Morgunblaðið - 12.08.1917, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.08.1917, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ áður dæmt ólögmæta og óverjandi, f>á göngum vér eigi einungis á bak ákveðinnar yfilrýsingar sem birt var öllum heimi, heldur kveðum vér þá niður þau lög, sem frelsi úthafanna byggist á. Tii þess að vera hreinskilnir, þá skulum vér segja það, að vér erum bæði á móti og óttumst þá stefnu stjórnarinnar að elta útlendar stefnur. Oss virðist sem á því beri meira dag frá degi að vér séum öðrum fylgj- andi í stað þess að hafa forystu eins og samir forvígisþjóð frelsis og lýð- réttis. En það er annað, sem líka ber að varast. Ef gengið er of langt, þá getur vel verið að hlutlausu þjóðirn- ar sjái sinn hag í því að ganga í bandalag við Miðveidin. (Síðan talar blaðið um það hvað það mundi þýða fyrir ófriðinn ef þannig færi og held- ur siðan áfram): Vér höfum opinberlega tilkynt það að vér höfum gengið í ófriðinn til þess að verja alþjóðalög, réttindi og frelsi frjálsra þjóða, hvort sem þær eru smáar eða stórar. Vér getum eigi varið það að hefja ófriðinn með því að ganga í berhögg við samþyktir og grundvallaratriði alþjóðalaga með því að ganga á rétt smáþjóðanna. Vér ættum að reka ófriðinn í samræmi við þær ástæður sem vér höfðum til þess að rjúfa frið. Vér eigum að breyta eins við hlutlausar þjóðir eins og vér mund- um vilja að breytt væri við oss. Ef vér viljum fá þær í bandalag við oss, þá ættum vér að reyna það með lempni. Að minsta kosti ættum vér eigi að reyna að neyða þær til þess með því að breyta við þær á þann hátt, er stjórn vor hefir áður talið ólöglegt og óverjandi. Ef vér ætlum að berjast fyrir mann- legu frelsi og rétti smáþjóðanna, al- þjóðalögum og siglingarétti, og til þess að koma á réttlæti í stað vald- beitingar, þá verðum vér að gæta þess vandlega að virða réttindi ann- ara þjóða, að vera réttlátir við hvern sem um ei að eiga, beita engum rangindum við smáþjóðir — eigi einu sinni með þeirri afsökun að oss reki hernaðarnauður til þess. — Vér verðum alt af að gæta þess í öllu að vér komum fram sem heiðvirð þjóð, er berst með heiðarlegum vopn- um fyrir heiðarlegu málefni — fyrir auknu réttlæti, frelsi, frið og bróður- þeli meðal þjóða þeirra er jörðina byggja.---------- Nú er komin fregn um það, að samkomulag sé fengið með hlutlausu þjóðunum og stjórninni í Bandaríkj- unutn. Er svo að sjá á skeytum sem það samkomulag sé þannig, að hlutlausu þjóðirnar fái vörur keyptar og fluttar út frá Bandaríkjunum eftir sem áður, gegn'því skilyrði að þær flytji ákveðna smálestatölu af mat- vælurn til Bretlands vestan um haf.. Hellarair eysira. Elstu húsin hér á landi. Fornmenjavörður er nýkominn úr ferðalagi austur um Rangárvallasýslu. Fór hann þá ferð einkum til þess, að athuga hella þá, er menn nota þar í ýmsum sveitum sem fjárhús og heyhús. Hefir Brynjólfur heit. frá Minna- Núpi lýst sumum þessara hella í Arbók Fornleifafélagsins og látið í ljósi þá ætlun, að þeir kynnu sumir hverjir að vera frá því fyrir land- námstíð, menjar hinna írsku einsetu- manna, Pápanna, er landnámsmenn fundu hér fyrir. Ef tii vill rekur menn líka minni til þess, að Einar Benediktsson hélt fram sömu hug- mynd í Fjallkonunni, fyrir mörgum árum. A þessari ferð sinni athugaði forn- menjavörður um 50 af þessum hell- um, eða nær alla er hann fékk til spurt. Alitur hann vafalaust að hell- arnir séu allir að öllu eða mestu leyti af manna höndum gerðir, höggn- ir í móberg, þursaberg og hörð sand- lög. Aldur þeirra álítur hann örðugt að ákveða. Þeirra er engra getið i fornum ritum, en þó segir hann kunnugt að hellar hafi, að minsta kosti á höfuðbólinu