Morgunblaðið - 19.09.1917, Blaðsíða 1
TMiðv.dag
Í9.
«ept. 1917
NBLADID
4. árgangr
316.
tðlublað
RitstiórnarsírTii nr. 500
Ritstjóri: Viihjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusími nr. 500
Garnía Bíó
Myrkra grsifinn.
Afarspeunandi og áhrifamikill siónleikur í 4 þáttum tneð fotleik,
leikin af beztu dönskum leikurum, svo sem:
Holger Reenberg fri Casino — lvaren Lmul frá Kgl.leikh.
Frú Psilander, Svend Rindom, Ellen Rassow, Joa Iversen,
Helios, W. Bewer o. fl.
Myndin stendur yfir á aðra klukkustund. Betri sæti tölusett kosta
75. Almenn sæti tölusett 50 aura. Pantið aðgöngurn. í síma 475.
VáfnjQQÍng.
Tf)e Briiisf) Dominions Generaf Insurance Compant),
Lfcf.,
tekur sérstaklega að sér vátrygging á
innbuum, vörnm og öðru lausaté. — Iðgjöld hvergi lægri.
Sími 681. Aðalumboðsmaður
Garðar Gíslason.
KvennaskóM í Reykjavík
tekur til starfa um miðjan október. Stdlkur þær, er sótt hafa, gefi
sig fram hið fyrsta við forstöðukonu skólans.
Skólagjald verður 25 kr. fyrir bekkjanemendur, 15 kr. fyrir hús-
stjórnarnemendur, meðgjöf með heimavistar- og hússtjórnarstúlkum 65
kr. á mánuði. í 4. bekk verður eigi tekið neitt aukake^lugjald.
Rvík 17. sept. 1917.
Ingibjörg H. Bjarnason,
Hittist bezt kl. 4—5 e. hád.
Er!. símfregnir.
Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.
K.höfn, 17. sept.
Bráðabirgðastjórnin hefir
lýst Rnsslantl lýðveldi. í
stjórnarnefndinni eiga saeti
Kerensky, Telestchenko,
Verkhovsky, Verdorevsky
og Nikitin.
Kerensky dvelnr nu í
aðalherbúðumim. Rússar
berjast nú eins og hetjur.
Stokkliólmsfundinum
heflr verið frestað um óá-
kveðinn tíma.
Fulltráafundur
verzlunai stéttarinnar
var haldinn í fyrrakvöld í húsi
K. F. U. M. Fundinn sátu 52
manns og auk þess var sent til
fundarins 21 umboð. Til fundar-
ins var stofnað til þess að koma
á fulltrúaráði fyrir verz.lun, iðnað
og siglingar. Fundinn setti for-
maður kaupmannaráðsins Jes
Zimsen konsúll og skýrði frá til-
drögum til fundarins. Var síðan
Jón Brynjólfsson kaupmaður kos-
inn fundarstjóri, og kvað hann
sér til skrifara Páll H. Gíslason
kaupm. — Kaupmannaráðið hafði
samið frumvarp til laga fyrir
verzlunarráð íslands, fulltrúa-
nefnd fyrir þessar þrjár atvinnu-
greinar. Samþykti fundurinn frv.
með nokkrum breytingum þó.
Ráðið skipar 7’ fulltrúa, og
voru þessir kjörnir: Jes Zimsen,
Garðar Gíslason, Jón Brynjólfs-
son, OJ. Johnson, Carl Proppé,
Jensen-Bjerg og Olgeir Friðgeirs-
NÝJA BÍÓ
lóðsugurnar
Sið.'sti kafli í 4 þáttum
Brullaup Irmu Yep
Menn hafa fylgat með sögu liins illviga glæpamannaflokks með vaxandi áhnga. m
Og nú kemur siðasti og veigamesti kafliun. Nú er um líf og dauða að tefla! I
Nú á að skera úr hverjir sigra, Blóðsngurnar eða vinir vorir Pips og Mazamette. 1
issssæm
Piano, Harmonium,
Fiðlur og Gitarar,
og allskonar nótur
fyrir öll hljóðfærin, fæst nú í stóru úrvali í
Hljóðfærahúsi Reykjavikur.
Opið 10—12 og 2—7. Sími 656.
son. Varafulltrúar voru kosnir
Þórður Bjarnason og Ludv. Kaa-
ber með hlutkesti milli hans og
Péturs Halldórssonar. Endurskoð-
endur reikninga fulltrúaráðsins
voru kosnir þeir Pétur Gunnars-
son og Jón Þorláksson og vara-
endurskoðandi Pétur Halldórsson.
í lögunum stendur: »tilgangur
ráðsins er að vernda og efla
verzlun, iðnað og siglingar«. Um
verksvið ráðsins segir ilögunum:
Verksvið ráðsins er:
a) Að svara fyrirspurnum frá
alþingi og stjórnarvöldum og öðr-
um um verzlunar-, toll-, vátrygg-
ingar- og samgöngumál og annað
það, er varðar atvinnugreinir
þær, sem ráðið er fulltrúi fyrir.
Ráðið skal einnig af sjálfsdáðum,
ef þörf þykir, gera tillögur eða
láta í Ijósi álit sitt í þessum
efnum.
b) Að vinna að því að koma
á festu og samræmi í viðskifta-
venjum.
c) Að koma á fót gerðadómum
í málum, er varða þær atvinnu-
greinar, er hér um ræðir.
d) Að safna, vinna úr og birta
skýrslur um ástand þessara at-
vinnugreina, eftir þvi sem föng
eru á.
e) Að fylgjast með breytingum
á erlendri löggjöf og öðrum at-
burðum, er kunna að hafa áhrif
á atvinnuvegi landsins.
f) Að gefa út blað þegar fært
þykir, er skýri frá því markverð-
asta í viðskiftamálum innanlands
og utan. í blaðinu skulu einnig
birt lög og 8tjórnarfyrirskipanir
er snerta atvinnumál.
Á hverju ári skal gefin út
greinileg skýrsla um atgerðir
ráðsins og reikningur um fjárhag
þess undanfarið ár.
—0—
Atvinna
1—2 ársmenn ræð eg frá þessum
tíma að Gufunesi.
Eggert Jónsson
Tungu.
Sími 602.
Það er ástæða til þess að gleðj-
ast yfir myndun ráðs þessa. Það
hefir verið mjög tilfinnanlegur
skortur á samheldni og samvinnu
milli þeirra þriggja atvinnu-
greina, sem hér er um að ræða,
og sérstaklega hefir það verið
tilfinnanlegt, að hér var engin
miðstöð, þar sem hægt var að
leita ábyggilegra upplýsinga um
alt viðvíkjandi atvinnugreinum
þessum. Nú er ráðin bót á þessu
og fyrirkomulag það, sem komið
hefir verið á, getur áreiðanlega
haft mjög mikla þýðingu fyrir
verzlun, iðnað og siglingar þessa
lands. Ma.ður hefir fulla ástæðu
til þess að vænta mikils af ráð-
inu. Svo vel er það mönnum
skipað.
Kaupmannaráðið er nú úr sög-
unni. í þess stað er komið full-
trúaráð verzlunarstéttarinnar og
vonandi nýtt fjör í félagsskapinn.
Ráðið heldur opinni skrifstofu
hér í bænum, í Kirkjustræti 8 B
og erhr.GeorgÓlafsson cand.polit.
forstjóri hennar. En þar getur
hver og einn aflað sér ábyggi-
legra upplýsinga um verzlunar-
mál.