Morgunblaðið - 03.07.1915, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.07.1915, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Utan af landi. Jón Pálmi, er verið hefir i gæzluvarðhaldi á Sauðárkróki út af seðlafölsuninni al* kunnu, er nú sagt að sé sloppinn, og vita menn ekki hvar hann er niðurkominn, en talið líklegt að hann hafi komist í skip og sé strokinn til útlanda. Fundin mannabein. Á Auðbrekku i Hörgárdal hafa fundist mannabein, er verið var að grafa fyrir heyhlöðu, sem þar á að byggja. Eftir tilmælum Matthíasar Þórðarsonar fornmenjavarðar fór sr. Jónas Jónasson þangað vestur í fyrra- dag til þess að athuga beinin. Segir hann þarna vera gamlan grafreit. Flutningabifreið ætla Þingeyingar að hafa í sumar á akbrautinni milli Húsavíkurog Breiðu- mýrar. Bifreiðarstjóri verðpr Kári Arngrímsson frá Ljósavatni. íslendingur. r—i DAG13ÓIÍIN. I Aftnæli í dag: Asta Arnadóttir málari. Guðný Helgadóttir húsfrú. M. A. Bendsen húsfrú. Asg. Eyþórsson kaupm. Björn Bjarnason dr. Hallbj. Halldórsson prentari. Ófeigur Vigfússon pr. Feilsmúla. Þorst. Briem pr. Grund. f. KonráS Gíslason 1808. Sólarupprás kl. 2.11 f. h. S ó 1 a r 1 a g — 5.44 síðd. Háflóð í dag kl. 9.39 og í nótt — 10.2 Veðrið í gær: Vm. a. st. gola, hiti 8.0. Rv. a. gola, hiti 10.2. íf. a. gola, hiti 10,1. Ak. logn, hiti 9.8. Gr. logn, hiti 10.0. Sf. logn, hiti 7.3. Þh. F. s.a. kul, hiti 10.0. P. Hein forstjóri vólaverksmiðjunnar dönsku, sem býr til Hein-motorana, kom hingað á Flóru í fyrrakvöld. Hestnr fælist. í gær fældist heBt- ur fyrir mjólkurvagni frá Lágafelli. Var það fyrir ofan Elliðaár í Artúns- brekku. Vagninn brotnaði og spiltist mjólk en ökudrengur meiddist. Síðastliðinn sunnudag fóru þeir Theodor Arnason, Emil Thorodasen og Loftur Guðmundsson inn á Vífilstaða- hæli og lóku þar á fiölu, piano og orgel fyrir sjúkliugana. Það var fallega gert. Helgi Jónsson grasafræðingur er nýfarinn til Vesturlands í rannsókn- arferð. Margir þingmenn komu hingað á Floru í fyrrakvöld, þeir Stefán Stefáns- son, Þórarinn Benediktsson, Steingrím- ur Jónsson, Björn Hallsson og Björn Þorláksson. Nýtt embætti var stofnað á bæjar- stjórnarfundi hinum síðasta. Er það umsjónarmannsstaða við höfnina og eru árslaun ákveðin 2000 kr. fyrsta árið, en 3000 kr. upp frá því. Ökmnaður Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson biður oss geta þess, að ekki hafi það verið hans vagnhestur sem fældist í Suðurgötu í fyrradag. Kvaö hann það venju sína ætíð að binda hestinn, þegar hann gengi frá honum, og slíkt hið sama ættu allir ökumenn að gera. 25 ára stúdentar. í blaðinu í gær voru þessir vantaldir í 25 ára stúdenta- talinu: Síra Sigurður Jónsson prestur á Lundi, síra Gísli Jónsson á Mosfelli, Kjartan Kjartansson prestur á Stað í Grunnavík og Aage Schierbeck læknir í. Danmörku. Tveir eru dánir: Sigurð* ur læknir Pálsson og síra Filippus Magnússon. Messað á morgun í fríkirkjunni í Reykjavik kl. 12 (Ól. Ól.) engin sið- degismessa. Matsnefnd hafði verið skipuð til að meta tjón það, er Frederiksen kola- kaupmanni stafaði af uppfyllingunni í fjörunni þar fyrir framan. Hann hefir landið og fjömna leigt af landstjórn- inni, en eigi