Odda, verið not- aðir fyrir nautgripi á 12. öld. — A gerð hellanna, myndum og áletrun, sem í þeim eru sumum, verður ekki beinlínis séður hár aldur. Sumstaðar hefir lögunin umbreyzt við langvar- andi notkun, einkum þeirra, sem notaðir hafa verið fyrir sauðfé. Sum- um hafa menn breytt viljandi, en aðiir hafa aflagast af náttúrunnar völdum. Aletranir þær sem íotnmenjavörð- ur varð var við í hellunum, virtust honum ekki benda á sérlega háan miklum sandfoksveðrum. Þetta eru skiljanleg æðruorð þeirra manna, sem orðnir eru ráðþrota, þreyttir og vonlausir að búa undir slíkri land- plágu, sem sandfokið er á þessum stöðum. Sannleikur er það líka, að viða er þar mjög örðugt við að gera og kostar mikið fé. Verður því að at- huga á slíkum stöðum, hvers virði það er, sem liggur undir skemdum og hversu vítt svæði sandfokið getur skemt. Af því verður svo að ráða, hvort leggjandi er í þann kostnað sem verkið mundi kosta til að af- stýra skemdunum. Auk sandfoks í Landmannahreppi og á Rangárvöllum, er víða ann- ars staðar uppblástur í Rangárvalla- sýslu, t. d.: Reynifellshólma, Hvols- velli, Kambsheiði, Kaldárholti, og all víða með Þjórsá að austan. í Arnessýslu eru einnig mörg appblásturssvæði, t. d. með Þjórsá frá Murneyri fram undir Þjótanda, og frá Egilsstöðum til sjávar. Einn- ig viðast með fram sjávarströndinni, frá Þjórsá út í Selvog, og auk þess með Ölvesá frá Kaldaðarnesi upp undir Selfoss. Enn er ótalið sand- fokssvæðið hjá Reykjum á Skeiðum, sem stefndi fram miðja sveitina og voru því öll Skeiðin í hættu fyrir því sandfoki. Ekki hefi eg enn þá nefnt sand- fok né uppblástur nenja í Rangár- vallasýslu og Arnessýslu — en víðar eru stórkostlegar skemdir af sandá- gangi, t. d. í Skaftafellssýslunum, hjá Möðrudal á Fjöllum, i Axarhrði, Húnavatnssýslu, Bolungarvik og viðar. Mjög eru mikil áraskiftí að, hve skemdir eru miklar af sandfoki. Þannig var árið 1882 eitt hið versta er menn muna. Einnig má segja, að árið 1917 skilji ekki eftir góð merki á ýmsum stöðum. Þá er að minnast á hvað gert hefir verið, til þess að verjist sand- foki. Skal eg fara þar fljótt yfir sögu, en minnast þó á það helzta. 1905 var fenginn hingað dansk- ur sandgræðslumaður, Overklitfo- ged C. F. Dalerup frá Skagen á Jótlandi. Ferðaðist hann um Ar- nessýslu og Rangárvallasýslu og skoðaði sandfokssvæði allviða. Eft- ir tillögum hans var eg ásamt öðrum manni sendur til Jótlands 1906, til þess að kynnast sand- græðslu þar. Dvaldi eg þar eitt ár. Síðan 1^07 hefi eg svo unnið að sandgræðslutilraunum, fyrst undir stjórn skógræktarstjórans — en nú siðastliðið ár undir eftirliti Búnaðar- félags íslands. Fjárveiting til sandgræðslu hefir vanalega verið 2—4 þús. kr. ár- lega, að frádregnum launum min- um. Þessu litla fé, samanborið við það verkefni, sem íyrir hendi hefir verið, hefir mest verið varið til þess að girða af sandfokssvæði. Fyrsta skilyrðið til þess að geta grætt upp sanda, er að friða svæð- ið, sem græða á. Girðingar hafa veiið settar í 10 stöðum; að lengd frá 700 m. til 10,000 m. Auk þessara giiðinga eru einnig fleiri mannvirki, sem árlega þurfa við- hald. Þetta fé, sem nú er áætlað (5000 kr.) er svo vardræðalega lítið, að það mun varla hrökkva til viðhalds þeim mannvirkjum, sem gerð hafa verið, ef þeim væii haldið í sæmilegu lagi. Reyndar hefir altaf verið unnið ofurlítið að sandgræðslu á þeim stöðum, sem ekki hafa verið girt — en slík vinna er ekki annað en kák, vegna þess að fé hefir vantað til þess að vinna það, sem að verulegu gagni kemur. Á þeim stöðum, sem skemdirnar eru orðnar talsverðar, þá þarf mikið fé, til þess að vinna svo mikið,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.