Vísir - 31.10.1957, Blaðsíða 1

Vísir - 31.10.1957, Blaðsíða 1
#7. érg. Fimmtudagiim 31. október 1957 256. tbL Tvær tillögur fram komn- ar í Sýrlandsdeilunni. MáSii senniiega iagt í hendur Hammar- skjöids. Á allsliei jarbingi Sameinuðu |>jóðanna eru komnar fram tvær tillögiir í deilu Sýrlands og Tyrklands, Ekki hefur enn verið gengið til atkvæða um ])ær. Önnur er frá fulltrúa Sýr- lands. Hahn vill láta skipa nefnd fulltríia sjö þjóða, sem fari til landamáera Sýrlands og Ilauiínióiið: Fjórar umf. búnar. Fjórum umferðum er lokið í Haustmóti TafKélags Reykjavik- ur. I þriðju umíerð fóru leikar þannig að Gtmnar Gunnarsson vann Reimar Sigurðsson, Kári Sólmudarson vann Ragnar Em- ilsson, Kristján Theodörsson vann Guðmund Aronsson og Guðmundur Ársælsson vann Guð mund Magnússon. Jafntefli gerðu Sveinn Kristinsson og Ól- afur Magnússon. Ein skák fór i bið. I fjórðu umferð, sem tefld var í gærkveldi vann Kári Kristján Sylveríusson, Sveinn vann Ragn- ar og Reimar vann Guðmund Magnússon. Jafntefli gerðu Guð- mundur Ársæísson og Guðm. Ar- onsson, ennfremur Ólafur og Gunnar. Ein skák fór í bið. Nú eru þeir Kári Sólmundar- son og Guðm. Ái'sælsson efstir að vinningum með 3 vinninga hvor eftir 4 skákir og næstur þeim Sveinn Kristinsson með 2% vinning eftir 3 skákir. Fimmta umferð verður tefld í kvöld. Tyrklands og geri athuganir sínar beggja vegna við þau. Hin er borin fram af nokkr- um þjóðum, sem vilja að málið verði lagt í hendur Hammar- skjölds, er hafi samband við ríkisstjórnir deiluaðila og geri þafít, sem hann telur nauðsyn- legt í málinu. Fulltrúi Breta sagði, að það hefði aldrei verið nein hætta á því, að Tyrkir gerðu innrás í Sýrland, og vék hann einnig að þeim orðum Krúsévs, að það yrði engin styrjöld, og maeííi því ætla, að það væri nú skoðun ráðstj órnarinnar, þrátt fyrir allt, sem á undah væri gengið. Líklegt þykir, að seinni til- lagan hafi meiri byr. Bretar og Bandaríkjamenn fylgja henni og ýmsar aðrar þjóðir. Myndin er af brezkum sprengjuflugvélum í hóp- flugi yfir Suður-Englandi — og er hver af isinn gerð', þvi að þetta eru gerðirnar Vulcan, Valiant og Victor, og er fyrsta myndin, sem hefur verið tekin af þeim saman í hópflugi. Victor er efst, þá Valiant og neðst Vulc- an. Hver þessara flugvéía um sig hefúr f jóra hreyfla og getur flogið hraðara en hljóðið'. ión Sigurisson IWí tkatiiaðar- nesi„ í nótt bar að höndum andlát Jóns Sigurðssonar frá Kaldað- arnesi, fyrrverandi skrifstofu- stjóra Alþingis, Hann iiafði átt við veikindi að stríða á undan- gengnum mánuðum. Jón heitinn var- sonur Sig- urðar Ólafssonar sýslumanns í Árnessýslu og konu hans, Sig ríðar Jónsdóttur. Auk þess sem J. S.. var skrifstofustjóri Al- þingis um langt árabil, gegndi hann öðrum trúnaðarstörfum. Hann var og kunnur og vinsæll rithöfundur og upplesari. Þessa þjóðkunna, mæta nianns, verður nánara getið síðar hér í blaðina. Krafizt endnrsk oðuiiar á tekj uliaictiim l»æ|ar£élaga. Veltui'utsvönn verði látin ná tíl samvinnufélap. Færft batnar á fjaUvegum. HoVtavörðuheiði var rudd norðantil i gær. Færð er talin hafa batnað á ýmsiun fjallveguni, sem þung- færir voru oirðnir, Er það hvorfc tveggja að sumir vegirnir hafa verið ruddir með moksturvélum, en annars staðar hefur snjórinn sjatnað vegna hláku. Umferð austur fyrir Fjall hef- tu’ að mestu verið um Krýsuvík- urveg, en þó hafa mjólkurbílarn ir og nokkrir aðrir stórir bílar fai’ið Hellisheiði alla dagana. 