa þessar
vinnandi stéttir og mennta-
mennirnir ungu fljótt glatað
trúnni á kommúnismann.
Nixon varaforseti kvaðst
sannfærður um, að hinar und-
irökuðu þjóðir í A.-Evrópu
ínundu fyrr eða síðar öðlast
frelsi sitt á ný..Það kæmi bezt
fram í sögunni, að það væri
aff vísu hægt að halda þjóðum
í áþján um tíma með ofbeldi,
en það væri ekki hægt um alla
framtíð.
Þegar Nixon varaforseti kom
til Keflavikur, voru þar fyrir
Guðmundur í. Guðmundsson
utanríkisráðherra, Henrik Sv.
Björnsson ráðuneytisstjóri og
Haraldur Kröyer forsetaritari,
auk Muccios sendiherra og
Whites hershöfðingja. Veður
var heldur óhagstætt við kom-
una, kafaldsmugga en þó ekki
mikil veðurhæð. Gekk lend-
ingin ágætlega, og Nixon hélt
áfram með föruneyti sínu kl.
10.18 um kvöldið.
Malenkovstefnan
aftur ofan á?
Saburov, sem er einn af vara-
forsætisráðherrum Ráðstjórnar-
ríkjanna, hefur verið leystur
frá störfum sem formaður Ei'na-
hagsráðsins.
Ráðið sætti mikilli gagnrýni
á seinasta fundi Æðsta ráðsins
og er búist við gagngerri endur-
skipulagningu þessara mála.
Pervukin tekur við embætti
Saburovs.
í brezkum blöðum, m. a. í
Scotsman, kemur fram sú skoð-
un, að Malenkovstefnan í fram-
leiðslumálunum hafi aftur orð-
ið ofan á. Reynslan í Póllandi
og Ungverjalandi hafi ekki far-
ið fram hjá æðstu mönnum
landsins, og þori þeir ekki að
hætta á að þrengja svo kosti
almennings, að hann kæmist í
uppreistarhug. Verði nú farið
út á þá braut, að framleiða
ýmislegt, sem allan almenning
vanhagar um.
Það bar til fyrra mánudag,
að hestm-, sem Páll Sigurðsson, |
bóndi í Fornahvammi, hafði1
keypt og var að flytja heim til
sín, týndist af vörubíl og hefur
ckki fundist síðan.
Hestinn hafði Páll keypt hér
fyrir sunnan og tók hann hest-
inn á Korpúlfsstöðum og var
hann látinn á pall á vörubii,
sem tjaldað var yfir með nýju
segli. Auk þess var hesturinn
bundinn með sterkum múl.
Þegar Páll var skammt kom-
inn á leið, eða upp á Kjalarnes,
varð hann þess var, að hestur-
inn var horfinn. Hafði hann
slitið múlbandið, rifið seglið og
stokkið yfir trégafl bílsins, sem
var mittishár. Hefur það verið
mikið ,,heljarstökk“, en ekki
mun klárinn hafa sakað, því
að hann hefur ekki fundizt enn
þá. Hesturinn var vanur að
stökkva yfir girðingar.
Hefur hans verið leitað mik-
ið og leituðu seinast í fyrradag
8—1.0 menn, en allt hefur
komið fyrir ekki. Þykir þetta
hið einkennilegasta hvarf.
Nasser játar, að Egyptar
hafi myrt Moorhouse.
Egyptar taldir nota sér Sþ., án þe
að lofa neinu um framtíðina.
ss
Það er nú liafið yfir allan íhaldsþingmaður, Banks hö£-
vafa hver urðu örlög More- uðsmaður gerir sér ferð á hend-
Ixeads liðsforingja, sem Egyptar ur sem persónulegur vinur
ræntu í Port Said. Þeir myrtu Moorehousefjölskyidunnar og
hann. Nasser hefur sjálfur við- á fund Nasers sjálfs, sem veitti
urkennt þetta. honum fúslega áheyrn enda
j Hefur morðið vakið mikla
' gremju i Bretlandi, ekki aðeins
í garð Egypta, heldur einnig
. S.þj. fyrir afskipti þeirra af
| málinu.