bæjarstjórninni. Matsnefndin dæmdi honum 4000 kr. skaðabætur — en af því eru 1200 kr. skaðabætur fyrir tjón á dráttarbraut, sem timbur- og kolavarzlunin hefir lát- ið gera. En nú hefir hafnarnefnd stefnt verzluninnni fyrir það, að hafa bygt þá dráttarbraut í leyfisleysi, svo eigi er að vita hvernig fer. — Yfir- matsnefnd fjögra manna hefir verið skipuð og uppfyllingunni er haldið áfram. Nýja Bíó bauð oss á sýningu tii sín í gær og gat þess jafnframt að nú væri meira á seiði en venjulega. Nú væru það ekki neinar loddara- eða leikara-myndir heldur sannar myndir frá ófriðnum. Það vissum vór fljótt, að ef svo væri, þá ætti kvikmyndahúsið þakkir fyrir það skilið, að hafa flutt slíkar myndir. Því nú er svo komið að heiminum er ekki nóg að h e y r a , hann verður einnig að sjá. Nú er svo vel að við íslendingar erum að eins h e y r n a r- v o 11 a r, en okkur þykir þó gaman að því að vera einnig sjónarvott- a r — auðvitað ábyrgðarlaust. Og hve- nær gefst okkur betra tækifæri til þess heldur en þegar okkur eru boðn- ar sannar kvikmyndir af undirbúningi hernaðarþjóðanna og framkvæmdum þeirra. Það er að minsta kosti góður leiðarvísir fyrir þá sem hafa lesið fregnir Morgunblaðsins af ófriðnum — og það eru flestir. Vór viljum ráða öllum til þess að sjá þessar myndir. Knattspyrnnkappleiknr stendur til að fram fari á morgun hér á íþrótta- vellinum, ef veður leyfir. Eru það knattspyrnufólögin »Fram« og »Valur« sem þar reyna sig. Heimilisiðnaður. í gær var haldin sýning í Barna- skólanum á handavinnu þeirri, sem gerð hefir verið á heimilisiðnaðar- námskeiðinu. Sýningin var ekki stór, en þó furðu stór, þegar þess er gætt hve tíminn var stuttar og nemend- urnir fáir. En hún var ágætt sýnis- horr þess hvað gera má á hverju heimili landsins með sáralitlum til- kostnaði en ákaflega miklum sparn- aði. Þarna var sýndur allskonar vefn- aður — glitofnir dúkar, gólfdúkar, handklæðadúkar, kjólaefni, borðdúkar o. s. frv. Smíðisgripir: burstar, sóflar, blómpottastólar og alls- konar körfur úr strái og basti. Allir voru gripir þessir verðlagðir eftir því sem efni hefir i þá kostað. Er það gert til þess að sýna mönnum fram á hve efnið i slika gripi kostar ákaflega litið í samanburði við grip- ina fullsmiðaða. Mismunurinn hlýt- þvi að liggja í vinnunni sem til smið- arinnar gengur. Við skulum taka dæmi. Efnið í fatabursta, sem kost- ar hérum bil i krónu i búðum hér, kostar eigi nema 40 aura eða tæp- lega það. Alt það bast, sem keypt var til iðnaðarnámsskeiðsins, kostaði eigi nema 5 krónur. En úr því voru gerða ótal körfur og verð þeirra mun hafa numið mörgum tugum króna. Neméndur voru látnir sitja fyrir að kaupa smiðisgripi sína og urðu flestir til þess, en þó var nokkuð selt öðrum, einkum vefnað- arvörurnar. Sú er tilætlun Heimilisiðnaðar- félagsins, að kenna mönnum að gera nytsama hluti, sem fá áhöld þarf til að gera eða engin, önnur en hendurnar. Fjölda mikið af þeim iðnaðarvörum, sem keyptar eru fyrir ógrynni fjár hér á ári hverju mætti gera á hvers manns heimili. Og þegar þess er gætt, að menn greiða meira fyrir vinnuna en efnið i hlut- inn, þá hlýtur hverjum manni að verða það ljóst hvílíkur sparnaður það yrði landinu, ef