Morgunblaðið - 07.09.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.09.1917, Blaðsíða 1
ITöstudag 4. árgaugr 7. sept. 1917 304. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 R tstjóri: Vilhjáhmir Fmsen ísafoldarpréntsmiója Afgreiðslusitni nr. 500 Gamla Bio Saga ladas fðgru. Nótíðarsjónleiknr í 3 þáttum, leikinn í fegurstn héruðutn ítaliu og á hæðstu tindum A’pnfjalla. Aðalhlutv. leikur ein af bsztu kvikmyndakonum ítala Frk. Lcda Gys. Saga Ledas fögru er áhrifamikil og afatspennandi, og hefir fengið mikið lof í blöðum erlendis. mi Erl. simfregnir. frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl ). -9-- / K.höfn 5. sept. Rússar höría undan á norðurvíg&töðvuuum. JÞeir hafa yfirgefið Duuumiinde. Þjóðverjar náðu miklum hergögnum af Rússum í Riga. — Konstantin fyrverandi Grikkjakonungur mótmæl- ir því að Venizelos birti stjórnarskjöl hans. Euginn brezkur verka- maður mun taka þátt í Stokkshólmsfundinnm. Khöfn, 5. sept. Vegna þess að kom- ist hefir upp um sam- tök í Moskva til þess að gera gagnbyltingu í ríkinu, hafa þeir stór- hertogarnir Michael og Paul Alexandroritch ver- ið hneptir í varðhald. I»að er búist við því að páfinn muni gara aðra til- raun til þess að koma á friði. Ribot er að ertdurskapa r áðuneyti sitt. Frönsku blöðin krefjast þess að Japanar komi Rússum til hjálpar. Þegar Þjóðverjar fóru yfir Vínu(Dvina) mistuþeir aðcins 150 fallinna og særðra manna. i Reykjavík, sem ætla að láta báta sína stunda fiskiveiðar i baust og á komandi vetrarvertíð, gefi matvælanefnd skýrslu um nafn báts og einkennistölu, hestöfl vélar og steinolíuþört, mánuð- ina oktöber, nóvember og desember þ. á., og sérstaklega mánuðína janúar, íebrúar og marz næsta ár. Ennfremur skal tilgreina hvort bátarnir eiga að ganga til fiskjar héðan, eða þá hvar annarsstaðar og stundatölu, sem ætla má að bát- arnir gangi hvora 3 mánuði. Skýrslu þessa þarf að gefa fyrir 8. þ. m. til þess að hægt sé að skýra landsstjórninni írá steinolíuþörfinni til útgerðar hér í bænum. Borgarstjörinn i Reykjavík 4. september 1917. ' K, Zimsen. Hamingju- draumar Sjónleikur í 3 þáttum, 50 atr., tekinn af Nordisk Films Co. G«nnar Sommerfeldt leikur aðalhlutverkið. Tölusett sæti. Hjartanlega þakka eg öllum sem sýndu mér hluttekningu i fjarveru mannsins mins, við fráfall litla drengsins mins. Stefanía Björnsdöttir. ^ Jarðarför mðður og tengdamóður okkar, Sigriðar Vigdisar Gestsdðttur, fer fram laugardaginn 8. þ. m. kl. 12 á hádegi frá heimili okkar, Austurstræti 3. Guðrún Jósefsdóttir. Jön Brynjólfsson. $£ng sfúlfia óskar eftir atvinnu í haust, helzt við skriftir eða heimiliskenslu. Upplýsingar gefur forstöðukona Kvennaskólans. Frá alþingi, Nýungar. Tolllaqabreytinq. Fjárhagsnefnd Ed. heldur fast við gerðir Ed. um að’ hækka ekki toll af tóbaki, en þá hækkun hefir Nd. sett aftur inn í frv. Fer nefndin um þetta svo feldum orðum í framhaldsáliti sínu: »Þótt hér sé um nokkurn tekju- auka að ræða, þá lítur nefndin svo á, að ekki sé fært að hækka tóbaks- tollinn á þessum tímum. Htekkunin mundi að vísu koma niður bæði á rikum og fátækum, en htin yrði mikið tilfinnanlegri fyrir fátæklinga, því að það má ganga út frá því sem visu, að tollhækkunin mundi ekki draga neitt verulega úr tóbaks- nautninni. Menn eiga ytírleitt eins erfitt með að neita sér um tóbak sem marga nauðsynjavöru. Auk þess ber og að líta á það, að eftir því sem tollurinn hækkar, má frekar búast við tollsvikum, sem hingað til hefir kveðið lítið að í landinu.* Slysatry^ina sjótnanna. Sjávarútvegsnefnd Ed. felst eftir atvikum á breytingu þá, sem frv. hefir orðið fyrir í Nd., og áður er getið hér í blaðinu, og ræður til að það gangi fram. Frœðslutnál. Tillögu til þings.ál. er Bjarni frá Vogi hefir flutt, um uppeldismál, og áður er birt hér i blaðinu, vilja þeir Þorsteinn Jónsson og Gísli Sveins- son gerbreyta. Leggja þeir til, að hún hljóði svo: »Tillaga til þingsályktunar um fræðslumál. Alþingi ályktar að skora á stjórn- ina að skipa nefnd manna til að at- huga fræðslumál landsins og gera tillögur um, hversu alþýðufræðslunni verði bezt hagað. Þetta skal einkum athuga: 1. A hvaða aldri muni hentugast að hafa skólaskyldu. 2. A hvern hátt mætti byggja sem mest á heimiiisfræðslu, og ganga Þó jafnframt svo frá eftirliti með henni, að tryggilegt væri. 3. Að vandlega sé gætt þeirrar stefnu, að tryggja öllum börn- um jafnan rétt til fræðslu, hvað sem um er efni og ástæður. 4. Hversu breyta irætti kennara- skólanum, svo að kennarar verði sem bezt búnir undir starf sitt. y. Að tryggja kennurum sæmileg æfikjör. 6. Hversu bezt yrði# komið fyrir unglingafræðslu í landinu, fjölg- að unglingaskólum og komið á þá föstu skipulagi í samræmi við barnafræðsluna og við æðri skólana eftir föngum. Enn fremur skorar Alþingi á stjórn- ina að undirbúa og leggja þegar fyrir næsta þing frumv. til laga um bráðabirgðabætur á launum og ráðn- ingarkjörum barnakennara«. Utnuelinqar lóða. Sjávarútvegsnefnd-Ed. fellst ábreyt- ingar þær, sem frv. hefir orðið fyrir í Nd., þar sem það þó »inniheldur þau atriði, sjávarútveginum til trygg- ingar, sem var aðaltilgangur vor með hinu upphaflega frumvarpi«. Frsm. Kristinn Danielsson. Tillöqur urn landsreihnmqana. Fjárhagsnefnd Ed. ræður til, að samþ. verði óbreyttar tillögur þær, sem komnar eru frá Nd., út af at- hugasemdum yfirskoðunarmanna landsreikninganna fyrir árin 1914 og 19x5. Sama nefnd felst og á frv, um samþ. á landsreikningunum 1914 og 1915, eins og það kom frá Nd. Frsm. Hannes Hafstein.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.