Þannig stóðu sakir, að for-
sagði Banks sig ur íhaldsflokkn-
um brezka, vegna ágreinings
um Suezstefnuna. Banks símaði
fyrst, að Naser hefði tjáð sér,
að þeir sem hefð'u tekið Moore-
house hefðu banað honum, og
svo staðfesti Banks þetta við
ingjar frá Sameinuðu þjóðun- | komuna til London í gærkvöldi.
Hann kvað Naser hafa harmað,
að hann yrði að segja honum.
þetta. Ekki kveðst Banks hafa
fengið upplýsingar um hvar
Moorehouse hefði verið drepinn
eða hvar hann hefði verið
grefstraður.
um kynntu sér málið, og segir
í fregnum, ýmist að einn þeirra
hafi haft tal af Moorehouse og
sannfært sig um, hver hann
væri, eða hann hefði séð hann.
Þetta var fyrir seinustu helgi,
en ekkert virðist hafa verið
gert frekara, nema taka til
greina einhver loforð um, að
manninum yrði skilað.
Svo gerist það að brezkur
Ungverjum bragðast ís-
lenzki maturinn vel.
Féik skeoiuntir sér við tafl,
spii ©g daiis.
Þeir fóru bara úr landi
af ævintýraþrá!
UsiiinæEi koinrsBisiírBÍsta um
ungverskt fléttafóik.
ViStal eitt, sem útvarpið
flutti í fréttaauka á aðfanga-
dagskvöld, hefur vakið mikla
og almenna gremju hlustenda.J
Viðtal þetta var við ungan1
ísiending, sem dvalið hefur um
aokkurt skeið á Ungverjalandi,!
'og kom hingað til lands með
sÖmu flugvél og ungversku
flpttamennirnir. Piltur þessi, ‘
Hjalti Kristgeirsson, hafði með-
al annars skrifað nokkur bréf
í Þjóðviljann um atburðina'
aivstur þar, og minnzt meðal
annars á ,,mannúð marxis-
mans“. Þótti mönnum það
harla vel til fundið, að piltur- j
Inn skyldi nefna slíkan eigin-^
leika einmitt í sambandi við
þjóðarmorðið þar eystra, og|
virtist það gefa til kynna, að
hann mundi haldinn mannúð
af svipuðu tagi.
Hann staðfesti það svo ræki-
lega í viðtalinu, sem útvarpið
birti á aðfangadagskvöld, því
að hann hélt því fram, að
margir ungversku flóttamann-
anna mundu hafa farið úr
landi af ævintýralöngun! Hafa
menn nokkru sinni heyrt aðra
eins óskammfeilr.i! Það er
,,ævintýraþrá“, sem hrekur
menn úr Ungverjalandi! Það
má segja um þenna piltunga,
að hann hefur ekkert lært og
engu gleymt, og það virðist
einstætt. að hann skorti ekki
„mannúð marxismans“, hvað
sem annars má um hann segja.
Ungverska flóttafólkinu, sem
yfir jólin hefur dvalið í sóttkví
að Hlégarði í Mosfellssveit hef-
ur liðið vel og allir verið við
góða heilsu og bragðast íslenzki
jólamaturinn vel sagði frú
Klara Bergþórsdóttir. sem sér
um liússtjórn í Hlégarði.
Það hefur verið annríki hjá
þeim þremur konum, sem sjá
um matreiðslu og önnur hús-
verk í Hlégarði, þar sem Ung-
verjarnir 52 að tölu, dveljast.
Þessar þrjár konur, hjúkrunar-
kona og frú Nanna Snæland,
sem er túlkur, hafa orðið að
vera í sóttkví yfir jólin og því
ekki getað farið út af Hlégarði
og ekki fengið vinaheimsóknir.
„Já, þetta eru einkennileg-
ustu jólin sem eg heí'i lifað, að
vera svona innilokuð, en við
sleppum sennilega fyrir gaml-
árskvöld“, segir frú Klara.
