Morgunblaðið - 29.07.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.07.1917, Blaðsíða 1
4. árgangr 'Sunmulag 29 júlí 1917 264. tðlublað K’tstv'”r'>fsími nr. ^no Rtstióri: Vtl'url<< ur Fin^en ísáolDa'pr-nt'í'ry^ta Afyrfjns'hs'mi nr 500 3101 |BI0| tnUtini 475 Hinn óitðlegi leyndardómur veitingahússins. (Easterbrook-.n. lið). Afarspennandi leynilögreglumyr d í f>rem f>áttum. Leikin af frægustu leikurum Vitagraph-fébgsins i New York. £rí. simfregnir Opinber tilkynning frá brezku utan- ríkisstjórninni í London. London ódagsett. Hið markverðasta, sem gerst hefir á herlfnu Breta, er hin litlausa stór- skotahríð r.f beggja hálfu og hefir hún orðið svo áköf að þess eru eng- in dæmi fyr. Þjóðverjar drógu fyrst saman stórar fallbyssur í strandhér- uðunum, en Bretar svöruðu þeim með jafn vel enn þá ákafari stór- skotahríð og höfðu betur, vegna þess að þeir höfðu betra flugmanna-eftirlit. Siðan drógu Þjóðverjar saman stór- skotalið á mörgum helztu stöðvun um milli Loqnbaertsyde og Lens, en Bretar guldu allsstaðar i sömu mynt. Likur bendatil þess að Þjóð- verjar séu að undirbúa grimmilega sókn og munu þeir hafa dregið sam- an ógrynni liðs og fallbyssur á ýms- um stöðum. Bretar gerðu tiðar útrásir og handtóku í þeim marga menn, en biðu sjálfir litið tjón. Orustur í lofti hafa ekki verið jafn skæðar sem áður, færri óvina- flugvélar hafa dirfst að hætta sér út og ekki gert árásir nema þau hafi verið miklu fleiri saman heldur en flugvélar Breta. Enn hefir verið hald- ið áfram að skjóta úr lofti á flug- vélaskýli, forðabúr og járnbrautar- stöðvar óvinanna. , Vígrstöðvar Frakka. Þýzki rikiserfinginn heldur áfram árásum á héruðin hjá Craonne og Meuse. Er það augljóst að Þjóð- verjar eru neyddir til þess að ná sigri á einhvern hátt svo að lægi óánægjuna heima fyrir út af því hvernig kafbátahemaðurinn hefir mis- hepnást. Alla vikuna hafa Þjóðverj- ar -*£ert áhlaup, hvert á eftir öðru, í líeraðinu umhverfis Chemin des Da- mes. Hafa þeir sent fram heilar herdeildir á litlu svæði og sótt fram i fylkingum undir skothrið á stuttu færi. Sumstaðar komust þeir að skot- Hjartans þökk til hins háa Alþingis, sem og allra hinna mörgu fjær og nær, er heiöruhu ftiinningu sonar mins Skúla S. Thoroddsen og sýndu mér samúð viö fráfall hans og útför. Reykjavík 28. júli 1917 Theodóra Thoroddsen. gröfum Frakka, en gátu hvergi náð fótfestu og manntjón þeirra var jafn mikið eins og þegar það vr.r mest í orustunum hjá Verdun.1 Stórskota- hríð stendur hin ákafasta af beggja hálfu. Vígstððrar ítala. Þar bafa aðallega verið útvarða- skærur, skotgrafaútrásir og stórskota- liðsorustur. ítalskir flugmenn hafa yfirhöndina i loftinu og hafa skotið á forðabúr Austurríkismanna. Frá Balkan. Bretar gerðu sigursæla árás á Homondos og tóku þar fanga. Brezk- ir flugmenn halda áfram að skjóta á herbúðir óvinanna, járnbrautar- stöðvar og forðabúr. Norðan við Monastir hefir staðið stórskotaliðs- orusta. Frakkar og Serbar hafa gert margar útrásir. Frá Rússmn. Fregnir frá vígstöðvum Rússa eru eigi góðar. Norðurherinn hóf sókn og sótti fram í Smorgon-héraði, en vegna óáreiðanleika hersveitanna gat hann eigi haldið velli. Rússar hafa og mist alt það er þeir unnu á í sókninni hjá Taropol fyrir skemstu, yfirgefa borgir og hörfa undan á löngu svæði vegna hins sama ó- áreiðanleika hermannanna. Rússnesku