Morgunblaðið - 17.07.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.07.1917, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Tveim framv. um breytingu á ritsímalögum; vísað til 2. umr. og til samgöngumálanefndar. Frv. um einkasölu landsstjórnar- innar á sementi; visað til 2. umr. og til fjárhagsnefndar. Frv. um stofnun mótorvélstjóra- sEÓla í Reykjavík, á Isafirði, f^kur- eyri og Seyðisfirði, vísað til 2. umr. og sjávarútvegsnefndar. Frv. um viðauka við-lög um sam- þyktir um kynbætur og frvumv. um málskostnað einkamáia, tekin út af dagskrá. Aö launa bæjarfull- trúana. Eg geri ráð fyrir, að það sé eins og að koma við hjártað i mönn- um, að fara fram á það við löggjaf- arþingið, eða þá er hlut eiga að máli, að breyta á þann hátt löggjöfinni um syeitar- og bæjarmál, að iaunaður verði bæjarfulltrúum Reykjavíkur starfi sá, er þeir hafa á hendi fyrir bæjarfélagið. Sá andi er og hefir jafnan verið ríkjandi í ísienzku þjóð- félagi, að launa ýmist illa eða ekk- ert þeim mönnum starfa sinn, er unnið hafa í þarfir sveita eða bæjar- félaga. Má sem dæmi minna á þá þóknun, sem hreppstjórar fá; gerir rétt að þeir hafi sloppið svo, að þurfa ekki sjálfir að greiða kostnað allan við bréfaskiftir i þarfir sveitar- innar. Og líkt hefir verið nm launa- kjör opinberra starfsmanna þjóðar- innar, þó auðvitað með nokkurum undantekningum. Og þessi andi í þjóðfélaginu virðist enn ríkjandi (sbr. álit eftirlauna- og launanefndarinnar). Auðsær hlýtur öllum að vera munur sá, að sitja í bæjarstjórn Reyjavikur nú, eða var fyrir iö— 20 árum. Starfinn eykst með hverju ári og verður æ ábyrgðar- nteiri. Bæjarfullttúarnir hljóta nú orðið að eyða miklum tima til starf- ans; nefndir eru margar og umfangs- miklar, og krefjast þvi mikils tima og umhugsunar, ef vel ætti að vera. Leiðir þá af sjálfu sér, að bæjarfull- trúarnir hljóta að missa mikið af tíma frá aðalstarfi sinu, i þarfirsbæj- arfélagsins, en endurgjalslaust. En þetta er í alla staði ranglátt. Hvert það þjóðfélag, er telur sig siðað, á að sjá sóma sinn i því, að launa þann starfa, er það þarf að láta inna af hendi, og launa vel, en ekki að vera að hafa allar klær úti til þess, að gjalda sem minst fyrir það sem unnið var. En þetta hefir átt sér stað, og visa eg til þess, að bærinn var um eitt skeið lang versti vinnu- veitandinn (galt lægst kaup við erf- iðisvinnu). Slíkt er hverju bæjarfélagi til háð- ungar. Sú var ætlun mín með línum þessum, að skjóta þvl að þingmönn- um Reykjavíkur (þó annar eigi sæti i bæjarstjórninni) að bera fram á þingi bríytingartillögu við sveita- stjórnarlögin í þá átt, að bæjarfull- trúar Reykjavíkur skuli hafa þóknnn fyrir starf sitt, t. d. ákveðið fyrir hvern fund. Verður því ekki neit- að, að krafan um það er bæði eðli- ieg og sjálfsögð, og ætti því að fá áheyrn að minsta kosti. Þá væri heldur ekki úr vegi að um leið væri litið »í náð« til bæjar- fulltrúa og hreppsnefndarmanna ann- arsstaðar,og þáeinkum oddvita þeirra, sem viðast hafa mikla snúninga og fyrirhöfn við starfa sinn, en litla þóknun. Þórir. Útilegum@nn á MosfeilsheiBiP Vegabótamenn, sem hafa vérið að vegabótum uppi á Mosfellsheiði, urðu síðari hluta síðustu viku varir við tvo menn einkennilega búna. A miðvikudagskvöldið sáu þeir tvo menn koma af heiðinni,' annar var í rauðri treyju og hvitum buxum með rauðum röndum, en hinn var víst sem næst hvítklæddur. Þetta kvöld hurfu þeir víst skjótlega, en á fimtudagskvöldið komu þeir því sem næst að tjöldum vegabótamanna, og fóru að rjátla við verkfæri þeirra, gengu þá tveir vegabótamenn út úr tjöldunum og kölluðu á mennina, en þeir gengdu ekki; ætluðu vega- bótamenn þá að ganga til þeirra, en þá hörfuðu hinir undan, varð úr þessu alllangur eltingaleikur, þar til þeir dulklæddu köstuðu sér niður í laut og sýndist vegabótamönnum þeir ota rýtingum. Hurfu þeir þá aftur og sáu ekki til þeirra eftir það. Vegabótamenn höfðu viðbúnað á fcstudagskvöldið til að taka á móti piltum, en þá komu þeir ekki. Annar þessara dulbúnu hafði verið mjög þreklegur og annar þeirra hafði geysimikið hár, líkast því sem það hefðiekkiverið skorið íjjmargajmánuðif Þannig er frásögn eins vegabóta- manns, en vitanlega getur hér ekki verið að ræða um útilegumenn, held- ur strákappi1 einhverra »sumargesta« á Mosfellsheiði. Siglingar Breta. Siglingaráðuneyti Breta kunngerir opinberlega 19. júní: Ráðuneytið hefir komist að því, að þegar hafa komið nokkrir samn- ingar um leigu á brezkum skipum að ófriðnum loxnum. Vér látum því ekki hjá líða að kunngera, að það er alls ekki víst, að meon geti staðið við samninga sem þannig eru gerðir, þar sem vel getur átt sér stað, að þeir séu ekki samrýmanlegir við þarfir brezku þjóðarinnar. 