Morgunblaðið - 16.01.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1917, Blaðsíða 1
Þriðjndag 16. jan. 1917 4. argangr 73 tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 j Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. |Isafoldarprentsmiðja Lífíð f)Ú5 á góðum stað í bænum óskast keypt nú þegar. Menn snúi sér til undir- ritaðs fyrir 20. þ. mán. Lárus Tjeldsfed. DANSKENSLA. I kvöld kl. 9 byrjar kensla á nýtízkudönsum. Ef fleiri óska að læra þá, geri þeir svo vel að láta mig vita. Annað kvöld byrja almennir dansar. Stefania Guðmundsdóttir, heima kl. 3—5. Af glapstigum (Bort fra Synden). Akaflega spennandi sjónleikur í 4 þáttum. Aðalhlutverkið leiknr hia heims- fræga ítalska leikkona Mlie Marie Oarmi, hin sama sem lék aðalhlntv. i hinni ágætn mynd »Svartklædda hefndar- konan«, sem sýnd var i Gl. Bið i fyrra. Tölus. sæti kosta 60, alm. 40. Börn fá ekki aðgang. K. F. 0. £. Saumafundur kl. 3 og 8. 1. F. U. M. Biblíulestur í kvöld kl. 81/2 Allir ungir menn velkomnir. Beauvais Leverposte} er bezt. Goðafoss. Það er nú fastráðið að gerð skuli önnur og meiri tilraun til þess að ná Goðafossi út. Kapt. C. Trolle sem er umboðsmaður vátryggingar- félags þess hér á landi, sem trygt hafði Goðafoss, hefir dú rannsakað legu skipsins vestra og ákveðið að fá hingað annað björgunarskip til þess að aðstoða Geir við björgunina. Mun það skip vera væntanlegt hingað fyrir mánaðarlok og heldur þá beint vest- ur á strandstaðinn. Björgunarskipið er frá sama félagi og Geir. Það er ætlun manna, að tvö góð björgunarskip, með sterkum dælum, muni geta dælt skipið svo mikið, að hlerar neðri lestanna verði þéttaðir og að skipið muni þá geta ftotið í höfn. — Skipin fara bæði vestur í lok mánaðarins og búa alt undir að draga skipið af grunni dagana 8—10 ■ febrúar, þegar stórstreymt er. • Hugir allra landsmanna munu fylgja þessari björgunartilraun með miklum áhuga. Því eigi væri það lítils virði fyrir oss íslendinga að eignast skipið aftur. Lokun búða. Flestir kaupmeon bæjarins hafa nú tekið upp þann góða sið að loka búðum ánum klukkan sjö að kvöldi. Er það stór framför frá því sem áð- ur var, meðan búðum var haldið opnum fram á nótt. Og þótt ein- staka kaupmenn haldi enn i gamla ósiðinn, þá munu þeir þó áður en langt um líður hverfa frá honum. Bæði er það að fólk venst af því að geyma vörukaup sín fram yfir klukk- an sjö og svo er hætt við að þeim verði ekki vel til verzlunarmanna sem hafa óhæfilega langan vinnutíma. Það væri anna«s nógu gaman ef einhver hagíræðingur vildi reikna það hvað kaupmenn græða mikið á þess ari nýju tilhögun, með því sem spar- ast i Ijósmeti. Gasið er orðið dýrt og verzlanir eyða tiltölulega mestum hluta ljósgassins. En á hinn bóginn þarf engan speking til þess að sjá það, að þeir tapa engu. Verzlunin minkar ekkert við það, þótt búðun- um sé lokað fyr. Fólk venst að eins á það að kaupa fyr en áður. En i sambandi við þetta er rétt að minnast á það hvað vinnutími er langur á skrifstofum hér — alveg óhæfilega langur. Væri það full- nógur starfstími fyrir skrifstofuþjóna að vinna frá kl. 10—6 þann hluta ársins þegar minst er að gera. Fyrir og eftir þann tima eru bankarnir lokaðir, en mestöll viðskifti á flest- um skrifstofum ganga i gegn um bankana. Svo að því leyti virðist tíminn nógu langur. Víða erlendis, þar scm starfstími er ákveðnari