„Það hefur verið mikið að
gera?“
„Já en þetta hefur gengið
vel. Fólkið hefur hjálpað svo
mikið til, til dæmis koma alltaf
einhverjir til að þvo upp, —
Brezku blöðin fordæma
drápið á Moorehouse, kalla það
svívirðilegan verknað, sem
hljóti að hafa geisimikil áhrif
á hugarfar manna í Bretlandi,
ekki að eins muni Bretar sann-
færast betur um innræti Egypta
og hugarfar í garð sinn, heldur
muni augu manna opnast fyrir
því hvers virði sé vernd sú, sem
Sameinuðu þjóðirnar veiti.
Nota sér samtök Sþj.
Times segir. að Egyptar noti.
sér samtök Sameinuðu þjóðanua
og áður var, en hvað gerist svo,
til þess að koma á sama ástandi
- fallast þeir svo á, að siglingar
verði frjálsar um skurðinn fyrir
Israel sem aðrar þjóðir og af-
létta þeir hafnbanni á Israel á
Akabaflóa. — Allt sé í óvissu.
um þetta.
Hreinsun skurðarins.
Fregnir um hvenær liafist
ið og hafa gaman að hafa hreint
í kringum sig, enda hefur það
ekki mikið annað að gera.
Stundum gengur það út á sval-
irnar og.senniléga er það farið
að bera á nokkúrri eftirvænt-
ingu um að komast út.“
„Hvernig bragðast íslenzki
maturinn?“ 1
„Því líkar íslenzki maturinn j
vel, en ekki þorðum við að gef a'
því hangikjöt. Ekki var að vita j
hvernig því myndi hafa líkað: *. , , , „ „
& ^ J .: verðx handa um hana eru rnjog
það og svo var fyrirskipað að
gefa því léttan mat fyrstu dag-
ana. Á jólunum fékk það m. a.
svínasteik og líkaði hún vei, en
það virtist ekki vera hrifið af
ávaxtasalatinu. En skyrið
bragðaðist vel og borðuðu allir
mikið af því og í dag fær fólkið
fisk að borða — bað er ekki gott
að borða kjöt svona marga daga
í röð.“
það virðast allir keppast um að
þvo upp, jafnvel karlmennirnir
Ííka.“
„En ræstingin?“
„Jú, íolkið hjálpar mikið til
við að hreinsa og laga til.
Ryksugan þykir hið skemmti-
legasta áhald og er alltaf í gangi
og bónvélin er ekki síður eft-
irsóknarverður hlutur. Eg býst
ekki við að almenningur í Ung-
verjalandi hafi haft slík tæki.
Fólkið virðist vera mjög þrif-
Spjötl á olíuleiÖslum
athuguÖ.
Sýrlandsstjórn hefur leyft fr-
akska olíufélaginu, sem er al-
þjóðlegt olíufélag, að athuga
skemmdirnar á olíuleiðslunni
um Sýrland.
Ennfremur skal því heimilt
að gera áætlun um viðgerðir.
Þessi árangur náðist á fundi
með fulltrúum félagsins og
nokkrum sýrlenzkum ráðherr-
um, sem einnig tóku fram, að
vinna við viðgerðir yrði ekki
leyfð fyrr en Israel hefði flutt
allan herafla sinn úr Sinaiéyði-
mörkinni og af Gazasvæðinu.
ósamhljóða.
Fréttaritari brezka úlsvarpsins
símaði í morgun, að engin stað-
festing hefði fengizt á þeirri
fregn, að fyrirskipanir hefðu
verið gefnar í dag, og væri það
árangur samkomulags milli dr.
Fawsi og Hammarskjölds. Þeir
hafa ekki talast við í nokkra
daga, segir fréttaritarinn, svo
að um ekkert nýtt samkomulag
getur verið að ræða. Hinsvegar
símar fréttaritari Reuters að
byrjað sé tilraunum við að ná
upp smáskipum í Ismailia og
við austurenda skurðarins, en
um framkvæmdir á þessum
stöðum hefur ekki áður verið
getið.
Wheeler hershöfðingi, sem.
hefur með höndum yfirstjórn.
framkvæmdanna, sagði í gær,
að verkið hefði tafist vegna
þess, að nauðsynlegt hefði verið
að ná upp tundurduflum, en
hann viðurkenndi að stjórhmála
leg deiluatriði milli Sameinuðu
þjóðanna og Egyptalands væru
enn óleyst.