1 PAQBbK____________________g Talsímar Alþingis: 854 þingmannasími. XJm þetta númer þurfa þ&ir að biðja, er œtla að nd tali af þingmönnum í Alþingis- húsinu í stma. 411 skjalaafgreiðsla. 61 skrifstofa. Gangverð erlendijar myntar. Dollar Bankar 3,55 Pósthús 3,60 Franki 62,00 62,00 Sænsk króna ... 106,00 107,00 Norsk króna ... 103,00 104,00 Sterlingspund ... 16,50 16,50 Mark 50,00 51,50 íþróttaœfingar í dag: Víkingur kl. 7$— 9 síðdi Fram — 9—10J. 30 farþegaff fara hóðan með Fálk- anum til Danmerkur næstk. sunnudag. Dagskrá Nd. í dag ki. 1.: 1. Frv, um einkasöluheimild lands- stjórnarinnar á steinolíu, 2. umr. 2. Frv. um afnám forðagæzlulaga. 3. Frv. til forðagæzlulaga. 4. Frv. um laxveiði. 5. Frv. um breytingu á tollögum. 6. Frv. um að skifta Hróarstungu- læknishóraðí í tvent; 1. umr. 7. Frv. um viðaukalög við samþykt- arlög um kyubætur hesta; 1. umr. 8. Frv. um málskostnað einkamála; 1. umr. 9. Till. til þingsál. um sölu á ráð- herrabústaðnum við Tjarnargötu; hvernig ræða skuli. 10. Till. til þingsál. um einkasölu landssjóðs á kolum; hvernig ræða skuli. Enginn fnndur í efri deild í dag. Hjónaefni. í fyrradag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Róaa Thorlacius (prests í Saurbæ) og Magnús Guðmunds- son stud. theol. Eagnár Ólafsson konsúll frá Akur- eyri dvelur hór í bænum þessa dagana. 4 hásetar struku af Lagarfossi í New York síðast. Er líklegt að þeir hafi ráðist á skipið i þeim tilgangi að komast ókeypis til Ameríku. Engir hásetar voru ráðnir í þeirra stað vestra, en tveir farþeganna urðu að láta skrásetja sig sem skipverja til þess að komast heim. Botnvörpungurinn »Iceland«, sem getur um f opinbera skeytinu í blað- inu í gær, að hafi skotið niður tvo þýzka flugbáta í Norðursjónum, mun vera skip, sem Kveldúlfsfólagið átti í smíðum í Bretlandi, þegar ófriðurinn hófst, en Bretastjórn viidi ekki flytja úr landi að svo stöddu, þar sem hún þurfti sjálf á sklpinu að halda. Botn- vörpungurinn hót Egill Skallagrímsson, nafni, sem Bretum hefir fundist hent- ast að breyta, og skírðú það »Iceland«. »Iceland« er orðið frægt skip og er vonandi að það komist einhverntíma á fiskveiðar fyrir Kveldúlfsfólagið. Mun þá bera Egils-nafnið með rentu. 500 tunnur af stainolíu hafði Lag- arfoss meðferðis hingað frá Ameríku og töluverðar birgðir af benzíni. Hefir umferð urn Battaríisgarðinn verið bönn- uð meðan verið er að koma benzíninu á land. En það verður geymt úti á Melum. Knattspyrnufétagið »Fram« vlll gjarnan fá nokkra röska menn til þess að ganga í fólagíð. Fótbolta kapploikur verðúr bráð- Um háður á íþróttavellinum milli »Fram«-manna og hermanna á Islands Falk. Síra Eiríkur Stefánsson á Torfa- stöðum er kominn til bæjarins. Botnvörpungarnir eru nú að smá- tínast hóðan til síldveiðistöðvanna fyr- ir norðan og vestan. Svo hefir ræzt úr vandræðum botnvörpunganna, að líklega fara þeir allir á sildveiðar nema »Jarlinn«. Gutchkov hinn fyrverandi hermálaráðherra Rússa hefir nú gerst sjálfboðaliði í rúss- neska hernum. Hann er sagður gáfumaður mikill, ábugasamur og dugnaðarmaður í hvívetna. Hann var með í Búastríðinu, barðist með Ung-Tyrkjum gegn Abduí Hamid soldáni og var herforingi í öllum Balkanstyrjöldunum. Yfirráðin í lofíinu. Það er svo að sjá á erlendum blöðum þeim, sem hingað hafa bor- ist frá Ameríku og Bretlandi (og ná til 28. júní), að Bandaríkjamönnum sé alvara í því að koma sér upp svo öflugum loftflota, að þeir hafi yfirráðiu i loftinu, bæði gegn Zeppe- linsloftförum Þjóðverja og flugvél- um. Það er ekki langt síðan að símfregnir fluttu þau tíðindi hingað, að frægasti flugfræðingur Bandaríkj- anna, Mr. Orville Wright, hefði flutt fyrirlestur í félagi flugmanna í New York, þar sem hann hvatti mjög til flugvélasmtði og kvaðst þess fullviss, að með því mætti koma á friði á nokkrum vikum. Stjórnin í Was- hington hefir fengið samþykki þings- ins til þess að verja 120 miljónum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.