Morgunblaðið - 14.09.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.09.1917, Blaðsíða 1
IFöstudag 4. árgangr 14. sept. 1917 MORGUNBLADID 311. tölublað Ritstjórnarsimi nr. 500 R tstjóri: Vilhjilmnr Finsen ísaf'oldarprentsmiója Afgreiðsiusími nr. 500 I. 0. 0. F. 999149 — I. mmmmm Gamla Bio t— Flóð og fjara Amerískur sjónleikur í 3 þáttum um ást og hjónaband r>ú á dögum. Einkennileg og mjög mikils- varðandi mynd. Hugmyndin tekin eftir gömlu frægu málvetki, sem sýnir: Það sem flóð ber á land tekur fjara afíur. — Ávalt tölusett sæti. — Erl. simfregnir. frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl ). Khöfn 12. sept. Ráðuneytið í Rússlaudi beflr sagt af sér. Kerensky stjórnar land- inu e un og heflr tekið sór einveldi í öllum málum. Kolanámur á Austfjörðum. Svo sem kunnugt er, fór Gísli Guðmundsson forstöðumaður efna- rantísóknarstofunnar, að tilhlutun Stjórnarráðsins austur á Seyðisfjörð til þess að skoða kolanámu þá, sem nýlega er fundin á Skálanesi. Atti hann aðallega að rannsaka hlutföllin milli kola og grafit-laganna. Hann er nú nýkominn aftur hingað til bæjarins. Morgunblaðið fór á fund hans í gær og spurði hann tíðinda úr ferða- laginu. Hann kvaðst lítið geta sagt að svo stöddu, því að hann væri nú að vinna að skýrslu, sem hann ætl- aði að gefa stjórnarráðinu og fyr en sú skýrsla væri komin gæti hann eigi gefið nema smávegis upplýsing- ar. Morgunblaðið kvaðst sætta sig við það og sagði hann þá frá á þessa leið: Skálanesbjarg er að sannanverðu við Seyðisfjarðartrynni. Aðstaða er þar ill frá sjó nema í ládeyðu og aðstaða á landi vond — einstigi. Kolalagið er neðarlega í bjarginu og hengiflug fyrir ofan. Fyrst í stað er það liðlega 20 cm. á þykt og út- Herbergi með hipgögnom óskast til leigu fra 1. okt —14 maí. Porgnn fyrirfram. R. v. á. ... ... Tlýja Bíó. mammmstmmm Jiugrökk sysfkin eha Slóri bróðir og lifía sys/ir. Sýnd í siðasta sinn í kvöld. Rykfrakkar fyrir karlmenn, ágæt tegund. Rykkápur fyrir kvenmenn, nýjasta tízka, Regnkápur karla, kvenna og drengja. Jfnefateik byrja eg að keuna 17. sept. Vænt nlegir nem- endur geri svo vel að tala við mig fyrir þann tíma. Vilhelm Jakobsson, Hverfisgötu 43 Hafnarfjarðarbíllinn nr. 9 fer daglega á- milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, Keflavíkur og Grinda- vikur, þegar nægur flutningur býðst. Upplýsingar i talsimum 367 í Reykjavík, 8 i Hafnarfirði, 9 i Keflavík og 5 í Grindavík. Einnig fæst billinn leigður í langar og stuttar ferðir gegn sanngjarnri borgun. Sæmundur Vilhjálmsson, bifreiðarstjóri. flötur þess 3,5 metrar á lengd. Þeg- ar sprengt hafði verið inn um rúm- lega 4 metra, hvarf þetta lag alveg. En nokkru innar komu 3 lög önnur, mjög þunn. Þyknuðu þau á fyrstu metrunum, en þegar innar dró þynt- ust þau aftur og tvö þeirra hurfu alveg. Lagið sem eftir var, var um 12 cm. þykt og rúmlega 1 metri á lengd. Hér og hvar i stálinu voru kolaeitlar, sem víðast hvar hurfu þeg- ar farið var að grafa inn. Grafit minkaði þegar inn i bjargið kom og kolin urðu óblandin og Uta út eins of beztu steinkol. Þegar við skildum þar við, ætlaði Stefán Th. Jónsson konsúll á Seyðis- firði að láta sprengja lengra inn og var skilið þar nokkuð eftir af sprengi- efni til þess. Þaðan fór eg inn í Hánefsstaða- dal, sem er innar í Seyðisfirði, til þess að skoða brúnkolalög þar í dalnum. Lögin eru næfurþunn og lítið útlit um að mikið sé þar af kolum. Þaðan hélt eg til Norðfjarðar og skoðaði kolin i Norðfjarðarhorni, sem er utanvert við Barðsnes. Kola- lögin eru þar í þursabergi og þess vegna ilt að sprengja göng til þess að elta þau. Aðailagið þar er 17 cm. þykt og útflötur þess er i8/4 metri á lengd. Hér og hvar eru kolaeitlar i bjarginu, líkt og i Skála- nesbjargi hjá Seyðisfirði. Kolin eru kolsvöit og gljáandi og óvíða sáust trévíindi í þeim. Aðstaðan frá sjó og landi mjög aðgengileg og væri vert að athuga þetta kolakensli nánar. Nú hélt eg til Eskifjarðar og skoð- aði brúnkolanámu, sem er innarlega i Hólmatindi, uppundan Eskifjarðar- seli. Kolin eru uppi í hátindi, gljúfur fyrir ofan og skriða fyrir neðan. Þar er mjög ilt aðstöðu og óhugsandi að vinna námuna nema bergið væri rutt og sprengd göng innucdir. Kolin eru að útliti mjög svipuð Tjörneskolunum. Þaðan fór eg til Reyðarfjarðar og skoðaði brúnkolanámu, sem er í miðjum Reyðarfirði sunnanverðum, í svokclluðum Jökulbotnum. Kola- lögin eru þar báðum megin í gili nokkru og voru fyrst um 20 talsins. Nú hefir verið grafið inn um 9 metra. Lögin hafa runnið saman og nú eru þau að ems 12. Efsta lagið er þykst og er það 34 cm. Þyktin frá efsta lagi til neðsta lags er um 2 —2'/a metri, og líkur eru til þess að öll lögin renni saman í eitt. Náma þessi er uppi í fjalli um mílu vegar frá sjó. Niðurundan er ágæt höfn og bryggja. Var þar áður síldarstöð, en hún hefir nú lagst niður. Jón Arnesen, konsúll Svia á Eski- lirði, hefir fengið námuna til um- ráða. Hefir hann látið vinna þar dálítið seinni hluta sumars, mest- meguis að því að ryðja frá námu- mynninu og leggja veg þaðan fram á hjalla, þar sem kolunum verður safnað saman þangað til snjóar koma og hægt verður að renna kolunum á sleðum niður að höfninni. Nú er verið að reisa þar hús handa 25— 30 manns, sem eiga að vinna i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.