Morgunblaðið - 23.04.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.04.1917, Blaðsíða 1
Mánudag 4. argangf* 23. april 1917 168. • tölublað Ritstjómarsími nr. 500 j Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. |Isafoldarprentsmiðja Afgreiðslusimi nr. 500 Gamla Bio smsn&mxm 1UC1LLE LO 17.18.19. og 20 þáttur verða sýndir í kvöld i 8’ðasta sinn Pantið aðgöngumiða frá kl. 10-5. Aðgöngumiðar afhendist í Gamla Bió kl. 7—8. Vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verður enginn fundur i Hinu íslenzka- Kvenfólagi i kvfiid 23. þ. m. Námsskeið íyrir stúlkur sem vilja læra kjóla- og dragtasaum m. fl., lengri eða skemmri tíma, eftir vild. Umsóknir komi fyrir 1. mai. Nánari upplýsingar á Hverfisgötu 37. Vilborg Vilhjálmsdóttir. — i Gulihóikar og handhringar mikið úrval, Vallarstræti 4. Kr. B. Simonarson. Eri. simfregnir frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl Kaupmannahöfn 21. april. Alþjóða-jafnaðarmenn halda friðarfund í Stokk- hólmi 15. maí< Parísarblöðin heimtaþað að Konstantín konungur verði tekinn úr hásœti og Grikkland gert að lýð- veldi. Frakkar hafa tekið 20 pús, fanga í sókninni hjá Aisne. 'V Inntðkupróf Verzlunarskálans Þeir, sem æskt hafa inntöku í vor, mæti kl. 8 að morgni föstud. 27. þ. m. og hafi með sér ritföng og pappír. SRélasfjori. €37erzlun, maé fafsveréum vörum, tií söíu úti á landi. Arðvænlegur staður. Góðir borgunarskilmálar. Til greina 0 getur komið að aðrar eignir yrðu teknar í skiftum. / Lysthafendur secdi adressu sina til Morgunblaðsins, í lokuðu um- slagi, merkt „100“, sem fyrst. Þjóðverjar halda því fram að framsókn Frakka l Champagne hafi mis- hepnast. \ Frá London er símað að Þjóðverjar í Braziliu hafi gert upþreist. Khöfn 21. apríl. Frakkar hafa tekið vigið Corde. Orustan heldur áfram. Ráðuneytisskifti hafa orðið á Spáni. I Svíþjóð eru dagleqa róstur út af matvælaskorti. Stórþingið norska hefir verið kallað saman vegna ótta við hungursneyð, sem orsakast geti af því, að Norðmenn missa dag- iega aðfluttar nauðsynjar. - Biskupsvígslan. Dómkirkjan er smávaxin jafnstór- um bæ og Reykjavík er orðin. Kl. 11 í gær stóð mikill fjöldi manna í þyrpingu við dyrnar til að vera viss um að komast í kirkjuna. Athöfnin sem fram fór í dóm- kirkjunni er afar sjaldgæf. Og i þetta sinn er athöfnin sérstök i sinni röð, því þetta er byrjun þeirrar skip- unar sem verða mun í framtíðinni á vígslu biskupa þessa lands. Hinn látni biskup vor, Þórhallur Bjarnason var að vísu vigður hér á landi, en af fyrirrennara sinum í embættinu, Hallgrimi heitnum Sveins- syni. En eftir það komu lögin um vígslubiskupa og í gær skeði si at- burður að vígslubiskup vígði biskup þessa lands. Athöfnin hófst á hádegi í gær. Fór Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur fyrir altari. Því næst lýsti sira Skúii Skúlason vígslu og þá gekk vigslu- biskup fyrir altari og framkvæmdi vígsluathöfnina. Að því loknu flutti hinn nýji bisk- up ræðu. Prestar voru margir, nær 20, við- staddir athöfnina, að meðtöldum guðfræðisprófessorunum við háskól- ann. Meðal annara nafna er vér kunnum að nefna af aðkomuprest- um voru þessir: Magnús Andrésson prófastur á Gilsbakka, Ólafur Fins- son i Kálfholti, Gísli Skúlason á Stóra-Htauni, Ólafur Magnuss. í Arn- arbæli, Friðrik Jónasson Úskálum, Jón Sveinss. JónThorsteinson Þingvöllum o. fl ; Reykjavíkurprestarnir Jóhann Þorkelsson, Friðrik Friðriksson og prófessorarnir Haraldur Níelsson, S. P. Sivertsen og Eiríkur Briem. Viðstaddir athöfnina voru meðal annara, hinn nýi konsúll Frakka, A. Courmount, konsúlarnir Cable, Ásgeir Sigurðsson og Th. Klingen- berg, Jón Magnússon forsætisráð- herra, og Hannes Hafstein banka- stjóri. Athöfuin var i alla staði hin há- tíðlegasta. í gærkveldi hafði hinn nývígði biskup boð inni fyrir presta þá sem viðstaddir voru vígsluna. Bezt er að bua að sínu. Skipagöngur hafa nú siðustu mán- uðina verið svo fáar og ónógar, að við höfum að mestu leyti orðið að búa við þann forða, sem fenginn var frá útlöndum áður en hafn- bannið var lagt á 1. febrúar. Það ným bíó A glðtunarbarmi Sjónleikur í 3 þáttum, leikinn af mikilli snild af þeim Carlo Wieth, Fiú Fritz-Petersen, Carl Lauritzen o. fl. I mynd þessari fer saman skemtilegt efni og góð meðferð þess, eins og vænta má þar sem Carlo Wieth er einn af aðal- leikendunum. Tölusett sæti má panta í síma ____________IQ7-___________ 2—3 herbergi ásamt eldhúsi óskast til leigu frá 14. maí. Hjortur Þorsteinsson verkfræðingur Suðurgötu 14 (uppi). Frá landssimanum. Þjónustutími stöðvarinnar á Blöndu- ósi verður frá deginum i dag eins og fyrir 1. fl. B stöðvar — Reykjavik, 21. apríl 1917. — O. Forberg. er því heldur ekki að furða, þótt skortur sé farinn að verða á ýms- um nauðsynjavörum útlendum eða þær orðnar af mjög skotnum skamti. Og þar sem hæglega virðist geta farið svo, að siglingateppan verði fyrst um sinn lík og verið hefir, enda hyggilegast að gera ráð fyrir þvi og að reyna að búa sig í tima undir það, að geta tekið á móti sem flestum erfiðieikum, og þar sem þar að auki má búast við því, að minna verði á boðstólum af nauðsynjavör- um í útlöndum en áður og þyí erf- iðara að fá þær, þótt skipaferðir kæmust i lag von bráðar, þá virðist nauðsyn krefja að aðgætt sé, hvort ekki séu þau efni til í landinu sjáifu, sem komið geti í staðinn fyrir út- lendu vöruna eða sem í öllu falli drýgja megi með það, sem af henni er enn til í landinu. Og á þetta eigi sízt við um kornmatinn, sem fæstir mega án vera. Eg hygg, að við munum geta fengið þessi efni í fjallagrösunum og sæþörungunum og vildi því hér benda almenningi á, að reyna til þess nú að hagnýta sér þessi grös og ekki hvað sízt að reyna að drýgja brauðin með þeim. Margir eru sem baka brauð heima og stendur því opið að gera tilraunir sjálfir. Áður en langt um líður má fara á grasafjall. En þörungana má tina nú þegar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.