Morgunblaðið - 28.08.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1917, Blaðsíða 1
l»riðjudag 4. árgatígr 28. ágúst 1917 ORGuNBLABIÐ 294. tðlublað Ritstjómarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiója AfgreiÓs!nsimi nr. 500 Gamla Bio Baráttan um gullnámuna Afarspennandi sjónl. í 3 þáttum leikinn af fyrsta flokks ítölskum leikurum. Myndin er efnisrik, framúr- skarandi vel leikin, og ein af þeim myndum sem allir munu hafa gaman af að sjá. Fjáraukalög 1916 1917. Álit er komið frá fjárveitinga- nefnd Ed. um frv. til fjárauka- iaga 1916—1917. Af breytingartillögum þeim, sem nefndin gerir við frv., eru þessar helstar: Uppbótastyrkur til sjúkrahúsa 0g sjúkraskýla hækki um helm- ing, eða úr 4200 kr. upp í 8400 kr. Þykir nefndinni bersýnilegt, að sjúkrahælin verði ekki rekin framvegis, nema því að eins, að landssjóð8styrkurinn hækki að miklum mun. Styrkur, sem Þórhalli kaup- manni Danielssyni i Hornafirði er ætlaður fyrir að halda uppi ferð- tim að og frá Hornafirði árið 1916, lækki úr 7 þús. kr. niður i 5 J>ús. kr. Styrkur af símafó til Brynjólfs Einarssonar, verkstjóra, hækki úr 1 þús. kr. upp í 1700 kr. Er sú íhækkun i samræmi við lagafrum- varp um slysatryggingar. Nefndin vill bæta við: Til handavinnunámskeiðs kvenna á Akureyri 1916 og 1917 600 kr. Til bókasafns Austurlands, styrk til að kaupa bókasafn Ásgeirs heit. Torfasonar 3 þús. kr. »Bæk- ur þær, sem hér um ræðir, eru bæði margar og í afbragðs standi, ^og eru að vitnisburði hins bók- fróðasta manns, Jóns Þorkelsson- ar, skjalavarðar, fremur lágt en hátt virtar, svo að kaupin mega þess vegna frá þeirri hlið skoðað teljast góð, en á hinn bóginn þörfin mjög mikil bjá bókasafni Austurlandsins fyrir að eignast þetta safn«. Loks vill nefndin veita tveggja ára frest á afborgun af láni úr viðlagasjóði til bryggjugerðar í dStykkishhólmi. Framsögum. Eggert Pálsson. JarSarför minnar hjartkæru eiginkonu er ákveðin fimtudaginn 30. ágú8t og byrjar meB húskveðju kl. 11 Va f. m. frá heimiii hennar, Framnesvegi 1 B. Þeir vinir hennar, sem hafa ætlað sér að leggja blómsveiga á leiði hennar, eru eftir hennar eigin ósk, beðnir að minnast heldur spitalasjóösins. Reykjavík 27. ágúst 1917. Gunnl. Pétursson. I Frá alþingi. Nýungar. Holrœsi 0% qanvstéttir á ^Akureyri. Allsherjamefnd Nd. leggur til, að það frv. verði samþ. óbreytt. Frsm. Einar Arason. Málskosnaður einkamála. Ed. hefir gert þá einu efnisbreyt- ingu á frumvarpi þessu, að dómari er látinn nokkru frjálsari um það, að láta málskostnað niður falla, ef vafaatriði eru í máli. Allsherjarnefnd Nd. fellst á þessa breytingu og ræður deildinni til að samþykkja frv. Frsm. Einai Arnórsson. Flóaáveitan. Landbúnaðarnefnd Ed. hefir nú athugað það mál, og læður til að frv. gangi fram. Að eins finsthenni ástæða til að athuga það atriði, að ef til þess kæmi, að jarðeigendur vildu eða þyrftu að láta land af hendi til landssjóðs upp í áveitu- kostnaðinn, að það yrði þá svo stórt, að trygging sé fyrir því að lands- sjóði sé það rentubær eign. Ber nefndin fram breytjngartill. i þessa átt. Fjárveitinganefnd efrideildar hefir athugað fjárhagshlið frv. þessa, og telur frá þvi sjónarmiði fyrirtækið ekki ofvaxið landssjóði. Mceltiæki og vogarákðld. AUherjarnefnd Ed. hefir athugað orðabreytingar þær, sem Nd. hefir gert, og álitur flestar fremur til bóta. Leggur hún til að frv. sé samþ. óbreytt. Vitabyggingar. Sjávarútvegsefnd Nd. flytur frv. um að landsstjórninni sé heimilt að láta framkvæma, eftir þvi sem vinnu- kraftur sá, sem vitastjórnin hefir á að skipa, og önnur atvik og ástæður leyfa, byggingu 21 stærri vita og 38 smærri og 5 þokulúðra- stöðva. Eru vitar