Morgunblaðið - 22.07.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.07.1917, Blaðsíða 1
Smmudag 4. árgangr 22. júií 1917 0R6DNBLAÐI0 257. tðlubiað Ritstjr>rnarsimi nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiftja Afgreiðslnsími nr. 500 Mm. borgarsfundur verður haldinn í dag kl. 4 síðdegis í Barnaskólagarðinum, Umræðuefni: Brauðverðið, eldsneytismálið o. fl. Stjórn alþýðuflokksins. bio| msáial. |8io| Taltdim 475 Á skikkri hæH Afarskemtilegur datskur gaman- anleikur í 2 jtáttum. Aðalhlutv. leika: Eia. Gregerf?, Hildur Möller, Jörgen Lund. Hættnr frumskógaiSáis Ameriskur sjónleikur framiir- skarandi spennandi vel leikinn. Ert. stmfregttir frá fréttar. Isafoldar og Morgunbl, Kmhöfn, 20. júlí. Bíkiskanzlarinn hélt ffyrstu rseðu sína í ríkis- deginum 19. júlí, og gat l>ess að Þjóðverjar mundu ekki krefjast neinnaland- vinninga. Þjóðverjar vilji íá sómasamlegan írið i samræmi við það sem meirihlutinn i ríkisdegin- nm vill. Landamæri lands- iös yrði að ákveða hin sðmu og áður. Banda- -menn yrðu að koma fram með friðarskilmála sfna. Rnssnesku nppreístar- mennirnir reyndu árang- nrslaust að taka Keren- sky hðndum. I*jóðverjar sækja fram hjá Craonne ogHurtebise. Frá alþingi. Nýnngar. Alit er komið frá allsherjarnefnd neðri deildar um frv. Norðmýlinga um að skifta Hróasrtungu-læknishér- aði i tvent. Nefndin hefir athugað málið í sam- ráði við landlækni og er hann sam- mála. nefndinni um, að varhugavert sé að skifta sundur læknishéruðnm, f>ar sem mjög hafi reynst erfitt að fá lækna í þessi smáhéruð, vegna þess að þau geti alls ekki boðið þeim lífvænleg kjör; afleiðingin því oft sú, að þau hafi orðið algerlega læknislaus. Hins vegar bendir nefndin á, að hagkvæmt muni vera í framtíðinni að breyta takmörkum Hróarstungu- og Fljótsdalshéraða, flytja læknissetrið í Fljótsdalshérað og leggja til þess héraðs sneið af hinum. Nefndin ræður því til að frv. sé felt. 2. Sama nefnd hefir og skilað áliti um frv. Skúla Thoroddsens um að gera Hólshrepp með Bolungarvik að sérstöku læknishéraði. Leggur néfndin einnig tii, að það frv. sé felt. Hins vegar vill nefndin að aðstoðarlækninum á ísafirði sé framvegis gert að skyldu að sitja i Bolungarvík. Vitanlega sé ekki hægt að skylda núverandi aðstoðarlæknir til þess, og því vill nefndin að styrk- ur sá, sem Hólsbreppingum er ætl- aður í fjárlögunum til að leita sér læknishjálpar, verði hækkaður úr 300 kr. upp í 500 kr. á ári, unz aðstoðarlæknaskifti verða á ísafirði. — Þessar tillögur eru í samræmi við skoðun landlæknis. 3. Eiðaskólinti. Þingmenn Múlasýslna og Austur- Skaftafefissýslu flytja frv. um stofn- un alþýðuskóla á Hiðum, stað bún- aðarskólans þár. Landssjóður taki við öllum eignum og skuldum Eiða- stóls í fardögum 1918 enda sé al- þýðuskólinn rekinn á kostnað lands- sjóðs og hafi landsstjórnin öll ráð hans. Skólinn á að vera samskóli, í tveimur bekkjum. Námstími 2—3 vetur. Auk ýmsra venjulegra kenslu- greina á að hafa þar búnaðarnám- skeið haust og vor 3—4 vikur, sem nemendum er þó ekki skylt að taka þátt í og fyrirlestrarskeið um miðs- vetrarleytið fyrir almenning. Kenn- arar 2 fastir, skólastjóri með 2600 kr. árslaun og aðstoðarkennari með 2000 kr., auk íbúðar, ljóss og hita. Skólaárið sé frá 20. okt. til 10. mai. Meðan heimsstyrjöldin stendur má stjórnin reka skólann á hvern þann hátt, sem hentast þykir, eða jafnvel láta kenslu að einhverju leyti niður falla, Ástæður flm. eru þær, að búnaðar- skólinn á Eiðum hafi ekki hlotið þá hylli og aðsókn, sem vænta mátti, einkum síðan sjávarsveitunum í Suður-Múlasýslu óx fiskur um hrygg. En hins vegar hafi óskin um æðri alþýðuskóla verið mjög rik þar eystra. Því hafi sýslunefndir beggja Múla- sýslna orðið ásáttar um að bjóða landssjóði skólaeignina með þessu skilyrði. Eignin ætla þeir að verði ekki undir 100 þús. kr. að sanngjarnlegri virðingu, en á henni hvili um 10 þús. kr. skuld, og ætti því lands- sjóði ekki að vera bundin þung byrði með kaupum þessum. 