mönnum lærð- ist að nota fristundir sínar til þess að vinna heima fyrir sjáfan sig eða aðra. Græddur er geymdur eyrir, og gróði landsins eykst við það ef landsmenn læra að spara, læra að nota timann betur en áður. Heimilisiðnaðarfélagið er hið þarf- asta fyrirtæki og á það skilið að allir góðir menn styrki það með ráðum um og dáð. Það er ungt enn þá og á auðvitað við lítil efni að búa og viljum vér hvetja alla, sem efni hafa á því — og það hafa flestir — að styrkja félagið með því að ganga í það. Iðgjaldið er eigi nema 2 krónur á ári og um það munar fáa, en fyrirtækið munar um hverjar tvær krónur, enn sem komið er. Þingið veitti félaginu 500 króna styrk i fyrra. Þvi fé hefir eigi verið kastað í sjóinn. Vonandi sér þing$ í sumar sér fært að veita félaginu hærri styrk. Það verður landinu þúsundfaldur hagur. 1. júli ’iý Grútarbræðslan. Mikið var um það mál rætt ú fundi bæjarstjórnar 1. júní hvat grútarbræðsla skyidi framvegis vera i bænum. Risu þær umræður út af því að Þorsteinn Jónsson á Seyö- isfirði hafði sótt um leyfi til þesS að hafa lifrarbræðslu í Austurkotir sem stendur fram við Skerjafjörð- Fasteignanefnd hafði haft mál- ið til meðferðar, en leizt ekki ráð að leyfa grútarbræðslu þar. Þótti henni, sem satt er, tími til þess kom- inn að fara að ákveða hvar grútar- bræðslustöðvar skyldu veia í fram' tiðinni. Nú sem stendur eru þær alt umhverfis bæinn — i Örfirisey, á Þor* móðsstöðum og inni í Vatnagörðum- Að vísu gat borgarstjóri þess, að grútarbræðsluna i Örfirisey ætti að flytja þaðan hvenær sem bærinU heimtaði það. (En hvenær verðut það ?) Hann sagði ennfremur, að að sínu áliti væri það heppilegast að hafa grútarbræðsluna innan við bæinn eða þar í grend, því vindur stæði sjaldo- ast af þeirri átt og því minst hætta á því að grútarþefinn legði inn ' bæinn. Beuedikt Sveinsson var þv' ekkert mótfallinn að Þorsteini ytð1 leyfð grútarbræðsla þama fram Gerði það minst til fyrst lifrarbræðsla væri á Þormóðsstöðum og svo stæði vindur sjaldan af þeirri átt. Tryggvl stakk upp á því að hafa grútar* bræðslustöðvarnar fyrir vestan bæ> t. d. á Eiði, því hann væri sjalda0 á vestan hér í Reykjavik, en HanO' es Hafliðason gaf þær upplýsing*r> eftir reynslu sinni sem gamall skiþ' stjóri, að hér i bænum kæmi «áttin* úr öllum áttum. Það væri því 0111 að gera að safna öllum bræðsln' stöðvunum saman á einn stað, sV° bæjarmenn hefðu ekki grútarþefiöD í nösunum nema úr einni *tt; Borgarstjóri vildi að málinu yr^ visað til heilbrigðisnefndar til nm' sagnar. Það vildi Tryggvi ekki me neinu móti, því það væri áreiða0, lega einhver vitlausasta nefndin bæjarstjórninni. Auk þess kvað han° ekki geta komið til mála að þet^, heyrði undir hennar verkahring> P { grútarlyktin væri holl. Það bezt á því að mönnum, sem he verið við grútarbræðslu alla sína & hefði aldrei orðið misdægurt. því nær að fresta málinu og ^ því aftur til fasteignanefndaf kæmi hún svo með tillögur s t um það hvar hún áliti hepP1^^ að hafa grútarbræðslustöðvar r ^ vegis. Var sú tillaga samþyk1’^. önnur tillaga um það að vtSS ejij' inu til beggja nefndanna í sa ngu fékk með þvi engan byr'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.