herforingjunum hefir verið gefið fullkomið vald til þess að stöðva upplausn hersins og menn vona að undanhaldið verði nú ekki meira. í Moldavia hafa Rússar og Rú- menar unnið sigur hjá Susitza, tekið 33 fallbyssur að herfangi og hand- tekið yfir þúsund menn. í Gyðingalandi og Mesopotamiu hefir engin breyting orðið. Frá Austur-Afríku. Áköf ornsta hefir staðið sunnan og vestan við hafnarborgina Kilwa. Ráðist var á aðalsstöðvar Þjóðverja hjá Narokgombe hinn 18. júlí. Veittu þeir örðugt viðnám og biðu mikið manntjón. Aðalher þeirra var hrakinn frá sterkum stöðvum og heldur hann nú nndan til suðurs í áttina til landamæra Portugals-ný- lendu. Erf. símfregnir frá fréttar. IsafoSdar og Morgunbl Katpmannahöfn, 27. ýúlt. t»jóðverjarhafasóttlram hjá Ailles og hafa tekið 1150 fanga. Kerensky heíir látið dæma alla uppreistarher- menn til lífláts. Rússar hala hðrfað frá Buczacz og Delakyn. • Símfregnir. ísafirði í gær. Alþingiskosningar eiga að fara fram í Norður-ísafjarðarsýslu hinn 18. ágúst. Síra Guðmundur Guðmunds- son frá Gufudal hefir þegar boðið sig fram og fleiri munu koma á eftir, þótt enn sé of snemt að nefna nöfn. Hafís er hér skamt undan Iandi. Er honum kent um það, að ekkert veiðist af síld hér vestra. Fiskafli væri hér nú líklega talsverður, þvi að róðrarbátar við Djúpið hafa aflað vel, en allir vélbátar eru nú að reyna að ná í síldina. Hafnbannið á Þýzkalandi. »Times« segir að Bandaríkjastjóm láti nú staría að þvi að fá skýrslur um viðskifti hlutlausra þjóða og Þýzkalands. Við rannsókn þessa hafi það komið í ljós að sumar hlutlausar þjóðir hafi falsað verzlun- arskýrslur sinar til þess að láta líta út sem þær seldu Þjóðverjum engar vörur. í tilefni af þessu hefir svo brezka blaðið »Morning Post« aftur risið öndvert gegn Hollendingnm og 774/777 BÍÓ paío öíbiígðaíinnar Ljóæandi f.tllegur sjónleikur leikinn af Vitngraph-íéiags ágætis !e:kurum, þar a meðnl hinni fógru leikkonu Aniui Stoward, sem nú er eftirlætisgoð allra kvikrryndavina fvrir það hve aðdáttilega vel hún leikur. Rönneby-áin í Sviþjóð. Fögur og litskr. náttúrumynd. Munið eftir Simi 286. Laugavegi 12. Dönum og ásakar þá fyrir það að senda Þjóðverjum matvæli í stórum stil. Hafnbannið sé bara hneyksli. Robert Gecil lávarður hafi látið sitt eigið ráðuneyti blekkja sig. Ef hafnbannið hefði verið fullkomið, þá mundi striðinu hafa verið lokið fyrir 18 mánuðum. Stingur blaðið sein- ast upp á því að skipuð verði rann- sóknarnefnd , til þess að komast að þvi hver eigi sök á þvi að þannig hafi farið nm hafnbannið. ■---—--CXO-.... Utanríkiswzlun Japana. Eftir því sem blaðinu »Economist« segist frá, hefir utanríkisverzlun lapana stórum minkað nú upp á síðkastið, sérstaklega þó verzlunin við Rúss- land og Ástralín. Þetta er aðallega því að kenna, að menn eru óánægð- ir með japanskar vörur og auk þess hafa Rússar lagt inuflutningsbanu á sumar þeirra. Þegar Bretar færðu saman kviarnar og létu skip sín eigi flytja aðrar vörur en þær, sem eru á einhvern hátt bráðnauðsynlegar, minkuðu mjög viðskítji þeirra við Japan, og eru japanskir kaupmenn hvergi nærri ánægðir með þessa breyt- ingu. í janúarmáðuði í vetur var útflutn- ingur frá Japan til Rússlands um 10 milj. yena minni að verðmæti held- ur en næsta mánuð á undan. Mest

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.