Morgunblaðið - 19.07.1914, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.07.1914, Blaðsíða 8
1192 MORGUNBLAÐIÐ 5. Þ.ál.till. um veitingu pr.kalla (105), ein umr. 6. Ldsbankaútibú á Austuri. (107), ein umr. 7. Afnám eftirlauna (109); ein umr, 8. Lögg. verzlunarst. við Kóllafj. í Strandas. (120); 1. umr. ------------iSs-.....—-------- Kvikmyndaleikhúsm. Gamla Bíó sýnir í kvöld mynd- ina íLolotte litla«, sem erlendis hefir vakið geysi mikla athygli. Það sem maður hlýtur að dázt mest að, er leikur Súzönnu Privat, sjö ára gömlu stúlkunnar, sem leysir aðalhlutverk- :ið svo snildarlega vel af hendi að undrun sætir. — Myndin er bæði falleg og skemtileg. X. Kommóöa, barnsvagga, borð smærri og stærii, rúmstæði o. fl. með tækifærisverði á Laugaveg 22 (steinh.). ^ £aiga Barnlaus hjóu óska eftir 2—3 herbergja ibúð ásamt eldhúsi nú þegar. Areiðanleg borgun. Til- boð merkt »íbúð« sendist Mbl. Herbergi til leigu fyrir ferða- fólk. Uppl. Lækjarg. 12 b (niðri). ferðast til þeirra staða sem þar eru sýndir og sjá þá ekki öllu meira en hér gefst kostur á að sjá. Skemti- legar dýramyndir fylgja með í kaup- bæti. Z. Nýja Bíó hefir nú orðið við margítrekuðum tilmælum bæjarbúa um það að sýna smámyndir til til- breytingar. Og ekki er ólaglega af af stað farið. Fyrst er sýnt lifandi fréttablað, sem ætíð er bæði fróð- legt og skemtandi. En auk þess eru þar forkunnarfagrár landlagsmyndir, sem allir ættu að sjá. Það kostar ekki mikið að fara í leikhúsið, en margir menn eyða stórfé til þess að ekki kunnugt um, hversu örðugt að- stöðu íslenzkir fræðimenn hafa átt, og hversu tilfinnanlega þá hefir vana- lega skort samúð þeirrar þjóðar, sem þeir eru þó að vinna fyrir. Eg segi eru, því að Sveinbjörn Egilsson t. a. m. er ennþá að vinna fyrir þjóð- ina, verkin hans lifa og ávextir þeirra. Fjarri er það mér að ætla að hvetja nokkurn mann til haturs við minn- ingu Munchs, sem var mikill merkis- maður, þó að hann tæki svona skakka stefnu í þessu aðalmáli. Og mik- inn skaða hefir þó þessi misskiln- ingur Munchs, og þeirra sem hon- um fylgdu, gert bæði íslendingum og Norðmönnum. En nú ætti þess- ari óskynsemi að vera lokið; mundi bæði Norðmönnum og íslendingum verða það til mikilla þrifa að taka upp vináttu með frændsemi sín á milli. Hafa Norðmenn margt til þess að geta launað íslendingum þroskasamlega það lið, sem þeir mundu þiggja héðan til viðreisnar máli sínu. Mundi framtíð norræn- mnnar geta orðið ennþá glæsilegri en fortíðin var, því að þar var þekk- ing of skamt á veg komin og of mörg höggin og sárin. IV. Þrátt fyrir það sem sagt var í upp- hafi ritgerðar þessarar, þykir mér sem mörgum, býsna skemtilegt til þess að vita, að íslendingar eigi sinn eiginn fána. Og þó að Hvítbláinn, sem nú hefir tíðkast um hrið, sé fagurblaka mikil, þá er þó fáninn bragðmeiri við loft að sjá, sé rauði liturinn með, og mun eg ekki þurfa að útlista, hversu vel mér finst það eiga við, að litirnir í fánanum ís- lenzka séu hinir sömu og fánalitir Norðmanna. Athygli manna skal leidd að því, að í allan dag verða vélbáts- ferðir milli Viðeyjar og Reykjavikur. Er það gott fyrir þá, sem vilja létta sér eitthvað upp, en hafa ekki tæki- færi til þess að fara langt út úr bænum. Viðey er einhver skemti- legasti staðurinn hér nærlendis. Menn geta eytt þar öllum deginum frá morgni til kvölds ef þeir vilja. En að blátt sé aðalliturinn er al- veg sjálfsagt. Bæði minnir blái lit- urinn á sæinn, sem blákringir alt þetta land, og svo á blómið