Morgunblaðið - 17.07.1917, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Tveim framv. um breytingu á
ritsímalögum; vísað til 2. umr. og
til samgöngumálanefndar.
Frv. um einkasölu landsstjórnar-
innar á sementi; visað til 2. umr.
og til fjárhagsnefndar.
Frv. um stofnun mótorvélstjóra-
sEÓla í Reykjavík, á Isafirði, f^kur-
eyri og Seyðisfirði, vísað til 2. umr.
og sjávarútvegsnefndar.
Frv. um viðauka við-lög um sam-
þyktir um kynbætur og frvumv. um
málskostnað einkamáia, tekin út af
dagskrá.
Aö launa bæjarfull-
trúana.
Eg geri ráð fyrir, að það sé eins
og að koma við hjártað i mönn-
um, að fara fram á það við löggjaf-
arþingið, eða þá er hlut eiga að máli,
að breyta á þann hátt löggjöfinni
um syeitar- og bæjarmál, að iaunaður
verði bæjarfulltrúum Reykjavíkur
starfi sá, er þeir hafa á hendi fyrir
bæjarfélagið. Sá andi er og hefir
jafnan verið ríkjandi í ísienzku þjóð-
félagi, að launa ýmist illa eða ekk-
ert þeim mönnum starfa sinn, er
unnið hafa í þarfir sveita eða bæjar-
félaga. Má sem dæmi minna á þá
þóknun, sem hreppstjórar fá; gerir
rétt að þeir hafi sloppið svo, að
þurfa ekki sjálfir að greiða kostnað
allan við bréfaskiftir i þarfir sveitar-
innar. Og líkt hefir verið nm launa-
kjör opinberra starfsmanna þjóðar-
innar, þó auðvitað með nokkurum
undantekningum. Og þessi andi í
þjóðfélaginu virðist enn ríkjandi (sbr.
álit eftirlauna- og launanefndarinnar).
Auðsær hlýtur öllum að vera
munur sá, að sitja í bæjarstjórn
Reyjavikur nú, eða var fyrir iö—
20 árum. Starfinn eykst með
hverju ári og verður æ ábyrgðar-
nteiri. Bæjarfullttúarnir hljóta nú
orðið að eyða miklum tima til starf-
ans; nefndir eru margar og umfangs-
miklar, og krefjast þvi mikils tima
og umhugsunar, ef vel ætti að vera.
Leiðir þá af sjálfu sér, að bæjarfull-
trúarnir hljóta að missa mikið af
tíma frá aðalstarfi sinu, i þarfirsbæj-
arfélagsins, en endurgjalslaust. En
þetta er í alla staði ranglátt. Hvert
það þjóðfélag, er telur sig siðað, á
að sjá sóma sinn i því, að launa
þann starfa, er það þarf að láta inna
af hendi, og launa vel, en ekki að
vera að hafa allar klær úti til þess,
að gjalda sem minst fyrir það sem
unnið var. En þetta hefir átt sér
stað, og visa eg til þess, að bærinn
var um eitt skeið lang versti vinnu-
veitandinn (galt lægst kaup við erf-
iðisvinnu).
Slíkt er hverju bæjarfélagi til háð-
ungar.
Sú var ætlun mín með línum
þessum, að skjóta þvl að þingmönn-
um Reykjavíkur (þó annar eigi sæti
i bæjarstjórninni) að bera fram á
þingi bríytingartillögu við sveita-
stjórnarlögin í þá átt, að bæjarfull-
trúar Reykjavíkur skuli hafa þóknnn
fyrir starf sitt, t. d. ákveðið fyrir
hvern fund. Verður því ekki neit-
að, að krafan um það er bæði eðli-
ieg og sjálfsögð, og ætti því að fá
áheyrn að minsta kosti.