þessir taldir upp 1 frv. Þá er og lanstjórninni heimilt að setja upp sjómerki á landi og sjó þar sem þörf gerist og hentugt þykir. Bygging vitanna framkvæmist eftir röð, er landsstjórninni með ráðum vitamálastjóra þykir rétt, og að fengn- um tillögum stjórnar Fiskifélags ís- lands og stjórnar Eimskipafélags ís- lands. Einnig er landsstjórninni heimilt að framkvæma þær breytingar og endurbætur á vitum þeim er þegar eru bygðir, sem reynsla sýnir að nauðsynlegar séu. Til vitabygginganna er stjórninni heimilt að taka nægilega stór lán. Henni er og veitt heimild til að breyta um Iegu vitanna, með ráði vitamálastjórnar og í simráði við Fiskifélag Islands og Eimskipafélag íslands, eftir því sem hentugra kynni að þykja. Frv. er að mestu samið af Th. Krabbe, vitamálastjóra. Ur efri deild í g»r. 1. Frv. um vegi í Húnavatns- sýslu; 3. umr. Samþ. óg afgr. til Nd. 2. Frv. um hjónavígslu; 3. umr. Samþ. og endursent Nd. , 3. Frv. um seðlaaukning ísl.- banka; 3. umr. Samþ. 0g afgr. ,sem lög frá alþingi. 4. Flóaáveitu-frumvarpið; 2. umr. Framsm. Hjörtur Snorrason talaði nokkur orð fyrir málinu, með breytingu þeirri, sem nefnd- in vill gera á frv. — Frv. var satnþ. með brt. og málinu vísað til 3. umr. 5. Frv. um skiftingu bæjarfó- getaembættisins i Reykjavík; 2. umr. Um það mál urðu nokkrar umræður. Framsögum. Hannesi Hafstein þótti það misrétti að ætla bæjar- fógetanum og lögreglustjóranum hvorum um sig 6 þús. kr. í laun, ef ekki yrðu jafnframt hækkuð laun landsyfirdómendanna, enda væru þau út af fyrir sig óhæfi- lega lág. Halldór Steinsson, EggertPáls- son 0g Sigurður Eggerz töluðu allir á móti því, að sett yrði inn i þetta frv., eins og allsherjar- nefnd hafði lagt til ákvæði um hækkun á launum landsyfirdóm- endanna. Viðurkendu þeir að vísu, að laun dómendanna væru alt of lág, en Halldór Steinsson hugði að það mundi tefja fyrir mjjn bíó cTZýtf prégram í fiv&lél Bezt nð auglýsa í Morgunbl, endurskoðun launalaganna, ef far- ið yrði nú að taka einstakan -flokk manna út úr; og Sigurður Eggerz hugði að það mundi ef til vill geta orðið skiftingu bæjarfógeta- embættisins, jafnmiklu nauðsynja- máli og það væri, að falli, ef farið yrði að fleyga það með á- kvæði um óskyld efni. Magnúsi Torfasyni fanst það ranglátt að láta launaviðbót til landsyfirdómendanna bíða eftir því, að endurskoðuð yrðu launa- lögin. Sá andi rikti ekki í Nd. nú, að horfur væri á, að því máli yrði hraðað. Bætur á kjör- um dómendanna þyldu ekki bið. Svo fór, að feld var með 7:6 atkv. breytingatíllagan um að skeyta inn i þetta frv. launa- hækkun til landsyfirdómendanna. Mun nú koma fram sérstakt frv. um það, þótt seint sé. Aðrar breytingatillögur nefnd- arinnar, svo sem að nefna annað embættið lögreglustjóraembætti (en ekki tollstjóraembætti) gengu fram. Frv. vísað til 3. umr. með öll- um greiddum atkv. \ 6. Frv. um framlenging á frið- unartíma hreindýra; 2. umr. Samþ. og vísað til 3. umr. 7. Frv. um hækkun tekjuskatts; 1. umr. Vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. Úr sameinuðu þingi í gær. í stað Skúla beitins Thorodd- sens hafði Sjálfstæðisflokkurinn tilnefnt í kjörbréfanefnd Bjarna Jónsson frá Vogi. Þetta var samþykt af þinginu án atkv.gr. Hinn nýkosni þingm. Norður- ísflrðinga, sira Sigurður Stefáns- son, sem kominn var á fundinn, afhenti kjörbrjef sitt. Kjörbréfanefnd gekk út til að rannsaka kjörbréfið, en kom aft- ur að vörmu spori og lagði til að kosningin yrði tekin gild. Var kosningin samþykt að þingheimi i einu hljóði. Forsætisráðherra framlengdi, í umboði konungs, þingið til 10. september, að þeim degi með- töldum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.