heldur en hér, er það vanalegt að skrifstofuþjónar vinni eigi lengur en 6 stundir á dag að jafn- aði. Kyrseturnar eru svo óhollar að starfsþoli manna þykir nóg boðið með þeim starfstíma. Hér er ekki íarið fram á svo mikið — en gert ráð fyrir sjö stunda vinnu á dag. Mundu allir sætta sig vel við það. En hitt sýnist óverjandi að menn skuli látnir sitja 10 stundir á dag við ritstörf og svo mun víða vera hér í bæ. Er þetta þeim munn verra sem oft og tíðum hafa menn lítið að gera, en hanga við vinnu sfna hundleiðir á þessu fyrirkomulagi. Það er sjálfsagt að vinnutími sé lengri þegar mikið er að gera, einkum vor og haust. En verkveitendur ættu að íhuga það hvort þeir gætu ekki tek- ið þessa tillögu til greina. Mundi það mælast vel fyrir og betra heldur en að skrifstofuþjónar þurfi sjálfir með einhverjum ráðum að knýja mál- ið fram. / / Frá Rúmeníu. Fréttaritari »Times« iRúmeniu sendi blaði sínu fréttabréf, þá er Rúmenar höfðu beðið ósigurinn í Jiu-dalnym og minnist hann þar á nokkrar af þeim ástæðum sem lágu til þess hve hastarlega hefir farið fyrir Rúmenum. Þeir höfðu engar stórar fallbyssur, engar flugvélar og kunnu ekkert til hernaðar á möts við Þjóðverja. Voru hermennirnir nær ófáanlegir til þess að gera sér skotgraflr og hafast við í þeirn, heldur vildu þeir altaf gera áhlaup á Þjóðverja og berjast í návígi. En þeim varð hált á því, vegna þess að vél- byssur Þjóðverja brytjuðu lið þeirra niður alveg eins 0g hrá- viði og er það orðið ógurlegt manntjón, sem rúmenski herinn hefir beðið. Til dæmis um fyrir- úyggjuleysið má geta þess, að Rúmenar höfðu epgin áhöld til að rjúfa með gaddavirsgirðingar Þjóðverja. Og þar sem þeir höfðu heldur engar stórar fallbyssur til þess að láta þær ryðja fótgöngu- liðinu braut, þá brotnuðu áhlaupin jafnan á gaddavírsgirðingunum og þar brytjuðu Þjóðverjar fjand- mannaherinn niður með vélbyss- um sínum. Afgreiðslusími nr. 500 774/777 BÍÓ_____ Stóri gimsteinninn Stórkostlegur leynilögreglusjón- leikur í þrem þáttum, leikinn af amerískum leikendum. Það getur tæpast áhrifameiri leik heldur en þar sem sýnd er viðureign hinnar fögru jung- frú Grace og Armands greifa við þorparann James Heriot — forsprakka glæpamannafélagsins »Hauskúpan« — — Almennnr Templarafundur verður haldinn í sambandi við fund „St. Verðandi“ þriðjudaginn 16. janúar. Templarar eru beðnir að fjölmenna á fundinn. Austan ur sveitum. Úr Rangárvallasýslu er oss skrifað 13. janúar, að þar séu ein- dæma harðindi og frosthörkur; menn alment mjög heytæpir og sumir hafa skorið fénað af heyjum. Samanhangandi harð- indi frá 20. nóv. og útlit mjög ilt yfirleitt. ESE8 í> A SBOiKIN. C3B» Afmæli í dag: Eyjólfur Jónsson rakari Guðm. Jakobsson hafnarv. Jón Magnússon ráðherra Þórður Þorsteinsson trósm. f. Finnur biskup Jónsson 1704. Tungl síð. kv. 10,42 f. h. Sólarupprás kl. 9.58 Sólarlag — 3.18 Háflóð í dag kl. 10.8 f.h. og kl. 10.39 e.h. Fyrirlestrar Hsáskólann: Próf. Björn M. Ólsen, dr. phil.: Bókmentasaga íslendinga kl. 5—6. Jón Jónsson, dócent: Saga íslenzku kirkjunnar, kl. 7—8. Alexander Jóhannesson, dr. phil.: Engilsaxneska kl. 7—8. Lækningar Háskólans. Lækning ókeypis Kirkjustræti 12 kl. 12—1. Tannlækning ókeypis Kirkju- stræti 12, kl. 2—3. Samverjinn. Að gefnu tilefni skal þess getið að Samverjann vantar sjálf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.