blá, sem einmitt vex hér, þó að ekki beri mikið á þvi. Aðalástæðan til að hafa bláa litinn, er samt sú, að blátt er fremur öðrum, litur ættgöfginnar. En íslendingar eru af hinu göfgasta kyni, þó að mjög sé dregið af oss mörgum, og býsna dýrt hafi verið að varðveita hið dýrsta mál. Um marga af landnámsmönn- um er þess getið, að þeir voru af konungaættum, um ýmsa að þeir áttu til konunga að telja í karllegg, og óefað hefir svo verið um fleiri en sagt er. Liggur það nær í aug- um uppi, hvers konar fólk það var, sem gat ráðizt í að nema ísland, þegar einn af ættinni gerðist ofríkur heima fyrir. En mörg saknaðarhugs- un mun þó flogið hafa austur til æskulands og ættar, og ennþá er öðruvísi að koma til Noregs en ann- ara landa. Þess er getið um suma af þeim sem töldu ætt sína í karllegg til kon- unga, að þeir hafi riðið í blárri kápu; svo er um Hall af Siðu, og Gunnar Baugsson, föður Hámundar föður Gunnars á Hlíðarenda; var Gunnar af írskum konungi kominn i karl- legg. Einnig er sagt um Egil Skalla- grímsson og um Njál að þeir hafi verið í bláum kápum, og löngu siðar Sighvatur Sturluson, bróðir Snorra. Voru þessir allir sem eg nefndi, mikil- menni og stórættaðir og líklegir til að vera tiginbornir lengra fram, en ætt þeirra er talin í sögum. Um Ara fróða og Sæmund i Odda er það kunnugt, að þeir töldu ætt sína til Oðins í karllegg og fornkonunga sem þaðan voru komnir, og er eng- in ástæða til að ætla, að ætt þess sem bezt hefir frá Óðni kunnað að segja og konungum, hafi verið minni. (16.) 17. 7. Helgi Pjeturss. Mótorferjubáturinn flytur fólk milli Reykjavikur og Viðeyjar i dag. Fer frá steinbryggjunni kl. 9, 11, 1, 3, S, 7 og 9 og frá Viðey kl. 10, 12, 2, 4, 6, 8 og 10. Farseðlar fást á steinbryggjunni og kosta 50 aura báðar leiðir. Pjóðfjáííðin 2 ágúsf. Þeir, sem vilja fá leyfi til veitinga á íþróttavellinum 2. ágúst, snúi sér til hr. verzlunarstjóra L. Múller í Braunsverzlun fyrir sunnud. 26, júli. éSrœnar Baunir frá Beauvais eru ljúffengastar! Galv. Vatnsfdtur og Balar Gas-katlar í verzlun O. Amundasonar. Pjóðf)áfíðin 2 ág. Þar verða sýndar þessar íþróttir: 1. 100 stiku kapphlaup. 2. 800 stiku kapphlaup. 3. 400 stiku boðhlaup. 4. Islenzk glíma. 5. stangar- stökk. 6. Hlaup kringum Reykjavík. 7. Reipdráttur. 8. Pokahlaup. 9. Knattspyrna. ^ Þeir, sem vilja taka þátt í þessum iþróttum, snúi sér til Magnúsar Tómassonar verzlm. í Liverpool fyrir 26. júlí. Páttur Tjaffa - Euvindar effir Gísia Honráðsson er rtdkominn á bókamarkaðinn. c7iosfar að eins Rrónur 0.50. BW1^» LtÖGMENN 1 Sveinn Bjðrnsson yfird.lögm. Hafnarstræti 22. Sfmi 202. Skrifstofutimi kl. io—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6. YÁTi^YGGINGA^ Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabótafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurance Forening limit Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. Eggert Claessen, yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulega heima 10—11 og 4—5. Sfmi 16. Carl Finsen Austurstr. 5, Rvík. Brunatryggingar. Heima 6 J/4—7 i/4. Talsími 331. Bogi Brynjólfsson, yfirréttar málaflutn.m. Hótel Island. (Aðalstr. 5). Venjulega heima 12—1 og 4—6. Talsimi 250. ELDUR! Vátryggið i »General«. Umboðsm. SIG. TH0R0DDSEN Frlkirkjuv. 3. Heima 3—5. Talsfmi 227. Kanpið Morgunblaðið. Auglýsið i Morgunblaðinu Kaupendur Morgunblaðsins eru vinsamlegast beðnir um að borga blaðið á skrifstofu blaðsins, Austurstræti 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.