1 gær versnaði færðin mikið á Ki’ýsuvíkurveginum þegar tók að hlána og var þungfær um tíma fyrir litla bíla. En Vegagerð in sendi hefla á veginn og í dag mun hann vera greiðfær. I gærkveldi fór tíu hjóla trukk- ur frá Vegagerðinni yfir Hellis- heiði og var færðin þá enn all- þung. 1 morgun fóru mjólkurbíl- arnir yfir heiðina og tjáðu mjólk urbilstjóramir Vísi að færðin hafi batnað til muna á fjallinu og snjórinn sjatnað. Þó er þar ennþá ökla — og allt upp í kálfa- snjór á veginum og verður að teljast þungfær a. m. k. fyrir litla bíla. Hoitavörðuheiði var rudd norð- an til í gærdag frá sæluhúsinu á háheiðinni ognorður úr, þ. e. þannig að hún á að vera greið- fær i dag. Bilar fóru yfir Öxnadalsheiði i gær en töldu hana mjög þung- færa. Eftir liví sem blaðið „íslend- ingur" á Akureyri skýrði frá fyrir nokkrum dögum var í september haldinn þriðji full- trúafundur kaupstaðanna á Vestur-, Norður- og Austur- landi. Þar sem þessa fundar hefur ekki áður verið getið, þykir rétt að birta samþykkt fundarins, sem er svohljóðandi. „Þriðji fulltrúafundur kaup- staðanna á Vestur-, Norður- og Austurlandi skorar á rílds- stjórnina að hlutast til um, að lög um útsvör og önnur lög, sem snerta útsvör, séu sem allra fyrst tekin til gagngerðrar end- urskoðunar. Telur fundurinn eðlilegt, að ný útsvarslöggjöf feli í sér eftirfarnadi ,m. a.: 1) Ýmsum stofnunum, sem ekki eru í starfsemi sinni bundnar ákveðnum sveitarfé- lögum, verði gert að greiða út- svör, er renna skuli í sérstakan sjóð, sem gangi til að standa| undir ákveðnum útgjöldum, sem nú hvíla á sveitarfélögun- um. Stofnanir, sem hér er átt við eru m. a. ríkiseinkasölur, samvinnusambönd, tryggingar- félög, isölusambönd og bankar, 2) Settar veröi reglur um útsvarsgreiðslur fyrirtækja, er atvinnu eða verzlun reka víða um land og sé með þeim tryggt, að hlutur sveitarfélaga í dreif- býlinu verði ekki fyrir borð bor inn í þeim viðskiptum. 3) Sett verði ákvæði um há- mark veltuútsvara í hinum ýmsu greinum verzlunar og at- vinnurekstrar, og þau látin ná til alls reksturs samvinnufélaga, sem og alls annars reksturs. Slík veltuútsvör séu frádráttar- bær frá skatt- og útsvarsskyld- um árstekjum fyrh’tækisins.“ Athyglisvert í samþykktinni er það, að krafist er að veltu- útsvör séu frádráttarbær frá skatt og útsvarsskyldum árs- tekjum gjaldenda. Bæjarfélög- in horfa nú fram á að veltu- útsvörin í núverandi mynd, geta ekki gengið öllu lengur. í þessu sambandi er rétt að geta þess að komið er fram á Alþingi frumvarp til laga um velutútsvör (flm. Björn Ólafs- son), sem gerir ráð fyrir heim- ild fyrir bæjarfélögin að legg'ja á veltuútsvör, ailt að 3%, sem gjaldendur megi taka tillit til I verðreikningum sínum. Ef þetta frv. er samþykkt er frá- dráttarheimildin óþörf. Féll Zukov ekki í ónáð? Miðstjórnin hefur nú lokið fundum sínum út af ágrein- ^ ingnum sem varð til þess, að Zhuliov var Ieystur frá störf- um, en Krúsév vildi auka af- jskipti þeirra, en .Zhukov hefur staðið gegn því. | Þetta er álit fréttaritara tveggja kunnustu kommúnista- blaða Evrópu, hins ítalska Unita og L’Humanité í París. I Frétaritararnir segja, að Zhukov hafi ekki „fallið í ónáð.“ Ekki hefur enn verið birt nein opinber tilkynning um niðurstöður miðstjórnarinnar og hvert framtíðarhlutverk Zhukov sé ætlað. AflasöVur í Grimsby. Þorsteinn Ingólfssom seldi afla sinn í Grimsby í gær, 145 lestir fyrir 455,700 ísl. krónur. Skúli Magnússon seldi afla sinn einnig í Grimsby í gær, 122 lestir fyrir 330,000 ísl. kr. Húsavík var símasambandslaus. IHviArí gerði með veírarktnuu. • Formaður Kjarnorkuráðs Bandarikjaima liefur til- kynnt, að úraniumbirgðir séu nægar og kaup á uranium verði ekki aukiii frá því sem nú er. , Frá fréttaritara Vísis Húsavik í gær. Veturinn gekk í garð á „rétt- um“ degi með stórhríðarveðri í Þingeyj arsýslu. Var slydduhríð svo mikil og vond, að telja verður með verri veðrum sem gerast. Óveðrið skall á seint á laugardaginn og hélzt fram eftir nóttu. Veðrið olli tjóni á simalínum þvi krapa hlóð á línurnar og varð síðar að ísingu. Við þetta kipptust allmargir símstaurar upp og kubbuðust sundur og hef- ur Húsavik verið símasambands- laus frá því á laugardagskvöld og þar til í dag að bráðabirgða- viðgerð hefur farið fram. Alls brotnuðu 12 símastaurar í nánd við Laxamýri og 3 símastaurar norður á Tjörnesi. Nú er alhvít jörð nyrðra, en ekki mikill snjór á láglendi. Á Vaðlaheiði er komin þung færð, en bílar hafa samt komizt yfit’ hana til þessa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.