Morgunblaðið - 21.07.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.07.1917, Blaðsíða 1
Xaugarcl. 21. júlí 1917 0R6DNBLAÐID 4. árgangr 256. tðlublað Ritstjórnarsimi nr. 500 Ritstjóri: Vilbjálmnr Finsen ísafoldarprentsmiðja Afereiðslnsimi nr. 500 BIO j æykjavfknr |BI0 ^ I Biograph-Thoater |_____ Talsími 475 Á skakkri hæð Afarskemtilegur danskur gaman- anleikur í 2 [>áttum. Aðalhlutv. leika: Em. Gregers, Hildur Möller, Jörgen Lund. Hættnr frumskógarins Amerískur sjónleikur framiir- skarandi spennandi vel leikinn. LITLA BÚÐIN: Three Castlee Capstan Special Snnripe Flag Cigar- eftur Mnnntóbak (Ángustinns), Smávindlar (cigarillos) o. fl. nýkomið í Litlu búBina. Agæt, söltuð dilkalsri (í smásölu) seld i Isbirninum. Sími 2 59- Nýja bifreiðastöðin, Laugavegi 12. Bifreið fer til Pingvalla i dag kl. 12. Nokkrir menn geta fengið far. Simi 444. Litla búðin Brjóstsyknr margar tegundir, fást nú i Litlu búðinni. Afgreiðsla ,S a n í t a s1 er á Smiðjustig x i. Simi 190. M að 20 dugl. verkamenn geta fengið atvinnu við kolanámuna. Tjðrnesi Þurfa aö fara með BOTNIU á mánudag þ. 22. þ. m. Menn gefi sig fram á vegagerð- arskrifstofunni á Klapparstíg 20 í dag milli kl. 5--7 e. m. Erl. símfregnir. Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl. Khöfn 18. júli. Fundurinn, sem hófst í Petrograd 15. júlí, heldur enn áíram. Oadet-flokkurinn í Rúss- landi er larinn úr stjórn- inni. Búist við því að stjórnin muni flytja til Moskva. Frá alþingi. Nýungar. 1. Allsherjarnefnd neðri deildar hefir nú ihugað frv. Einars Arnórs- sonar o. fl. um málskostnað einka- mála, og leggur nefndin til, að það nái fram að ganga. Framsögumaður er Einar Arnórs- son. 2. Halldór Steinsson, flytur í efri deild frv. um breytingu á lög- um um skipun prestakalla i þá átt, að Miklaholtsprestakall verði ekki lagt niður þegar prestaskifti verða, eins og lögákveðið er, og svo í öðru lagi um að Hellnasókn sé tekin und- an Nesþingaprestakalli og sameinuð Staðastaðarprestakalli. Málið er áhugamál manna þar vestra. 3. Jón á Hvanná og Þorleifur á Hólum vilja auka við lögin um for- kaupsrétt leiguliða o. fl. ákvæði um, að forkaupsrétturinn nái einnig til jarða í sjálfsábúð, sem ganga kaup- um og sölum, það er að segja að sveitarfélagið öðlist forkaupsrétt að jörðinni þegar svo stendur á. Vilja þeir með þessu koma i veg fyrir, að margar jarðir verði eign einstaks manns; þykir jarðirnar bet- ur komnar hjá sveitarfélaginu. 4. Kosninq héraðslakna. Sigurður Sigurðsson, flytur (í neðri deild) frumvarpsbálk mikinn um veit- ingu læknishéraða. Aðalefni frv. er, að héraðsbúar, sem náð hafa 25 ára aldri, og full- nægja að öðru leyti kosningaskil- yrðum til Alþingis, kjósi sér sjálfir læknir sinn, og sá sé réttkjörinn héraðslæknir, sem fái meira en helm- ing greiddra atkvæða, enda taki að minsta kosti helmingur kjósenda þátt i kosningunni en ella sé stjórnin ekki ným bíó <3?rocjram samRv. g o fua ug lýsing um. bundin við atkvæðagreiðsluna, þá er hún veitir embættið. Atkvæðagreiðsl- an er leyuileg og tilhögun öll snið- in eftir prestskosningalögum og lög- um um kosningar til Alþingis. Æsingar austanfjalls út af veitingu læknishéraðs þar munu valda því, að frumvarp þetta er framkomið, þótt þess sé eigi getið í greinargerð frumvarpsins. Sami maður flytur nú frumvarp um sölu ráðherrabústaðarins, sama efni sem þingsályktunartill., er áður var komin frá honum. Tillöguform þótti forsætisráðherra tæplega lög- um samkvæmt. Því er hún nú orð- in að lagafrumvarpi. Greinargerð fylgir nú svo látandi: »JafnveI þó að það kunni að hafa verið réttmætt af landsstjórn- inni á sínum tíma að kaupa þetta hús, þá hefir margt breyzt, síðan, er hefir þau áhrif, að nú er tíma- bært að selja það. Allri húsagerð hefir farið fram síðan, og flest hin nýrri hús eru úr steini eða stein- steypu. — Þetta hús við Tjarnar- götu er timburhús, en gallinn á þeim flestum er sá, að eftir þvi sem þau eldast verður viðhaldið á þeim meira og kostnaðarsamara. Fyrir því er rétt að selja húsið, enda eðlilegast og viðfeldnast að öðru ieyti að landið selji þau timbur- hús, sem það á.c 6. Meðjerð d kirknafé. Prestarnir Eggert Pálsson og Krist- inn Daníelsáon flytja frv. um, að landssjóður ábyrgist fé hins almenna kirkjusjóðs frá næstu áramótum og bæti halla þann, er sjóðurinn kann að bíða við tap á lánum eða á annan hátt. Að lögum verða allar kirkjur, sem ekki eru bændaeign, að láta fé sitt í kirkjusjóðinn, en hann lánar aftur fé til kirkjnabygginga. Forráðamönn- um ýmsra kirkna þykir fé þeirra ekki nógu trygt á þennan hátt, og vilja þeir því að kirkjum sé leyft að ávaxta fé sitt á öruggum stöðum, eða þá a$ landssjóður taki að sér ábyrgð á fé kirkjusjóðsins, og það þykir flutn- ingsmönnum ekki ósanngjörn krafa á meðan landssjóður heldur uppi þjóðkirkjunni. 7. Hafnarqerð í Þorldkshöfn. Þingsályktunartillögu um það mál flytja þeir Sigurður Sigurðsson og Einar Arnórsson svolátandi:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.