Morgunblaðið - 17.09.1917, Blaðsíða 1
Mánudag
17,
tsept. 1917
H0R6UNBLABID
4. árgangr
314.
tSlublað
Ritstjórnarslmi nr.
500
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen
ísafoldarprentssniðja
AfRreiðslusimi nr. 500
hbbwhi Gamía Bíó ■hbbhh
Misgjörðir föðursins
Ljómandi fallegur og vel leikinn sjónleikur í 3 þáttum
Tekinn af Svenska Biografteatern i Stokkhólmi
Aðalhlutverkin leika hinir góðkunnu sænsku leikarar:
John Eckmann, Karin Molander, Rich. Lund.
Efni myndarinnar er framárskarandi fagurt, afar spennandi
og hlýtur að falla öllum vel i geð.
Erí. símfregtiir
frá fréttar. Isafoldar og Morgunbl.
K.höfD, 15. sept.
Rússar sækja Iram fyrir
sunnan Pskov.
Uppreistin í Rússlandi
hefir nn algerlega verið
bæld niður.
Þýzki sendiherrann í
Buenos Aires hefir verið
kallaður lieim.
Komist hefir upp um
sænska ræðismanninn í
Mexico City að hann hafi
gert sig sekan um skeyta-
flutning fyrir Þjóðverja.
Austurríkismenn hafa
gert ákðf áhlaup hjá San
Gabriele.
Frá alþingi.
Úr samein. þingi í fyrrad.
Þingsályktunartill. um skipun
milliþinganefndar til að íhuga
fossamál landsins, ein umræða.
Umræður urðu allmiklar. Fram-
sögum. Magnús Torfason gat þess,
að það hefði orðið að samkomu-
lagi í nefndinni að þingflokkarnir
3, sem styðja stjórnina, nefndu
sinn mannínn hvor í nefndina, en
að stjórnin hefði óbundnar hend-
ur um 2 mennina.
Þessu andmæltu þeir Sigurður
Stefánsson og Gísli Sveinsson.
Jóhannes Jóhannesson gat þess,
að samkvæmt orðanna hljóðan
væri stjórnin óbundin um skip-
un allra mannanna. Bjarni Jóns-
son og M. Torfason töldu sjálf-
sagt að þingflokkarnir réðu ein-
hverju um* jafn mikilsvert sjálf-
stæðismál og hér væri um að
xæða.
Svo fór að tillagan var samþ.
með 26:4 atkv. og afgr. sem
ályktun alþingis, en margir, sem
réttu upp hendurnar sögðu um
leið: »Með því skilyrði, að stjórn-
in sé óbundin um alla mennina*.
Þingsdl.till. urn verð d lands-
sjóðsvöru; ein umr.
Eftir nokkrar umræður var
samþ. með 22:11 atkv., að við-
höfðu nafnakalli, till. eins og hún
kom frá Ed.
Já sögðu: H. St., H. Kr., Jóh.
Jóh., Jón Jónss., Karl E., M. G.,
M. Kr., M. P., M. T., Matth. Ól.,
Ól. Br., Sig. Sig., Sig. St, St. St.,
Þorl. J., Þorst. J., Þór. J., B. Sv.,
Bj. St., G. Sv., Guðj. Guðl., Guðm.
Ól.
Nei sögðu: Hj. Sn., Jör. Br.,
P. Ottes., P. Þ., Sv. 01., Bj. J.,
B. Kr., E. P., E. Arnórs., G. B.,
Kr. D.
Fjarverandi voru Einar Árna-
son, Einar Jónss., H. H. og P. J.,
en ráðherrarnir 3 greiddu ekki
atkv.
Ályktunin hljóðar svo:
Álþingi ályktar að skora á
landsstjórnina að selja vörurlands-
verzlunarinnar sama verði í öll-
um kaupstöðum landsins og eftir.
pöntun að minsta kosti í einu eða
tveimur aðalkauptúnum hverrar
sýslu.
.....■'—»
LAg
um almenna hjálp vegna dýrtíðar-
innar.
1. gr. Á meðan Norðurálfuófrið-
urinn stendur er stjórninni heimilt
að veita sýslufélögum, bæjarfélögum
og hreppsfélögum lin, til þess að
afstýra verulegri neyð, að dómi
sveitarstjórna, af dýrtið og matvæla-
skorti.
Lánin standi vaxta- og afborgana-
laus, þar til 2 ár eru liðin frá ó-
friðarlokum, en endurgreiðast á
næstu 13 árum frá þeim tima, með
10 % irlegri greiðslu af hinni upp-
runalegu lánsupphæð.
Landsstjórnin setur ninari ákvæði
um lán þessi, úthlutun þeirra og
Leyniskjftl Ameriskur sjónlei. í 3 þáttum Mjög spennandi mynd — sérstak- lega þar sem Rose liðsforingi nær aftur leyniskjölum sínum frá hinum illvígu njósnurum.