4. Manntal l Reykjavik. í efri deild er komið frv. frá Kristni Daníelssyni um breyting á á lögum nr. 18 1901, um manntal í Reykjavik. Fer frv. fram á: r. að bætt sé við ákvæði um, að hagstofunni sé látið í té á ári hverju endurgjaldslaust eftirrit af öllu manntalinu. 2. að prestar bæjarins verði losað- ir við að halda sálnaregistur. Úr efri deild í gær. 1. Tillaga til þingsil. um útveg- un á nauðsynjavörum; síðari umr. AtvinnumálardSherrann lét þess fyrst getið, að rétt væri, að þeir ein- stakir þingmenn, sem hefðu einhver bjargráðamál á prjónunum, sneri sér með þau erindi til bjargráðanefnda, sem nú sætu á rökstólum í báðum deildum. Svo minti hann og bjarg- ráðanefndir á að kynna sér í stjórn- arráðinu aðgerðir ráðuneytisins og fyrirætlanir í verzlunarmálum o. fl., áður en þær legðu fyrir þingdeild- irnar tillögur sínar i þeim efnum. Þá óskaði hann skýringar bjarg- ráðanefndar á því, hvort skilja bæri tillöguna svo, að landstjórninni væri ætlað að kaupa ársforða af umrædd- um vörutegundum eða hvort í til- lögunni fælist það eitt, að stjórninni væri falið að sjá um, að þessi forði kæmi inn i landið i sumar, að með- töldu því, sem aðrir en stjórnin flytti inn. Loks tók ráðherra fram, að sumir hefðu skilið orð sin svo í qær, að hann hefði sa$t, að til væri 8 mánaða forði handa landinu. Þetta hefði ekki átt að skilja svo, heldur hefði hann meint, að 8 mánaða forði aetti að vera til, (þ. e. a. s. að það væri æskilegt.). Framsögumaður, Karl Einarsson, skýrði frá að bjargráðanefnd hefði fyrst sent áskorun, samhljóða tillög- unni, til landstjórnarinnar, en skýrsla þaðan til þingsins um athafnir stjórn- 774/7>7 BÍÓ Kraftur bænarinnar. Framúrskarandi fallegur sjónl., leikinn af Vitagraph-félaginu í Ameriku, af sönnum viðburði. Þeir sem halda fram að aldrei séu sýndar nema ljótar og sið- spillandi myndir, ættu að sjá þessa mynd. í göngufor. Gamanmynd leikin af Nordisk Films Co., af þeim Oscar Stribolt, Frederik Buch, Lauritz Olsen. Alt er þá þrent er!!! c7 fjarvQru minni frá 22. júlí til miðjan ágúst, gegnir ljósmóðir Kristín fónsdóttir Stýrimannastíg 8, störfum mínum. f>ðrdís Jðnscfóttir, ljósmóðir. arinnar hefði ekki komið fyr en i gær. Nefndinni hefði þótt málið svo mikilsvert og aðkallandi, að hún hefði ekki þózt geta dregið að leggja áskorunina fyrir deildina í tillögu- form.i, þar sem vitanlega væri hér víða tilfinnanlegur skortur á ýmsum þeim vörum er getur um í áskor- uninni, og málið þyldi því enga bið. Fyrirspurn ráðherra svaraði hann svo fyrir hönd nefndarinnar að hún ætti við að landsstjómin sæi um að ársbirgðir væru til eftir sumarið af öllum þessum vörum, sem taldar væru upp í tillögunni. Stjórnin ætti ekki eingöngu ,að kaupæsjálf, heldur að greiða f^^rir því að kaupmenn og aðrir fengju einnig vörur fluttar hingað, og það múndi stjórnin bezt geta gert með því að útvega þeim skipakost. Þar væru aðal-örðug- leikarnir. Þingsályktunartillagan var samþ. með 11 samhlj. atkv. og afgreidd til neðri deildar. 2. Frv. um Miklaholtsprestakall. r. umr. Flm. Halldór Steinsson talaði fyrir frv. Þótti honum þingi og stjórn skylt, á meðan þjóðkirkja væri hér, að sjá um að kirkjustörfin færi sæmilega úr hendi, en það gæti ekki orðið, ef prestaköllin yrðu gerð alt of víðlend. Svo færi í Snæfellsnes- prófastsdæmi, ef Miklaholtspresta- kall yrði lagt niður við næstu brauða- skifti. Aðrir tóku ekki til máls. Frv. vísað til 2. umr. og alls- herjarnefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.