Morgunblaðið - 12.01.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.01.1918, Blaðsíða 1
Xaugard. 12. jan. 1918 nORGUNBLABlÐ 5. árgangr 69. tðlnblað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjón: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusimi nr. 500 l.-=Tr=l Gamla Bio r=TI I Nýársnótt á herragarðinum Randrup verður sýnd í kvöld í siBasta sinn. 95IEIBE Skrifstofur H.f. ,Her9ur‘, H.f. .Bræðingnr, H.f ,Hanknr‘ í Hafnarstræti is, efstu hæð, æru daglega opnar frá kl. 10 árdegis til 5 síðdegis, nema laugardaga og sunnudaga. ÚtbOFganir frá kl. 1—3 þá daga sem skrifstofurnar eru •opnar. Leikfélag Heijkjavíkur. JiommgsQlíman varður íeéRin sunnuóag 13. þ m. Rí. S síðó. Aðgöngumiðár seldir í Iðnó á laugardaginn frá kl. 4—7 síðdegis, með hækkuðu verði, og á sunnudaginn frá kl. 10—12 og 2—8 með 'venjulegu verði. «4 Erl. símfregnir Frá fréttaritara isafoldar og Morgimbl. Khöfn n. jan Norðmenn og Danir hafa viður- kent sjálfstæði Finnlands. Þýzku blöðin eru andvíg ræðu Wilsons. Maximalistar hafa í hyggju að ógilda þjóðarskuld Rtissa. Endutbótum hefir verið komið á i brezka flotaráðuneytinu. Er bærinn að verða kolaiaus? Þeir sem í gær sneru sér til þeirrar einu verzlunar, sem hér hefir verzlað með kol svo nokkru nemi síðustu árin, til þess að kaupa kol, fengu það svar, að engin kol væru til sölu. Þau væru uppseld og því miður engar líkur til þess að kola- skip mundi koma á næstunni. Það er ekki i annað hús að venda með það. »Kol og Salt* ersúeina verzlun, sem kol hefir haft á boð- stólum — auk landssjóðs. Vér spurðumst i gær fyrir á skrif- stofu h.f. >Kol og Salt* um ástæð- una til þessa. Var oss sagt, að þeg- ar frakknesku botnvörpungarnir og flutningaskipið Consul Horn fóru héðan, þá hafi félagið lánað Frökkum 560 smálestir af kolum, gegn borgun i sömu mynt innan ákveðins tíma. Enn fremur hafði þvi verið lofað, að skipið, sem kolin flytti, skyldi ’ að auk taka 2—300 smálestir af kolum til flutnings fyrir félagið, og á það munu menn hafa reitt sig. En þegar skipið kom með kolin, voru það eigi nema þessar 560 smálestir og ekkert að auki. En þær birgðir eru þegar seldar — og meira er ekki til. Skipið gat að sögn eigi rúmað meira, auk saltsins, sem það og hafði meðferðis. Ekkert getur verra komið fyrir oss á þessum kuldatimum en eldi- viðarleysi. En það er fyrirsjáanlegt ef frostín halda áfram. Kuldadaga sem þessa, mun áreiðanlega vera eytt helmingi meiri kolum 1 bæn- um, en venjulega vetrardaga með t. d. 2—3 stiga frosti. Hvaðan á að taka^eldiviðinn ? Til allrar hamingju mun lands- stjórnin eiga 2000—3000 smálestir af kolum hér liggjandi, og hún verð- ur að hlaupa undir bagga með bæjarmönnum og miðla þeim eftir mætti. Kol þessi munu aðallega hafa verið ætluð skipunum, sem í förum eru fyrir landsstjórnina, en þegar svona sérstaklega stendur á — bærinn kolalaus í 18-20 stiga frosti — verður að úthluta kolum til þeirra, sem engu hafa að brenna. Líf og heilsa manna er í veði, þvi að fólk getur ekki verið eldiviðarlaust lengi i harðindum eins og þessum. Þá verður þegar að sjá til þess, að kol verði flutt til landsins. Því miður mun vera erfitt að útvega skip erlendis nú sem stendur og er þá ekki annað að gera, en að láta skip þau, sem landssjóður hefii umráð yfir, taka kolafarm í Bretlandi. Bisp er nú í Bretlandi, líklega um það leyti að fara þaðan áleiðis hingað. Það skip flytur salt að sögn, farm- urinn kominn i skipið, svo það er of seint nú að breyta nokkru til með þann skipsfarm. En þegar Bisp hefir affermt saltfarminn hér — eða í Vestmannaeyjum — þá ætti þegar að senda það skip aftur eftir kolum. Þá er Borg. Það skip liggur nú i Noregi, en því kvað vera ætlað að sækja saltfarm til Bretlands að við- gerðinni lokinni. Þeirri ákvörðun má breyta. Hér er komið nægilegt salt í bráð, »Kol og Salt« á von á 4000 smálestum innan skamms og ekkert útlit til þess að hér verði saltþurð. En kol vantar tilfinnanlega mjög bráðlega og því eigi nema sanngjarnt að Borg verði látin taka kolafarm i stað salts. Það er vonandi að landsstjórnin geri það sem í hennar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir kola- skort hér á landi. Það getur haft alvarlegar afleiðingar ef ekkert er að hafst. Gistihúsleysið. Herra ritstjóri! Viljið þér ljá Imér rúm i yðar heiðraða blaði fyrir neðanritaðar línur. Það er leiðinlegt að verða að liggja úti í Reykjavík þegar frostið stígur um 20 gráður, og geta hvergi feng- ið að standa inni yfir blá nóttina. Eg, sem rita þessar línnr, var stadd- ur í Reykjavík fyrir nokkrum dög- um og hitti þrjá útlendinga, af einu skipinu sem lá hér á höfninni, og spurðu þeir mig hvort það væri ekki gistihús í bænum. Sagði eg það vera. Þeir báðu mig þá að vísa sér á ein- hvern gististað, því að þeir kæmust ekki um borð i skip sitt fyrir stormi og byl. Eg fór nú með þá á alla þá gistisuði, sem eg vissi um, en hvergi var rúm fyrir þessa tnenn. Kl. var nú orðin irum kvöldið og var versta veður. Mér þótti mjög leiðinlegt að skilja við þá, ókunnuga, í slæmu veðri, og segi við þá að þeir skuli koma með mér, að eg sé hér S» • * r\ . , Simi 137. ígurjon Pjetursson -- ^.(..„«».11> Kaupirðu góðan hlut, PÓ mundu hvar þú fekst hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.