Morgunblaðið - 10.09.1915, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
BiðÍið kaupmann yðar um
„Sanital"»«„61obe“
Viadla.
^únir til af van der Sanden & Co.
Rotterdam.
Flóttameon.
Vér gátum þess fyrir nokkru, að
e'nn af þýzku flugmönnunum, sem
Banir höfðu geymda í Odense,
hefði strokið úr varðhaldinu og eigi
spurst til hans siðan. Nú eru þó
komnar fregnir af honum. Hann
skrifaði sjálfur frá Hamborg til her-
stÍórnarinnar í Odense til þess að
iáta hana vita að sér hefði gengið
ferðin vel!
Eigi alls fyrir löngu reyndu og
tveir þýzkir flugmenn að strjúka frá
Álaborg, en þeir náðust aftur sam-
^ægurs í Glistrup. Höfðu þeir þá
kastað einkennisklæðum sínum, þvi
einhver hafði verið svo hugulsamur
að lauma fötum inn í varðhaldið til
þeirra. Vita Danir hvorki upp né
öiður — og skilja sízt í þvi hvern-
í fjandanum þeir hafa farið að
strjúka eða ná í fötin án þess varð-
mennirnir yrðu þess varir.
Blöðunum er farið að gremjast
það að þetta skuli koma þannig fyr-
ir hvað eftir annað. Meðal annars
segir »Köbenhavn«:
Maður á bágt með að trúa því að
fregnirnar um þessa flótta séu sann-
®r. Getnr það skeð að það sé svo
öiiklum vandkvæðum bundið að gæta
fáeinna kyrsettra hermanna hérí landi ?
Herlið vort hefir til þessa eigi haft mik-
ið annað að starfaen gæta, þeirra og
það er eigi gott afspurnar, að vér
getum eigi gætt þeirrar þjóðréltar-
skyldu. Þessi atvik kasta leiðinlegri
kirtu yfir ástandið hér í landi og
eru með öllu óverjandi.
Skipaáreksturinn.
Sem betur fer lítur út fyrir, að
^fleiðingar áreksturs skipanna,
Eánar og Víðis, verði eigi eins al-
Varlegar og búist var við í fyrstu.
í'róttaritari vor á Akureyri sím-
aði oss i gær á þessa leið:
— Það var á hádegi í gær.
Skipiri voru í síldartorfu undan
^orðfirði á Ströndum, þegar
^reksturinn skeði. Gat kom á
^íði fyrir ofan sjó, en Rán rifn-
aði nokkuð að framan, þar sem
^kkerin eru. Bæði skipin kom-
^st við eigin ramleik hingað til
^■kureyrar og lögðust hér við
bryggju. ‘ Víðir hafði dálítið af
siffl, sem flutt var á land.
Bjarni Þorkelsson skipasmiður
skipstjórinn á Mjölni hafa
v®rið fengnir til þess að meta
fjónið. Gert var við bæði skipin
bráðabirgða í dag, og eru þau
^ói farin aftur á síldveiðar.
Nokkrir
happdrættismiðar
Det Danske Kolonial (Klasse) Lott-
eri, óskast keyptir nú þegar.
Tilboð merkt »100«, sendist
Morgunblaðinu.
Tómir kassar
smáir og stórir
fást í
Liverpool.
Otto Mönsteds
Marg-arine (Tip Top)
er lang ódýrust og drýgst feiti
til að steikja i.
Fæst í 60 aura stykkjum sem
vega yfir Ya kilo,
í verzlun
Halldórs Gunnlögssonar
Laugavegi 5.
E i 11 stórt herbergi i Miðbænum
til leign fyrri hlnta dag-ins. Hentngt til
kensln eða ritstarfa. R. v. á.
LitiÖ herbergi með sérinngangi
og einhverjnm húsgögnnm óskast til leign
fyrir mann, sem oftast eða að eins er
heima nokknrn part nætnrinnar. Tilhoð
3Ö3 sendist Morgunbl.
cTapaé ^
V e s k i með peningnm í hefir tapast í
Þingholtsstræti. Skilist til frú Finnboga-
sonar, Þingholtsstræti 23.
Kjötvérð í Lundúnum.
Nýtt nautakjöt kostaði 43*/2 %
meira júlimánuði í sumar heldur en
I fyrra. Nýtt sauðakjöt kostaði að
eins 1 s % meira. Innflutt nauta-
kjöt hafði hækkað um 74 °/0 og inn-
flutt sauðakjöt um 50 °/0.
Hér í Reykjavík á sauðakjötið að
kosta 70 °/0 rneira heldur en í ýyrra.
Sarah Bernhardt.
Hin heimsfræga leikkona Sarah
Bernhardt varð veik í fæti i vetur
og varð að taka af henni fótinn.
Hún er þó ekki hætt að leika fyrir
þvi. 16. ágúst kom hún i fyrsta
skifti fram á leiksvið, eftir legu sina.
Það var i Bordeaux. Var henni tek-
ið þar með sndalausum fögnuði.
Hross
3—9 vetra, 50 þuml. og þar yfir, kaupir háu verði
til 20. september
Oskar Halldórsson.
Sími 422.
Skrifstofa
Morgunblaðsins
er flutt
í Pósthússtræti 11,
þar sem skrifstofur Miljónarfélagsins
voru áður.
Þangað ©r afgreiðslan einnig flutt.
Illll*
Búð fil leieu.
Búðin i Pósthússtræti ii, þar sem afgreiðsla Morgunblaðsins hefir
verið undanfarið, fæst leigð nú þegar. Bak við búðina er herbergi,
hentugt til skrifstofu eða geymslu.
Upplýsingar gefur
Carl Proppé.
Byggingarnefndin
i Reykjavik
gefur hérmeð til vitundar, að hún heldur reglulega fundi á laugardögum
næstum fyrir i. og 3. fimtudag hvers mánaðar og verða á hverjutn
fundi ekki tekin fyrir önnur mál, en þau, sem komin eru til byggingar-
fulltrúa 2 dögum áður.
Verð á steinolíu þeirri sem Fiskifélagið á von á i lok þessa mán-
aðar er ákveðið
33 kr. tunnan,
þó að eins með því móti að tunnurnar séu teknar um leið og þær koma
i land.
Stjórn Fiskifélagsins.