Þá væri heldur ekki úr vegi að
um leið væri litið »í náð« til bæjar-
fulltrúa og hreppsnefndarmanna ann-
arsstaðar,og þáeinkum oddvita þeirra,
sem viðast hafa mikla snúninga og
fyrirhöfn við starfa sinn, en litla
þóknun.
Þórir.
Útilegum@nn
á MosfeilsheiBiP
Vegabótamenn, sem hafa vérið að
vegabótum uppi á Mosfellsheiði, urðu
síðari hluta síðustu viku varir við
tvo menn einkennilega búna.
A miðvikudagskvöldið sáu þeir tvo
menn koma af heiðinni,' annar var
í rauðri treyju og hvitum buxum
með rauðum röndum, en hinn var
víst sem næst hvítklæddur. Þetta
kvöld hurfu þeir víst skjótlega, en
á fimtudagskvöldið komu þeir því
sem næst að tjöldum vegabótamanna,
og fóru að rjátla við verkfæri þeirra,
gengu þá tveir vegabótamenn út úr
tjöldunum og kölluðu á mennina,
en þeir gengdu ekki; ætluðu vega-
bótamenn þá að ganga til þeirra, en
þá hörfuðu hinir undan, varð úr
þessu alllangur eltingaleikur, þar til
þeir dulklæddu köstuðu sér niður í
laut og sýndist vegabótamönnum þeir
ota rýtingum. Hurfu þeir þá aftur og
sáu ekki til þeirra eftir það.
Vegabótamenn höfðu viðbúnað á
fcstudagskvöldið til að taka á móti
piltum, en þá komu þeir ekki.
Annar þessara dulbúnu hafði verið
mjög þreklegur og annar þeirra hafði
geysimikið hár, líkast því sem það
hefðiekkiverið skorið íjjmargajmánuðif
Þannig er frásögn eins vegabóta-
manns, en vitanlega getur hér ekki
verið að ræða um útilegumenn, held-
ur strákappi1 einhverra »sumargesta«
á Mosfellsheiði.
Siglingar Breta.
Siglingaráðuneyti Breta kunngerir
opinberlega 19. júní:
Ráðuneytið hefir komist að því,
að þegar hafa komið nokkrir samn-
ingar um leigu á brezkum skipum
að ófriðnum loxnum. Vér látum
því ekki hjá líða að kunngera, að
það er alls ekki víst, að meon geti
staðið við samninga sem þannig eru
gerðir, þar sem vel getur átt sér
stað, að þeir séu ekki samrýmanlegir
við þarfir brezku þjóðarinnar.
1 PAQBbK____________________g
Talsímar Alþingis:
854 þingmannasími. XJm þetta númer
þurfa þ&ir að biðja, er œtla að
nd tali af þingmönnum í Alþingis-
húsinu í stma.
411 skjalaafgreiðsla.
61 skrifstofa.
Gangverð erlendijar myntar.
Dollar Bankar 3,55 Pósthús 3,60
Franki 62,00 62,00
Sænsk króna ... 106,00 107,00
Norsk króna ... 103,00 104,00
Sterlingspund ... 16,50 16,50
Mark 50,00 51,50
íþróttaœfingar í dag:
Víkingur kl. 7$— 9 síðdi
Fram — 9—10J.
30 farþegaff fara hóðan með Fálk-
anum til Danmerkur næstk. sunnudag.
Dagskrá Nd. í dag ki. 1.:
1. Frv, um einkasöluheimild lands-
stjórnarinnar á steinolíu, 2. umr.
2. Frv. um afnám forðagæzlulaga.
3. Frv. til forðagæzlulaga.
4. Frv. um laxveiði.
5. Frv. um breytingu á tollögum.
6. Frv. um að skifta Hróarstungu-
læknishóraðí í tvent; 1. umr.
7. Frv. um viðaukalög við samþykt-
arlög um kyubætur hesta; 1. umr.
8. Frv. um málskostnað einkamála;
1. umr.
9. Till. til þingsál. um sölu á ráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu;
hvernig ræða skuli.