Myndin sýnir eitt dœmi skollaleiks þess som leik- inn er bak við tjöldin í stjórnmálaviðskifum þjóð anna — njósnirnar liðsforingjans
notkun. Skal leitast við að verja
þeim meir til atvinnubóta en hall-
ærisstyrks beinlinis.
2. gr. Ef nauðsyn krefur, skal
landsstjórninni heimilt að veita lán
samkv. r. gr. í vörum, með sömu
kjörum sem þar segir.
3. gr. Landsstjórninni veitist heim-
ild til að selja bæjarstjórnum og
sýslunefndum 2800 smálestir af
kolum á 125 kr. lestina á staðnum,
þar sem kolunum er skipað á land
i sýslunni eða kaupstaðnum. Skift-
ist kolaforði þessi niður á sýslu- og
bæjarfélög þannig, að hvert þeirra
fái við þessu verði sem næst þriðja
hluta af kolaforða þeim, er talinn
ver'ður nægja þeim næsta vetur til
heimilisnotkunar. Verðmunurinn
greiðist úr landssjóði.
Sýslu- og bæjarfélög selja kol
þessi aftur, án hagnaðar, þeim er
helzt þurfa hjálpar með, og má
vera mismunandi verð á þeim eftir
ástæðum kaupanda.
4. gr. Enn fremur er landsstjórn-
inni heimilt, á meðan Norðurálfu-
ófriðurinn stendur, að verja fé úr
landssjóði til atvinnubóta, svo sem
til þess að undirbúa stórhýsi,
er sýnilega þarf að reisa innan skams,
hafnargerðir, vita, brýr og vegi, og
til að reka matjurtarækt í stærri stil,
námugröft eða önnur nauðsynjafyrir-
tæki.
5. gr. Nú veita hreppsfélög eða
kaupstaðir einstökum mönnum lán,
þeim til framfæris, eftir 15. sept
1917 og þar til 3 mánuðum eftir
ófriðarlok, og skulu þau lán eigi
talinn sveitarstyrkur.
Lög þessi raska eigi gildandi ákvæð-
um laga um skifti hreppa á meðal
um endurgreiðslu framlaga, er maður
fær af dvalarsveit sinni.
6. gr. Til framkvæmda þessum
lögum heimilast stjórninni lántaka,
svo sem þörf krefur.
7. gr. Lög þessi öðlast gildi þeg-
ar í stað.
Lög þessi voru samþ. í Nd. í
fyrrakveld, og eru þau eins og Ed.
hafði skilið við frv.
Tillaga kom fram frá Sig. Sig.,
Pétri Ottesen og Þorst. Jónssyni um
að fella burt 3. gr. (um kolin), en
hún var feld með jöfnum atkv.
(13:13) að viðhöfðu nafnakalli.
Guðmundnr Finnbogason prófessor
Frv. um að skipa dr. Guðmund
Finnbogason prófessor i hagnýtri
sálarfræði var til 2. og 3. umr. í
Ed. f fyrra kvöld og fór svo, að frv.
var samþ. með 7: 6 atkv. og varð
að lögum.
Já sögðu: Jóh. Jóh., K. E„ Kr.
D7, M. Kr., Sig. J., Guðj. Guðl. og
G. B.
Nei sögðu: Hj. Sn., M. T, Sig.
Egg., E. P„ G. Ól. og H. St. —
H. H. var fjarv.
Áður en frv. var samþ. benti
Magnús Torfason á, að í fjárlögun-
um, sem deildin hefði verið að sam-
þykkja, stæðu 3 þús. kr. til Guðm.
Finnb. hvort árið, og ætti hann
lagalega heimtingu á þvi fé, þó að
prófessorsfrv. yrði samþ.
Fjármálaráðherra svaraði þessu svo,
að áður en leitað yrði staðfestingar
á prófessorsfrv., ef samþ. yrði, mundi
verða fengin yfirlýsing Guðm. Finnb.
um, að hann afsalaði sér fjárlaga-
styrknum.
Heiðursgjöf
til Stephans G. Stephansonar.
í sameinuðu þingi var samþykt I
fyrra kvöld þingsályktunartillaga að
heimila forsetum þingsins að veita
skáldinu Stephani G. Stephansyni 5
þús. kr. heiðursgjöf, og telja upp-
hæðina til þingkostnaðar.
Gæzlustj. Söfnunarsjóðsins
voru kosnir í fyrra dag, sinn af
hvorri deild þingsins.
Af efri deild var kosinn fyrir
timabilið 1918—1921, í stað Tryggva
Gunnarssonar:
Kkmens Jónsson
með 6 atkv. Indriði Einarsson hlaut
5 atkv. og Kristinn Danielsson 1
atkv., en 1 seðill var auður.
Af neðri deild var kosinn fyrir
árin 1918—1919 (i stað Magnúsar
Stephensens)
Einar Gunnarsson
með 11 atkv. Olgeir Friðgeirsson
hlaut 7 atkv., en 2 seðlar voru
auðir.