Morgunblaðið - 16.02.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1917, Blaðsíða 1
4. argangr |> Gamía Bíó <■ Ávöxfiir syndarinnar niítíðar sjónleikur í 4 þáttum. Aðallilutverkið leikur Lydia Borelli. Myndin er falleg, efnisrík og spennandi, afbragsvel leikin. H ; hefi ee verið beðinn að útvega reglusömum og 1 /l&rÖQT^l áieiða"legum tranni, frá i. eða M. maí n. k. 'E n n f r e m u r vantar mig íbúð frá 14. maí n. k.. Gttðgei*' .Tónsson, Njálsgötu ié. Hvitabandið (yngri og eldri deild) heldur árshátíð sína mánudaginti 19. febr. kl. 8J/2 síðdegis i húsi K. F. U. M. Meðlimir vitji aðgöngumiða sinna i hús K. F. U. M. föstudag og iaugardag frá kl. 4— 9 síðd. og fái allar nauðsynlegar upplýsingar. Kauphækkun á dráttarbátum Vér undirritaðir mótorbátaeigendur i Reykjavík, leyfum oss hérmeð að tilkynna heiðruðum viðskiftamönnum vorum, að vér, vegna sifeldrar haekkunar á öllu því er þarf til mótora, sjáum oss neydda til að hækka timaborgun fyrir mótorbáta vora framvegis, þannig að vér frá og með í dag reiknum oss 5 kr. — fimm krónur — fyrir hvern klukkutima að telja, frá kl. 6 að morgni til kl. 9 að kveldi. Reykjavík, 16. febrúar 1917. Páll Níelsson. pr. m/b. Gullfoss pr. m/b. »Höfrungurc Guðm. Einarsson. Agúst Guðmundsson. Steindór Einarssott. Sveinn fónsson. Gísli Guðmundsson. SMpsfjóri getur fengið stöðu á kutter U L V ö við fiskveiðar. s&T. Trederiksen. Bezt að auglýsa i .V.orgunblaðinu. * RögnvaSdur Olafsson, husameistari, sem lézt á Vífilsstöðum 14. þ. m., var fæddur á Ytrihúsum í Dýra- firði 5 des. 1874. Faðir hans var Olaíur bóndi Sacharíasson, Jóns- sonar, og tnóðir, kona hans Vero- nika Jónsdóttir, prests um fjórð- ung aldar á Hornströndum (d. 1869), Eyjólfssonar prests í Mið- dalaþingum (d. 1843), Gíslasonar prests á Breiðabólstað á Skógar- strönd (d. 1810), Olafssonar bisk- ups i Skálholti (d. 1753). Móðir síra Jóns Eyjólfssonar var Guð- rún dóttir síra Jón skálds Þor- lákssouar á Bægisá 0g Margrétar Bogadóttur hins gamla í Hrapps- ey. Síra Jón Eyjólfsson var af- bragðs gáfumaður. Móðuramma Rögnvalds og kona síra Jóns Eyjólfssonar var Sigríður (f. 8. febr. 1818) dóttir Odds á Atla- stöðum í Fjóti á Hornströndum, Jónssonar í Hlöðuvik. Var Odd- ur fæddur i Hlöðuvík 1781 og lézt á Atlastöðum 13. júlí 1843. Sigríður var mikilhæf kona og varð fjörgömul. Oddur faðir henn- ar á Atlastöðum var orðlagður smiður á sinni tíð; gerði mest af hinum svonefndu «Strandasáum« og öðru þvílíku búsgagni. Olaf- ur faðir Rögnvalds er dáinn fyrir mörgum árum, en móðir hans lifir enn, og er hjá Jóni syni sín- um trésmið á Isafirði. Rögnvaldur byrjaði nám nokk- uð gamall; lærði hann undir skóla hjá Þorvaldi prófasti Jónssyni á ísafirði, ágætura kennara. I Latínuskólann L Reykjavík kom hann 1894; var hann þar i 4 ár og gekk í gegn um 4 fyrstu bekki skólans og var efstur námsmanna í þeim öllum. Síðan var hann tvö ár utanskóla, og tók stú- dentspróf sera utanskólasveinn árið 1900 með ágætiseinkunn. Því næst gekk hann næsta vetur á Prestaskólann og tók þar heim- spekispróf vorið 1901, einnig með ágætiseinkunn. En þá um sum- arið (1901) »sigldi« hann til Kaup- mannahafnar til þess að nema húsgerðarlist, og fekk til þess náms nokkurn stuðning af landsfé. Lagði hann sig þar um hríð af miklu kappi eftir því námi, en sem nokkuð leið, tók hann að kenna heilsubilunar þeirrar, sem nú hefir dregið hann til dauða á bezta manndómsaldri. Ágerðist sjúkleiki sá svo mjög, að Rögn- valdur varð þá að láta af námi, og hvarf hann þá til íslands aftur 1904, og mátti þá ekki I. 0. 0. F. 24659. JllJJTJ BÍÓ <3*rógram samfív. bm U, i. F. Iðunn Fundi frestað föstudag 16. þ. m. úl mánudags 19. s. m. ki. 9 síðd. í Báruhúsinu. Margskonar fagnaður. Hlutavelta innanfélags. Fjölmemíið. Húsnæöi. 1, 2 eða 3 herbergi ásamt eldhúsi óskast frá i4. maí næstkomandi. Gísli Guðmundsson, bókb., Isafold. annað aðhafast en það eitt að reyna að heyja sér nokkura heilsubót, ef verða mætti. Tókst það og um stund, svo að hann tók áður mjög langt um leið, að geta gefið sig smám saman nokkuð við starfi. Á fjárlögum 1906 og næstu ár var tekin upp nokkur fjárveit- ing handa byggingarfróðum manni til leiðbeiningar við byggingar, og var víst einkum ætlast til, að það væri við opinberar bygging- ar. Mun það í öndverðu hafa verið að undirlagi Hallgríms biskups, sem bæði var hagleiks- maður og smekkmaður, og var fullkunnugt um hvílíkt hrófl 0g handa8kömm flestar kirkju- byggingar hér á landi voru og höfðu lengi verið, og mun hann sérstaklega hafa haft það fyrir augum í upphafi. Þessi fjárveiting var þá þegar beint ætluð Rögnvaldi, og var hún aukin síðan á þinginu 1909, og síðar enn meira, enda smátt og smátt undir umsjón hans, auk kirkna, dregin skólahús og aðrar opinberar byggingar. Þó að mikið af þreki Rögb- valds um hin eiginlegu starfsár hans (frá 1906 og síðan) hlyti að ganga í það að verjast nærgöng- ulum og áleitnum sjúkdómi, er þó mikið, gott og þarft starf, sem eftir hann liggur. Er það að þakka hans óvenjulega öflugu líkamsbyggingu, sem sjúkdómin- um gekk seint á að vinna. Kirk- *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.