10. Till. til þingsál. um einkasölu
landssjóðs á kolum; hvernig ræða
skuli.
Enginn fnndur í efri deild í dag.
Hjónaefni. í fyrradag opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Róaa Thorlacius
(prests í Saurbæ) og Magnús Guðmunds-
son stud. theol.
Eagnár Ólafsson konsúll frá Akur-
eyri dvelur hór í bænum þessa dagana.
4 hásetar struku af Lagarfossi í
New York síðast. Er líklegt að þeir
hafi ráðist á skipið i þeim tilgangi að
komast ókeypis til Ameríku.
Engir hásetar voru ráðnir í þeirra
stað vestra, en tveir farþeganna urðu
að láta skrásetja sig sem skipverja til
þess að komast heim.
Botnvörpungurinn »Iceland«, sem
getur um f opinbera skeytinu í blað-
inu í gær, að hafi skotið niður tvo
þýzka flugbáta í Norðursjónum, mun
vera skip, sem Kveldúlfsfólagið átti í
smíðum í Bretlandi, þegar ófriðurinn
hófst, en Bretastjórn viidi ekki flytja
úr landi að svo stöddu, þar sem hún
þurfti sjálf á sklpinu að halda. Botn-
vörpungurinn hót Egill Skallagrímsson,
nafni, sem Bretum hefir fundist hent-
ast að breyta, og skírðú það »Iceland«.
»Iceland« er orðið frægt skip og er
vonandi að það komist einhverntíma á
fiskveiðar fyrir Kveldúlfsfólagið. Mun
þá bera Egils-nafnið með rentu.
500 tunnur af stainolíu hafði Lag-
arfoss meðferðis hingað frá Ameríku
og töluverðar birgðir af benzíni. Hefir
umferð urn Battaríisgarðinn verið bönn-
uð meðan verið er að koma benzíninu
á land. En það verður geymt úti á
Melum.
Knattspyrnufétagið »Fram« vlll
gjarnan fá nokkra röska menn til þess
að ganga í fólagíð.
Fótbolta kapploikur verðúr bráð-
Um háður á íþróttavellinum milli
»Fram«-manna og hermanna á Islands
Falk.
Síra Eiríkur Stefánsson á Torfa-
stöðum er kominn til bæjarins.
Botnvörpungarnir eru nú að smá-
tínast hóðan til síldveiðistöðvanna fyr-
ir norðan og vestan. Svo hefir ræzt
úr vandræðum botnvörpunganna, að
líklega fara þeir allir á sildveiðar
nema »Jarlinn«.
Gutchkov
hinn fyrverandi hermálaráðherra Rússa
hefir nú gerst sjálfboðaliði í rúss-
neska hernum. Hann er sagður
gáfumaður mikill, ábugasamur og
dugnaðarmaður í hvívetna. Hann
var með í Búastríðinu, barðist með
Ung-Tyrkjum gegn Abduí Hamid
soldáni og var herforingi í öllum
Balkanstyrjöldunum.
Yfirráðin í lofíinu.
Það er svo að sjá á erlendum
blöðum þeim, sem hingað hafa bor-
ist frá Ameríku og Bretlandi (og ná
til 28. júní), að Bandaríkjamönnum
sé alvara í því að koma sér upp
svo öflugum loftflota, að þeir hafi
yfirráðiu i loftinu, bæði gegn Zeppe-
linsloftförum Þjóðverja og flugvél-
um. Það er ekki langt síðan að
símfregnir fluttu þau tíðindi hingað,
að frægasti flugfræðingur Bandaríkj-
anna, Mr. Orville Wright, hefði flutt
fyrirlestur í félagi flugmanna í New
York, þar sem hann hvatti mjög til
flugvélasmtði og kvaðst þess fullviss,
að með því mætti koma á friði á
nokkrum vikum. Stjórnin í Was-
hington hefir fengið samþykki þings-
ins til þess að verja 120 miljónum